22.10.2009 | 00:22
841 - Að fréttabloggast
Þetta eilífa fréttabloggs-stand er heldur leiðinlegt. Af hverju þarf ég alltaf að hafa skoðanir á öllu um Icesave, Séra Gunnar eða hvað það er sem eftst er á baugi hverju sinni? Jafnvel Óskar Bergsson eða mansalsmál vekja ekki hjá mér sterkar tilfinningar enda er ég búsettur í Kópavogi. Finnst merkilegast hvað allir sem um þessi mál skrifa eru með allt á hreinu og vita bókstaflega allt um þau. Tökum Icesave sem dæmi. Ekki hef ég hugmynd um hvernig dómsmálum um það mundi ljúka, væri sú leið í boði. Nær allir sem ég hef séð blogga um þetta mál eru samt með það alveg á hreinu að Íslendingar mundu vinna þau fyrirhafnarlaust og auðveldlega. Ekki ég. Flokkspólitíkin er farin að ráða mestu um skoðanir fólks í Icsave og bankahruns málum. Yfirleitt er það sem áhersla er lögð á einmitt það sem mundi koma flokki viðkomandi sem allra best. Þetta er hryggilegt. Fritz Már Jörgensen sendir mér póst til að minna mig á að nú sé Sjónvarpsstöðin ÍNN sú eina á landinu (fyrir utan RUV) sem sendir sitt efni ókeypis. Með fylgir listi yfir verð á aulýsingum. Þetta sendir hann mér (eða Netútgáfunni) sem aldrei auglýsi neitt. Jæja, sama er mér. Sveltur sitjandi kráka en fljúgandi fær. Sennilega er ég að fá einhvern snert af bloggleiða. Nenni varla að blogga meira núna. Þetta daglega svartagallsraus er alveg að drepa mig. Finnst miklu skemmtilegra að blogga um eitthvað annað. Ég er í vafa um að það sé Alþingi til framdráttar að sjónvarpa yfir landslýð umræðum í þingsal. Málfundaæfingar þær sem þar tíðkast eru sumum hvimleiðar. Svo mismæla þingmenn sig svo oft að fólki ofbýður. Í dag var ég til dæmis að hlusta á umræður þar og þá sagði Siv Friðleifsdóttir eitthvað á þessa leið: Ég vil fagna þennan tón..." |
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Efni
Tenglar
Blogg
- Áslaug Benediktsdóttir
- Harpa Hreinsdóttir
- Atli Harðarson
- Anna K. Kristjánsdóttir
- Erlingur Brynjólfsson
- Nanna Rögnvaldardóttir
- Þórunn Sigurjónsdóttir
- Susan Polgar
Skák
Ýmislegt
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
2006
Des. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 | 31 |
Bloggvinir
- Anna Einarsdóttir
- Umsjónarmenn blog.is
- Egill Jóhannsson
- Róslín A. Valdemarsdóttir
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Sigríður Jósefsdóttir
- Arnþór Helgason
- Birgitta Jónsdóttir
- Lýður Pálsson
- Einar Sveinbjörnsson
- Gylfi Guðmundsson
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Villi Asgeirsson
- Sigurður Þór Guðjónsson
- Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson
- Egill Bjarnason
- Jóhann Björnsson
- Ólafur fannberg
- TómasHa
- Ágúst H Bjarnason
- Brjánn Guðjónsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Ragnheiður
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Magnús Helgi Björgvinsson
- Kári Harðarson
- Eiríkur Mörk Valsson
- Ragnhildur Sverrisdóttir
- Ridar T. Falls
- Konráð Ragnarsson
- Vefritid
- Svanur Sigurbjörnsson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Sveinn Ingi Lýðsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Pawel Bartoszek
- Haukur Nikulásson
- Bjarni Harðarson
- Eiður Svanberg Guðnason
- Ómar Ragnarsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- AK-72
- Sigurður Ingi Kjartansson
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Þórarinn Þ Gíslason
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Púkinn
- Lady Elín
- Kolbrún Baldursdóttir
- Jens Guð
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Hrannar Baldursson
- Jón Bjarnason
- Ár & síð
- Jón Ingi Cæsarsson
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Svavar Alfreð Jónsson
- Benedikt Henry Segura
- Marinó G. Njálsson
- Theódór Norðkvist
- Jón Ingvar Jónsson
- Gunnar Þórðarson
- Ólafur Fr Mixa
- Gíslína Erlendsdóttir
- Jóna Á. Gísladóttir
- Heimir Tómasson
- Guðmundur Pálsson
- Ólafur Ragnarsson
- gudni.is
- Guðbjörn Guðbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- G. Valdimar Valdemarsson
- Sigmar Þór Sveinbjörnsson
- Gestur Gunnarsson
- Óskar Þorkelsson
- Ylfa Mist Helgadóttir
- Kristinn Theódórsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Evrópusamtökin, www.evropa.is
- Lýður Árnason
- Brattur
- Marta B Helgadóttir
- Hallmundur Kristinsson
- Sigurður Hreiðar
- Eyþór Árnason
- Bergur Thorberg
- kloi
- Hjalti Tómasson
- Kristjana Bjarnadóttir
- Bjarni Sæmundsson
- Máni Ragnar Svansson
- Emil Hannes Valgeirsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Torfi Kristján Stefánsson
- Haukur Baukur
- Sverrir Stormsker
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Helga Kristjánsdóttir
- Loopman
- Einar B Bragason
- Erna Bjarnadóttir
- Ólafur "Tröllabarn" Georgsson
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Gísli Tryggvason
- Helgi Guðmundsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Þráinn Jökull Elísson
- Þorsteinn Briem
- Hjálmtýr V Heiðdal
- Himmalingur
- Ketill Sigurjónsson
- Sæmundur Bjarnason
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Bjarni Rúnar Einarsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Bókakaffið á Selfossi
- Guðni Karl Harðarson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson)
- Marteinn Unnar Heiðarsson
- Einar G. Harðarson
- Bloggrýnirinn
- kreppukallinn
- Jack Daniel's
- Guðjón Baldursson
- Már Wolfgang Mixa
- Dóra litla
- hilmar jónsson
- Hörður B Hjartarson
- Kristín Bjarnadóttir
- Arnþrúður Karlsdóttir
- Baldur Hermannsson
- Eygló
- Finnur Bárðarson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Loftslag.is
- Jón Daníelsson
- Elín Helga Egilsdóttir
- Helga Þórðardóttir
- Sigurður Grétar Guðmundsson
- Leikhópurinn Lotta
- Dúa
- Hulda Haraldsdóttir
- Kama Sutra
- Bjarni Kristjánsson
- Kristinn Theódórsson
- Blogblaster
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jóhanna Magnúsdóttir
- Andspilling
- Valmundur Valmundsson
- Dingli
- Kristinn Karl Brynjarsson
- Sigurður Einarsson
- Mathieu Grettir Skúlason
- Árni Matthíasson
- BookIceland
- FORNLEIFUR
- Guðbjörn Jónsson
- Högni Snær Hauksson
- Ingólfur Sigurðsson
- Stefán Júlíusson
- Þorsteinn Siglaugsson
Athugasemdir
Langskemmtilegast er að blogga um veðrið!
Sigurður Þór Guðjónsson, 22.10.2009 kl. 00:46
Sammála þér Sæmundur um flokkspólitíkina.
Það er ekki auðfundin sú persóna sem situr á friðarstóli á Íslandi þessa dagana. Á landinu ríkir vargöld. Hvert það verk sem unnið er af stjórnvöldum er gert tortryggilegt af stjórnarandstöðu og þegar svo er komið gildir í raun einu hvort gagnrýni er réttmæt eða ekki. Það er aukaatriði. Aðalatriðið er að gagnrýna.
Auðvitað er orðið "gagnrýni" löngu orðið merkingarlaust í þeim flaumi rógs og skrumskælinga sem einkennir málfar og meiningu þeirra sem hafa tekið að sér ráðsmennsku þjóðarinnar. Fjölmiðlar, stjórnmálamenn og allir hinir sjálfumglöðu gasprar sem eru svo glúrnir í að finna illum orðum sínum áheyrendur, eru eigrandi á eyðimörk hugsjónalausrar pólitíkur.
Ég kalla það ekki hugsjón að svala hermdarþorsta sínum, vinna að sérhagsmunum á kostnað almennings eða fróa minnimáttarkennd sinni með töktum mikilmennskubrjálæðings.
Hvernig er annars veðrið hjá þér?
Svanur Gísli Þorkelsson, 22.10.2009 kl. 01:34
þú gleymir Omega. hún er frí og fyrir þá sem ekki sjá Saturday night life, er brandarinn Omega ómissandi.
Brjánn Guðjónsson, 22.10.2009 kl. 03:30
Sigurður: það er ekki að marka með mig ég hef svo lítið um veðrið að segja.
Svanur Gísli: Já, það eru nú meiri lætin alltaf í þessum pólitísku blokkurum sem allt þykjast vita.
Brjánn: Alveg rétt og ég held að Fritz hafi bara gleymt þeim líka.
Sæmundur Bjarnason, 22.10.2009 kl. 04:59
Mikið kvíðir Ellismellur þeim degi þegar þú hættir að blogga vegna bloggleiða, Sæmundur. En ansans ári var gott bloggið hans Sigurðar Þórs Guðjónssonar, sem er einmitt um blogg og kommentin. Ég held að við Sigurður Þór hljótum að vera andlega skyldir, ég er eiginlega alltaf sammála honum. En meðal annarra orða; Skyldi þessi eftirlíking af Alcatras-byggingunum, sem risin er syðst í húsakomplexinu að Bifröst vera ætluð til þess að fæla fólk frá staðnum? Eða er meiningin að þetta verði tugthús? Mikið déskoti er ljótt að koma neðan hraunið og horfa þarna heim að staðnum eftir að þessi hörmung reis.
Ellismellur 22.10.2009 kl. 07:37
Trúmálin maður, þau eru það skemmtilegasta... endalaust efni :)
DoctorE 22.10.2009 kl. 09:22
Mikið skil ég þig Sæmundur þegar þú talar um bloggleiðann. Það er ekki gaman að blogga nema maður hafi eitthvað um að blogga, eitthvað sem langar að komast í orð. Mest er gaman að segja frá einhverju sem manni finnst sjálfum frásagnarvert. Stundum að leggja orð í belg þegar tiltekinn belgur kallar á orð, að manni finnst.
Þú hittir oft naglann á höfuðið, eins og hér að ofan þegar þú talar um málfundaæfingarnar á Alþingi. Umræður þar minna einmitt oft á málfundi í gagnfræðaskóla eða einhverskonar mælskukeppni þar sem málefnið skiptir ekki máli heldur aðeins hitt að geta kaffært aðra í mælgi og þannig tafið fyrir framgangi mála.
Þetta þvarg er að hluta til tilkomið vegna orðsins hljóðan. Hvað þýðir stjórnar„andstaða“? Jú, það þýðir að veita því andstöðu sem frá stjórninni kemur, vera andstæðingur þess, á móti því. Sama hvernig það er í pottinn búið. Og stundum finnst manni þessi tillærða andstaða -- sem er iðkuð til að sýna að menn standi í stykkinu -- hafi það í för með sér að hinn armurinn sé orðinn það sem kalla mætti stjórnarandstöðu-andstaða. Og bítur þá ormskrattinn í endann á sér.
Sigurður Hreiðar, 22.10.2009 kl. 09:32
Um flesta pólitísku bloggarana sem gala hæst og þykjast allt vita er aðallega þetta að segja: Hæst bylur í tómum tunnum.
Er það bara ég en hefur ekki tómu tunnunum fjölgað býsna mikið hérna á moggablogginu undanfarið? Eða eru þeir bara orðnir svona áberandi af því að svo margir góðir bloggarar hafa hætt hérna upp á síðkastið?
Kama Sutra, 22.10.2009 kl. 09:41
Hæ. Þakka fyrir upplýsingarnar.
h
hordur 22.10.2009 kl. 14:29
Ellismellur: Takk. Þú ert einn af mínum bestu lesendum og þó ég fái kannski bloggleiða þá er ég ekkert að hugsa um að hætta þessu með öllu. Síðast þegar ég fór framhjá Bifröst var ég með allan hugann við hvað vegurinn var orðinn óhugnanlega breiður. Hef ekki stoppað þar lengi.
DoctorE: Mér finnast trúmálaþrætur oft skemmtilegar en ekki alltaf. Margir taka þetta óhugnanlega alvarlega.
Sigurður: Það er nú þrátt fyrir allt oft gaman að hlusta á umræður í þinginu.
Kama Sutra: Ég skrifaði víst blokkarar hér ofar en meinti auðvitað bloggarar þó hitt orðið sé ágætt. Alveg sammála þér með tunnurnar. Moggabloggið er að breytast. Mest vegna þess að margir hafa hætt hér.
Hörður: Takk.
Sæmundur Bjarnason, 22.10.2009 kl. 15:11
Jamm margir trúaðir taka því illa að fá að vita að það er ekkert extra líf í lúxus... að þeir hafi verið hafðir að fíflum með glópabulli.
Persónulega yrði ég þakklátur ef mér væri bent á að það væri verið að svindla á mér... en trúaðir vilja ekki heyra sannleikann.. þeir keyrast áfram af græðgi og sjálfselsku.. :)
DoctorE 22.10.2009 kl. 19:06
Það kemur svona bloggleti eða leiði yfir mig annað slagið, en svo gerist eitthvað sem ég bara hreinlega VERÐ að blogga um eða skrifa og þá kemur eldmóðurinn. Ég held að maður eigi bara að hvíla þegar enginn er eldmóðurinn.
Jóhanna Magnúsdóttir, 22.10.2009 kl. 19:40
Sæmundur, taktu þér hvíld á milli en eeeeekki hætta, gerrrru ha?!
Þú ert efstur á skoðunarlistanum mínum, úr og Kópavogsmaður. Ég yrði bara munaðarlaus ef þú kæmir ekki með smá pistil svona öðru hverju.
Brjánn....Það verður skýrari myndin hjá Omega ef þú borgar Guði og Jesú smá í sjónvarssjóðinn, en það er rétt það eru frjáls framlög.
Ég vildi að ég vissi eins mikið um öll þjóðmálin eins og flestir bloggarar og aðrir virðast vita.
Eygló, 22.10.2009 kl. 23:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.