2983 - Fastir liðir eins og venjulega

Sko, það er orðið nokkuð langt síðan ég bloggaði síðast. Kannski það sé best að skrifa (blogga) smá núna. Veit bara ekki hvað ég ætti að skrifa um. Það er minn Akkillesar-hæll. Ég veit svo lítið og er ekki sérfræðingur í neinu. Það væri þá helst að ég væri það (sérfræðingur) í að skrifa einhverja endemisdellu og endursegja fréttir. Merkilegt hvað margir lesa þetta þó. Kannski var það svo að þegar ég var yngri hafi ég haft einhverjar rithöfundargrillur. Það er samt löngu liðin tíð. Að ég skuli vera svona fastur í Moggablogginu er undarlegt í meira lagi. Þegar næstum allir aðrir eru komnir í árans Fésbókina. Halldór Jónsson ráðlagði mér fyrir nokkru að hafa bloggin mín bara nógu stutt, ef ég vildi öðlast einhverjar vinsældir. Þetta varð til þess að ég fór að lesa bloggin hans. Hann skrifar mikið um pólitíksk málefni og er mjög hægrisinnaður. Auk þess vitnar hann stöðugt í allskyns pólitíska langhunda. T.d. er aðdáun hans á Davíð Oddssyni og Trump Bandaríkjaforseta mikil. Ég aftur á móti legg þá nokkuð að jöfnu á neikvæðan hátt, nema hvað Davíð er greinilega betur gefinn en Trump.

Einhver sagði að á Moggablogginu væru bara sannfærðir últrahægrimenn og stórskrítnir karakterar. Ætli það hafi ekki verið Björn Birgisson í Grindavík sem sagði þetta. Hann lætur margt flakka og er talsvert lesinn. Kannski sagði hann það ekki nákvæmlega með þessum orðum, en meiningin var greinileg. Mér finnst aftur á móti að það séu stórskrítir karakterar sem eru sískrifandi á Fésbókina. Annars eru skrif af öllu tagi að komast úr tísku. Það eru myndirnar sem blífa. Helst að það séu hreyfimyndir eða réttara sagt vídeó- eða kvikmyndir.

Hef undanfarið verið að lesa bókina um Trump eftir frænku hans sem ólst upp með honum. Amazon bauð uppá kynningu á þessari frægu bók fyrir stuttu síðan. Ég skellti mér strax á þá ókeypis kynningu sem boðið var uppá í Kyndlinum mínum, sem satt að segja er talsvert aldraður orðinn af tölvu að vera. Ekki vildi ég samt eyða peningum í þessa bók, enda á ég erfitt með það. Dýr var hún samt ekki. Annars eru Trump og Kórónuveiran að verða eins og samvaxnir tvíburar í hugum flestra Íslendinga. Ætti ég kannski að bæta „held ég“ aftan við þessa setningu?

Af hverju skyldi það vera, sem lesendur mbl.is vilja umfram allt lesa um pólitík og persónuleg málefni. Ekki veit ég það svo ofboðslega gjarnan, en grunar að það sé að mestu eða a.m.k. miklu leyti ósjálfrátt. Hef t.d. tekið eftir því að ef ég fer á mbl.is í tölvunni minni, þá er ég undireins kominn annhvort á það sem Marta Smarta skrifar um fræga fólkið, giftingar, kynlíf og svoleiðis eða að öðrum kosti farinn að lesa um íþróttir. Furðulegt hvað auðvelt virðist að verða frægur þar fyrir tuðruspark og þessháttar.

IMG 5747Einhver mynd.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

Margan sá hér kynlegan kvist,
kinkí rugludalla,
græta þeir á krossinum Krist,
Kölski fær þá alla.

Þorsteinn Briem, 23.7.2020 kl. 12:26

2 Smámynd: Þorsteinn Briem

Það væri nú harla einkennilegt ef Mörlendingar væru ekki skrítnir, flestallir náskyldir hver öðrum, og ekki þykir skyldleikaræktin góð í sauðfjárræktinni, passað vel upp á þær uppáferðir allar. cool

Helga Rafnsdóttir á um 99 þúsund afkomendur

Útlendingar hafa hins vegar bjargað því sem bjargað verður í þeim efnum, til að mynda þeir sem veiddu hér við Ísland fyrr á öldum, Englendingar, Frakkar og Baskar, og mörlenskar konur sváfu hjá þegar þær seldu þeim ullarsokka og vettlinga.

Svo og breski og bandaríski herinn og nú síðustu áratugina til dæmis Pólverjar og flóttamenn, sem Halldór Jónsson hatast við, enda þótt þeir hafi hér góðan starfa og haldi því karlinum uppi í hatursskrifum sínum gegn múslímum og flóttamönnum. cool

En auðvitað reynir karlinn að passa vel upp á að engin óæskileg blöndun að hans mati eigi sér stað í Kópavoginum. cool

Þorsteinn Briem, 23.7.2020 kl. 13:21

3 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Moggabloggið er um margt hálfgerður bergmálshellir og mér sýnist megnið af þeim sem skrifa á það einmitt vera furðufuglar og einhvers konar fasistar. En svo eru rjóður í þeim myrkvið, fáein amk.

Þorsteinn Siglaugsson, 23.7.2020 kl. 13:58

4 Smámynd: Ívar Ottósson

Satt og rétt...og svo ef þú mótmælir þeim meira en í góðu hófi gegnir(að þeirra mati) þá blokka þeir þig, vilja bara jábræður og einræður.

Ívar Ottósson, 23.7.2020 kl. 14:24

5 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Steina Briem víst alltaf er 
orðljót ræða´ að vanda.
Syngur hann á Kölska-kver
krimmar mega standa.

Sæmundur Bjarnason, 23.7.2020 kl. 15:22

6 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Þorsteinn Siglaugsson, ég held að Moggabloggið hafi upphaflega verið hugsað sem einskonar kommentakerfi, en orðið smám saman að þessum bermálshelli sem þú talar um. Varaðu þig á að taka þér orðið fasistaf í munn, það er nefnilega kannski of líkt nasistum og Hitler, en þau orð eru nánast bönnuð eins og þú veist.

Sæmundur Bjarnason, 23.7.2020 kl. 15:27

7 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Ívar, Þorsteinn og Þorsteinn eru vanir að kommenta hér, en þú er nýr. Ég hef aldrei blokkað neinn á mínu bloggi. Kann ekki einu sinni á slíkt. Innleggin þar eru samt að verða 3000. Hef að vísu fælt Steina Briem í burtu, en hann kemur alltaf aftur. 

Sæmundur Bjarnason, 23.7.2020 kl. 15:34

8 Smámynd: Ívar Ottósson

Meinti alls ekki þig Sæmundur heldur þá sem þú minnist á og kannski Þorsteinn einnig.

Hef reyndar mjög gaman af bloggum þínum og les þau öll en hef ekki kommentað áður.

Ívar Ottósson, 23.7.2020 kl. 16:24

9 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Þegar ég fór að fylgjast með Moggablogginu fyrst, fyrir mörgum árum, var miklu meira um fjölbreytta og vandaða pistla, og auðvitað gjarna komment á fréttir. Svo held ég að vinstri- og miðjumennirnar hafi hrökklast yfir á facebook þegar það kom að miklu leyti.

Það er amk. einn stubbur sem hefur blokkerað mig. Hann heitir Jóhann Elíasson og er, eftir því sem sjá má af skrifunum einhvers konar blanda af sjómanni og fasista.

Þorsteinn Siglaugsson, 23.7.2020 kl. 21:23

10 Smámynd: Ívar Ottósson

Ég bæti við að ég fylgist nokkuð með hvað Þorsteinn skrivar í athugasemdum og er oftar en ekki sammála, málefnalegt miðað við flesta.

Ívar Ottósson, 23.7.2020 kl. 21:51

11 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Ívar minn, mér finnst að þú þurfir að segja hvorn Þorsteininn þú átt við. Þeir eru nefnilega ekki alltaf sama sinnis, finnst mér.

Sæmundur Bjarnason, 24.7.2020 kl. 17:45

12 Smámynd: Ívar Ottósson

Fyrirgefðu Sæmundur, Ég meinti Siglaugssonin, maður sem oft stígur í vitið.

Ívar Ottósson, 24.7.2020 kl. 20:50

13 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Briem er betri en ég í að gera vísur. En takk fyrir hólið Ívar.

Þorsteinn Siglaugsson, 24.7.2020 kl. 21:49

14 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Hann virðist líka vera góður í að "kopy peista". Afrita og líma mætti kannski kalla það á íslensku. 

Sæmundur Bjarnason, 25.7.2020 kl. 05:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband