16.2.2015 | 23:17
2289 - Stundarfriður
Mikið er rætt um skattaskjól þessa dagana. Eitt er það þó sem jafnan er lítið rætt um. Það er sú tilhneiging til stofnunar lítilla þjóðríkja sem notið hefur mikillar velvildar til þessa. Mjög lítil ríki og fámenn hafa gjarnan fáar leiðir til tekjuöflunar. Stofnun skattaskjóls hlýtur ávalt að vera ein þeirra. Ef meðlíðan með öðrum og þar með siðferðið nær síðan bara til þeirra sem eru af sama þjóðerni er ekki von á að vel fari. Til stóð, að mínu áliti, að gera Ísland að skattaskjóli og ekki get ég sagt að mér hafi hugnast það. Mér fannst það alltaf vera einn aðalókostur þeirrar fjárhagslegu geðveiki sem tröllreið íslenskri þjóð fyrir Hrun. Að gera ríki viljandi að skattaskjóli er að mínum skilningi afbrot. Auðvitað er ekki hægt að setja þjóðríki í fangelsi frekar en fyrirtæki, en allir ættu samt að forðast samskipti við slíkt ríki.
Að ætla sér að stofna dagblað úr engu er auðvitað geðveiki. Hætt er við að Stundin verði ekki langlíf. Minnstur vandinn er að skrifa fréttir, jafnvel góðar fréttir. Að koma á laggirnar dreifikerfi og öllu öðru sem dagblað þarf á að halda er allt annar handleggur. Að selja á 990 krónur aðgang að daglegri vefútgáfu er ekkert annað en fjárplógsstarfsemi. Að selja á 990 krónur eitt vesælt dagblað er hreinasta okur, jafnvel þó það næsta komi ekki fyrr en eftir mánuð. Ill eru þín fyrstu spor stundar-gróði. Meira að segja stuðningur Reynis Traustasonar er hálfvolgur. Prentað fréttatímarit sem kemur út einu sinni í mánuði hefur verið prófað áður. Gekk ekki þá, en hvort kominn sé tími til að reyna aftur veit ég ekki. Öll prentun skilst mér að sé á undanhaldi. Myndir og talað mál er það sem blívur.
Megrun snýst fyrst og fremst um það að borða svolítið minna. Töfrabrögð á því sviði eru fundin upp á hverjum degi. Óþarfi er að trúa slíkri vitleysu. Líkamshreysti er ekki því betri sem hún kostar meira. Ókeypis æfingar er allt sem þarf. Auðvitað er betra að láta annan hugsa fyrir sig. Eigin hugsun sakar þó ekki. Heilasellurnar þurfa ekki síður æfingu en aðrar frumur líkamans. Snjór og kuldi eru bara hressandi. Engin ástæða til að láta slíkt aftra sér frá líkamsæfingum. Myrkrið er þreytandi til lengdar. Vorið kemur samt að lokum. Við eigum ekki lengur allt okkar undir veðurguðunum komið.
EES er ekki eitur í mínum beinum. Helst vildi ég að það samstarf yrði aukið verulega. Hættulegasta eitrið í mínum beinum er japlið í framsóknarmönnum um að nauðsynlegt sé að hætta formlega viðræðunum við ESB. Það er aðallega gert til að ergja sjálfstæðismenn því Bjarni vill helst ekki hlusta á slíkt. Hann hefur samt látið líklega í orði en á borði veit ég að hann hugsar sig tvisvar um áður en hann samþykkir slíka vitleysu.
Já, já ég er að verða búinn. Þegar pólitíkin er svona seint í blogginu er bara svo erfitt að hætta. Alþingi er að ljúka. Sennilega verða engin stórmál þar til lykta leidd. Snjórinn kemur og fer. Þannig mætti sem best snúa þessu öllu uppí veðurumræður og binda þannig enda á pólitíkina.
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Efni
Tenglar
Blogg
- Áslaug Benediktsdóttir
- Harpa Hreinsdóttir
- Atli Harðarson
- Anna K. Kristjánsdóttir
- Erlingur Brynjólfsson
- Nanna Rögnvaldardóttir
- Þórunn Sigurjónsdóttir
- Susan Polgar
Skák
Ýmislegt
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
2006
Des. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 | 31 |
Bloggvinir
- Anna Einarsdóttir
- Umsjónarmenn blog.is
- Egill Jóhannsson
- Róslín A. Valdemarsdóttir
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Sigríður Jósefsdóttir
- Arnþór Helgason
- Birgitta Jónsdóttir
- Lýður Pálsson
- Einar Sveinbjörnsson
- Gylfi Guðmundsson
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Villi Asgeirsson
- Sigurður Þór Guðjónsson
- Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson
- Egill Bjarnason
- Jóhann Björnsson
- Ólafur fannberg
- TómasHa
- Ágúst H Bjarnason
- Brjánn Guðjónsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Ragnheiður
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Magnús Helgi Björgvinsson
- Kári Harðarson
- Eiríkur Mörk Valsson
- Ragnhildur Sverrisdóttir
- Ridar T. Falls
- Konráð Ragnarsson
- Vefritid
- Svanur Sigurbjörnsson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Sveinn Ingi Lýðsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Pawel Bartoszek
- Haukur Nikulásson
- Bjarni Harðarson
- Eiður Svanberg Guðnason
- Ómar Ragnarsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- AK-72
- Sigurður Ingi Kjartansson
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Þórarinn Þ Gíslason
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Púkinn
- Lady Elín
- Kolbrún Baldursdóttir
- Jens Guð
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Hrannar Baldursson
- Jón Bjarnason
- Ár & síð
- Jón Ingi Cæsarsson
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Svavar Alfreð Jónsson
- Benedikt Henry Segura
- Marinó G. Njálsson
- Theódór Norðkvist
- Jón Ingvar Jónsson
- Gunnar Þórðarson
- Ólafur Fr Mixa
- Gíslína Erlendsdóttir
- Jóna Á. Gísladóttir
- Heimir Tómasson
- Guðmundur Pálsson
- Ólafur Ragnarsson
- gudni.is
- Guðbjörn Guðbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- G. Valdimar Valdemarsson
- Sigmar Þór Sveinbjörnsson
- Gestur Gunnarsson
- Óskar Þorkelsson
- Ylfa Mist Helgadóttir
- Kristinn Theódórsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Evrópusamtökin, www.evropa.is
- Lýður Árnason
- Brattur
- Marta B Helgadóttir
- Hallmundur Kristinsson
- Sigurður Hreiðar
- Eyþór Árnason
- Bergur Thorberg
- kloi
- Hjalti Tómasson
- Kristjana Bjarnadóttir
- Bjarni Sæmundsson
- Máni Ragnar Svansson
- Emil Hannes Valgeirsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Torfi Kristján Stefánsson
- Haukur Baukur
- Sverrir Stormsker
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Helga Kristjánsdóttir
- Loopman
- Einar B Bragason
- Erna Bjarnadóttir
- Ólafur "Tröllabarn" Georgsson
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Gísli Tryggvason
- Helgi Guðmundsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Þráinn Jökull Elísson
- Þorsteinn Briem
- Hjálmtýr V Heiðdal
- Himmalingur
- Ketill Sigurjónsson
- Sæmundur Bjarnason
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Bjarni Rúnar Einarsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Bókakaffið á Selfossi
- Guðni Karl Harðarson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson)
- Marteinn Unnar Heiðarsson
- Einar G. Harðarson
- Bloggrýnirinn
- kreppukallinn
- Jack Daniel's
- Guðjón Baldursson
- Már Wolfgang Mixa
- Dóra litla
- hilmar jónsson
- Hörður B Hjartarson
- Kristín Bjarnadóttir
- Arnþrúður Karlsdóttir
- Baldur Hermannsson
- Eygló
- Finnur Bárðarson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Loftslag.is
- Jón Daníelsson
- Elín Helga Egilsdóttir
- Helga Þórðardóttir
- Sigurður Grétar Guðmundsson
- Leikhópurinn Lotta
- Dúa
- Hulda Haraldsdóttir
- Kama Sutra
- Bjarni Kristjánsson
- Kristinn Theódórsson
- Blogblaster
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jóhanna Magnúsdóttir
- Andspilling
- Valmundur Valmundsson
- Dingli
- Kristinn Karl Brynjarsson
- Sigurður Einarsson
- Mathieu Grettir Skúlason
- Árni Matthíasson
- BookIceland
- FORNLEIFUR
- Guðbjörn Jónsson
- Högni Snær Hauksson
- Ingólfur Sigurðsson
- Stefán Júlíusson
- Þorsteinn Siglaugsson
Athugasemdir
Sammála þér með japlið í framsóknarviðundrunum. Keyrði þó um þverbak hin fólskulega árás umhverfisráðherrans á faglega þýðendur nú í vikubyrjun.Svei mér, ég held að konan hafi ekki gert sér grein fyrir hvað hún var að segja með þessum fáránlegu fullyrðingum sínum. Að mínu mati er þetta ekki síðri ástæða til þess að krefjast afsagnar ráðherra en eitthvað annað.
Ellismellur 17.2.2015 kl. 08:02
Já. Satt er það. Þetta er skelfing vanhugsað.
Sæmundur Bjarnason, 22.2.2015 kl. 16:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.