3134 - Margir Þorsteinar

Kannski ég sé að detta í það að blogga mun oftar en að undanförnu. Ef mér verður það á að skrifa um Ukrainu er einn Þorsteinninn ennþá óðar mættur. Þar á ég að sjálfsögðu við Þorstein Sch. Ég les ekki einu sinni langlokur hans. Briemarinn má eiga hann. Sch. er greinlega mikill stuðningsmaður Pútíns hins rússneska. Kannski Briemarinn, ég og fleiri séum undir áhrifum frá Soros og Gates. Mér bara dettur þetta svona í hug. Trumparar held ég að við séum ekki. Steini vann einu sinni á Morgunblaðinu hefur mér skilist. Ég vann lengi á Stöð 2 og fleira get ég kannski talið upp ef ég verð manaður til þess.

Ég er búinn að blogga mikið og lengi. Hef einhverntíma að ég held kallað Jón Val Jensson öfgahægrisinna en er að öðru leyti spar á stóryrðin. Sé ekki eftir því. Er á móti öllum öfgum.

Um að gera að hafa bloggin stutt. Þá eru þau frekar lesin. Kannski væri Twitter hentugur fyrir mig. Nenni samt ekki að skipta. Hef talsverðan ýmigust á Facebook en auglýsi samt bloggið mitt þar.

IMG 3667Einhver mynd.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

Nafnið Þorsteinn var algengt þegar undirritaður fæddist og ég heiti í höfuðið á afabróður mínum sem var atvinnumálaráðherra Framsóknarflokksins en þá voru ráðherrarnir þrír. cool

Ásgeir Ásgeirsson, síðar forseti Íslands, var forsætisráðherra og Magnús Guðmundsson var dómsmálaráðherra en Ólafur Thors var einnig dómsmálaráðherra í skamman tíma.

Ráðuneyti Ásgeirs Ásgeirssonar

Nafni minn var þingmaður Dalamanna og einnig formaður Bændaflokksins.


Þorsteinn Briem

Og faðir hans, langafi minn, var  Ólafur Briem á Álfgeirsvöllum í Skagafirði, þingmaður Skagfirðinga, fyrsti formaður Framsóknarflokksins og formaður Sambands íslenskra samvinnufélaga (SÍS).


Ólafur Briem

Faðir minn ólst upp hjá nafna þegar hann var prófastur á Akranesi. Ævisaga dóttur hans, Halldóru, heitir Kveðja frá annarri strönd, en Halldóra bjó í Stokkhólmi og var fyrsti íslenski kvenkyns arkitektinn. cool


Halldóra Briem

Húsið sem þau bjuggu í á Akranesi, Kirkjuhvoll, er núna gistiheimili.


Gallery Guesthouse

Þorsteinn Briem, 18.4.2022 kl. 13:06

2 identicon

Sæll Sæmundur,
Eins og ég hef áður sagt þá er ég "EKKI hrifinn af Pútin", nú og sjá einnig í sömu athugasemd #21.3.2022 kl. 22:42 : 

"...ef ég væri Putin karlinn (og/eða í hans sporum) þá hefði örugglega farið inn, nú og þá bara inn í austurhluta Úkraínu (eða Donbass) til að verja mitt rússnesku ættað fólk þarna, og þá sem bara friðargæsla. Nú síðan hefði ég sett viðskiptabann og/eða viðskiptaþvinganir á allar þjóðir sem að styðja með einu eða öðrum hætti Úkraínu í allri þessari kynlífssölu- mannsali, líkamsparta sölu, fjárkúgunum, spillingu, svo og gegn þeim ríkjum (og innan NATO) sem að styðja fjöldamorð eða sem að styðja þessar hreinsanir neo- nasista í austurhluta Úkraínu. Ég hefði örugglega eyðilagt allar þessar 26 lífefnavopna- framleiðslustöðvar (eða bioweapons) á vegum ríkisstjórnar Bandaríkjanna í Úkraínu, en ég skil mjög vel alla þessa heift og reiði hans Putins gangvart þessu ógeðslega ógnar- og hernaðarbandalaginu NATO. 
Í allri þessari Rússafóbíu eða Rússahatri þá eru menn því, að annað hvort ertu með Úkraínu og á móti Rússum, eða með Rússum og á móti Úkraínu, nú og ef þú ert eins og ég á móti þessu proxy- stríði, þá færðu ekki heldur að vera í friði " (https://geiragustsson.blog.is/blog/geiragustsson/entry/2276919/), ekki satt Sæmundur?

Bæði Kínverjar og Indverjar sem að sakaðir eru um styðja Rússa, skilja reyndar ekki neitt í stjórnvöldum í Bandaríkjunum og ESB, sérstaklega þar sem að yfir 377.000 manns hafa verið drepnir í þessu stríði gegn Jemen síðastliðin ár. Ekki ein einasta viðskiptaþvingun eða bann hefur verið sett á Bandaríkin, Bretland, Frakkland, ESB og/eða alla þá sem að styðja þetta stríð gegn Jemen. Hér á landi er reyndar enginn sem er að flaggar fána Jemen nein staðar eða eitt eða neitt, nú og allir þessir líka ritstýrðu- og ríkisstyrktu fjölmiðlar hér öskrar bara Úkraína, Úkraína og aftur Úkraína, þú?




Þorsteinn Sch Thorsteinsson 18.4.2022 kl. 14:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband