18.6.2009 | 00:08
719 - Á hverfanda hveli
Okkur bloggurum hættir til að sýna málum sem tengjast bankahruninu fullmikla léttúð. Dæmið um manninn á Álftanesinu sýnir að þetta er dauðans alvara. Íslenskt þjóðfélag er breytt eftir bankahrunið. Bankar njóta ekki trausts. Stjórnvöld njóta ekki trausts. Stjórnmálaflokkar njóta ekki trausts. Fjölmiðlar njóta ekki trausts. Í stuttu máli sagt þá er traust orðið að sjaldgæfum munaðarvarningi hér á landi. Sjálfur fjármálaráðherrann og formaður Vinstri grænna nýtur ekki einu sinni trausts meðal sinna eigin þingmanna. En því miður, alþingismenn njóta ekki trausts frekar en aðrir. Þegar fólk treystir ekki lengur sínum nágrönnum og sinni fjölskyldu þá er stutt í byltinguna. Og hún étur börnin sín. Þeir sem ofaná fljóta eru einkum þeir sem afskiptalausastir eru. Ég er hræddur um að ástandið hér á landi eigi eftir að versna enn áður en það fer að batna. Dómharka og ábyrgðarleysi vex, stjórnmálastarfsemi er í lamasessi, Lög og regla eru á undanhaldi og margt á fallanda fæti. Grunnstoðir samfélagsins halda þó enn. Látum ekki etja okkur út í algjört stjórnleysi. Var að enda við að lesa grein Guðbjörns Guðbjörnssonar sem hann birtir á bloggi sínu í dag (17. Júní) og kallar: Er þjóðin samdauna spillingu, valdhroka, óbilgirni, valdníðslu, siðleysi, kúgun , klíkuveldi og ættdrægni? Þetta er góð grein. Verulega góð og ég hvet alla til að lesa hana. |
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Efni
Tenglar
Blogg
- Áslaug Benediktsdóttir
- Harpa Hreinsdóttir
- Atli Harðarson
- Anna K. Kristjánsdóttir
- Erlingur Brynjólfsson
- Nanna Rögnvaldardóttir
- Þórunn Sigurjónsdóttir
- Susan Polgar
Skák
Ýmislegt
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
2006
Des. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 | 31 |
Bloggvinir
- Anna Einarsdóttir
- Umsjónarmenn blog.is
- Egill Jóhannsson
- Róslín A. Valdemarsdóttir
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Sigríður Jósefsdóttir
- Arnþór Helgason
- Birgitta Jónsdóttir
- Lýður Pálsson
- Einar Sveinbjörnsson
- Gylfi Guðmundsson
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Villi Asgeirsson
- Sigurður Þór Guðjónsson
- Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson
- Egill Bjarnason
- Jóhann Björnsson
- Ólafur fannberg
- TómasHa
- Ágúst H Bjarnason
- Brjánn Guðjónsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Ragnheiður
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Magnús Helgi Björgvinsson
- Kári Harðarson
- Eiríkur Mörk Valsson
- Ragnhildur Sverrisdóttir
- Ridar T. Falls
- Konráð Ragnarsson
- Vefritid
- Svanur Sigurbjörnsson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Sveinn Ingi Lýðsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Pawel Bartoszek
- Haukur Nikulásson
- Bjarni Harðarson
- Eiður Svanberg Guðnason
- Ómar Ragnarsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- AK-72
- Sigurður Ingi Kjartansson
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Þórarinn Þ Gíslason
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Púkinn
- Lady Elín
- Kolbrún Baldursdóttir
- Jens Guð
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Hrannar Baldursson
- Jón Bjarnason
- Ár & síð
- Jón Ingi Cæsarsson
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Svavar Alfreð Jónsson
- Benedikt Henry Segura
- Marinó G. Njálsson
- Theódór Norðkvist
- Jón Ingvar Jónsson
- Gunnar Þórðarson
- Ólafur Fr Mixa
- Gíslína Erlendsdóttir
- Jóna Á. Gísladóttir
- Heimir Tómasson
- Guðmundur Pálsson
- Ólafur Ragnarsson
- gudni.is
- Guðbjörn Guðbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- G. Valdimar Valdemarsson
- Sigmar Þór Sveinbjörnsson
- Gestur Gunnarsson
- Óskar Þorkelsson
- Ylfa Mist Helgadóttir
- Kristinn Theódórsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Evrópusamtökin, www.evropa.is
- Lýður Árnason
- Brattur
- Marta B Helgadóttir
- Hallmundur Kristinsson
- Sigurður Hreiðar
- Eyþór Árnason
- Bergur Thorberg
- kloi
- Hjalti Tómasson
- Kristjana Bjarnadóttir
- Bjarni Sæmundsson
- Máni Ragnar Svansson
- Emil Hannes Valgeirsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Torfi Kristján Stefánsson
- Haukur Baukur
- Sverrir Stormsker
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Helga Kristjánsdóttir
- Loopman
- Einar B Bragason
- Erna Bjarnadóttir
- Ólafur "Tröllabarn" Georgsson
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Gísli Tryggvason
- Helgi Guðmundsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Þráinn Jökull Elísson
- Þorsteinn Briem
- Hjálmtýr V Heiðdal
- Himmalingur
- Ketill Sigurjónsson
- Sæmundur Bjarnason
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Bjarni Rúnar Einarsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Bókakaffið á Selfossi
- Guðni Karl Harðarson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson)
- Marteinn Unnar Heiðarsson
- Einar G. Harðarson
- Bloggrýnirinn
- kreppukallinn
- Jack Daniel's
- Guðjón Baldursson
- Már Wolfgang Mixa
- Dóra litla
- hilmar jónsson
- Hörður B Hjartarson
- Kristín Bjarnadóttir
- Arnþrúður Karlsdóttir
- Baldur Hermannsson
- Eygló
- Finnur Bárðarson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Loftslag.is
- Jón Daníelsson
- Elín Helga Egilsdóttir
- Helga Þórðardóttir
- Sigurður Grétar Guðmundsson
- Leikhópurinn Lotta
- Dúa
- Hulda Haraldsdóttir
- Kama Sutra
- Bjarni Kristjánsson
- Kristinn Theódórsson
- Blogblaster
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jóhanna Magnúsdóttir
- Andspilling
- Valmundur Valmundsson
- Dingli
- Kristinn Karl Brynjarsson
- Sigurður Einarsson
- Mathieu Grettir Skúlason
- Árni Matthíasson
- BookIceland
- FORNLEIFUR
- Guðbjörn Jónsson
- Högni Snær Hauksson
- Ingólfur Sigurðsson
- Stefán Júlíusson
- Þorsteinn Siglaugsson
Athugasemdir
Það tóku krumlur um hjartað í mér þegar ég sá fréttina um niðurrif hússins. Samt leið mér þannig að hugur minn og samúð var öll hjá manninum. Ég hef ekki hugmynd um forsögu þessa máls en auðvitað flökrar að manni að hún hafi verið þung og sársaukafull.
Eygló, 18.6.2009 kl. 00:21
Mest kvíði ég því ef maðurinn verður dæmdur. Það væri ranglæti svo hrikalegt að bylting væri betri.
Sigurður Þór Guðjónsson, 18.6.2009 kl. 19:37
Já, og í þeirri byltingu ætti að afhöfða sem flesta!
Sigurður Þór Guðjónsson, 18.6.2009 kl. 19:38
Sigurður, þarna finnst mér þú nú vera ansi mikið á mörkunum. Moggaguðirnir gætu lagt þetta út á versta veg.
Sæmundur Bjarnason, 18.6.2009 kl. 22:21
Moggaguðirnir eru tvímælalaust meðal þeirra sem fyrst ætti að afhöfða.
Sigurður Þór Guðjónsson, 18.6.2009 kl. 22:32
Moggabloggsguðirnir ætlaði ég að segja. Skiptir kannski ekki miklu máli. Ekki ætla ég að fara að munnhöggvast við þig, Siggi. Kannski best að fara bara í felur.
Sæmundur Bjarnason, 18.6.2009 kl. 23:33
Ég samþykkti að þessi maður sæti inni um tíma........ EF jafnframt auðrónarnir færu bak við lás og slá!!!!!
Eygló, 18.6.2009 kl. 23:53
Það er uppi á mönnum typpið hérna!
Malína 19.6.2009 kl. 21:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.