25.3.2008 | 00:22
290. - Eru Íslendingar rasistar?
Um þessa páskahelgi hefur borið óvenjumikið á fréttum af alls kyns ofbeldisverkum. Yfirleitt kemur þjóðerni eitthvað við sögu í málunum. Er hugsanlega að einhverju leyti við fjölmiðla að sakast í þessum efnum? Ég veit það ekki, en grunar það óneitanlega.
Ég hef enga trú á því að greina megi ofbeldishneigð eftir þjóðerni. Litháar, Pólverjar og annarra þjóða fólk er alveg örugglega upp til hópa alls ekki verra en við Íslendingar. Ef það er rétt að glæpatíðni meðal innflytjenda hér sé hærri en hjá Íslendingum þá hljóta að vera einhverjar ástæður fyrir því. Þær þarf þá að kanna og það án upphrópana um einstök tilvik.
Að útlend glæpasamtök flytji hingað inn fólk beinlínis til að nýta sér heimóttarskap, fáfræði og linkind okkar Íslendinga hef ég litla trú á. Ef einhvers konar glæpagengi útlendinga hér eru staðreynd, er miklu líklegra að þau hafi myndast eftir komu fólks til landsins og að þar ráði aðstæður miklu. Það er staðreynd að við bjóðum útlendingum oft uppá aðstæður sem við sjálf mundum aldrei sætta okkur við.
Auðvitað er það svo að þeir sem hingað flytjast eru að einhverju leyti úr öðrum þjóðfélagshópum en þeir sem eftir sitja. En að þeir séu glæpahneigðari legg ég engan trúnað á. Miklu líklegra er að það hvernig við Íslendingar tökum á móti þeim ýti með einhverjum hætti undir virðingarleysi þeirra fyrir íslenskum lögum, sé það fyrir hendi, og líka getur ókunnugleiki ráðið einhverju. Þar að auki getur verið að löggjöf okkar sé gölluð.
Tregða heiðarlegs fólks meðal innflytjenda til að starfa með lögreglunni við að upplýsa afbrot getur líka átt sér skýringar, sem þarf að finna. Alhæfingar þarf fyrir hvern mun að forðast.
Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda, virðist vera byrjaður að athafna sig hér á Moggablogginu og ekki er að sjá annað en hann hafi farið beint á Áttulistann" sem ég hef kosið að kalla svo. Auðvitað er það bara eðlilegt. Hann hefur eflaust frá fleiru að segja en þeir sem hingað koma af alls kyns sundurleitustu hvötum. Ég vorkenni þeim samt svolítið, sem ekki komast á þennan lista þó þá langi til þess og finnist að þeir ættu að vera þar, og eigi það ef til vill skilið.
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Efni
Tenglar
Blogg
- Áslaug Benediktsdóttir
- Harpa Hreinsdóttir
- Atli Harðarson
- Anna K. Kristjánsdóttir
- Erlingur Brynjólfsson
- Nanna Rögnvaldardóttir
- Þórunn Sigurjónsdóttir
- Susan Polgar
Skák
Ýmislegt
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
2006
Bloggvinir
- Anna Einarsdóttir
- Umsjónarmenn blog.is
- Egill Jóhannsson
- Róslín A. Valdemarsdóttir
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Sigríður Jósefsdóttir
- Arnþór Helgason
- Birgitta Jónsdóttir
- Lýður Pálsson
- Einar Sveinbjörnsson
- Gylfi Guðmundsson
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Villi Asgeirsson
- Sigurður Þór Guðjónsson
- Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson
- Egill Bjarnason
- Jóhann Björnsson
- Ólafur fannberg
- TómasHa
- Ágúst H Bjarnason
- Brjánn Guðjónsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Ragnheiður
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Magnús Helgi Björgvinsson
- Kári Harðarson
- Eiríkur Mörk Valsson
- Ragnhildur Sverrisdóttir
- Ridar T. Falls
- Konráð Ragnarsson
- Vefritid
- Svanur Sigurbjörnsson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Sveinn Ingi Lýðsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Pawel Bartoszek
- Haukur Nikulásson
- Bjarni Harðarson
- Eiður Svanberg Guðnason
- Ómar Ragnarsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- AK-72
- Sigurður Ingi Kjartansson
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Þórarinn Þ Gíslason
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Púkinn
- Lady Elín
- Kolbrún Baldursdóttir
- Jens Guð
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Hrannar Baldursson
- Jón Bjarnason
- Ár & síð
- Jón Ingi Cæsarsson
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Svavar Alfreð Jónsson
- Benedikt Henry Segura
- Marinó G. Njálsson
- Theódór Norðkvist
- Jón Ingvar Jónsson
- Gunnar Þórðarson
- Ólafur Fr Mixa
- Gíslína Erlendsdóttir
- Jóna Á. Gísladóttir
- Heimir Tómasson
- Guðmundur Pálsson
- Ólafur Ragnarsson
- gudni.is
- Guðbjörn Guðbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- G. Valdimar Valdemarsson
- Sigmar Þór Sveinbjörnsson
- Gestur Gunnarsson
- Óskar Þorkelsson
- Ylfa Mist Helgadóttir
- Kristinn Theódórsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Evrópusamtökin, www.evropa.is
- Lýður Árnason
- Brattur
- Marta B Helgadóttir
- Hallmundur Kristinsson
- Sigurður Hreiðar
- Eyþór Árnason
- Bergur Thorberg
- kloi
- Hjalti Tómasson
- Kristjana Bjarnadóttir
- Bjarni Sæmundsson
- Máni Ragnar Svansson
- Emil Hannes Valgeirsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Torfi Kristján Stefánsson
- Haukur Baukur
- Sverrir Stormsker
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Helga Kristjánsdóttir
- Loopman
- Einar B Bragason
- Erna Bjarnadóttir
- Ólafur "Tröllabarn" Georgsson
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Gísli Tryggvason
- Helgi Guðmundsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Þráinn Jökull Elísson
- Þorsteinn Briem
- Hjálmtýr V Heiðdal
- Himmalingur
- Ketill Sigurjónsson
- Sæmundur Bjarnason
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Bjarni Rúnar Einarsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Bókakaffið á Selfossi
- Guðni Karl Harðarson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson)
- Marteinn Unnar Heiðarsson
- Einar G. Harðarson
- Bloggrýnirinn
- kreppukallinn
- Jack Daniel's
- Guðjón Baldursson
- Már Wolfgang Mixa
- Dóra litla
- hilmar jónsson
- Hörður B Hjartarson
- Kristín Bjarnadóttir
- Arnþrúður Karlsdóttir
- Baldur Hermannsson
- Eygló
- Finnur Bárðarson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Loftslag.is
- Jón Daníelsson
- Elín Helga Egilsdóttir
- Helga Þórðardóttir
- Sigurður Grétar Guðmundsson
- Leikhópurinn Lotta
- Dúa
- Hulda Haraldsdóttir
- Kama Sutra
- Bjarni Kristjánsson
- Kristinn Theódórsson
- Blogblaster
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jóhanna Magnúsdóttir
- Andspilling
- Valmundur Valmundsson
- Dingli
- Kristinn Karl Brynjarsson
- Sigurður Einarsson
- Mathieu Grettir Skúlason
- Árni Matthíasson
- BookIceland
- FORNLEIFUR
- Guðbjörn Jónsson
- Högni Snær Hauksson
- Ingólfur Sigurðsson
- Stefán Júlíusson
- Þorsteinn Siglaugsson
Athugasemdir
Góður pistill.
Umræðan Páskahelgina hefur verið svo furðuleg... ja, að orð ná eiginlega ekki yfir það. Fullyrðingar út og suður sem byggðar eru á nánast engu efni til að styðja þær. Eg segi fyrir mig, að ég er farinn að setja spurningarmerki við hvernig fjölmiðlar halda á þessum málum.
"Glæpagengi" "bófar" o.s.frv. sem gera útá samlanda sína og kúga af þeim fé... sko, ég er bara ekki alveg að kaupa þetta svona hrátt af skepnunni.
Það verður aldrei neitt vit í umfjöllun sem er ekkert nema upphlaup og upphrópanir. Þetta mál allt þarf að rannsaka miklu betur og návæmar áður en farið er að alhæfa um viðkomandi málefni.
Ómar Bjarki Kristjánsson, 25.3.2008 kl. 00:54
Sæmundur og Ómar - VAKNIÐ TIL VITUNDAR báðir tveir og hættið að lemja hausunum utan í steina. Í dag er árið 2008 og landið er að fyllast af erlendum glæpaklíkum og þið lifið ennþá í íslenskri sveitarómantík ca árið 1938.
Stefán 25.3.2008 kl. 10:09
Ómar: þakka þér fyrir góð orð um bloggið mitt.
Stefán: Það veldur mér svolitlum vonbrigðum að þú skulir skrifa undir dulnefni. Ég geri mér ljóst að andstaða við innflytjendur fer vaxandi, en get ekki breytt skoðunum mínum þess vegna. Mér finnst vera alið á þessari andstöðu, bæði af mönnum eins og þér og jafnvel oft af fjölmiðlum.
Sæmundur Bjarnason, 25.3.2008 kl. 12:20
Ég er einmitt alveg gáttaður á umræðunni sem átt hefur sér stað undanfarið hér á Moggablogginu. Xenófóbían, rasisminn og bara erkiheimskan sem hefur ráðið ríkjum er til þess fallin að verulega minnka trú manns á landanum. Upphrópanir án rökstuðnings sem fáránlega margir virðast taka undir í einhverri múgæsingu... og einhvern veginn virðast talsmenn Frjálsynda flokksins alltaf birtast og njóta sín líkt og púkinn á fjósbitanum!
Dabbi 25.3.2008 kl. 12:21
Góður pistill! kv. B
Baldur Kristjánsson, 25.3.2008 kl. 16:59
Þakka hrósið, Baldur. Ég les alltaf bloggið þitt, en er lítið fyrir að skrifa athugasemdir. Innflytjendamál eru eilífðarmál og enginn endanlegur sannleikur til í þeim. Við verðum bara að reyna að gera okkar besta og berjast á móti öfgum hvar sem við sjáum þær.
Sæmundur Bjarnason, 25.3.2008 kl. 19:09
Frjálslyndi flokkurinn hefur ekkert með rasistaumræðu að gera. Þeir sem þannig tala ættu að fara i smátékk og gá hvort þeir séu sjálfir ekki stútfullir af fordómum í garð heils stjórnmálaflokks, og alla félaga í honum. Það er að verða ansi þreytandi að þurfa endalaust að benda fólki á að kynna sér sjálft málin, áður er rokið er með fordóma og oft hreinræktaðan rasisma út í fólk sem er í Frjálslyndaflokknum. Lesið málefnahandbókina, lesið greinar eftir Kristinn H Gunnarsson, og Guðjón Arnar. Og skoðið málfluttning margra annara flokksmanna, meðal annars mín. Eg neita því alfarið að vera kennt við illan hug til útlendinga. Og þið skulið bara benda á hvar þessi rasismi birtist á vegum Frjálslyndaflokksins áður en þið komið fram með endalausa sleggjudóma.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.3.2008 kl. 21:08
Það er naumast!! Ég kannast ekkert við að hafa minnst á Frjálslynda flokkinn, en sé að einhver Dabbi hefur gert það hér fyrir ofan. Mér finnst flokkspólitískt karp í þessu máli hafa ósköp lítið gildi. Það hefur þó oft verið reynt að koma rasistaorði á Frjálslynda flokkinn og kannski engin furða þó talsmenn hans bregðist illa við orðum eins og þeim sem Dabbi lætur frá sér fara. Líklega er þeim líka dálítið uppsigað við séra Baldur og trúlega þá einnig við mig núna.
Sæmundur Bjarnason, 25.3.2008 kl. 21:26
fínn pistill, EN er ekki fyrirsögnin hálfgerður rasismi?
halkatla, 25.3.2008 kl. 23:07
ÆÆÆ........
magnus 25.3.2008 kl. 23:07
Takk Anna Karen, jú eiginlega er fyrirsögnin hálfgerður rasismi. Sérstaklega væri hún það ef orðaröðin væri önnur og spurningarmerkið farið.
Einar: Ég skil ekki hvaða hugsunarháttur það er sem er dapurlegur og ennþá erfiðara á ég með að skilja æ-in hans Magnúsar.
Sæmundur Bjarnason, 26.3.2008 kl. 00:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.