2899 - Hvað er það sem þeir hjá Toyota vita, en við ekki?

Einu sinni var sagt að Volkswagen hefðu reynt að snúa galla upp í kost. Þannig var að hurðirnar á Bjöllunni voru svo léttar að ekki var auðveldlega hægt að skella þeim aftur. Þannig var og er bílhurðum yfirleitt lokað. Þeir hjá Volkswagen sögðu þá að þetta sýndi hve þéttir bílarnir væru. Ekki held ég þó að prófað hafi verið að keyra þá útí sjó, til að ganga úr skugga um þetta.

Minn fyrsti bíll var Volkswagen bjalla árgerð 1959. Sá bíll hafði verið keyptur í Þýskalandi og var með teinabremsum. Ekki þótti taka því að setja vökvabremsur á bíla fyrir innanlandsmarkað. Slíkar bremsur voru samt í þá tíð komnar í flesta bíla á Íslandi. Enginn bensínmælir var í bílnum heldur var hægt að færa hnapp sem færði úrtakið úr bensíntanknum svolítið neðar. Þetta var kallað varatankur.

Nú auglýsa þeir hjá Toyota Hybrid bíla sem ekki þarf (eða er hægt) að setja í samband við rafmagn. Vissulega er þetta nokkur framför frá varatanknum svokallaða, en hugsunin er sú sama. Toyota virðist ekki ætla að taka þátt í kapphlaupinu um rafmagnsbílana eins og aðrir bílaframleiðendur. Það hlýtur að stafa af því að þeir reikna ekki með að núverandi rafvæðing bílaflota heimsins verði varanleg. Metangas er hugsanlega lausnin. Ef bílafloti heimsins gengur fyrir slíku gasi og skyndilega eykst matarmenning stórlega, ja, hvað gera Danir þá?

Eldfjöll drepa. Það ættum við Íslendingar að þekkja, betur en margir aðrir. Samt er það svolítið undarlegt hve mikil fjölmiðlaumfjöllun er um sprengigosið á Hvíteyju í Indónesíu. Árið 2014 fórust eitthvað yfir 60 manns í svipuðu sprengigosi í Japan. Ekki man ég eftir neitt svipaðri umfjöllun um þann atburð í fjölmiðlum. Er þetta til marks um breytta fjölmiðlun, eða hvað? Ef svo er finnst mér hún gerast með miklum hraða. Mun hraðar en ég hefði ímyndað mér. Kannski er þetta útaf einhverju allt öðru, en mér finnst þetta athugunarefni.

Að efast um eigið ágæti, er vísasta leiðin til glötunar. Að heimilismatur sé betri en veitingahúsamatur er sjálfgefið, en að svið séu betri en hamborgarhryggur liggur ekki i augum uppi. Spakmæli á borð við þessi eru gjarnan það fyrsta sem mér dettur í hug á morgnana, þetta eða annað svipað á ég til að tauta fyrir munni mér með stírurnar í augunum, nývaknaður og grænn af pilluleysi. Þegar ég aftur á móti er orðinn sæmilega pillaður og búinn að fá mér lýsi og tilheyrandi dettur mér gjarnan ekkert í hug.

Samkvæmt frétt í Fréttablaðinu um að vopnasala hafi gengið vel á árinu sem er að líða ber að athuga að ekki eru allir sammála um að sú frétt sé jákvæð. Vissulega er það gott útaf fyrir sig að einhver atvinnugrein gangi vel, en gera má ráð fyrir að einhverjir gjaldi fyrir að vopnaframleiðslan og salan gangi vel. Þó stríð séu talin vera ein 27 um þessar mundir er ekki svo, held ég a.m.k., að stríðsógnir og hermdarverk fari vaxandi svona yfirleitt. Kannski er þetta ár, 2019 með þeim verri í þessu tilliti en ef réttar og vinsælli viðmiðanir eru notaðar, eins og t.d. heimssyrjaldirar tvær á síðustu öld er hægt að telja sér trú um að friðvænlegra sé í heiminum núna en oftast áður. Trump virðist að vísu gera sitt til þess að æsa menn upp, en kannski er það ekkert að marka, hugsanlegt er að hann sé friðelskandi inn við beinið.

IMG 6458Einhver mynd.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæmi, bara svona smá, Hvítaeyja er við Nýja-Sjáland, norðureyna, en ekki í Indónesíu.

Skólabróðir 14.12.2019 kl. 11:36

2 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Það var prófað að láta Bjölluna fara í siglingu á vatni, og á þeim tíma var enginn bíll, sem gat flotið eins og hún gerði. 

Hjá Toyota var í fyrstu auglýsingunum gefið í skyn við fáfróðan markhóp, að hann væri kominn fremst í röð rafknúinna bíla á þann hátt að aldrei þyrfti að setja á hann rafmagn. ("Sjálfhlaðandi/hleður sig sjálfur").

Hitt fylgdi ekki með í auglýsingunni að eini orkugjafinn, sem gæfi bílnum orku utan frá, væri bensín. 

Þegar þeir fengu ofanígjöf fyrir þetta, breyttu þeir auglýsingunni í það að bílnum væri ekið til jafns með orku frá bensíni og rafmagni. 

Þetta er líka villandi, því að ekki er hægt að gera þetta nema að miða við tímalengd aksturs, þar sem rafaflið knýr bílinn á léttum köflum á litlum hraða, en bensínvélin sér um aflið á erfiðari, hraðari köflum og köflum upp í móti. 

Í venjulegum akstri er engin leið að fá jafn mikla orku frá báðumm orkugjöfum, eins og sést best á uppgefnum eyðslutölum, þar sem eyðslan er aðeins um 20 prósent minni á 100 kílómetra á hybrid-bíl en á bíl, sem er með bensínvélina eingöngu.    

Ómar Ragnarsson, 14.12.2019 kl. 16:06

3 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Í minni fjölskyldu eru tveir Toyota RAV4 bílar og þekki ég báða mætavel.

Sá eldri (2016) er með hefðbundinni 2,0 lítra bensínvél, og er langtíma meðaleyðslan 10,8 lítrar á 100km.

Sá yngri (haust 2017) er óhlaðanlegur hybrid með 2,5 lítra Atkinson bensínvél og 2 rafmótora, auk eins sem vinnur sem rafali og startari, og er langtíma meðaleyðslan 7,5 lítrar á 100km.

Það er óvenjulegt, að RAV4 hybrid eyðir sama eða jafnvel minna í innanbæjarakstri en í utanbæjarakstri.

Í útliti og akstri eru bílarnir nokkuð svipaðir, en það er hreinasta unun að aka hybrid útgáfunni.


Ágúst H Bjarnason, 15.12.2019 kl. 16:05

4 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Eiginlega var ég allsekki að skrifa neitt um Toyota-bíla sem slíka. Bróðir minn á Toyota og kaupir aldrei annað. Ég átti við það að mér finnst það frekar galli en kostur að ekki skuli vera hægt að setja hybrid-bílana af þeirri gerð í samband við rafmagn. Með öðrum orðum: setja þarf bersínvél í gang til að hlaða þá.

Sæmundur Bjarnason, 15.12.2019 kl. 22:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband