24.4.2010 | 00:05
1000 - Já, þúsundasta færslan
Jæja, þá er komið að því. Þetta er hvorki meira né minna en mín þúsundasta bloggfærsla. Það er að segja ef ég hef alltaf númerað rétt. Hef ekki fundið missmíði þar á.
Kannski er þetta mikið og kannski ekki. Í seinni tíð hef ég alltaf bloggað á hverjum degi hafi ég ekki verið mjög upptekinn við annað. Það sem auðveldar mér að halda númeraröðinni réttri er að ég byrja alltaf á næstu færslu strax og ég hef sett eina upp. Oftast er það auðvitað bara númerið, en með því verður það þó rétt.
Hef tekið eftir því að fólk horfir helst ekki á ljósmyndir hjá öðrum núorðið. Lætur nægja að skoða sínar eigin. Allir (að minnsta kosti flestir) eiga jú myndavélar og mikill fjöldi farsíma er með myndavél. Áður fyrr var jafnvel til siðs að myrkva stofur og sýna skuggamyndir þegar gestir komu. Slíkt þætti eflaust dónaskapur nú á tímum stafrænna myndavéla. Útaf þessu hef ég tekið upp þann sið að smygla öðru hvoru myndum með blogginu mínu. Þá geta þeir sem það lesa illa komist hjá því að sjá þær. Svo er líka möguleiki að einhverjir séu svo spenntir fyrir myndunum að þeir komi þeirra vegna og lesi bloggið mitt í leiðinni.
Umræðan um hrunið, Icesave og allt það einkennist of mikið af hatri, ofstæki og leiðindum. Jú, stjórnmálamenn brugðust einsog margir aðrir í aðdraganda hrunsins og jafnvel í hruninu sjálfu líka. Útrásarvíkingarnir stálu fjármunum okkar en samt sem áður finnst mér óþarfi að tala eins og sumir gera. Það er ekkert unnið með því að hvetja aðra til sem mestrar reiði. Hún skilar engu. Eyðileggur þá sem henni eru haldnir og er verkfæri andskotans eins og meistari Jón Vídalín sagði forðum.
Og myndir:
Tré ársins 2005. (svo segir á skilti við tréð)
Þessi tré hafa víst verið fyrir einhverjum.
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Efni
Tenglar
Blogg
- Áslaug Benediktsdóttir
- Harpa Hreinsdóttir
- Atli Harðarson
- Anna K. Kristjánsdóttir
- Erlingur Brynjólfsson
- Nanna Rögnvaldardóttir
- Þórunn Sigurjónsdóttir
- Susan Polgar
Skák
Ýmislegt
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
2006
Des. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 | 31 |
Bloggvinir
- Anna Einarsdóttir
- Umsjónarmenn blog.is
- Egill Jóhannsson
- Róslín A. Valdemarsdóttir
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Sigríður Jósefsdóttir
- Arnþór Helgason
- Birgitta Jónsdóttir
- Lýður Pálsson
- Einar Sveinbjörnsson
- Gylfi Guðmundsson
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Villi Asgeirsson
- Sigurður Þór Guðjónsson
- Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson
- Egill Bjarnason
- Jóhann Björnsson
- Ólafur fannberg
- TómasHa
- Ágúst H Bjarnason
- Brjánn Guðjónsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Ragnheiður
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Magnús Helgi Björgvinsson
- Kári Harðarson
- Eiríkur Mörk Valsson
- Ragnhildur Sverrisdóttir
- Ridar T. Falls
- Konráð Ragnarsson
- Vefritid
- Svanur Sigurbjörnsson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Sveinn Ingi Lýðsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Pawel Bartoszek
- Haukur Nikulásson
- Bjarni Harðarson
- Eiður Svanberg Guðnason
- Ómar Ragnarsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- AK-72
- Sigurður Ingi Kjartansson
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Þórarinn Þ Gíslason
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Púkinn
- Lady Elín
- Kolbrún Baldursdóttir
- Jens Guð
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Hrannar Baldursson
- Jón Bjarnason
- Ár & síð
- Jón Ingi Cæsarsson
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Svavar Alfreð Jónsson
- Benedikt Henry Segura
- Marinó G. Njálsson
- Theódór Norðkvist
- Jón Ingvar Jónsson
- Gunnar Þórðarson
- Ólafur Fr Mixa
- Gíslína Erlendsdóttir
- Jóna Á. Gísladóttir
- Heimir Tómasson
- Guðmundur Pálsson
- Ólafur Ragnarsson
- gudni.is
- Guðbjörn Guðbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- G. Valdimar Valdemarsson
- Sigmar Þór Sveinbjörnsson
- Gestur Gunnarsson
- Óskar Þorkelsson
- Ylfa Mist Helgadóttir
- Kristinn Theódórsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Evrópusamtökin, www.evropa.is
- Lýður Árnason
- Brattur
- Marta B Helgadóttir
- Hallmundur Kristinsson
- Sigurður Hreiðar
- Eyþór Árnason
- Bergur Thorberg
- kloi
- Hjalti Tómasson
- Kristjana Bjarnadóttir
- Bjarni Sæmundsson
- Máni Ragnar Svansson
- Emil Hannes Valgeirsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Torfi Kristján Stefánsson
- Haukur Baukur
- Sverrir Stormsker
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Helga Kristjánsdóttir
- Loopman
- Einar B Bragason
- Erna Bjarnadóttir
- Ólafur "Tröllabarn" Georgsson
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Gísli Tryggvason
- Helgi Guðmundsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Þráinn Jökull Elísson
- Þorsteinn Briem
- Hjálmtýr V Heiðdal
- Himmalingur
- Ketill Sigurjónsson
- Sæmundur Bjarnason
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Bjarni Rúnar Einarsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Bókakaffið á Selfossi
- Guðni Karl Harðarson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson)
- Marteinn Unnar Heiðarsson
- Einar G. Harðarson
- Bloggrýnirinn
- kreppukallinn
- Jack Daniel's
- Guðjón Baldursson
- Már Wolfgang Mixa
- Dóra litla
- hilmar jónsson
- Hörður B Hjartarson
- Kristín Bjarnadóttir
- Arnþrúður Karlsdóttir
- Baldur Hermannsson
- Eygló
- Finnur Bárðarson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Loftslag.is
- Jón Daníelsson
- Elín Helga Egilsdóttir
- Helga Þórðardóttir
- Sigurður Grétar Guðmundsson
- Leikhópurinn Lotta
- Dúa
- Hulda Haraldsdóttir
- Kama Sutra
- Bjarni Kristjánsson
- Kristinn Theódórsson
- Blogblaster
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jóhanna Magnúsdóttir
- Andspilling
- Valmundur Valmundsson
- Dingli
- Kristinn Karl Brynjarsson
- Sigurður Einarsson
- Mathieu Grettir Skúlason
- Árni Matthíasson
- BookIceland
- FORNLEIFUR
- Guðbjörn Jónsson
- Högni Snær Hauksson
- Ingólfur Sigurðsson
- Stefán Júlíusson
- Þorsteinn Siglaugsson
Athugasemdir
Til hamingju þúsundkall.
Myndirnar eru góðar, ekki síst vegna myndatextanna.
Emil Hannes Valgeirsson, 24.4.2010 kl. 00:22
Til lukku með áfangann ... er alveg sammála þér með að ljótu orðin, reiðin og heiftin þurfa að víkja, enda gerir slíkt bara illt verra. Er alltaf að benda á þetta. Miklu skemmtilegra að vera jákvæður og uppbyggjandi!!!
Ef ég man rétt þá heitir þessi tindur Skarðsheiðarinnar Heiðarhorn (mynd 5). Þangað upp hef ég komið.
Annars hefur þú greinlega verið á gangi rétt hjá þar sem ég vinn í Hamraborginni. Kannski hóa ég í þig einn góðan veðurdag ef ég sé þig og býð í kaffi. Myndirðu ekki þiggja það?
Grefillinn Sjálfur - Koma svo! 24.4.2010 kl. 00:36
Til hamingju með þúsundustu færsluna.Hálfa húsið við Víghólastíg sem er hér að ofan var áður verslun,fínar myndir hjá þér takk.
Númi 24.4.2010 kl. 00:45
Til hamingju með þennan merka áfanga. Að hafa getað haldið róseminni í gegnum þessa umbrotatíma í 1000 daga er afrek útaf fyrir sig. Að heimsækja bloggið þitt er svona eins og að stíga inní búddaklaustur get ég ímyndað mér. það er alveg rétt athugað að reiðin skaðar mest þann sem er sífellt reiður. Mikilvægast er að finna henni farveg. Vísnagerð er ágæt aðferð... Sennilega voru trjábolirnir áður álmtré. Það sér hver maður að of þétt var gróðursett og ekki hirt um að grisja. Annars er ég einn af fáum sem ekki finnst sniðugt að hafa tré inni í húsagörðum. Nógu stuttur er nú dagurinn fyrir þótt ekki sé vísvitandi aukið á dimmuna.
Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 24.4.2010 kl. 00:45
Takk, Sæmundur.
Ekki veit ég hversu margar af þessum þúsund ég hef lesið. En hitt skiptir mig meiru máli að þú ert hófsmaður. Þú lætur þér í léttu rúmi liggja hvar í flokki fólk er.
Það er gott. Það er afar gott.
Jón Daníelsson, 24.4.2010 kl. 03:38
Gratúlera. Efast um að ég hafi náð þessum áfanga, enda hef ég ekkert logg yfir mínar færslur. Ér þó búinn að vera hér lengi. Alltof lengi. Tek færslur um dægurmál og þras oftast út, þegar þær hafa náð að útvanast.
Vonandi heldurðu áfram í átt að öðru þúsundinu. Alltaf gaman að heimsækja þig. Er ekki sammála um að þeta sé neitt Búddaklaustur. Hér er oft mikið drama á ferð og þótt á yfirborðinu geti þetta litið yfirvegað út, þá er hér oft skarpur broddur undir. Held þú sért raunar svolítill prakkari eins og ég.
Jón Steinar Ragnarsson, 24.4.2010 kl. 05:55
Ég lít hér afar oft inn, en geri þér ekki til geðs að gera athugasemdir nema á tyllidögum
Til hamingju með áfangann, 432 innlit á færslu að meðaltalið. En þú ert örugglega með línurit yfir heimsóknir ef ég þekki þig rétt. Þetta er meiri ásókn en í bækur Þórarins Eldjárns á bókasöfnum.
Það fellur engin aska á þetta blogg, meðan þú getur pikkað á tölvu.
Hver leyfði þér annars að taka mynd af Skarðsheiðinni. Býrðu ekki í Kópavogi?
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 24.4.2010 kl. 06:35
Þúsund þakkir.
Emil, já þetta með myndatextana. Stunum vel ég myndirnar vegna þess að þær passa vel við einhvern ákveðinn texta.
Grefill, jú ég mundi áreiðanlega þiggja það.
Villi, myndin af Skarðsheiðinni er einmitt tekin úr Kópavogi!
Númi, Já einmitt. Ég man eftir verslun þarna og ég held að ekki sé búið að taka það allt í aðra notkun.
Jóhannes, það hefði kannski mátt skilja einhver tré eftir þó þau séu of þétt.
Jón, takk. Man ekki eftir að þú hafi kommentað hér áður. Les oft bloggið þitt.
Jón Steinar, ég er ekkert að hugsa um að hætta. Kannski næ ég 2000 einhvern tíma.
Sæmundur Bjarnason, 24.4.2010 kl. 06:55
Haha, þú hefur beðið framyfir miðnætti með þúsundustu færsluna!
Til hamingju. Ég samgleðst þér!
Hrannar Baldursson, 24.4.2010 kl. 09:35
Menn hafa nú fengið hamingjuóskir fyrir minna Sæmundur. Til hamingju með þennan fína bloggferil. Ég les oft hjá þér enda er friður hér hjá þér.
Myndirnar eru skemmtilegar, ég verslaði oft í hálfa húsið þegar ég bjó þar skammt frá.
Takk fyrir mig
Ragnheiður , 24.4.2010 kl. 10:24
æj leiðrétting : ég verslaði oft í hálfa húsinu
Ragnheiður , 24.4.2010 kl. 10:25
Ég beið spennt eftir þúsundustu færslunni og hélt að við fengjum köku.
Takk fyrir samfylgdina á blogginu, þú hefur þína sérstöðu og þessvegna lesa þig margir.
Anna Einarsdóttir, 24.4.2010 kl. 10:52
bloggari sem bloggar um lífið. að mínu skapi
Brjánn Guðjónsson, 24.4.2010 kl. 12:10
Takk öll. Anna, ég hefði sett köku á Netið ef ég hefði treyst mér til þess.
Sæmundur Bjarnason, 24.4.2010 kl. 12:23
Stundum þegar maður horfir upp á Snællsnes, þá kemur þú í hugann?
Alltaf rólegur og yfirvegaður í svörum.
Ólafur Sveinsson 24.4.2010 kl. 12:28
Til hamingju með daginn, Sæmundur M (ég held við hæfi að sæma þig rómverskri tölu í tilefni áfangans). Kalla gott hjá þér að hafa tölu á hlutunum en meira máli skiptir að þú bloggar oft skemmtilega. Myndirnar líka oft góðar, t.d. Skarðsheiðarmyndin núna. -- Hins vegar er ekki aldauða að hrella fólk með því að sýna því myndir, jafnvel á vegg, og myndir teknar á tölritaða (digital) myndavél njóta sín oft enn betur þegar þeim er skotið um skjávarpa á stórt tjald.
Sigurður Hreiðar, 24.4.2010 kl. 12:34
takk fyrir mig.. ég gerðist bloggvinur hjá þér þegar þú varst búinn með um 300 pistla.. svo ég hef þá lesið 700 amk eftir þig síðan þá :)
Óskar Þorkelsson, 24.4.2010 kl. 14:04
Sæll Sæmundur.
Til lukku með áfangann. Og flott mynd af þessu "hálfa húsi".
Takk fyrir, og einlæg sumarkveðja á þig.
Þórarinn Þ Gíslason 24.4.2010 kl. 14:58
Kama Sutra, 24.4.2010 kl. 17:13
Takk.
Sigurður, ég held að ekki þurfi að myrkva eins vel fyrir skjávarpa og áður þurfti fyrir skuggamyndavélar. Rétt er samt að nefna þetta því tæknin, eins og margt annað, fer stundum í undarlega hringi.
Þórarinn, hálfa húsið hefur oft vakið athygli mína þegar ég á leið þarna um. (sem er nokkuð oft).
Sæmundur Bjarnason, 24.4.2010 kl. 21:02
Til hamingju með áfangann. Það er við hæfi að kvitta undir að oft er gaman að kíkja hingað inn þó ég sé latur að skilja eftir innlitskvitt. Ég sé að flettingar á síðunni eru orðnar 433.013. Það segir mér að fleiri en ég lesi færslur þínar á sama hátt og ég: Kíkja inn á nokkurra daga fresti og lesa þá þær færslur sem bæst hafa við frá síðasta innliti.
Það er gaman að þú skulir rifja upp þessa tíma þegar svokallaðar skuggamyndir voru sýndar til skemmtunar í afmælum, jólaboðum og undir öðrum kringumstæðum er fólk safnaðist saman í heimahúsum.
Jens Guð, 25.4.2010 kl. 22:27
Til gamans fletti ég upp á færslulista mínum. Þar sé ég að mínar færslur eru á þremur árum rétt um 1100. Ég fattaði ekki að fylgjast með því þegar þær urðu 1000. Svona fer þegar maður númerar ekki færslurnar sínar.
Jens Guð, 25.4.2010 kl. 22:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.