23.4.2019 | 11:34
2851 - MAX 8 og 9
Núorðið er það svo að þegar eitthvað gerist og fólk er viðstatt (annars gerist það kannski ekki.) þá eru teknar 260 myndir af því og einar 16 vídeómyndir. Ef hjóli er stolið eða ef kviknar í bíl eru auðvitað um margfalt fleiri myndir að ræða. Hvað skyldi verða um allar þessar myndir? Ekki öfunda ég sagnfræðinga framtíðarinnar af að þurfa að skoða þær allar . Þessvegna er það sem ég er farinn að taka sífellt færri og færri myndir og nýta þær betur. T.d. eru allar þær myndir sem ég birti með bloggunum mínum endurnýttar. Samt hef ég nú tekið þær allflestar. Annars er það að verða mest fyrirkvíðanlegt í sambandi við bloggið að sækja þær alltaf. Ekki hef ég komið mér upp góðu systemi til þess arna.
Eiginlega er ég í mestu vandræðum með hvað ég á að gera við þriðja orkupakkann. Sumir segja að ég verði að vera á móti honum en aðrir að ég eigi að vera meðmæltur honum. Mér er nær að halda að það skipti litlu máli hvorn kostinn ég vel. Blessuð ríkisstjórnin er áreiðanlega búin að ákveða fyrir löngu (fisk) hvort hagstæðara er að vera meðmæltur honum eða andvígur. Gulli er a.m.k. meðmæltur honum. Kannski er það bara vegna þess að Bjarni hefur sagt honum það og kannski ekki. Hver veit nema við getur bara róið í burtu þegar Tjallinn kemur og vill stinga í samband.
Já, vel á minnst. Ég get sem best fjölyrt fjandann ráðalausan um Brexit. Ég er nefnilega kominn á þá skoðun að Bretar fari aldrei úr ESB-buxunum sínum. Á hverju byggi ég það? Skysemi eingöngu. Nú þegar Sambandsherrarnir eru komnir uppá lag með að veita Bretum frest, þá má hiklaust búast við að þeir haldi því áfram. Alltaf fær Bretinn frest á öllu. Kannski þeir fresti því bara að hætta að vera heimsveldi. Þeir reyndu það. Einu sinni héldu þeir meira að segja að þeir gætu eitthvað í fótbolta, en Íslendingar komu þeim í skilning um annað.
Mér sýnist að allar líkur séu á að langur tími muni líða þangað til Boeing fyrirtækið getur aftur farið að selja Boeing 737 MAX 8 og 9. Kannski geta þeir það aldrei og kannski fer þetta fyrirtæki á hausinn eða skiptir um kennitölu. Veit ekki hvort er vinsælla í henni Ameríku. Að láta sér í léttu rúmi liggja þó mörg hundurð manns hafi drepist af þeirra völdum er ekki í boði nútildags.Einu sinni voru fleiri fyrirtæki í USA sem framleiddu flugvélar. Kannski einhver þeirra verði endurvakin.
Að undanförnu hef ég verið að lesa gömul blogg eftir sjálfan mig. Ekki þó eftir einhverju áður ákveðnu skipulagi, heldu svona á maa og faa, einsog danskurinn mundi segja. Mikið andskoti hef ég stundum verið velskrifandi. Eiginlega er furðulegt að lesendur mínir skuli ekki vera miklu fleiri en raun ber vitni. Eins og ég hef verið frumlegur oft og einatt. Annars er ég ekkert að gagnrýna þessa fáu lesendur sem ég þó hef. Ekki geta þeir gert að því þó þeir séu ekki fleiri.
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Efni
Tenglar
Blogg
- Áslaug Benediktsdóttir
- Harpa Hreinsdóttir
- Atli Harðarson
- Anna K. Kristjánsdóttir
- Erlingur Brynjólfsson
- Nanna Rögnvaldardóttir
- Þórunn Sigurjónsdóttir
- Susan Polgar
Skák
Ýmislegt
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
2006
Des. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 | 31 |
Bloggvinir
- Anna Einarsdóttir
- Umsjónarmenn blog.is
- Egill Jóhannsson
- Róslín A. Valdemarsdóttir
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Sigríður Jósefsdóttir
- Arnþór Helgason
- Birgitta Jónsdóttir
- Lýður Pálsson
- Einar Sveinbjörnsson
- Gylfi Guðmundsson
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Villi Asgeirsson
- Sigurður Þór Guðjónsson
- Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson
- Egill Bjarnason
- Jóhann Björnsson
- Ólafur fannberg
- TómasHa
- Ágúst H Bjarnason
- Brjánn Guðjónsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Ragnheiður
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Magnús Helgi Björgvinsson
- Kári Harðarson
- Eiríkur Mörk Valsson
- Ragnhildur Sverrisdóttir
- Ridar T. Falls
- Konráð Ragnarsson
- Vefritid
- Svanur Sigurbjörnsson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Sveinn Ingi Lýðsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Pawel Bartoszek
- Haukur Nikulásson
- Bjarni Harðarson
- Eiður Svanberg Guðnason
- Ómar Ragnarsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- AK-72
- Sigurður Ingi Kjartansson
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Þórarinn Þ Gíslason
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Púkinn
- Lady Elín
- Kolbrún Baldursdóttir
- Jens Guð
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Hrannar Baldursson
- Jón Bjarnason
- Ár & síð
- Jón Ingi Cæsarsson
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Svavar Alfreð Jónsson
- Benedikt Henry Segura
- Marinó G. Njálsson
- Theódór Norðkvist
- Jón Ingvar Jónsson
- Gunnar Þórðarson
- Ólafur Fr Mixa
- Gíslína Erlendsdóttir
- Jóna Á. Gísladóttir
- Heimir Tómasson
- Guðmundur Pálsson
- Ólafur Ragnarsson
- gudni.is
- Guðbjörn Guðbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- G. Valdimar Valdemarsson
- Sigmar Þór Sveinbjörnsson
- Gestur Gunnarsson
- Óskar Þorkelsson
- Ylfa Mist Helgadóttir
- Kristinn Theódórsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Evrópusamtökin, www.evropa.is
- Lýður Árnason
- Brattur
- Marta B Helgadóttir
- Hallmundur Kristinsson
- Sigurður Hreiðar
- Eyþór Árnason
- Bergur Thorberg
- kloi
- Hjalti Tómasson
- Kristjana Bjarnadóttir
- Bjarni Sæmundsson
- Máni Ragnar Svansson
- Emil Hannes Valgeirsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Torfi Kristján Stefánsson
- Haukur Baukur
- Sverrir Stormsker
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Helga Kristjánsdóttir
- Loopman
- Einar B Bragason
- Erna Bjarnadóttir
- Ólafur "Tröllabarn" Georgsson
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Gísli Tryggvason
- Helgi Guðmundsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Þráinn Jökull Elísson
- Þorsteinn Briem
- Hjálmtýr V Heiðdal
- Himmalingur
- Ketill Sigurjónsson
- Sæmundur Bjarnason
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Bjarni Rúnar Einarsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Bókakaffið á Selfossi
- Guðni Karl Harðarson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson)
- Marteinn Unnar Heiðarsson
- Einar G. Harðarson
- Bloggrýnirinn
- kreppukallinn
- Jack Daniel's
- Guðjón Baldursson
- Már Wolfgang Mixa
- Dóra litla
- hilmar jónsson
- Hörður B Hjartarson
- Kristín Bjarnadóttir
- Arnþrúður Karlsdóttir
- Baldur Hermannsson
- Eygló
- Finnur Bárðarson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Loftslag.is
- Jón Daníelsson
- Elín Helga Egilsdóttir
- Helga Þórðardóttir
- Sigurður Grétar Guðmundsson
- Leikhópurinn Lotta
- Dúa
- Hulda Haraldsdóttir
- Kama Sutra
- Bjarni Kristjánsson
- Kristinn Theódórsson
- Blogblaster
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jóhanna Magnúsdóttir
- Andspilling
- Valmundur Valmundsson
- Dingli
- Kristinn Karl Brynjarsson
- Sigurður Einarsson
- Mathieu Grettir Skúlason
- Árni Matthíasson
- BookIceland
- FORNLEIFUR
- Guðbjörn Jónsson
- Högni Snær Hauksson
- Ingólfur Sigurðsson
- Stefán Júlíusson
- Þorsteinn Siglaugsson
Athugasemdir
Nú ýfir gamla Icesave und
sem aldrei ég trúa þyrði.
Úr landi vill hún leggja hund
og leyfa höfn í Finnafirði
Um ríkisstjórnina og orkupakkann
Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 23.4.2019 kl. 14:19
Orkupakki engist smár
öllum leiður baggi.
Ef hann stoppar örfá ár
útúr heimi flaggi.
Fer burt eftir fáein ár
fjandans orkupakki.
Er víst orðinn gamalgrár
sá grútarsendill skakki.
Sæmundur Bjarnason, 23.4.2019 kl. 22:56
Það sem skiptir langmestu máli í sambandi við þriðja orkupakkann Sæmundur, það er að maður trúi því að hann sé bara toppurinn á risastórum ísjaka sem er samsæri gyðinga, frímúrara, frjálshyggjumanna, kommónista, George Soros og marsbúa gegn góðu og grandvöru fólki (eins og Páli Vilhjálmssyni og honum Jónival), íslenskum landbúnaðarafurðum, kristindómnum, þjóðsöngnum, fullveldinu og góðum hægðum.
Hvort þessi upptalninga hjálpar þér að taka afstöðu veit ég ekkert um og er eiginlega alveg sama.
Góða nótt.
Þorsteinn Siglaugsson, 24.4.2019 kl. 00:05
Orkupakki ekki stór
er að valda kvíða.
Gulli þórðar mikið mjór
marga þarf að svíða.
Sæmundur Bjarnason, 25.4.2019 kl. 10:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.