2902 - Þriðja heimsstyrjöldin

Á hvaða hátt munu ferðalög breytast á næstu árum? Enginn vafi er á því að loftslagsvá sú sem sífellt er predikuð mun hafa áhrif á ferðavenjur okkar. Munum við í vaxandi mæli snúa okkur aftur að skipum? Rafknúnum eða seglknúnum skipum vel að merkja. Mér finnst mun líklegra að skipaflutningar muni leysa orkuvandann með endurnýjanlegri orku, en að flugvélar muni gera það. Annars væri hægt að fabúlera endalaust um þetta. Þróun farþegaflugvéla hefur staðið nánast í stað í marga áratugi. Miðað við breyttar forsendur vegna loftslagsmála og margs annars er vissulega kominn tími til markverða breytinga.

Allt er nú að verða vitlaust útaf þessu morði á Súleiman hershöfðigja. Ég hef samt litla trú á að þetta leiði til stríðs. Auðvitað er Trump afleitur. Jafnvel Bandaríkjamenn viðurkenna það, margir hverjir, meira að segja án þess að vera Demókratar. Ég held samt að ég skilji orðið nokkurnvegin hans hugsanagang. Auðvitað er aðgerðin sem slík vanhugsuð mjög og leiðir á endanum til aukins vantrausts á Trump um allan heim ef ekki til annars verra. Hann er reyndar mjög óvinsæll víðast hvar í heiminum. Ekki bara í Miðausturlöndum. Sé haldið áfram með þessa hugsun um Bandaríkin gæti það síðan leitt til aukinnar einangrunar landsins (sem raunar er heil heimsálfa) og þar með til minnkandi líkinda á þúsund ára ríkinu, sem ég er ekki í vafa um að marga í Bandaríkjunum dreymir um, Trump meðtalinn. Gott ef hann reynir ekki eitthvað til að lengja forsetatíð sína. Sjálfsdýrkun hans og fljótfærni á sennilega eftir að verða honum að falli.

Að setja smágat með nál fremst á snuðið hjá smábörnum til að fá svolitinn frið fyrir þeim og venja þau af snuðinu, er nýjasta trixið í bókinni. Af hverju kemur þetta næst á eftir hugleiðingum um Trump karlinn? Jú, hann er einmitt afskaplega barnalegur stundum.

Ég er núna önnum kafinn við að gera tilraunir á sjálfum mér með megrunaraðferðinni sem er kölluð „Intermittent fasting“. Hún er þannig að ég má ekki borða neitt í eina 16 tíma, en svo má ég borða eins og mér sýnist og ég er vanur í 8 klukkutíma. Skipti um hádegið dag hvern. Það er svolítið erfitt að vera andvaka og mega ekki fá sér neitt. Morgnarnir eru ekki nærri eins mikið vandamál, því ég er vanur að sleppa morgunmat. Annars er þetta ekki fyrst og fremst í megrunarskyni gert, heldur hef ég þá trú að þetta sé hollt. Tvær nætur eru búnar með andvökum og tilheyrandi.

Hef að undanförnu ekki farið í morgungöngu eins og ég er vanur. Helst er veðrinu um að kenna. Umhleypingarnir og hálkan eru erfið fyrir gamalmenni eins og mig.

Þetta er fremur stutt blogg, en ég nenni bara ekki að hafa það lengra. Þar að auki virðist lesendum mínum (samkvæmt Moggabloggsteljaranum) fara fækkandi, enda engin furða því ég er víst svo leiðinlegur.

IMG 6447Einhver mynd.


Bloggfærslur 6. janúar 2020

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband