3008 - Meirafíflskenningin

Hætt er við að um hálfgert tröllasamtal verði að ræða í kommentum ef margir taka þátt. Einhver á alltaf bloggið og getur skrúfað fyrir athugasemdir ef honum sýnist svo. Það gerði Jón Valur Jensson óspart, en ég sjálfur aldrei. Hann átti líka mörg blogg og var sískrifandi. Hingað til a.m.k. hef ég ekki tekið mér hann til fyrirmyndar að þessu leyti enda ekki þurft á því að halda. Moggabloggið sjálft held ég að á sinni tíð hafi verið hugsað sem einskonar kommentakerfi að útlenskri fyrirmynd. Nú nú, ég ætlaði eiginlega að fjölyrða eitthvað um  meirafíflskenninguna. Núna er ég búinn að steingleyma hvað ég ætlaði að skrifa.

Siglaugsson minntist í kommenti sínu á „Íslenska Erfðagreiningu“ í sömu andrá og keðjubréfasvindl. Nú vildu samt allir „Kára kveðið hafa“ svo ekki er alveg á þetta að treysta. Aðstæður geta breyst og manneskjur líka. Davíð Oddsson er sumsstaðar hataður, annarsstaðar elskaður o.s.frv. Pólitíkin er undarleg tík eins og Nóbelsskálið sagði einhverntíma. Styrmir er ekkert meiri heimsendaspámaður en aðrir þó Steini Briem segi það.

Að tala bara um hlutlausa vexti, meginvexti og þessháttar leysir engan vanda. Ef Steini og aðrir skilja það ekki er aðild að eða ósk um aðild að ESB eða EU, eins og skammstafa ber það á flestum heimstugnum öðrum en íslensku, allsekki eingöngu eða aðallega vegna vaxtanna, heldur vegna hins að þróunin sé þá kannski í átt að stærri heildum en ekki minni. Munurinn á EU og USA er einkum sá að ekki er hægt fyrir ríki að segja sig úr lögum við sambandsríkið í USA en Brexit er dæmi um annað.

Ekki held ég að þessar svokölluðu örsögur mínar séu merkilegar. Ég nota þær aðallega til uppfyllingar í bloggið mitt. Hér er ein:

 

Eitt sinn þegar Guð almáttugur var á ferðalagi í Himnaríki kom kona ein til hans og bað hann um áheyrn.

„Hvað viltu góða mín“, sagði Guð almáttugur.
„Bara að þú segir honum Jóni mínum að hann geti sjálfum sér um kennt að vera dauður núna“, sagði konan.

  • Nú, var það ekki annað?
  • Nei, eiginlega ekki.
  • Nú.
  • Ja, kannski hefði ég viljað að þú gerðir við saumavélina mína úr því ég náði sambandi við þig.
  • Það er nú eiginlega ekki í minni deild.
  • En þú gætir eflaust haft áhrif á það.
  • Já, kannski. Ég skal nefna þetta við hann Pétur.

 

Þannig vildi það til að Lykla-Pétur fór að fást við saumvélaviðgerðir. Og af því hann var snillingur í því eins og mörgu öðru leið ekki á löngu þar til hann var beðinn um að sauma kjól á Jesú. Á ég þá að gera ráð fyrir brjóstum? Spurði Lykla-Pétur og þóttist þar með geta sloppið við þennan saumaskap. Auðvitað er hann með brjóst og allt tilheyrandi. Skegg líka og allt eftir því, var svarið. Á ég kannski að hafa buxnaklauf á kjólnum? Spurði Lykla Pétur þá og þóttist nokkuð góður.

Þetta með buxnaklaufina hefur síðan verið deiluefni í aldaraðir meðal guðfræðinga, sem ekki gátu komið sér saman um hvort þörf væri fyrir buxnaklauf á kjólnum eða ekki og þessvegna klæðast prestar enn þann dag í dag kjólum, sem þeir kalla að vísu hempur, en enginn tekur það alvarlega. Og ekki er buxnaklauf á þeim.

IMG 5483Einhver mynd.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

Það væri nú harla einkennilegt ef engu máli skipti fyrir fólk hér á Íslandi hvort það þarf að greiða 140 þúsund eða 210 þúsund krónur á mánuði í afborgun af húsnæðisláni. cool

Á evrusvæðinu búa 342 milljónir manna, fleiri en í Bandaríkjunum.

Með aðild Íslands að Evrópska efnahagssvæðinu er landið að nær öllu leyti í Evrópusambandinu og við Íslendingar eigum mest viðskipti og samskipti við Bretland og Evrópusambandsríkin. cool

Við flytjum mest inn frá þessum ríkjum og seljum langmest af okkar sjávarafurðum til Bretlands og evrusvæðisins, til að mynda Þýskalands, Frakklands og Spánar.

Þess vegna skiptir miklu máli fyrir okkur Íslendinga að við þurfum ekki að greiða háa tolla fyrir sjávarafurðir í Bretlandi og Evrópusambandsríkjunum.

Þar að auki ferðast Íslendingar mest til Bretlands og ríkja á Evrópska efnahagssvæðinu, til dæmis Spánar, Þýskalands, Frakklands og Danmerkur, og danska krónan er bundin gengi evrunnar.

Og flestir Íslendingar sem starfa eða stunda nám erlendis eru í Bretlandi og á Evrópska efnahagssvæðinu, til að mynda í Danmörku, Noregi og Svíþjóð.

Útlendingar geta eignast allar jarðir hér á Íslandi og helminginn af öllum aflakvóta íslenskra fiskiskipa strax í fyrramálið ef þeir nenna því. cool

Og enginn stjórnmálaflokkur, sem á sæti á Alþingi, vill segja upp aðild Íslands að Evrópska efnahagssvæðinu, ekki einu sinni Flokkur fólksins eða Miðflokkurinn.

Eiríkur Bergmann Einarsson forstöðumaður Evrópufræðaseturs Háskólans á Bifröst:

"Til að mynda er Svíþjóð aðeins gert að innleiða hluta af heildar reglugerðaverki Evrópusambandsins.

Og ... okkur Íslendingum er nú þegar gert að innleiða ríflega 80% af öllum þeim lagareglum Evrópusambandsins sem Svíum er gert að innleiða." cool

28.8.2020:

"Varaseðlabankastjóri segir mikilvægt að fólk sem tekur óverðtryggð lán geri sér grein fyrir að 1% stýrivextir Seðlabanka Íslands séu ekki komnir til að vera.

Afborganir lána gætu hækkað verulega þegar stýrivextir Seðlabankans hækka á ný."

"Greiðslubyrði af 35 milljóna króna láni til 40 ára við fyrstu kaup á húsnæði gæti farið úr ríflega 140 þúsund krónum á mánuði í rétt yfir 210 þúsund ef vextir hækkuðu í það sem telja má eðlilegt ástand hér á landi." cool

Greiðslubyrði af 35 milljóna króna láni gæti hækkað úr 140 þúsund krónum á mánuði í 210 þúsund

Þorsteinn Briem, 16.9.2020 kl. 09:49

2 Smámynd: Þorsteinn Briem

Gengi mörlensku krónunnar hefur hrunið einn ganginn enn og nú kostar evran 18% fleiri íslenskar krónur en um síðustu áramót. cool

Gengi dönsku krónunnar er hins vegar bundið gengi evrunnar og færeyska krónan er jafngild dönsku krónunni, enda eru Færeyingar danskir ríkisborgarar.

Á evrusvæðinu búa um 342 milljónir manna, fleiri en í Bandaríkjunum.

Eistland fékk aðild að evrusvæðinu árið 2011, Lettland 2014 og Litháen 2015.

Og Króatía fékk aðild að Evrópusambandinu árið 2013.

Ísland gæti fengið aðild að gengissamstarfi Evrópu, ERM II, þegar landið fengi aðild að Evrópusambandinu. cool

"The currency of Denmark, the krone (DKK), is pegged at approximately 7.46 kroner per euro through the ERM.

Although a September 2000 referendum rejected adopting the euro, the country in practice follows the policies set forth in the Economic and Monetary Union of the European Union and meets the economic convergence criteria needed to adopt the euro."

10.2.2015:

"Í Danmörku hafa lágir vextir á húsnæðislánum einnig styrkt efnahagslífið og komið því enn betur í gang.

Nú er hægt að fá lán til 30 ára með föstum 1,5% vöxtum en aldrei hefur verið boðið upp á lægri fasta vexti.

Þessi lán eru óverðtryggð." cool

19.8.2018:

"Dómsmálaráðherra birti á dögunum svar við fyrirspurn Ólafs Ísleifssonar, þingmanns Flokks fólksins [nú Miðflokksins]. cool

Þar kemur fram að á tíu árum var árangurslaust fjárnám gert 117 þúsund sinnum hjá einstaklingum.

Um þrjú þúsund voru lýstir gjaldþrota og 8.800 eignir einstaklinga voru seldar á nauðungaruppboði.

Þar bætast reyndar við um 400 fasteignir sem seldar voru á nauðungarsölu eða sölu vegna greiðsluaðlögunar skuldara, eins og kom fram í fyrra svari félagsmálaráðherra við fyrirspurn Ólafs.

"Ég er nýkominn frá Færeyjum. Þar fjármagna menn íbúðarhúsnæði með föstum vöxtum, 1,7% til 20 ára," segir Ólafur Ísleifsson." cool

Færeyska krónan er jafngild dönsku krónunni.

Gengisbinding dönsku krónunnar við evruna nær því einnig til Færeyja - og Grænlands. cool

Þorsteinn Briem, 16.9.2020 kl. 09:58

3 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Merkilegt hvernig Kára hefur tekist að gera sig að einhvers konar messíasi í þessum málum. Samt er hann þarna fyrst og fremst fulltrúi amerísks lyfjarisa og vitanlega eru það hagsmunir hans sem ráða. Kári er auk þess enginn sóttvarnasérfræðingur þótt honum hafi einhvern veginn tekist að telja mörgum trú um það, þar á meðal ríkisstjórninni. Hvet menn til að skoða greinar Ole Antons Bieltvedt um þessi mál á Vísi. Þar fæst svolítil vísbending um hvað er í gangi.

-------------

Líklega er þessi himneski saumaskapur sem þú lýsir eitthvað tengdur einu helsta deiluefni guðfræðinga á miðöldum, sem var það hversu margir englar kæmust fyrir á títuprjónshaus. (Nú sakna ég Jóns Vals, sem eflaust hefði skammað mig fyrir svona kerskni um himnafeðgana - og gerir það kannski á því himneska moggabloggi sem hann er ábyggilega að atast á einmitt núna)

Þorsteinn Siglaugsson, 16.9.2020 kl. 22:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband