2755 - Frekar lítið um Trump

Í Bandarískum stjórnmálum eru það peningarnir sem ráða mestu. Hvort er betra að þeir ráði svona miklu eða hálfvitlaus forseti sem hefur pressuna og flestalla ráðamenn annarra þjóða á móti sér. Ekki er hægt að neita því að Bandaríkin hafa náð ágætum árangri á mörgum sviðum eftir að Trump tók við völdum og svo er hann fremur vinsæll meðal þeirra bandaríkjamanna sem eru hægrisinnaðir þarlendis. Stjórnunarstíll hans er þó óneitanlega talsvert tilviljanakenndur og sundrandi. Hann tekur fullan þátt í stjórnmálum dagsins og er sjálfhælinn mjög. Afar ólíkur fyrri forsetum í USA.

Hjá okkur á Íslandi er það kannski ræðumennskan, sem mestu ræður í pólitík. Áhrif Steingríms Sigfússonar eru mikil og þó hann sé ekki forsætisráðherra þá ræður hann miklu, einkum í krafti þekkingar sinnar, reynslu og ræðumennsku. Annars eru stjórnmál fremur leiðinleg sem áhugamál, en svolítið auðveld samt.

Ekki má nú mikið. Obama og Biden sáust saman í einhverju bakaríi að kaupa sér kökur og annað kruðirí og samstundis var það komið í heimsfréttirnar. Kannski þó bara í Bandaríkjunum. Eins og flestir vita sjálfsagt var Obama forseti í USA á undan Trump og Biden varaforseti hans. Hvort skyldu menn af þessu sauðahúsi kunna að meta frægðina mikils eða taka henni sem óhjákvæmilegri bölvun?

Fluguhelvítið sem var að angra mig meðan ég var að bloggast í gærmorgun álpaðist að lokum ofan í kaffibollan minn og varð að gjalda fyrir þau mistök með lífi sínu.

Nú hef ég komist að því að auglýsingar geta stundum komið að gagni. Ég hef lengi velt því fyrir mér hvað „hitaveituskeljar“ væru nákvæmlega. Oft eru þessi fyrirbrigði auglýst í útvarpinu og oftast í samkrulli við heita potta. Svo ég var búinn að gera ráð fyrir að þetta væri eitthvað skylt þeim. Núna áðan sá ég heilsíðuauglýsingu í Fréttablaðinu á hitaveituskeljum og sá þar að þetta eru ofur venjulegir heitir pottar. Þá veit maður það. Og Fréttablaðið græðir.

Nú er kominn ágúst og verslunarmannahelgin á næsta leiti. Hver veit nema sumarið komi á endanum. A.m.k. er veðrið ágætt hér á Skaganum akkúrat núna. Þetta sem hér er á undan var skrifað í gær þriðjudag. Mánaðamót eru eitt af þessu óhjákvæmilega sem veldur því að maður eldist og eldist.

IMG 7907Einhver mynd.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

Flugan sínum drottni dó,
drakk en var í straffi,
suðið búið, Sæmi hló,
svo kom Trump í kaffi.

Þorsteinn Briem, 1.8.2018 kl. 16:54

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Með því skárasta sem ég hef lengi séð frá undrabarninu

Halldór Jónsson, 1.8.2018 kl. 17:43

3 Smámynd: Halldór Jónsson

"Í Bandarískum stjórnmálum eru það peningarnir sem ráða mestu. Hvort er betra að þeir ráði svona miklu eða hálfvitlaus forseti sem hefur pressuna og flestalla ráðamenn annarra þjóða á móti sér. Ekki er hægt að neita því að Bandaríkin hafa náð ágætum árangri á mörgum sviðum eftir að Trump tók við völdum og svo er hann fremur vinsæll meðal þeirra bandaríkjamanna sem eru hægrisinnaðir þarlendis. Stjórnunarstíll hans er þó óneitanlega talsvert tilviljanakenndur og sundrandi. Hann tekur fullan þátt í stjórnmálum dagsins og er sjálfhælinn mjög. Afar ólíkur fyrri forsetum í USA."

Hvort telur þú þig alvitlausan eða hálfvitlausan Sæmundur?

Hvaðan kemur þér þessi dómbærni á alla Bandaríkjamenn sem kusu þennan mann sem virðist vera að ná meiri árangri en margir sem þóttust vera gáfaðri en hann?

Halldór Jónsson, 1.8.2018 kl. 17:46

4 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Undrabarnsins æðsta þrá
er að vera í kaffi.
Vísan eflaust ætti þá
að enda hér á vaffi.

Sæmundur Bjarnason, 1.8.2018 kl. 19:46

5 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Halldór minn, ég má hafa það álit á Trump Bandaríkjaforseta sem mér sýnist.

Þú ættir að vita að ekki er hægt að leggja spurningu með tveimur slæmum möguleikum fyrir neinn. Ég gæti þá eins spurt þig hvort þú sért hættur að berja konuna þína.

Þakka þér samt fyrir að lesa bloggið mitt.

Sæmundur Bjarnason, 1.8.2018 kl. 19:51

6 identicon

Sæll Sæmundur.

En það er í lagi af þinni hálfu að 
spyrja þannig:

"Í Bandarískum stjórnmálum eru það peningarnir sem ráða mestu. Hvort er betra að þeir ráði svona miklu eða hálfvitlaus forseti ..."

Halldór varpaði fram spurningu sem byggðist rökfræðilega
á þinni eigin spurn eða fullyrðingu.

Skák og mát, - og skítkast tekur við!

Húsari. 2.8.2018 kl. 01:25

7 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Hver er með skítkast?

Þetta er spurning til þín, Húsari góður og hvers vegna felur þú þig á bak við dulnefni?.

Það sem þú tilfærir lít ég á sem fullyrðingu. Spurningu Halldórs lít ég svo á að hann sé að beina til mín. Ekki blanda rökfræði í þetta, hana hef ég aldrei lært. 

Ég álít að þó ég hafi sett þetta upp sem spurningu þá hafi henni ekki verið sérstaklega beint til Halldórs.

Annars þykir mér álit þitt áhugavert.

Þakka þér svo fyrir tilskrifið. 

Sæmundur Bjarnason, 2.8.2018 kl. 09:14

8 identicon

Sæll Sæmundur.

Að tala um að einhver sé hálfvitlaus minnir mig 
á manninn sem vann það afrek að grafa hálfa holu.

Hvenær er hola hálf og við hvað er miðað?

Húsari. 2.8.2018 kl. 11:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband