1252 - Tjáningarfrelsi

Blöskrar hve auðvelt er að þagga niður í fólki. Moggabloggsguðirnir hafa komist upp með að þagga niður í hverjum sem er hér á blogginu og þó einhverjir kvaki hefur það ekki haft mikil áhrif. Ástæðan er líka alltaf einhver og þó sumir séu fegnir eru aðrir það ekki. Menn geta svosem fært sig annað og gera það en ég er ekki viss um að þeir séu eins beittir þar og fái sama lestur og áður.

Líka er hægt að halda sig nokkurnvegin á mottunni eins og ég og fleiri gerum. Ég reyni að passa mig að vera ekki of persónulegur eða orðljótur og held að mínu bloggi verði seint lokað vegna þess.

Í gær var Ástþór Magnússon fyrrum forsetaframbjóðandi handtekinn og færður til yfirheyrslu og sleppt síðan. Þetta stafar að ég held af kæru frá DV vegna gruns um að Ástþór standi fyrir skrifum á síðunni „sorprit.com" . Mér þótti þetta nokkuð merkileg frétt og hún rataði í vefmiðlana en virðist ekki ætla lengra.

WikiLeaks hafa verið í fréttum á heimsvísu en ekki er annað að sjá en alþjóðlegu stórfyrirtækin eigi að komast upp með að leggja stein í götu þeirra og á endanum að gera útaf við þá sem þar ráða.

Svona er þetta oftast nær. Það er nóg til af „fréttum" og auðvelt að kæfa það sem manni líkar ekki við. En fjölmiðlar með fjölda fólks í fastri vinnu eiga að þjóna lesendum sínum en ekki mata þá.

IMG 4043Kópavogur á jólum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Hvað á það nú að þýða að blogga klukkan 22:15? Þetta er algert stílbrot Sæmi. Þetta með tjáningafrelsið er snúið og ekkert eitt svar hvernig með skuli fara. Mín afstaða byggist á óskráðum reglum mannlegs samfélags að frelsi eigi að fylgja ábyrgð og hver gjörð hafi einnig sínar afleiðingar. Ástþór hefur alltaf farið yfir mörkin en hann hefur líka verið maður til að taka afleiðingunum. Og hjá okkur hefur þetta verið nokkuð ljóst. Allir eru varðir fyrir persónuníði og obinberum rógi samkvæmt stjórnarskrá og svoleiðis þarf það að vera. Í kjölfar hrunsins hefur viðmiðið breyzt, núna heimta menn frelsi án ábyrgðar. Vikileaks er afleiðing þess. Ég hræðist það satt að segja því ég held að svar yfirvalda birtist í meira eftirliti, hertari reglum og minna frelsi. Þá er illa komið

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 4.1.2011 kl. 08:07

2 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Fyrirgefðu Jóhannes. Ég þurfti bara að fara að sofa og gat ekki beðið.  Er sammála þér um að svonefnt tjáningarfrelsi hefur margar hliðar en alls ekki viss um að ég hafi sömu skoðanir á því og þú að ýmsu öðru leyti. Ætla samt ekkert að fjölyrða um það hér en bendi bara á að það er lítill vandi að verja tjáningarfrelsi þeirra sem maður er alveg sammála.

Sæmundur Bjarnason, 4.1.2011 kl. 08:29

3 Smámynd: Heimir Tómasson

Ég ætla ekki að kommenta neitt á lokanir nér annað, hinsvegar vildi ég segja að mér finnst þetta skemmtileg mynd hjá þér. Skemmtilegar litaandstæður.

En gott blogg hjá þér, að venju.

Heimir Tómasson, 4.1.2011 kl. 09:32

4 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Takk Heimir. Tjáningarfrelsi er mér dálítið hjartans mál og bloggið líka.

Sæmundur Bjarnason, 4.1.2011 kl. 10:31

5 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Ég fékk einu sinni athugasemd frá "blogg-Guðinum", en er hreinlega búinn að steingleyma um hvað það var.

Gunnar Th. Gunnarsson, 4.1.2011 kl. 19:58

6 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Takk Gunnar. Ég hef aldrei fengið athugasemd en man að ég hef a.m.k. einu sinni haft samband við tæknimenn hjá Moggablogginu því þá hafði ég beinlínis týnt gestabókinni. Þeir voru einstaklega viðræðugóðir og hjálpsamir.

Sæmundur Bjarnason, 4.1.2011 kl. 20:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband