916 - Beðið eftir Bessastaðabóndanum

Ég vil gjarnan líta svo á að Icesave-málið snúist ekki fyrst og fremst um krónur og aura. Ekki heldur um hvort aðrar þjóðir beri virðingu fyrir okkur Íslendingum og vilji leyfa okkur að vera memm. Og ekki ræður það úrslitum um sjálfstæði okkar eða örlög ríkisstjórnarinnar. 

Það hvort Ólafur Ragnar Grímsson undirritar Ísbjargarlögin eða ekki getur samt haft áhrif á stjórnskipan okkar Íslendinga til langs tíma. Undirriti hann lögin er forsetaembættið marklaust og þýðingarlaust í stjórnmálalegu tilliti eins og það var áður en Ólafur varð forseti.

Sameiningartákn þjóðarinnar verður það þegar best lætur. Þannig er það víðast hvar er í löndunum í kringum okkur.  Konungar og forsetar eru þar einkum til skrauts. Framkvæmdavaldið er hjá þinginu og það fer einnig með löggjafarvald.

Neiti hann að undirrita lögin aukast áhrif forsetaembættisins. Hvort svo verður til langframa er óvíst. Þeir sem ákafast biðla til Ólafs nú um að undirrita ekki lögin munu ekki heldur kæra sig um nýtt og breytt stjórnskipulag. Að minnsta kosti á þetta við um stjórnmálaflokkana, þeim vantreysti ég alltaf. Beint lýðræði gæti að vísu skotið rótum þá og auknar líkur væru á stjórnlagaþingi og þjóðaratkvæðagreiðslur gætu orðið algengari en verið hefur.

Þjóðin mænir í ofvæni á Bessastaði þessa dagana. Ætli Grímssyni líki það ekki bara vel?

Hörmulegt er að ekki skuli hafa náðst samstaða um ríkisábyrgðina á Icesave-skuldunum.

Það er varla viðeigandi að vera að tala um ESB núna en ég ætla samt að gera það.

Ég er fylgjandi því að Íslendingar gangi í ESB. Hef lengi verið það og mun ekki breyta um skoðun svo auðveldlega. Niðurstaðan úr samningaviðræðunum um aðild sem væntanlega fara af stað bráðlega skiptir þó vissulega máli. Fæ reyndar ekki séð hvernig ríkisstjórnin ætlar að koma aðildarfrumvarpi gegnum þingið í andstöðu við Steingrím sjálfan.

Hugsanlega þarf ekki að treysta á þingmenn í sambandi við ESB. Kannski er hægt að senda niðurstöðuna úr samningaviðræðunum rakleitt í þjóðaratkvæðagreiðslu. Allmargir virðast telja að þjóðaratkvæðagreiðsla um aðild að ESB verði ekki haldin. Útilokað er að ríkisstjórnin telji sig geta komist upp með að sleppa henni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Mér finnst við eiga að hafa Kóng eða jafnvel keisara. Það sæmir ekki svona úberþjóð að hafa réttan og sléttan forseta   Ætli Þórhildur vilji verða Drottningin okkar?

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 4.1.2010 kl. 00:26

2 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Hefur ekki Ólafur einmitt aukið keisaralega tign embættisins? Líklega eru það Obama og Sarkozy sem hann vill helst líkjast.

Sæmundur Bjarnason, 4.1.2010 kl. 00:46

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Minnisstætt að fyrir mörgum árum voru heitar umræður um Ólaf sem forseta, og jafnvel haldið fram að einn góðan veðurdag,myndi Ólafur forseti gera misstök,sem kostuðu hann embættið. Það hefur ekki gengið eftir.

Helga Kristjánsdóttir, 4.1.2010 kl. 03:54

4 Smámynd: Kama Sutra

Ég verð að viðurkenna að ég hef hálfgerða samúð með karlinum núna - þótt hann eigi það kannski ekki endilega skilið.  Hann verður í arfavondum málum á hvorn veginn sem hann lendir Ísbjörginni.  Í báðum tilfellum fær hann hálfa þjóðina upp á móti sér - bara sitt hvorn helminginn.

Kama Sutra, 4.1.2010 kl. 04:34

5 Smámynd: Yngvi Högnason

Hvernig getur hann fengið hálfa þjóðina á móti sér þó að 62 þúsund manns hafi skrifað undir á netinu eftir að hafa æst hver annan upp á Facebook? Það eru 228 þúsund manns á kjörskrá og ég fæ annað út ef ég deili í það með tveimur.

Yngvi Högnason, 4.1.2010 kl. 09:21

6 Smámynd: Sigurður Grétar Guðmundsson

Ólafur Ragnar mun samþykkja lögin, sanniði til. Hann er allt og reyndur og glöggur stjórnmálamaður til að ýta þjóð sinni út í það kviksyndi sem hún lendir í ef hann samþykkir ekki. Að bera saman Icesave málið og Fjölmiðlalögin er út í hött, það hefur ekki snert nokkurn mann þó hann hafi synjað þeim lögum samþykki.

Sigurður Grétar Guðmundsson, 4.1.2010 kl. 13:39

7 Smámynd: Kama Sutra

Yngvi

Hvort sem okkur líkar betur eða ver getum við ekki alfarið litið framhjá niðurstöðum flestra skoðanakannanna um þetta mál, hverra niðurstöður eru nokkuð samhljóma um að 70% þjóðarinnar vill ekki að forsetinn staðfesti lögin.  Því miður.

Kama Sutra, 4.1.2010 kl. 18:54

8 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Takk öll. Mér finnst ekki útí hött að bera saman þessi mál. Það er ekki hægt að ákveða að sum mál séu þýðingarmeiri en önnur. Ein regla verður að gilda. Held samt að Ólafur muni undirrita lögin. Rökstuðningur fyrir því getur ekki verið sá einn að málin séu ósambærileg þó þau séu það vissulega.

Helga, man ekki eftir þessu máli. Tek yfirleitt ekki mark á spádómum.

Kama Sutra, ég vorkenni honum ekki. Hann kom sér í þessa stöðu.

Yngvi, útreikningar af þessu tagi hafa lítið gildi.

Sigurður Grétar, ef Ólafur skrifar ekki undir þá er það ekki hann sem hefur ýtt þjóðinni út í kviksyndi, heldur þeir sem krefjast þess af honum.

Líklega er þetta orðið ansi mótsagnakennt hjá mér, en eru ekki allir orðnir hálfruglaðir á þessari bið?

Sæmundur Bjarnason, 4.1.2010 kl. 20:35

9 Smámynd: Kama Sutra

Það verður allavega seint sagt um Ólaf Ragnar að hann sé tregur að troða sér í sviðsljósið og halda sér þar.

Helvítis fokking fokk.

Kama Sutra, 4.1.2010 kl. 21:13

10 Smámynd: Yngvi Högnason

Auðvitað hafa svona útreikningar ekkert gildi en fullyrðingar um heila og hálfa þjóð og aðrar slíkar vanhugsaðar sem ég set í, "þú veist hvað ég meina" flokkinn, leiðast mér.  

Yngvi Högnason, 5.1.2010 kl. 08:55

11 Smámynd: Sigurður Grétar Guðmundsson

Sæmundur, mikið er ég ósammála þér þegar þú segir:

Sigurður Grétar, ef Ólafur skrifar ekki undir þá er það ekki hann sem hefur ýtt þjóðinni út í kviksyndi, heldur þeir sem krefjast þess af honum.

Auðvitað er endanleg ákvörðun um samþykki eða ekki samþykki á ábyrgð Ólafs Ragnars eins, þeir sem hafa með undirskriftasöfnunum eða öðrum ráðum reynt að hafa áhrif eru ekki þeir sem ábyrgðina bera. Þetta er svipað og hefur víða komið fram á blogginu að lögin frá 30. des. 2009 hafi í raun ekki verið samþykkt vegna þes að sumir þingmanna VG hafi verið þvingaðir til að greiða frumvarpinu atkvæði sitt.

Er hægt að komast lengra í ruglingslegum málflutningi!

Ég benti einum sem fór mikinn í þessari röksemdafærslu á að þá mætti allt eins búast við að sumir af þingmönum stjórnarandstöðunnar hafi verið þvingaðir til að greiða atkvæði gegn.

Ég held samt að hver og einn þingmaður hafi að lokum greitt atkvæði eins og hann taldi skynsamlegast eftir að hafa gaumgæft málið vel.

Sigurður Grétar Guðmundsson, 5.1.2010 kl. 09:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband