30.11.2009 | 06:29
880 - Tinna Bjarnadóttir
Í dag (sunnudag) var Tinna Alexandra Sóley Bjarnadóttir skírð í Hallgrímskirkju í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd. Í morgun leit fremur illa út með veður en það lagaðist þegar á daginn leið og nokkuð margir komu í skírnarveisluna.
Hvort á nafnið Bolunga(r)vík að vera með erri eða errlaust? Í mínum huga er Bolungavík líklega réttara ef málið snýst um hvort vísað sé í einn eða fleiri bolunga hvað sem það nú er. Bolungarvík held ég að sé samt algengara og það nafn prýddi kransaköku þá sem mynd var af á mbl.is í dag í tilefni af gerð jarðganga til Ísafjarðar. Auðvitað eiga íbúar Bolunga(r)víkur að ráða þessu og grunur minn er að endalaust megi um þetta deila.
Vel má líka deila um hvort réttlætanlegt sé að leggja skattpeninga í umferðarmannvirki sem fáum gagnast. Þar lenda menn fljótt í ógöngum ef rætt er um þessi göng sérstaklega því ómögulegt er að verðleggja af skynsemi þægindi og minni slysahættu.
Sjálfur er ég þeirrar skoðunar að skattfé skuli í meginatriðum nota í verkefni til jöfnuðar. Mál sem tengjast samgöngum eru þar oft mikið hitamál og skipta fólki jafnvel í fylkingar eftir landshlutum. Ómögulegt er að skipta vegafé eftir einhverjum reiknistokksaðferðum og þess vegna verða ágreiningsefnin þar mörg.
Ekki er á ósamkomulagið meðal þjóðarinnar bætandi þegar hún er í sárum eftir bankahrunið. Að reyna að hlífa þjóðinni við smærri átökum vegna þess er kannski ein versta brotalömin í kerfinu. Rannsóknum á þjófnaði úrásarvíkinganna miðar grátlega hægt og tilfinning margra er sú að þeir séu aftur að ná fantatökum á þjóðfélaginu. Það er hættulegt. Þjóðin er breytt eftir atburði haustsins 2008.
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Efni
Tenglar
Blogg
- Áslaug Benediktsdóttir
- Harpa Hreinsdóttir
- Atli Harðarson
- Anna K. Kristjánsdóttir
- Erlingur Brynjólfsson
- Nanna Rögnvaldardóttir
- Þórunn Sigurjónsdóttir
- Susan Polgar
Skák
Ýmislegt
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
2006
Jan. 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Bloggvinir
- Anna Einarsdóttir
- Umsjónarmenn blog.is
- Egill Jóhannsson
- Róslín A. Valdemarsdóttir
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Sigríður Jósefsdóttir
- Arnþór Helgason
- Birgitta Jónsdóttir
- Lýður Pálsson
- Einar Sveinbjörnsson
- Gylfi Guðmundsson
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Villi Asgeirsson
- Sigurður Þór Guðjónsson
- Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson
- Egill Bjarnason
- Jóhann Björnsson
- Ólafur fannberg
- TómasHa
- Ágúst H Bjarnason
- Brjánn Guðjónsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Ragnheiður
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Magnús Helgi Björgvinsson
- Kári Harðarson
- Eiríkur Mörk Valsson
- Ragnhildur Sverrisdóttir
- Ridar T. Falls
- Konráð Ragnarsson
- Vefritid
- Svanur Sigurbjörnsson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Sveinn Ingi Lýðsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Pawel Bartoszek
- Haukur Nikulásson
- Bjarni Harðarson
- Eiður Svanberg Guðnason
- Ómar Ragnarsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- AK-72
- Sigurður Ingi Kjartansson
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Þórarinn Þ Gíslason
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Púkinn
- Lady Elín
- Kolbrún Baldursdóttir
- Jens Guð
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Hrannar Baldursson
- Jón Bjarnason
- Ár & síð
- Jón Ingi Cæsarsson
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Svavar Alfreð Jónsson
- Benedikt Henry Segura
- Marinó G. Njálsson
- Theódór Norðkvist
- Jón Ingvar Jónsson
- Gunnar Þórðarson
- Ólafur Fr Mixa
- Gíslína Erlendsdóttir
- Jóna Á. Gísladóttir
- Heimir Tómasson
- Guðmundur Pálsson
- Ólafur Ragnarsson
- gudni.is
- Guðbjörn Guðbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- G. Valdimar Valdemarsson
- Sigmar Þór Sveinbjörnsson
- Gestur Gunnarsson
- Óskar Þorkelsson
- Ylfa Mist Helgadóttir
- Kristinn Theódórsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Evrópusamtökin, www.evropa.is
- Lýður Árnason
- Brattur
- Marta B Helgadóttir
- Hallmundur Kristinsson
- Sigurður Hreiðar
- Eyþór Árnason
- Bergur Thorberg
- kloi
- Hjalti Tómasson
- Kristjana Bjarnadóttir
- Bjarni Sæmundsson
- Máni Ragnar Svansson
- Emil Hannes Valgeirsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Torfi Kristján Stefánsson
- Haukur Baukur
- Sverrir Stormsker
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Helga Kristjánsdóttir
- Loopman
- Einar B Bragason
- Erna Bjarnadóttir
- Ólafur "Tröllabarn" Georgsson
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Gísli Tryggvason
- Helgi Guðmundsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Þráinn Jökull Elísson
- Þorsteinn Briem
- Hjálmtýr V Heiðdal
- Himmalingur
- Ketill Sigurjónsson
- Sæmundur Bjarnason
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Bjarni Rúnar Einarsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Bókakaffið á Selfossi
- Guðni Karl Harðarson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson)
- Marteinn Unnar Heiðarsson
- Einar G. Harðarson
- Bloggrýnirinn
- kreppukallinn
- Jack Daniel's
- Guðjón Baldursson
- Már Wolfgang Mixa
- Dóra litla
- hilmar jónsson
- Hörður B Hjartarson
- Kristín Bjarnadóttir
- Arnþrúður Karlsdóttir
- Baldur Hermannsson
- Eygló
- Finnur Bárðarson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Loftslag.is
- Jón Daníelsson
- Elín Helga Egilsdóttir
- Helga Þórðardóttir
- Sigurður Grétar Guðmundsson
- Leikhópurinn Lotta
- Dúa
- Hulda Haraldsdóttir
- Kama Sutra
- Bjarni Kristjánsson
- Kristinn Theódórsson
- Blogblaster
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jóhanna Magnúsdóttir
- Andspilling
- Valmundur Valmundsson
- Dingli
- Kristinn Karl Brynjarsson
- Sigurður Einarsson
- Mathieu Grettir Skúlason
- Árni Matthíasson
- BookIceland
- FORNLEIFUR
- Guðbjörn Jónsson
- Högni Snær Hauksson
- Ingólfur Sigurðsson
- Stefán Júlíusson
- Þorsteinn Siglaugsson
Athugasemdir
"Bolungarvík" virðist vera 46 sinnum algengara á Netinu en "Bolungavík" og "í Bolungarvík" 23svar sinnum algengara en "á Bolungarvík".
Bolung (bulung) - trjábolur, viðarbolur: Bolungarvík.
Bolung er kvenkynsorð, bolungar í eignarfalli eintölu (til bolungar) og nefnifalli fleirtölu (hér eru bolungar).
Hins vegar:
Bolungur - bulungur, haugur af brenni, viðarköstur.
Bulungur - buðlungur, stafli.
Buðlungur - bulungur, móhraukur, stafli af brenni eða timbri.
Sjá Íslenska orðabók Menningarsjóðs.
Þorsteinn Briem, 30.11.2009 kl. 09:38
Steini, ég var að tala um þágufall. Þar finnst mér errið ekki eiga að vera og kynið ekki skipta máli. Er eðlilegt að nota nefnifall ef verið er að tala um vík þar sem bolungar eru?
Sæmundur Bjarnason, 30.11.2009 kl. 11:25
Úpps. Auðvitað meinti ég þolfall en ekki þágufall.
Sæmundur Bjarnason, 30.11.2009 kl. 11:31
Til hamingju með nafnið á afastelpuna.
Axel Þór Kolbeinsson, 30.11.2009 kl. 12:05
Hér er bolung(in), um bolung(ina), frá bolung(inni), til bolungar(innar).
Hér eru bolungar(nar), um bolungar(nar), frá bolung(un)um, til bolunga(nna).
Bolungarvík ef um eina bolung var að ræða en Bolungavík ef þær voru fleiri en ein.
Nafnið gæti einnig verið dregið af orðinu bolungur:
Hér er bolungur(inn), um bolung(inn), frá bolungi(num) eða bolungnum, til bolungs(ins).
Hér eru bolungar(nir), um bolunga(na), frá bolung(un)um, til bolunga(nna).
Þar af leiðandi Bolungavík en ekki Bolungarvík.
Og mér þykir líklegra að víkin sé kennd við bolung í kvenkyni en karlkyni.
"Í Landnámabók er Bolungarvík við Ísafjarðardjúp nefnd svo og þykir því rétt að hafa þá nafnmynd. Eðlilegt er að rita Bolungarvík á Ströndum einnig svo."
Þorsteinn Briem, 30.11.2009 kl. 12:11
Axel takk.
Steini, oft má deila um stafsetningu staðarnafna og forsetningar við þau. Sagnfræðileg, málfræðileg og allskyns önnur rök duga ekki alltaf og því þykir mér eðlilegast að íbúar sjálfir ráði. Verst er ef þeim kemur alls ekki saman. Hefðin og sagan hljóta ef til vill að ráða varðandi Bolungarvík.
Sæmundur Bjarnason, 30.11.2009 kl. 12:33
Gamall Bolvíkingur (nú látinn, Ásgeir Jakobsson) færði að því sannfærandi rök í mín eyru fyrir löngu að víkin sú arna drægi nafn af gömlu heiti þorsksins, bolungur. Í árdaga hefði verið gnótt bolunga og því hefði víkin heitað Bolungavík.
Í Íslenskri orðabók Eddu (ritstj. Mörður Árnason) er aðeins gefið heitið Bolungarvík og ekkert fjasað um það meir. Né gerð tilraun til að sanna þann rithátt með lærðum hætti.
Annan Vestfirðing (enn sprettlifandi) heyrði ég halda tölu um nafn Önundarfjarðar sem hann staðhæfði að hefði fyrir margt löngu haft það sérkenni umfram aðrar sveitir íslenskar að þar hefðu engir hundar verið. Upprunalega nafn fjarðarins hefði því verið Ánhundafjörður. Sagan var góð og vel flutt en ekki sannfærandi.
Eitt örnefni enn má nefna þó á Suðurlandi sé. Ölfus, sveitarfélag. Hvaðan er nafn þess sprottið? Ég hef heyrt eina ágiskun sem mér þykir trúleg: Álfós. Að ósinn mikli sem verður milli Eyrarbakka og Þorlákshafnar hafi upprunalega heitað Álfós eða Álfaós og áin af honum dregið nafnið Álfósá sem síðan smitaðist á sveitarfélagið við ána og varð í hugsunarlausri afbökun að Ölfusi. Hvernig líst þér á þetta, Sæmundur?
Sigurður Hreiðar, 30.11.2009 kl. 18:03
Sæll Sigurður.
Já, þetta er merkilegt með Ölfusið. Ég hef líka heyrt kenninguna um að það sé kennt við foss sem hafi sennilega verið kenndur við öl. Ölfoss hafi þá hugsanlega verið í Soginu. T.d. þar sem nú eru virkjanirnar við Írafoss eða Ljósafoss.
Æri-Tobbi kvað:
Urgara surgara urra rum.
Illt er að vera í Flóanum.
Þambara vambara þeysings klið.
Þó er enn verra Ölfusið.
Hef ekki heyrt söguna um Ánhundafjörð fyrr, en hún er góð.
Sæmundur Bjarnason, 30.11.2009 kl. 19:53
"Drepstokkur, eða Nesós eins og hann heitir nú, fellur í hið mikla fljót Ölfusá. Ekki eru menn á eitt sáttir um hvernig það örnefni er til orðið. Hér mun getið skýringar Einars Arnórssonar í Árnesingasögu. Þingvallavatn hét áður Ölfossvatn, og Sogið hefur sennilega heitið Ölfossá, enda hefur það heiti líklega tekið til árinnar frá mótum Sogs og Hvítár til sjávar.
Sveitin öll frá Nesjum til Þorlákshafnar hefur þá líklega verið nefnd Ölfosssveit. Uppruni þessa nafns sé sennilega sá, að Álfs-oss, þar sem Álfur egðski landnámsmaður lagði skipi sínu er hann kom af hafi um ána, hafi breyst í Ölfoss og síðan í Ölfus, en oss merkir ós. Breytingin sé Álfs-oss, síðar Ölfoss og síðan Ölfus, en Ari fróði nefnir Ölfossá og Ölfossvatn."
Óseyrarnes - Eyrarbakki.is
"Hann bygþi suþr i Raykiarvíc. þar er Iŋolfs höfþi kallaþr fyr austan Minþacs ayri sem hann kom fyrst á land. en þar Iŋolfsfell fyr vestan ölfoss á es hann lagþi sína eigo á síþan. Í þann tíþ vas Ísland viþi vaxit á miþli fiallz oc fiöro."
Tekst med kommentar - heimskringla.no
Þorsteinn Briem, 30.11.2009 kl. 21:40
Steini er duglegur að vitna í heimildir. Ölfoss er ágæt skýring á heiti Ölfusár. En lítið er eftir að þeim fossi eftir að Sogið var virkjað. Annars hefur mér dottið í hug að Ölfusheitið tengist orðinu elfu í merkingunni fljót.
Emil Hannes Valgeirsson, 1.12.2009 kl. 00:31
Til hamingju með skírn barnabarnsins. Gullfalleg nöfn.
Anna Einarsdóttir, 1.12.2009 kl. 20:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.