16.12.2020 | 09:41
3038 - Þegar veiran stal Jólunum
Get ekki að því gert að mér finnst einhver besta setningin sem orðið hefur til í kófinu sé sú sem er fyrirsögn þessarar blogg-greinar. Aha þarna voru þrír samhljóðar saman hjá mér og þá er hugsanlega betra að aðskilja þá með bandstriki til að ekki geti valdið misskilingi. En ég var semsagt að skrifa um veiruna og þetta var útúrdúr. Henni má bölva og kalla öllum illum nöfnum, en ef svipaðri aðferð er beitt við nafnkenndar persónur, er eins gott að vara sig. Jafvel má ekki segja allt um dýr sem allsekki geta svarað fyrir sig svo mannlegar verur skilji almennilega að minnsta kosti, þvi einhver gæti móðgast fyrir þeirra hönd. T.d. má allsekki segja að einhver tiltekin persóna sé feit. Það verður að vera almenns eðlis, og alls ekki persónugreinanlegt, eins og vinsælt er að segja um það sem neikvætt er. En hvað er neikvætt og hvað er jákvætt? Stundum getur verið erfitt að skera úr um það. En nú er ég kominn lang út fyrir efnið. Ætlaði að tala svolítið um veiruskömmina.
Á flestan hátt má gera ráð fyrir að þessi veirufjandi breyti varanlega hugsunarhætti fólks. Hreinlæti allt og sóttvarnir munu aukast og margt mun breytast sem alls ekki er hægt að sjá fyrir. Þó gera megi ráð fyrir að hér á Íslandi verði áhrif þessa faraldurs meiri fyrir tekjulægri hópa samfélagsins, er ekki hægt að ganga útfrá því að allstaðar annarsstaðar verði útkoman að þessu leyti svipuð. Hugsanlegt er að menningartengd atriði og venjubundin samskipti ráði miklu um það hve alvarleg þessi áhrif verða. Efnahagsleg áhrif þessara sóttvarna og nýju hugsunar verða þó áreiðanlega mikil.
Jafnvel þó bóluefni sé komið til sögunnar verða áhrif þessa faraldurs mikil. Jafnvel er líklegt að áhrifin verði ekki aðeins bundin við árið 2020. Heldur má gera ráð fyrir að víða um heim verði veiran landlæg og hverfi ekki nærri strax. Vel er þó hægt að vona að hér á Vesturlöndum verði faraldurinn ekki sérlega langvinnur úr þessu.
Svo virðist vera að völdum Trumps í USA sé að mestu lokið. Þó efnahagslíf í USA hafi á hans tíð verið með nokkrum blóma þar í landi eru áhrif hans til lengri tíma alls ekki ljós. Alls ekki er heldur hægt að sjá hvað hann muni taka til bragðs í framtíðinni. Hann er ólíkindatól hið mesta. Aðferðir líkar hans til að deila og drottna í stjórnmálum munu þó í framtíðinni væntanlega fara minnkandi. Svo virðist sem eftirmaður hans hafi tekið nokkuð vel á þeim málum sem risið hafa að loknum kosningum þar í byrjun nóvember. Kannski eru það samt einkum áhrifamiklir fjölmiðlar sem það hafa gert.
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Efni
Tenglar
Blogg
- Áslaug Benediktsdóttir
- Harpa Hreinsdóttir
- Atli Harðarson
- Anna K. Kristjánsdóttir
- Erlingur Brynjólfsson
- Nanna Rögnvaldardóttir
- Þórunn Sigurjónsdóttir
- Susan Polgar
Skák
Ýmislegt
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
2006
Bloggvinir
- Anna Einarsdóttir
- Umsjónarmenn blog.is
- Egill Jóhannsson
- Róslín A. Valdemarsdóttir
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Sigríður Jósefsdóttir
- Arnþór Helgason
- Birgitta Jónsdóttir
- Lýður Pálsson
- Einar Sveinbjörnsson
- Gylfi Guðmundsson
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Villi Asgeirsson
- Sigurður Þór Guðjónsson
- Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson
- Egill Bjarnason
- Jóhann Björnsson
- Ólafur fannberg
- TómasHa
- Ágúst H Bjarnason
- Brjánn Guðjónsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Ragnheiður
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Magnús Helgi Björgvinsson
- Kári Harðarson
- Eiríkur Mörk Valsson
- Ragnhildur Sverrisdóttir
- Ridar T. Falls
- Konráð Ragnarsson
- Vefritid
- Svanur Sigurbjörnsson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Sveinn Ingi Lýðsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Pawel Bartoszek
- Haukur Nikulásson
- Bjarni Harðarson
- Eiður Svanberg Guðnason
- Ómar Ragnarsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- AK-72
- Sigurður Ingi Kjartansson
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Þórarinn Þ Gíslason
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Púkinn
- Lady Elín
- Kolbrún Baldursdóttir
- Jens Guð
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Hrannar Baldursson
- Jón Bjarnason
- Ár & síð
- Jón Ingi Cæsarsson
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Svavar Alfreð Jónsson
- Benedikt Henry Segura
- Marinó G. Njálsson
- Theódór Norðkvist
- Jón Ingvar Jónsson
- Gunnar Þórðarson
- Ólafur Fr Mixa
- Gíslína Erlendsdóttir
- Jóna Á. Gísladóttir
- Heimir Tómasson
- Guðmundur Pálsson
- Ólafur Ragnarsson
- gudni.is
- Guðbjörn Guðbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- G. Valdimar Valdemarsson
- Sigmar Þór Sveinbjörnsson
- Gestur Gunnarsson
- Óskar Þorkelsson
- Ylfa Mist Helgadóttir
- Kristinn Theódórsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Evrópusamtökin, www.evropa.is
- Lýður Árnason
- Brattur
- Marta B Helgadóttir
- Hallmundur Kristinsson
- Sigurður Hreiðar
- Eyþór Árnason
- Bergur Thorberg
- kloi
- Hjalti Tómasson
- Kristjana Bjarnadóttir
- Bjarni Sæmundsson
- Máni Ragnar Svansson
- Emil Hannes Valgeirsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Torfi Kristján Stefánsson
- Haukur Baukur
- Sverrir Stormsker
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Helga Kristjánsdóttir
- Loopman
- Einar B Bragason
- Erna Bjarnadóttir
- Ólafur "Tröllabarn" Georgsson
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Gísli Tryggvason
- Helgi Guðmundsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Þráinn Jökull Elísson
- Þorsteinn Briem
- Hjálmtýr V Heiðdal
- Himmalingur
- Ketill Sigurjónsson
- Sæmundur Bjarnason
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Bjarni Rúnar Einarsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Bókakaffið á Selfossi
- Guðni Karl Harðarson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson)
- Marteinn Unnar Heiðarsson
- Einar G. Harðarson
- Bloggrýnirinn
- kreppukallinn
- Jack Daniel's
- Guðjón Baldursson
- Már Wolfgang Mixa
- Dóra litla
- hilmar jónsson
- Hörður B Hjartarson
- Kristín Bjarnadóttir
- Arnþrúður Karlsdóttir
- Baldur Hermannsson
- Eygló
- Finnur Bárðarson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Loftslag.is
- Jón Daníelsson
- Elín Helga Egilsdóttir
- Helga Þórðardóttir
- Sigurður Grétar Guðmundsson
- Leikhópurinn Lotta
- Dúa
- Hulda Haraldsdóttir
- Kama Sutra
- Bjarni Kristjánsson
- Kristinn Theódórsson
- Blogblaster
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jóhanna Magnúsdóttir
- Andspilling
- Valmundur Valmundsson
- Dingli
- Kristinn Karl Brynjarsson
- Sigurður Einarsson
- Mathieu Grettir Skúlason
- Árni Matthíasson
- BookIceland
- FORNLEIFUR
- Guðbjörn Jónsson
- Högni Snær Hauksson
- Ingólfur Sigurðsson
- Stefán Júlíusson
- Þorsteinn Siglaugsson
Athugasemdir
Aukast Sæma öll nú þrif,
allan þvær loks kroppinn,
með gervitennur, gáttatif,
á gumpinn límir koppinn.
Þorsteinn Briem, 16.12.2020 kl. 10:32
Gervitennur gagnast vel
gömlum manni og lúnum.
Steina litla stoltan tel
og státinn undir brúnum.
Sæmundur Bjarnason, 16.12.2020 kl. 11:20
Það var ekki veiran sem stal þeim Sæmundur. Það vóru sóttólfarnir.
Þorsteinn Siglaugsson, 16.12.2020 kl. 23:02
Mér finnst öll uppnefning vera dálítið trumpisk. En "trumpisk" er svosem uppnefning líka. Þórólfur er bara að gera það sem hann á að vera að gera. Einu sinni var sagt: "Hvort viltu heldur vera ánægt svín eða óánægður Sókrates?" Nú er þetta víst sagt allt öðru vísi, þó um sömu hugsum sé að ræða. Málið breytist og þýðingarlaust er að berjast á móti því. Sóttvarnir geta verið með ýmsum hætti. Að berjast gegn ákveðinni tegund þeirra þarf ekki að vera slæmt útaf fyrir sig. Að samsama sig vitleysunni úr Trump er það hinsvegar.
Sæmundur Bjarnason, 17.12.2020 kl. 09:49
Ég sé nú ekki hvað Trump kemur þessu máli við Sæmundur minn. Og nú er hann að hætta að vera forseti svo þú verður að fara að skrifa um Biden í staðinn. Eða hvað?
Þorsteinn Siglaugsson, 17.12.2020 kl. 09:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.