27.12.2012 | 01:45
1835 Sandy Hook og atburðirnir þar
Einhver byssuglaður bandaríkjamaður hélt því fram nýlega að eina ráðið til að koma í veg fyrir atburði eins og þann sem varð í Sandy Hook skólanum fyrir skemmstu (20 börn og 6 fullorðnir létust, að mig minnir) væri að hafa vopnaða verði í hverjum einasta skóla. Mér finnst þetta þvílík tröllheimska að engin orð ná yfir það og er viss um að margir bandaríkjamenn er sammála því sjónarmiði. Samt er ekki líklegt að dregið verði úr sölu á sjálfvirkum skammbyssum og árásarvopnum eins og margir vilja. Til stendur að reka frá bandaríkjunum frægan breskan þáttastjórnanda úr sjónvarpi sem varð það á að kalla þann mann heimskan sem hélt fram svipuðum skoðunum og lýst er hér efst.
Hugsanlega er netið að missa eitthvað af sjarma sínum. Það breytir því ekki að dagblöðin eru löngu hætt að segja fréttir og allt prent er smátt og smátt að úreldast. Það er ekki einu sinni almennilegt til geymslu því lítið sem ekkert er hægt að leita í því. Bækur hafa samt verið þekktar fyrir að endast vel miðað við annað. Tölvurnar taka samt yfir og gera þær óþarfar. Aðeins það sem merkilegast þykir verður flutt milli formgerða (hefði ég átt að segja formatta?) Hugsanlega er bókin ekki lengur trygging fyrir eilífðartilveru, þó hún lifi lengur en mannfólkið.
Sennilega hefur Jóhanna Sigurðardóttir tak á sjálfstæðismönnum í þinginu og fær þá kannski að lokum til að fallast á sín sjónarmið í stjórnarskrármálinu. Þ.e.a.s ef LÍÚ telur sig geta snúið sig útúr kvótaákvæðum þar. Nú eru sjálfstæðismenn farnir að biðja um stjórnarskrárbreytingar og ætla örugglega að hafa þann möguleika opinn að breytast einn góðan veðurdag, á næsta kjörtímabili, í ESB-flokk. Fylgi við inngöngu er talsvert í flokknum og ef það kemur Samfylkingunni illa finnst þeim áreiðanlega þess virði að snúast í ESB-málinu. Ætli endirinn verði ekki bara eins og síðast að VG þykji góður kostur fyrir and-ESB-sinna. Þeir tóku smáhliðarhopp til að komast í ríkisstjórnina. Annað var það nú ekki.
Eiginlega ætti ég að hætta sem mest þessum sífelldu bloggskrifum. Þó mér þyki sjálfum allt merkilegt sem ég set á blað er ekki víst að öðrum finnist það. Betra er samt, að ég held, að skrifa oft og lítið en sjaldan og mikið. Já, ég er alltaf að stæla Jónas Kristjánsson þó ég deili ekki algerlega með honum áhugamálum. Mér finnst hann vera allur í fréttatengingunum og megruninni. Kannski er það samt ímyndun í mér að ég sé eitthvað fjölbreyttari en hann. Skrifa ég ekki aðallega um stjórnmál og blogg? Kannski smávegis stundum um bækur.
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Efni
Tenglar
Blogg
- Áslaug Benediktsdóttir
- Harpa Hreinsdóttir
- Atli Harðarson
- Anna K. Kristjánsdóttir
- Erlingur Brynjólfsson
- Nanna Rögnvaldardóttir
- Þórunn Sigurjónsdóttir
- Susan Polgar
Skák
Ýmislegt
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
2006
Des. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 | 31 |
Bloggvinir
- Anna Einarsdóttir
- Umsjónarmenn blog.is
- Egill Jóhannsson
- Róslín A. Valdemarsdóttir
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Sigríður Jósefsdóttir
- Arnþór Helgason
- Birgitta Jónsdóttir
- Lýður Pálsson
- Einar Sveinbjörnsson
- Gylfi Guðmundsson
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Villi Asgeirsson
- Sigurður Þór Guðjónsson
- Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson
- Egill Bjarnason
- Jóhann Björnsson
- Ólafur fannberg
- TómasHa
- Ágúst H Bjarnason
- Brjánn Guðjónsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Ragnheiður
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Magnús Helgi Björgvinsson
- Kári Harðarson
- Eiríkur Mörk Valsson
- Ragnhildur Sverrisdóttir
- Ridar T. Falls
- Konráð Ragnarsson
- Vefritid
- Svanur Sigurbjörnsson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Sveinn Ingi Lýðsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Pawel Bartoszek
- Haukur Nikulásson
- Bjarni Harðarson
- Eiður Svanberg Guðnason
- Ómar Ragnarsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- AK-72
- Sigurður Ingi Kjartansson
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Þórarinn Þ Gíslason
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Púkinn
- Lady Elín
- Kolbrún Baldursdóttir
- Jens Guð
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Hrannar Baldursson
- Jón Bjarnason
- Ár & síð
- Jón Ingi Cæsarsson
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Svavar Alfreð Jónsson
- Benedikt Henry Segura
- Marinó G. Njálsson
- Theódór Norðkvist
- Jón Ingvar Jónsson
- Gunnar Þórðarson
- Ólafur Fr Mixa
- Gíslína Erlendsdóttir
- Jóna Á. Gísladóttir
- Heimir Tómasson
- Guðmundur Pálsson
- Ólafur Ragnarsson
- gudni.is
- Guðbjörn Guðbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- G. Valdimar Valdemarsson
- Sigmar Þór Sveinbjörnsson
- Gestur Gunnarsson
- Óskar Þorkelsson
- Ylfa Mist Helgadóttir
- Kristinn Theódórsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Evrópusamtökin, www.evropa.is
- Lýður Árnason
- Brattur
- Marta B Helgadóttir
- Hallmundur Kristinsson
- Sigurður Hreiðar
- Eyþór Árnason
- Bergur Thorberg
- kloi
- Hjalti Tómasson
- Kristjana Bjarnadóttir
- Bjarni Sæmundsson
- Máni Ragnar Svansson
- Emil Hannes Valgeirsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Torfi Kristján Stefánsson
- Haukur Baukur
- Sverrir Stormsker
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Helga Kristjánsdóttir
- Loopman
- Einar B Bragason
- Erna Bjarnadóttir
- Ólafur "Tröllabarn" Georgsson
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Gísli Tryggvason
- Helgi Guðmundsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Þráinn Jökull Elísson
- Þorsteinn Briem
- Hjálmtýr V Heiðdal
- Himmalingur
- Ketill Sigurjónsson
- Sæmundur Bjarnason
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Bjarni Rúnar Einarsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Bókakaffið á Selfossi
- Guðni Karl Harðarson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson)
- Marteinn Unnar Heiðarsson
- Einar G. Harðarson
- Bloggrýnirinn
- kreppukallinn
- Jack Daniel's
- Guðjón Baldursson
- Már Wolfgang Mixa
- Dóra litla
- hilmar jónsson
- Hörður B Hjartarson
- Kristín Bjarnadóttir
- Arnþrúður Karlsdóttir
- Baldur Hermannsson
- Eygló
- Finnur Bárðarson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Loftslag.is
- Jón Daníelsson
- Elín Helga Egilsdóttir
- Helga Þórðardóttir
- Sigurður Grétar Guðmundsson
- Leikhópurinn Lotta
- Dúa
- Hulda Haraldsdóttir
- Kama Sutra
- Bjarni Kristjánsson
- Kristinn Theódórsson
- Blogblaster
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jóhanna Magnúsdóttir
- Andspilling
- Valmundur Valmundsson
- Dingli
- Kristinn Karl Brynjarsson
- Sigurður Einarsson
- Mathieu Grettir Skúlason
- Árni Matthíasson
- BookIceland
- FORNLEIFUR
- Guðbjörn Jónsson
- Högni Snær Hauksson
- Ingólfur Sigurðsson
- Stefán Júlíusson
- Þorsteinn Siglaugsson
Athugasemdir
Bandaríkjamenn halda fram tvennum gagnstæðum sjónarmiðum varðandi vopnaeign.
Annars vegar halda þeir því fram innanlands að því vopnaðra sem þjóðfélagið allt, stofnanir þess, fyrirtæki og einstaklingar séu, því meira öryggi fylgi í kjölfarið og morðum fækki.
Hins vegar halda þeir fram alveg gagnstæðu sjónarmiði á alþjóðavettvangi varðandi vopnaeign þjóða. Því færri, sem eigi kjarnorkuvopn, því betra.
Ómar Ragnarsson, 27.12.2012 kl. 09:31
Bandaríkjamenn ráða sjálfir fram úr sínum málum án aðstoðar annarra, enda koma innanríkismál þeirra ekki öðrum við og hananú.
Varðandi Evrópusambandið er áreiðanlega í raun meirihlutavilji fyrir því innan sjálfstæðisflokksins að skoða alvarlega aðild að því, enda þurfum við að gera okkur ljóst, að án samstarfs við aðrar Evrópuþjóðir erum við að loka okkur inni í einhverjum framsóknarskáp til frambúðar, þar sem leikreglur lýðræðisins verða vanvirtar og hagsmunir almennings fyrir borð bornir.
Ellismellur 27.12.2012 kl. 09:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.