7.4.2010 | 04:33
983 - Bloggábyrgð
Ég finn til ábyrgðar. Það eru svo margir sem lesa þessa síðu á hverjum degi. Hvað veit ég nema einhverjir taki mark á því sem ég segi og fari jafnvel eftir því. Sérstaklega þarf ég að fara varlega þegar um pólitísk og umdeild mál er að ræða. Það geri ég samt ekki. Eftirá finnst mér oft að ég hefði getað verið varkárari.
Brjánn Guðjónsson (brjann.blog.is) talar um bloggara sem ekki leyfa athugasemdir við skrif sín og nefnir ýmis nöfn. Mikið er ég sammála honum. Til hvers er að blogga ef ekki má gera athugasemdir en bloggarinn vill bara messa yfir öðrum. Flestir vefmiðlar hafa opið fyrir athugasemdir. Veit ekki hvort nokkrir lesa þær en það er önnur saga. Mbl.is (Mogginn) kallar þessar athugasemdir reyndar blogg og meðhöndlar þær þannig.
Á dv.is þarf maður að passa hvar maður flækist með kursorinn því vissar auglýsingar eru þannig að þær taka fyrirvaralaust til máls ef farið er með hann yfir þær. Hrekkur maður þá í kút. Finnst það heldur ekki til fyrirmyndar hjá vefmiðlum að ef maður vill skoða fréttir þar í ró og næði þá er ekki að vita nema einhver auglýsingaræpa hellist yfir mann óforvarendis með hávaða miklum. Lágmark ætti að vera að leyfa manni að lesa frétt án hávaða vilji maður það. Kannski er ég bara svona viðkvæmur fyrir hljóðum og óhljóðum hverskonar.
Margt er það sem miður fer
hjá manna sonum.
En minnisstæðast alltaf er
að unna konum.
Minnir að ég hafi gert þessa vísu en er ekki viss. Gömul er hún áreiðanlega. Hef kannski prjónað hluta hennar við eitthvað sem ég hef heyrt eða lesið. Slíkt geri ég oft.
Minntist á hafragraut í færslu um daginn. Með því vinsælla sem ég hef skrifað. Uppskrifin góð. Matargerð er mér ekki lagin. Betri við skriftir. Var ekki vaninn á að nota sykur útá hafragraut þegar ég var lítill. Hafragrautur var skárri en hræringur (skyr og hafragrautur hrært saman - ógeðslegt) Tómt skyr var samt best. (Með sykri). Já, og meðal annarra orða, er búinn að prófa að setja kanel og hunang útá eða útí hafragrautinn eins og mér var ráðlagt í athugasemdum. Það er ágætt.
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Efni
Tenglar
Blogg
- Áslaug Benediktsdóttir
- Harpa Hreinsdóttir
- Atli Harðarson
- Anna K. Kristjánsdóttir
- Erlingur Brynjólfsson
- Nanna Rögnvaldardóttir
- Þórunn Sigurjónsdóttir
- Susan Polgar
Skák
Ýmislegt
Eldri færslur
2025
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
2006
Mars 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | ||||||
2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 |
9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 |
16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 |
23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 |
30 | 31 |
Bloggvinir
-
Anna Einarsdóttir
- Umsjónarmenn blog.is
-
Egill Jóhannsson
-
Róslín A. Valdemarsdóttir
-
Salvör Kristjana Gissurardóttir
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Arnþór Helgason
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Lýður Pálsson
-
Einar Sveinbjörnsson
-
Gylfi Guðmundsson
-
Kristín M. Jóhannsdóttir
-
Villi Asgeirsson
-
Sigurður Þór Guðjónsson
-
Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson
-
Egill Bjarnason
-
Jóhann Björnsson
-
Ólafur fannberg
-
TómasHa
-
Ágúst H Bjarnason
-
Brjánn Guðjónsson
-
Jakob Falur Kristinsson
-
Stefán Friðrik Stefánsson
-
Helgi Jóhann Hauksson
-
Ragnheiður
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Magnús Helgi Björgvinsson
-
Kári Harðarson
-
Eiríkur Mörk Valsson
-
Ragnhildur Sverrisdóttir
-
Ridar T. Falls
-
Konráð Ragnarsson
-
Vefritid
-
Svanur Sigurbjörnsson
-
Sveinn Atli Gunnarsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Friðrik Þór Guðmundsson
-
Baldur Kristjánsson
-
Sveinn Ingi Lýðsson
-
Hlynur Þór Magnússon
-
Pawel Bartoszek
-
Haukur Nikulásson
-
Bjarni Harðarson
-
Eiður Svanberg Guðnason
-
Ómar Ragnarsson
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Jón Steinar Ragnarsson
-
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
AK-72
-
Sigurður Ingi Kjartansson
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Þórarinn Þ Gíslason
-
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Púkinn
-
Lady Elín
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Jens Guð
-
Gunnar Th. Gunnarsson
-
Hrannar Baldursson
-
Jón Bjarnason
-
Ár & síð
-
Jón Ingi Cæsarsson
-
Jenný Anna Baldursdóttir
-
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
-
Svavar Alfreð Jónsson
-
Benedikt Henry Segura
-
Marinó G. Njálsson
-
Theódór Norðkvist
-
Jón Ingvar Jónsson
-
Gunnar Þórðarson
-
Ólafur Fr Mixa
-
Gíslína Erlendsdóttir
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Heimir Tómasson
-
Guðmundur Pálsson
-
Ólafur Ragnarsson
-
gudni.is
-
Guðbjörn Guðbjörnsson
-
Lúðvík Júlíusson
-
G. Valdimar Valdemarsson
-
Sigmar Þór Sveinbjörnsson
-
Gestur Gunnarsson
-
Óskar Þorkelsson
-
Ylfa Mist Helgadóttir
-
Kristinn Theódórsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Gunnar Skúli Ármannsson
-
Evrópusamtökin, www.evropa.is
-
Lýður Árnason
-
Brattur
-
Marta B Helgadóttir
-
Hallmundur Kristinsson
-
Sigurður Hreiðar
-
Eyþór Árnason
-
Bergur Thorberg
-
kloi
-
Hjalti Tómasson
-
Kristjana Bjarnadóttir
-
Bjarni Sæmundsson
-
Máni Ragnar Svansson
-
Emil Hannes Valgeirsson
-
Sigurður Þorsteinsson
-
Torfi Kristján Stefánsson
-
Haukur Baukur
-
Sverrir Stormsker
-
Axel Jóhann Hallgrímsson
-
Helga Kristjánsdóttir
-
Loopman
-
Einar B Bragason
-
Erna Bjarnadóttir
-
Ólafur "Tröllabarn" Georgsson
-
Svanur Gísli Þorkelsson
-
-
Emil Örn Kristjánsson
-
Gísli Tryggvason
-
Helgi Guðmundsson
-
Rakel Sigurgeirsdóttir
-
Þráinn Jökull Elísson
-
Þorsteinn Briem
-
Hjálmtýr V Heiðdal
-
Himmalingur
-
Ketill Sigurjónsson
-
Sæmundur Bjarnason
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Bjarni Rúnar Einarsson
-
Friðrik Hansen Guðmundsson
-
Bókakaffið á Selfossi
-
Guðni Karl Harðarson
-
Axel Þór Kolbeinsson
-
Hlynur Þór Magnússon
-
Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson)
-
Marteinn Unnar Heiðarsson
-
Einar G. Harðarson
-
Bloggrýnirinn
-
kreppukallinn
-
Jack Daniel's
-
Guðjón Baldursson
-
Már Wolfgang Mixa
-
Dóra litla
-
hilmar jónsson
-
Hörður B Hjartarson
-
Kristín Bjarnadóttir
-
Arnþrúður Karlsdóttir
-
Baldur Hermannsson
-
Eygló
-
Finnur Bárðarson
-
Andri Geir Arinbjarnarson
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Hilmar Gunnlaugsson
-
Loftslag.is
-
Jón Daníelsson
-
Elín Helga Egilsdóttir
-
Helga Þórðardóttir
-
Sigurður Grétar Guðmundsson
-
Leikhópurinn Lotta
-
Dúa
-
Hulda Haraldsdóttir
-
Kama Sutra
-
Bjarni Kristjánsson
-
Kristinn Theódórsson
-
Blogblaster
-
Halldóra Hjaltadóttir
-
Jóhanna Magnúsdóttir
-
Andspilling
-
Valmundur Valmundsson
-
Dingli
-
Kristinn Karl Brynjarsson
-
Sigurður Einarsson
-
Mathieu Grettir Skúlason
-
Árni Matthíasson
-
BookIceland
-
FORNLEIFUR
-
Guðbjörn Jónsson
-
Högni Snær Hauksson
-
Ingólfur Sigurðsson
-
Stefán Júlíusson
-
Þorsteinn Siglaugsson
Athugasemdir
Hlægilegt að leyfa ekki athugasemdir, eða að ritskoða þær... ömurlegasta sem hægt er að gera á blogginu.
Og já þessar auglýsingar með hljóði... aldrei að kaupa neitt af mönnum sem auglýsa svoleiðis.
DoctorE 7.4.2010 kl. 09:29
Hunang út á hafragraut,
hann þar lífsins skamma naut,
en út af diski allt það flaut,
og önnur buxnaskálmin blaut.
Þorsteinn Briem, 7.4.2010 kl. 09:34
Hunang út á hafragraut
hafði Steini í tösku.
Ljómandi þar lífsins naut
og lýsið drakk úr flösku.
Sæmundur Bjarnason, 7.4.2010 kl. 10:24
Aldrei heldur að kaupa neitt af neinum sem misnotar athugasemdir á annarra manna bloggsíðum með því að auglýsa eitthvað, t.d. Nýju Karlakrækjuna sem ég var að fá til landsins.
Svoleiðis fólk er til skammar. Susssss ....
Grefillinn Sjálfur - Koma svo! 7.4.2010 kl. 12:43
Það er mjög auðvelt að losna við allar þessar auglýsingar og pop-up glugga sem eru útum allt. Bara nota Firefox vafrann og addon sem heitir noscript . Þetta er mun áhrifaríkara heldur en að blokkera eða disable java/flash. Með Firefox+NoScript getur maður stjórnað hvaða síður mega keyra script og hverjar ekki. Munum að sumir ósvífnir hakkarar hafa notað scrpt til að sýkja tölvur saklausra netverja.
Þeir sem nota athugasemdakerfið til að auglýsa sjálfa sig ættu nú bara að vera hjá hinum perrunum á Barnalandi
Og þeir sem ekki geta sýnt almenna kurteisi í athugasemdum ættu náttúrulega ekki að skrifa athugasemdir á netið. Því menn verða að hafa í huga að athugasemdir jafnt sem aðalfærzlurnar lifa sjálfstæðu lífi á leitarvélum eins og Google. Örsjaldan hafa athugasemdir mínar verið fjarlægðar, sem sýnir náttúrulega lágan tilfinningaþröskuld viðkomandi bloggara en er að sjálfsögðu ekki vegna ruddaskapar af minni hálfu
en samt veit maður aldrei hverja, maður hittir á fleti fyrir á blogginu. Stundum fara líka sárasaklausar athugasemdir þversum í fólk, vegna þess að þær eru misskildar.. En þegar allt kemur til alls ættu allir að hafa þessa heilræðavísu meistara Einars Ben að leiðarljósi við bloggskriftir
-------------------------------------
Það smáa er stórt í harmanna heim –
höpp og slys bera dularlíki – ;
og aldrei er sama sinnið hjá tveim,
þótt sama glysi þeir báðir flíki. –
En mundu, þótt veröld sé hjartahörð,
þótt hrokinn sigri og rétturinn víki,
bölið, sem aldrei fékk uppreisn á jörð,
var auðlegð á vöxtum í guðanna ríki.
Eitt bros – getur dimmu í dagsljós breytt,
sem dropi breytir veig heillar skálar.
Þel getur snúist við atorð eitt.
Aðgát skal höfð í nærveru sálar.
Svo oft leyndis strengur í brjósti sem brast
við biturt andsvar, gefið án saka.
Hve iðrar margt líf eitt augnakast,
sem aldrei verður tekið til baka.
Úr Einræðum Starkaðar eftir Einar Benediktsson
Er þetta ekki alger snilld?
Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 7.4.2010 kl. 13:26
Ef Bill Gates heimtar að ég noti Windows, þá nota ég Windows og eftir að hann gekk af Nescape dauðu þá notar maður Explorerinn bara af því að honum er haldið að manni. Svona er maður nú leiðitamur.
Athugasemdin hjá Grefli er stutt og fyndin. Það bjargar honum.
Það er til of mikils ætlast af Bloggverjum að þeir séu á borð við Einar Ben.
"Aðgát skal höfð í nærveru sálar." Betur verður ekki komist að orði.
Sæmundur Bjarnason, 7.4.2010 kl. 13:57
Sá biskupinn útí Bónus áðan og datt þetta í hug á leiðinni heim
Biskupinn verslar í Bónusi
-breizk eru mannanna börn-
því er ég að þessu þusi?
þegar hann pakkar í vörn
e.s Bónusi er skáldaleyfi, rímsins vegna
Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 7.4.2010 kl. 18:15
Hafragraut og heilsufæði
hita Sæmi kann
Þótt örbylgjur og eðlisfræði
ekki skilji hann
Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 7.4.2010 kl. 18:26
Biskupinn í Bónus fór.
Bregðaði Jóa mikið.
Útí búð hann sterkur stór
staulaðist með prikið.
Sæmundur Bjarnason, 7.4.2010 kl. 19:35
Sæmundur, þetta er rétt hjá Jóhannesi.
Að fá sér ekki Firefox sem vafra er eins og að þvertaka fyrir að nota bílskúrshurðaropnara, og opna þá bara með handafli.
Þetta virkar á öll stýrikerfi. Ferð bara á Firefox.com, sækir forritið, keyrir það upp og bætir við þeim forritum sem þér finnst auka þægindin á netinu.
Það er líka til góð viðbót fyrir Firefox sem kallast Adblock. Það hefur linað miklar þjáningar.
Hrannar Baldursson, 7.4.2010 kl. 21:53
Hrannar, þetta eru engar sérstakar þjáningar þó explorerinn virki ekki alltaf eins og til er ætlast og hægt væri að hugsa sér að hann gerði. Ég hef prófað Firefox og satt að segja er nánast enginn munur á honum og explorernum eins og ég er vanastur að nota vafra. Í sumum tilfellum getur vel verið að það muni heilmiklu. Sumir eru líka bara á móti öllu sem kemur frá Microsoft. Einu sinni var deilt mikið um Pésa og Makka, nú eru það frekar Explorer og Firefox eða Windows og Linux. Ef tölvur eru aðaláhugamál fólks er eðlilegt að það skoði þessi mál en almennur notandi þarf ekki að velta þessu mikið fyrir sér.
Sæmundur Bjarnason, 7.4.2010 kl. 22:34
Ég held úti fullkomlega ábyrgðarlausri bloggsíðu en nenni samt varla að blogga um neitt nema veðrið!
Sigurður Þór Guðjónsson, 7.4.2010 kl. 23:23
Ég tek samt alltaf mark á því sem þú segir um veðrið, Sigurður. Það þýðir ekkert að koma núna og segja að þetta sé ábyrgðarlaust. Ég tek meira mark á því sem þú og Einar Sveinbjörnsson segið um veðrið en því sem Veðurstofan segir. Kannski ertu svolítið svartsýnni en aðrir í langtímaspám en þá er hægt að svissa yfir í Veðurklúbbinn á Dalvík eða kálfsmaga ef þeir fengjust.
Sæmundur Bjarnason, 7.4.2010 kl. 23:49
Sæmundur. Ég hef ekkert á móti Microsoft. Það er margt frábært sem kemur frá þeim. En reynsla mín af vöfrum er að stundum hentar Firefox betur og stundum Explorer. Þeir virka einfaldlega ekki alveg eins, enda hefur Microsoft sína eigin staðla.
Hrannar Baldursson, 8.4.2010 kl. 06:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.