403. - Bilun og skringilega útlítandi moggablogg

Nú er bloggið að mestu komið í lag en lítur samt einkennilega út. Ekki eru allar fúnksjónir að fullu komnar í lag aftur en vonandi verður það bráðlega. Það að geta haft beint samband við valda bloggvini eða alla í einu sýnist mér vera góð viðbót.

Bilunin í gær var í lengsta lagi. En hvað getum við sagt með okkar ókeypis aðgang? Í staðinn fyrir að senda það sem ég var þó búinn að punkta hjá mér fyrir bloggið í gærkvöldi fæ ég nú tíma til að gera það betra.

Þó skömm sé frá að segja er ég er orðinn latur við að lesa blogg. Les reyndar ekki mikið þessa dagana. Það er erfitt að vera inni í svona veðri eins og verið hefur undanfarið. Og ekki get ég lesið úti. Mestur tíminn fer í að hamast við að gera ekki neitt. (sem er frekar erfitt). En til að einhverjir nenni að lesa bloggið mitt verð ég eiginlega að fylgjast eitthvað með í bloggheimum og láta sjást að ég sé lifandi.

Upplagt væri að skammast svolítið út í moggabloggið fyrir að bila á versta tíma og hafa hlutina svolítið á hornum sér. Ég nenni því bara ekki.

Oft hafa verið gerðir merkilegir vefir um hin og þessi mikilmenni sögunnar. Þá getur oft verið gaman að skoða. Nýlega rakst ég á merkilegan vef um Jóhannes úr Kötlum. Ég er alinn upp í Hveragerði á þeim tíma sem hann bjó þar og hann var ásamt fleiri listamönnum sem þar bjuggu eftirminnilegur mjög. Þessi vefur hefur urlið: johannes.is

Jóhannes úr Kötlum var eitt helsta skáld sinnar samtíðar og mjög afkastamikill rithöfundur. Eftir hann liggja 20 ljóðabækur, 5 skáldsögur, hann þýddi fjölda bóka, ritaði greinar í blöð og tímarit og flutti erindi um stjórnmál og menningarmál. Þeir sem vilja vita meira um Jóhannes ættu að sjálfsögðu að kíkja á þennan vef.

Pizzugerðarmenn hafa gert tilraunir með að láta pizzur sínar líta sem herfilegast út. Eftir því sem þær eru ljótari virðist fólk vera æstara í að borða þær. Eftir því sem liturinn á þeim er fáránlegri því betra og eftir því sem áleggið á þeim er ókræsilegra því betur seljast þær. Um þetta hafa verið smíðaðar heimspekikenningar og reynt hefur verið að yfirfæra þetta á annan mat. Það hefur gengið misjafnlega. Til dæmis hefur ekki tekist að fá fólk til að éta spæld fúlegg og útmiginn og úldinn fiskur er ekki vinsæll nema á örfáum stöðum.

Ég hélt að ísbjarnarmálum væri lokið á Íslandi þetta árið. En Vestfirðingar voru eftir. Ekki dugir að láta eins og þeir séu ekki til. Það var gaman að Ólína Þorvarðar skyldi lenda í þessu nýjasta ísbjarnarmáli. Mér finnst þetta allt með dálitlum þjóðsagnablæ. Mest er ég hissa á þeim sem umfram allt vilja hjálpa ísbjarnar-ræflunum. Auðvitað er maður skíthræddur við þessi óargadýr. Gef lítið fyrir sófakommana sem óskapast yfir að þeir hafi verið skotnir. Ég var í Fljótavík í fyrra. Þangað kom ísbjörn vorið 1974 og var hann snimmendis skotinn til bana. Sögur um þann atburð lifa enn og eru talsvert magnaðar.

 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já, hvernig var það með blog.is, fengu þeir vírus inn á alla diskana?

Gleymdu Hádegismóamenn að vera með spegilsíður til vara?

Skúli Skúlason 31.7.2008 kl. 20:37

2 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Já, mér finnst þetta léglegt hjá þeim en það þýðir víst ekki að segja neitt. Sennilega hafa þeir moggabloggsmenn verið að spara einhverja aura. Það er mannlegt.

Sæmundur Bjarnason, 31.7.2008 kl. 23:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband