26.10.2009 | 00:06
845 - Um Loft, Jón og ýmislegt annað
Nú er hamast við að endurvekja útrásartraustið og taka margir þátt í því. Útrásarvíkingarnir ætla sér að komast aftur til valda. Umrætt er meðal bloggara hvernig Morgunblaðið hagar sér. Birtar hafa verið glefsur úr bloggfærslum eða athugasemdum Lofts Altice Þorsteinssonar og Jóns Vals Jenssonar og hneyklast á þeim. Ég hef lent í skrifklónum á þeim báðum og veit að þeir svífast einskis. Samt mundi ég í sporum Moggabloggsstjórnenda hika við að loka á þá. Að loka á umræðu vil ég forðast í lengstu lög. Einhvers staðar verður þó að setja mörkin. Ummæli þeirra um Jóhönnu og Steingrím eru þannig að engin furða er þó fólki ofbjóði. Vinstri menn sumir ætlast til að lokun bloggs Halldórs Egilssonar verði tekin aftur. Hann er sagður vera litli landssímamaðurinn sem umtalaður varð fyrir nokkrum árum og á að hafa skrifað illa um Baldur Guðlaugsson í blogg-grein sem nefnd er Skinheilagur innherjasvikari". Ég hef því miður ekki séð þá grein og ekki nein málefnaleg rök fyrir því að vegna hennar hafi bloggi Halldórs verið lokað. Ef hrunflokkarnir hefðu fengið ráðningu í hlutfalli við það sem þeir áttu skilið í síðustu kosningum hefði öðruvísi ríkisstjórn verið mynduð að þeim loknum. Ríkisstjórn sem enga ábyrgð hefði borið á bankahruninu. Slík ríkisstjórn hefði getað sett sig á háan hest og neitað öllum samningum, bæði um Icesave og annað. Sú ríkisstjórn sem nú situr ber að talsverðu leyti ábyrgð á hruninu og vill að sjálfsögðu semja. Væru Sjálfstæðis- eða Framsóknarmenn í stjórn núna mundu þeir auðvitað vilja semja eins og skot. Þetta vita allir en flokkshestar viðkenna það ekki ótilneyddir. Stjórnmálin á Íslandi eru þannig að tvískinnungur af þessu tagi þykir eðlilegur. Oftast er mikilvægara að valda andstæðingnum hörmungum en gera það sem eflir þjóðarhag. Fyrir neðan blogg Eiríks Jónssonar á dv.is stendur eftirfarandi: Ath: Eldri athugasemdir eru birtar hér fyrir neðan, en hér eftir verður aðeins hægt að skrifa athugasemdir með Facebook aðgangi. Á endanum verð ég eflaust að slaka á klónni varðandi Facebook. En fleiri beita ofbeldi en Davíð. |
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Efni
Tenglar
Blogg
- Áslaug Benediktsdóttir
- Harpa Hreinsdóttir
- Atli Harðarson
- Anna K. Kristjánsdóttir
- Erlingur Brynjólfsson
- Nanna Rögnvaldardóttir
- Þórunn Sigurjónsdóttir
- Susan Polgar
Skák
Ýmislegt
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
2006
Jan. 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Bloggvinir
- Anna Einarsdóttir
- Umsjónarmenn blog.is
- Egill Jóhannsson
- Róslín A. Valdemarsdóttir
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Sigríður Jósefsdóttir
- Arnþór Helgason
- Birgitta Jónsdóttir
- Lýður Pálsson
- Einar Sveinbjörnsson
- Gylfi Guðmundsson
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Villi Asgeirsson
- Sigurður Þór Guðjónsson
- Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson
- Egill Bjarnason
- Jóhann Björnsson
- Ólafur fannberg
- TómasHa
- Ágúst H Bjarnason
- Brjánn Guðjónsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Ragnheiður
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Magnús Helgi Björgvinsson
- Kári Harðarson
- Eiríkur Mörk Valsson
- Ragnhildur Sverrisdóttir
- Ridar T. Falls
- Konráð Ragnarsson
- Vefritid
- Svanur Sigurbjörnsson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Sveinn Ingi Lýðsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Pawel Bartoszek
- Haukur Nikulásson
- Bjarni Harðarson
- Eiður Svanberg Guðnason
- Ómar Ragnarsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- AK-72
- Sigurður Ingi Kjartansson
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Þórarinn Þ Gíslason
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Púkinn
- Lady Elín
- Kolbrún Baldursdóttir
- Jens Guð
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Hrannar Baldursson
- Jón Bjarnason
- Ár & síð
- Jón Ingi Cæsarsson
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Svavar Alfreð Jónsson
- Benedikt Henry Segura
- Marinó G. Njálsson
- Theódór Norðkvist
- Jón Ingvar Jónsson
- Gunnar Þórðarson
- Ólafur Fr Mixa
- Gíslína Erlendsdóttir
- Jóna Á. Gísladóttir
- Heimir Tómasson
- Guðmundur Pálsson
- Ólafur Ragnarsson
- gudni.is
- Guðbjörn Guðbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- G. Valdimar Valdemarsson
- Sigmar Þór Sveinbjörnsson
- Gestur Gunnarsson
- Óskar Þorkelsson
- Ylfa Mist Helgadóttir
- Kristinn Theódórsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Evrópusamtökin, www.evropa.is
- Lýður Árnason
- Brattur
- Marta B Helgadóttir
- Hallmundur Kristinsson
- Sigurður Hreiðar
- Eyþór Árnason
- Bergur Thorberg
- kloi
- Hjalti Tómasson
- Kristjana Bjarnadóttir
- Bjarni Sæmundsson
- Máni Ragnar Svansson
- Emil Hannes Valgeirsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Torfi Kristján Stefánsson
- Haukur Baukur
- Sverrir Stormsker
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Helga Kristjánsdóttir
- Loopman
- Einar B Bragason
- Erna Bjarnadóttir
- Ólafur "Tröllabarn" Georgsson
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Gísli Tryggvason
- Helgi Guðmundsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Þráinn Jökull Elísson
- Þorsteinn Briem
- Hjálmtýr V Heiðdal
- Himmalingur
- Ketill Sigurjónsson
- Sæmundur Bjarnason
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Bjarni Rúnar Einarsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Bókakaffið á Selfossi
- Guðni Karl Harðarson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson)
- Marteinn Unnar Heiðarsson
- Einar G. Harðarson
- Bloggrýnirinn
- kreppukallinn
- Jack Daniel's
- Guðjón Baldursson
- Már Wolfgang Mixa
- Dóra litla
- hilmar jónsson
- Hörður B Hjartarson
- Kristín Bjarnadóttir
- Arnþrúður Karlsdóttir
- Baldur Hermannsson
- Eygló
- Finnur Bárðarson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Loftslag.is
- Jón Daníelsson
- Elín Helga Egilsdóttir
- Helga Þórðardóttir
- Sigurður Grétar Guðmundsson
- Leikhópurinn Lotta
- Dúa
- Hulda Haraldsdóttir
- Kama Sutra
- Bjarni Kristjánsson
- Kristinn Theódórsson
- Blogblaster
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jóhanna Magnúsdóttir
- Andspilling
- Valmundur Valmundsson
- Dingli
- Kristinn Karl Brynjarsson
- Sigurður Einarsson
- Mathieu Grettir Skúlason
- Árni Matthíasson
- BookIceland
- FORNLEIFUR
- Guðbjörn Jónsson
- Högni Snær Hauksson
- Ingólfur Sigurðsson
- Stefán Júlíusson
- Þorsteinn Siglaugsson
Athugasemdir
Jón Valur hefur reyndar tekið út verstu orð Lofts sem hann setti á síðu hans. En orðin hafa birst á fleiri bloggsíðum. Loftur segir að orð sín séu líkingar. En þau eru engar líkingar. Þau eru þvert á móti mjög hrein og bein.
Sigurður Þór Guðjónsson, 26.10.2009 kl. 00:21
Er það orðinn kækur hjá Lofti þessum að bjóða fólki upp á það að verða hengt upp í staura? Kannski er þetta hans uppáhalds aðferð við óþægt fólk, sem er honum ósammála. Sjá athugasemd á þessu bloggi:
http://bjorgvin.eyjan.is/loftur_endurtekur.htm
Kama Sutra, 26.10.2009 kl. 01:35
Sæll Sæmi.
Ég var svo sem varaður við að birta þessa færslu um Loft. En nú ber svo við að Jón Valur heldur sig fjarri öllum umræðum og vill sjálfsagt ekki blanda sér neitt frekar í málið. Loftur skammast í athugasemdum sínum bara út í stjórnina og kallar mig bara "kjánaprik" og heldur að málið sé afgreitt :)
Svanur Gísli Þorkelsson, 26.10.2009 kl. 01:40
Svanur Gísli. Ég hef svosem tekið eftir orðbragðinu hjá Lofti fyrr og lent í deilum við Jón Val og Villa í Köben. Er samt ekkert viss um að þessir menn séu leiðinlegir í viðkynningu. Kunna sér bara ekkert hóf þegar þeir setjast við skriftir.
Hvert skyldi Moggabloggið vera að stefna? Öll samskipti hérna eru einföld og auðveld og ég sé eftir því ef það hverfur.
Sæmundur Bjarnason, 26.10.2009 kl. 01:57
Þeir ættu að skifta yfir í koffeinlaust blessaðir. Jafnvel fleiri. Eigum við ekki að vona að þeir hafi fengið áminningu fyrir að hrökkva svona af skaftinu.
Verst er að þeir eru ekki að gera málstað sínum greiða og það ermiður því ég er að megninu sammála þeim um efnisatriðin.
Jón Steinar Ragnarsson, 26.10.2009 kl. 05:24
Mér datt nú í hug gömul og þekkt vísa þegar menn ræða mikið um Loft:
Þráði Loft og þurfti loft
þunga af Lofti bar hún.
uppi á lofti upp í loft
undir Lofti var hún.
Og það var nú það.
Ellismellur 26.10.2009 kl. 08:30
Þetta er ekki ósvipað orðbragð og margir pólitískir andstæðingar Lofts notuðu fyrir um ári síðan, þótt það sé engin afsökun. Annars tek ég undir með Jóni Steinari.
Axel Þór Kolbeinsson, 26.10.2009 kl. 09:44
Axel Þór: Mér finnst það eins og hver önnur smjörklípa að slengja svona fram.
Hver eða hverjir voru það sem töluðu svona um Loft?
Sæmundur Bjarnason, 26.10.2009 kl. 12:45
Ekki um Loft sjálfann, heldur þáverandi ráðamenn, seðlabankastjóra og yfirmanni fjármálaeftirlitsins.
Ég er ekki að verja orð Lofts, ekki frekar en þau orð sem féllu hér á mörgum bloggsíðum fyrir ári síðan. Ég var bara að setja orðin í sögulegt samhengi.
Axel Þór Kolbeinsson, 26.10.2009 kl. 12:53
Smjörklípunni smurði þykkt.
Smettið þurfti að laga.
Enga samt hún átti vigt
og ekki var til baga.
Sæmundur Bjarnason, 26.10.2009 kl. 13:47
Ég er síðasti maður til að fara fram á ritskoðun.. en ég hlýt að geta sett fram réttmæta kröfu með að mitt blogg opni aftur... ég er eins og lítið lamb miðað við þessa kumpána ... :)
Ég get ekki séð að mbl geti annað en opnað bloggið mitt aftur, nema þeir vilji vera eins og asnar .. hehe
DoctorE 26.10.2009 kl. 15:24
Það er rétt Sæmi að tæknilega viðmótið á blog.is er miklu betra en á öðrum bloggsvæðum og það er enn víðlesnasta bloggið, almennt séð. - En hvert það stefnir er ekki gott að segja. - Það er alveg fyrirséð að á þeim bloggsvæðum sem aðgangur er ótakmarkaður mun öfgafólk koma sér fyrir og freista þess að koma frá sér boðskapnum og reyna á þolmörk reglana sem gilda um svæðið. - Þau þolmörk hafa nú e.t.v. skolast til, með tilkomu pólitísks ritstjóra. Ég held að Halldór Egils hefði allavega fengið tilmæli um að taka pistilinn af síðunni, hér áður, í stað þess að loka á hann fyrirvaralaust.
Svanur Gísli Þorkelsson, 26.10.2009 kl. 15:24
Wordpress er miklu betra kerfi... en náttlega ekki eins sýnilegt á íslandi og moggabloggið
DoctorE 26.10.2009 kl. 15:31
Kannast vel við vísuna sem Ellismellur tilfærir. Er í mínum huga gömul klámvísa og hugsanlega um Galdra-Loft upphaflega. Minnir að fyrsta ljóðlínan sé samt svona: Hún elskaði Loft, hún þráði Loft...
Sæmundur Bjarnason, 26.10.2009 kl. 15:33
DoktorE: Ég er á móti ritskoðun eins og þú veist.
Svanur Gísli ég er alveg sammála þér. Vona samt að öfgafólk nái ekki tökum á okkar blgggsvæðum.
Sæmundur Bjarnason, 26.10.2009 kl. 15:37
Hægra öfgafólk er nú þegar orðið aðlasmerki mbl.is bloggsins.
hilmar jónsson, 26.10.2009 kl. 16:26
Hilmar, hægra öfgafólk? Hvernig útskýrirðu þá að mínir pistlar fái reglulega birtingu á forsíðu mbl.is? Ekki er ég öfgamaður og þó ég hafi sögulega hneigst til hægri þá er í besta falli vafamál að sú tilhneiging sé hreinræktuð.
Guðmundur Ásgeirsson, 27.10.2009 kl. 11:24
Guðmundur. Við erum ekki aðalsmerki Moggabloggsins.
Sæmundur Bjarnason, 27.10.2009 kl. 13:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.