2753 - Julian Assange

Það var hann Vilbergur vanafasti sem gerði næstum allt sem til óþurftar er. Vel mætti hugsa sér að gera hann að strámanni. Uppáhalds strámaður eða strámenn margra er „góða fólkið“ svonefnda. Þetta er hjá flestum háðsyrði hið mesta. Á þetta má slengja allskyns fáránlegum ímyndunum um þá sem styðja eða vilja gjarnan styðja flóttamenn og hælisleitendur. Aðgerðarsinnar allir (nema nýnasistar) tilheyra þessum hópi að sjálfsögðu.

Einhverju sinni var mjög til siðs að skíra fyrirtæki og allan fjandan .is eitthvað. Fyrir mér hætti sú tilfinnig sem því fylgdi að vera frumleg og varð í staðinn hallærisleg þegar skyr.is kom á markaðinn. Af hverju þetta kemur allt í einu upp í hugann núna veit ég ekki. Og ég veit heldur ekki hvers vegna mér þótti þetta allt í einu hallærislegt. Kannski hefur einhver sem ég hef metið mikils á þeim tíma verið á móti þessu.

Julian Assange hefur hírst í sendiráði Ekvador í London síðan árið 2012. Hvernig í ósköpunum stendur á þessu. Bakvið þetta er löng saga og um margt merkileg. Hann var stofnandi og ábyrgðarmaður Internet síðunnar WikiLeaks á sínum tíma. (Á íslensku á allsekki að hafa stóran staf inni í miðju orði.) Þessi samtök njóta og nutu verulegs stuðnings víða um heim. Þó ekki í Bandaríkjunum. Kannski hafa þau alla tíð notið meiri stuðnings hér á Íslandi en víða annars staðar. Á þeim tíma sem liðinn er hefur Assange hugsanlega orðið úreltur og önnur samtök en WikiLeaks tekið við keflinu.

Vera hans í sendiráði Ekvador hefur orðið til þess að Wikileaks samtökin hafa á margan hátt drabbast niður. Stjórnvöld í Bretlandi og Ekvador ræða nú hvernig hægt er að leysa margskonar vandamál sem þessu tengjast. Svíþjóð og Bandaríki Norður-Ameríku blandast einnig í þessa deilu. Vel mætti skrifa margar bækur um þetta mál alltsaman en í grunninn snýst það um mismunandi túlkun laga í þessum löndum.

Að mörgu leyti lít ég hann svipuðum augum og Bobby Fischer. Báðir urðu þeir fyrir reiði stórvelda þrátt fyrir frægð sína. Örlög þeirra stjórnast að miklu leyti af þessum stórveldum. Þau (stórveldin) muna vel ef þeim finnst eitthvað gert á hlut sinn og hafa fjölmörg ráð til þess að hefna sín. Þegar frægðarinnar og aðdáunar margra nýtur ekki við getur orðið ansi lítið úr baráttu gegn slíku ofurefli.

Ein besta braghendi sem ég kann finnst mér vera þessi:

Sólskríkjan mín situr enn á sama steini
og hlær við sínum hjartans vini.
Honum Páli Ólafssyni.

Sjálfur hef ég reynt að stæla þetta:

Braghendu er býsna gott að berja saman.
svo er líka geysigaman
að gretta sig sem mest í framan.

Annars finnst mér litlu máli skipta fyrir hagyrðinga (sem ég tilheyri hugsanlega) hvað bragarhættir heita. Sama er að segja um höfunda. Ef vísan hittir í mark verður hún fleyg, annars ekki:

Á fésbókinni eru flestir feikilega góðir
og feta ekki neinar slæmar slóðir.
Slappir verða geysilega fróðir.

IMG 7921Einhver mynd.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Vel mælt Sæmundur en sekur er hann fyrir leka á leyndarmálum. Aðrir eru sekir fyrir að halda vissum málefnum leyndum svo þetta er sagan endalausa.

Valdimar Samúelsson, 30.7.2018 kl. 15:43

2 Smámynd: Þorsteinn Briem

Dáður mjög var Julian,
djöfla fann hann seka,
ekki lengur spikk og span,
spilling má ei leka.

Þorsteinn Briem, 30.7.2018 kl. 16:01

3 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Spillingunni lak og lak
loksins er hún farin.
Orðin líka algjört flak
öll er blá og marin.

Sæmundur Bjarnason, 30.7.2018 kl. 16:27

4 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Valdimar, Assange er hetja hjá sumum, en skúrkur hinn mesti hjá öðrum. Við þessu er lítið að gera, en ekki verða allar deilur að milliríkjamáli.

Sæmundur Bjarnason, 30.7.2018 kl. 16:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband