3042 - Kófið og vísnagerð

Sennilega er ég það sem oft er kallað hagyrðingur. Steini Briem er það líka. Og margir fleiri. Sumar vísur sem Steini birtir hér eru ágætar (Aðrar vísur eftir hann sé ég næstum aldrei.) Oftast svara ég honum í bundnu máli og stundum eru vísur okkar sæmilega góðar en oft á tíðum óttalegt bull. Bæði knúsaðar og illa gerðar. Það kemur þó ekki í veg fyrir að við gerum nokkuð góðar vísur svona af og til að ég tel. Sjálfur kann ég eigilega ekki að gera neitt nema ferskeytlur. Limrur sem eru fremur vinsælar nú um stundir af vísum að vera, kann ég varla að gera. Í fljótu bragði man ég ekki eftir neinni. Man þó eftir tveimur braghendum sem ég gerði fyrir margt löngu. Þær eru svona:

Braghendu er býsna gott að berja saman.
Svo er líka geysi-gaman,
að gretta sig sem mest í framan.

Hin er svona:

Einhverntíma ætla ég að yrkja kvæði
fái ég bara bæði
brennivín og næði.

Ferskeytlur hef ég ort allmargar, sennilega nokkur hundruð. Sumar þeirra eru sjálfsagt nokkuð góðar, en ég ætla ekki að þreyta hugsanlega lesendur mína með því að reyna að rifja þær upp. Þær eru útum allt. Ég hef ekki gert neina tilraun til að halda þeim saman. Hef reynt að hafa þann háttinn á að ef ég minnist ekkert á höfundinn eru mestar líkur til að vísan sé eftir mig. Reyni sjaldan að leggja á minnið hver sé höfundurinn. Finnst vísan sjálf mun meira virði.       

Varðandi vísurnar vil ég einkum segja það að margar mjög góðar vísur er að finna á fésbókinni í hóp þeim sem nefnist Boðnarmjöður. Verst hvað fésbókin er leiðinleg og afskiptasöm. Fer eins sjaldan þangað og ég mögulega get komist af með nú í seinni tíð. Á Boðnarmiði úir líka og grúir líka af illa gerðum vísum og jafnvel vitlaust gerðum. Ef ort er hefðbundið finnst mér lágmark að farið sé eftir þeim reglum sem um slíkt gilda. Þær reglur eru afar einfaldar og voru til skamms tíma kenndar í skólum. Vísnasöfn eru líka víða til. Jafnt á Netinu sem annars staðar.

Veiran og Bjarni Benediktsson eru það sem hæst ber í fréttum þessi jólin. Eitthvað er rætt um bóluefni og það sem bæði Þórólf og Kára dreymir um er að landið í heild verði gert að einni stórri tilraunastofu. Ekki er víst að svo verði en vel gæti samt svo farið. Meðal annars vegna þess að upp til hópa eru Íslendingar nokkuð vel upplýst fólk. Víðast annars staðar er andstaðan gegn bólusetningum mikil og jafnvel óskiljanleg. Svo mikil að ekki er víst að hjarðónæmi náist þó allir sem vilja verði bólusettir þar. Þannig getur þessi Covid-19 veira verið til staðar lengi og ekki er víst að það ónæmi sem bólusetning skapar endist nógu lengi.

Bjarni Benediktsson ætti að sjálfsögðu að segja af sér sem ráðherra eftir að hafa haft að engu sóttvarnarreglur sem hann sjálfur átti þátt í að setja. En mannvalið er svo lítið innan Sjálfstæðisflokksins að ekki er víst að úr því verði. Hann heldur öfgahægrimönnunum þó frá kjötkötlunum. Kannski er hann ekkert betri sjálfur, en hann fer að minnsta kosti betur með það og þó Sjálfstæðisflokkurinn fari sífellt minnkandi er ekki við Bjarna einan að sakast um það. Hvernig jafnólíkum öflum hefur tekist að hanga saman svona lengi er ekkert annað en stórfurðulegt. Framsóknarflokkurinn sem einu sinni var stór flokkur er núna að verða að engu.

IMG 5120Einhver mynd.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

Íslands margt er fúafen,
fólin eru víða,
í partí fór hann Bjarni Ben.,
ber þó Víði að hlýða.

Þorsteinn Briem, 27.12.2020 kl. 09:09

2 Smámynd: Þorsteinn Briem

Þrátt fyrir nafnið er Miðflokkurinn öfgahægriflokkur, myndaður af þeim sem lengst voru til hægri í Framsóknarflokknum og Sjálfstæðisflokknum, og enginn stjórnmálaflokkur sem á sæti á Alþingi vill mynda ríkisstjórn með Miðflokknum. cool

Núverandi ríkisstjórn er fyrir margt löngu kolfallin, samkvæmt skoðanakönnunum, og langlíklegast að í næstu ríkisstjórn verði Samfylkingin, Vinstri grænir, Viðreisn og Píratar, sömu flokkar og nú mynda meirihluta borgarstjórnar. cool

23.12.2020 (síðastliðinn miðvikudag):

Ríkisstjórnarflokkarnir með samtals 40% fylgi og minnsta fylgi Miðflokksins frá Klaustursmáli

Viðreisn er frjálslyndur hægriflokkur en Sjálfstæðisflokkurinn hefur allt frá árinu 1929 fyrst og fremst verið kosningabandalag frjálslyndra og íhaldsmanna.

Fólk sem kýs Sjálfstæðisflokkinn aðhyllist frjálslyndi, frjálshyggju eða íhaldsstefnu.

Meira kraðak er nú varla til í einum stjórnmálaflokki og samstaðan oft lítil, enda hefur Sjálfstæðisflokkurinn margsinnis klofnað og brot úr flokknum myndað ríkisstjórn með öðrum stjórnmálaflokkum. cool

Þorsteinn Briem, 27.12.2020 kl. 09:45

3 identicon

Afsögn Bjarna afleit fórn

sem eru að heimta margvíslegir rokkarnir 

Ef rata saman í ríkisstjórn

Reykjavíkurborgarstjórnarflokkarnir

Bjarni Gunnlaugur 28.12.2020 kl. 01:02

4 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Hlýddi´ ei Víði Bjarni Ben
brokkaði víst hálfur.
Varla er með slugs og slen
slunginn stjórnarálfur.

Sæmundur Bjarnason, 28.12.2020 kl. 22:58

5 identicon

Datt í hug þegar þið eruð að kveða þetta að henda á þig vísur eftir alvöru kvæðamann. Hann heitir Hreinn Guðvarðarson, fljótamaður. Afi Birnu heitinnar Brjánsdóttur, þó það sé nú annað mál. Hann hefr verið að setja inn vísur á facebook og reyndar kom út bók með þessum vísum síðasta sumar. Hann veltir fyrir sér nýlegum atburðum hér:Í Ásmundarsal.

Þorlásmessu kvöldið kátt

komu nokkrir saman

Þar var bæð fjöldi og fátt

fyliri og gaman.

Safnast fólk í salinn þar

(Segja kýs eg ykkur)

Þar inn Bjarna boðið var

og borinn guðadrykkur.

Sagðann kært að þiggja það

en Þorlásmessan líður

Eg reyndar þyrfti að rjúka á stað

ríkissjóður bíður.

-------

En svo kom löggu ljótur mann

svo litiu varð um þokað

Digrum rómi hrópar hann

Hér á að vera lokað.

Jósef Smári Ásmundsson 29.12.2020 kl. 07:10

6 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Takk, Jósef Smári.

Sæmundur Bjarnason, 30.12.2020 kl. 22:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband