2140 - Æ, nei

Ég er alltaf að drepast úr neikvæðni. Hef yfirleitt allt á hornum mér. Sjálfum finnst mér svo ekki vera, en samt mun þetta vera staðreynd. Reyni þó yfirleitt að vera jákvæður en mér finnst það varla hægt varðandi stjórnmálin. Jákvæður held ég að ég hafi verið í mínu síðasta bloggi um verkið „Í verum“ eftir Theodór Friðriksson. Hann gerði að ég held margar tilraunir til að semja góð verk en var yfirleitt illa tekið af almenningi. Sjálfsævisaga hans ber þó af öðrum slíkum.

Af einhverjum ástæðum hefur mér orðið þetta verk minnisstæðara en flest önnur. Hugmyndir mínar um lífið á Íslandi á fyrri hluta síðustu aldar eru að miklu leyti úr þessari bók komnar hugsa ég. Man að ég las þessa bók af áfergu mikilli og er enn jafnundrandi á því hve fáir kannast við hana, og ég var þá.

Auðvitað er mitt álit alls ekki neinn hæstiréttur að þessu leyti og aðrir kunna að hafa lesið þessa bók og fengið á henni allt annað álit en ég. Það væri bara eðlilegt. Önnur verk höfundarins hafa fallið í gleymskunnar dá, en mér finnst ekki að þessi bók eigi að gera það.

Úr því að ég er byrjaður að láta ljós mitt skína varðandi bókmenntir get ég ekki látið hjá líða að minnast á eina konu sem alls ekki hefur notið þeirrar athygli sem hún á skilið. Hún hét Torfhildur Þ. Hólm og skrifaði margar bækur. Ritstýrði auk þess blaði einu og er fyrsti Íslendingurinn sem hafði lífsviðurværi sitt alfarið af ritstörfum. Kannski væri rétt að undanskilja hér Snorra Sturluson og bróðurson hans Sturlu Þórðarson. Halldór Laxness kom til sögunnar miklu seinna.

Það hefur komið í ljós með eftirminnilegum hætti að leit að týndum flugvélum er ákaflega frumstæð. Eiginlega hafa engar framfarir orðið þar síðastliðin 100 ár. Enn er rýnt á sjóinn í sjónaukum og menn ímynda sér að þeir séu að leita að einhverju. Búast má við að tæknin haldi einnreið sína á þetta svið í framhaldi af hvarfi malasísku vélarinnar. Á margan hátt er þetta flugslys til marks um óþægilega hluti. Gróði flugfélaga þarf ekki allur að lenda hjá þeim sem smíða slík apparöt. Jafnvel væri hægt að lækka fargjöldin eitthvað.

Auk þess legg ég til að hvert og eitt einasta blogg endi ávallt á einhverri ádrepu um Ásgautsstaði og yfirgang valdastéttarinnar.

IMG 0120Rammgert.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Það væri best að senda Landhelgisgæsluna suður á Indlandshaf. TF-Sif er hlaðin græjum og væri enga stund að finna það sem leitað er að - ef eitthvað er þar að finna.

Emil Hannes Valgeirsson, 23.3.2014 kl. 22:41

2 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Já, hvað eru menn að skoða gamlar gervihnattamyndir. Auðvitað er sjórinn fullur af allskyns reköldum. Landhelgisgæslan væri sennilega ágæt þarna. Ekki virðast þeir allir gáfaðir sem eru að skrifa um þetta. Takk Emil Hannes.

Sæmundur Bjarnason, 24.3.2014 kl. 11:52

3 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Mér finnst þú ekki neikvæður. Einstaka sinnum smávegis snúinn!En hver er það ekki. 

Sigurður Þór Guðjónsson, 24.3.2014 kl. 16:24

4 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Takk Sigurður Þór. Ég sé yfirleitt það sem þú skrifar á vegginn þinn og stundum langar mig til að vera svolítið nasty.

Sæmundur Bjarnason, 24.3.2014 kl. 23:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband