7.9.2012 | 16:29
1756 - Klámið
Bækur með klámfengnu efni fóru mjög dult í mínu ungdæmi. (Roðasteinninn og ýmislegt annað menn lásu Agnar Mykle með mikilli athygli þá. Mér hefur samt orðið minnsstæðari smásagan hans um manninn sem keyrði yfir heypokann en klámið) Nú kippa menn sér lítið upp við klám í bókum. Mér finnst samt flestir fjölmiðlar vera uppfullir af klámumræðu um þessar mundir. Sú umræða sem átti sér stað (einkum utan Íslands, kannski) um klámið uppúr 1970 fannst mér mjög áhugaverð, en sú umræða sem fer fram núna, finnst mér ekki vera það. Auðvitað eru samt margir sem þurfa að velta sér uppúr þessu og ekkert við því að segja.
Í dag er föstudagur og ég er að hugsa um að reyna að skrifa eitthvað og setja það upp seinni partinn. Nú er klukkan að verða tíu fyrir hádegi og ég er búinn að vera vakandi talsvert lengi. Þegar maður eldist og þarf ekki að fara til vinnu vaknar maður ennþá fyrr en áður. Það er ekkert varið í að liggja sem lengst í bælinu. Auðvitað fer maður fyrr að sofa en áður. Jafnvel fyrir miðnætti.
Hef tekið eftir því að bloggið mitt er meira lesið um helgar en annars. Kannski fara þá fleiri út fyrir rammann og skoða eitthvað sem þeir skoða yfirleitt ekki á rúmhelgum dögum. Sjálfur geri ég engan greinarmun á því hvort ég skrifa um helgi eða ekki. Það er mikil guðsblessun að stórmarkaðirnir, sem eru þær verslanir sem ég fer helst í, eru opnir um helgar. Skelfing hefur oft verið leiðinlegt að vera gamall áður fyrr. Engar tölvur, ekkert hægt að fara og ekkert hægt að gera. Það er svosem alltaf nóg um að vera samt. Maður nennir bara ekki að vera að þeytast um allt. Svo er bensínið orðið rándýrt.
Var að lesa eitthvað um námskrár og leikskóla og einhver komst þannig að orði að munur hefði verið ef skilgreiningar af þessu tagi hefðu verið til staðar þegar hann var ungur og þá hefði hann kannski gert annað en éta sand. Ég fór aldrei á leikskóla en vel getur verið að ég hafi lært að éta sand samt.
Baráttan gegn ESB er nú óðum að færast yfir á ljósaperur. Skil reyndar ekki af hverju það er. Hef næstum allt þetta kjörtímabil búist við því að Vinstri grænir slitu stjórnarsamstarfinu fyrir kosningar útaf ESB. Samningaviðræðurnar við bandalagið hafa dregist á langinn og nú er ég semsamt að bila í þeirri trú og verið getur að stjórnin lafi út kjörtímabilið. Hvað þá tekur við hef ég enga hugmynd um. Vona samt að það verði ekki Sjálfstæðisflokkurinn með stuðningi hægri hluta Framsóknar.
Vá, það er hægt að opna hurðina!
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Efni
Tenglar
Blogg
- Áslaug Benediktsdóttir
- Harpa Hreinsdóttir
- Atli Harðarson
- Anna K. Kristjánsdóttir
- Erlingur Brynjólfsson
- Nanna Rögnvaldardóttir
- Þórunn Sigurjónsdóttir
- Susan Polgar
Skák
Ýmislegt
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
2006
Des. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 | 31 |
Bloggvinir
- Anna Einarsdóttir
- Umsjónarmenn blog.is
- Egill Jóhannsson
- Róslín A. Valdemarsdóttir
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Sigríður Jósefsdóttir
- Arnþór Helgason
- Birgitta Jónsdóttir
- Lýður Pálsson
- Einar Sveinbjörnsson
- Gylfi Guðmundsson
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Villi Asgeirsson
- Sigurður Þór Guðjónsson
- Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson
- Egill Bjarnason
- Jóhann Björnsson
- Ólafur fannberg
- TómasHa
- Ágúst H Bjarnason
- Brjánn Guðjónsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Ragnheiður
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Magnús Helgi Björgvinsson
- Kári Harðarson
- Eiríkur Mörk Valsson
- Ragnhildur Sverrisdóttir
- Ridar T. Falls
- Konráð Ragnarsson
- Vefritid
- Svanur Sigurbjörnsson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Sveinn Ingi Lýðsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Pawel Bartoszek
- Haukur Nikulásson
- Bjarni Harðarson
- Eiður Svanberg Guðnason
- Ómar Ragnarsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- AK-72
- Sigurður Ingi Kjartansson
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Þórarinn Þ Gíslason
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Púkinn
- Lady Elín
- Kolbrún Baldursdóttir
- Jens Guð
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Hrannar Baldursson
- Jón Bjarnason
- Ár & síð
- Jón Ingi Cæsarsson
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Svavar Alfreð Jónsson
- Benedikt Henry Segura
- Marinó G. Njálsson
- Theódór Norðkvist
- Jón Ingvar Jónsson
- Gunnar Þórðarson
- Ólafur Fr Mixa
- Gíslína Erlendsdóttir
- Jóna Á. Gísladóttir
- Heimir Tómasson
- Guðmundur Pálsson
- Ólafur Ragnarsson
- gudni.is
- Guðbjörn Guðbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- G. Valdimar Valdemarsson
- Sigmar Þór Sveinbjörnsson
- Gestur Gunnarsson
- Óskar Þorkelsson
- Ylfa Mist Helgadóttir
- Kristinn Theódórsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Evrópusamtökin, www.evropa.is
- Lýður Árnason
- Brattur
- Marta B Helgadóttir
- Hallmundur Kristinsson
- Sigurður Hreiðar
- Eyþór Árnason
- Bergur Thorberg
- kloi
- Hjalti Tómasson
- Kristjana Bjarnadóttir
- Bjarni Sæmundsson
- Máni Ragnar Svansson
- Emil Hannes Valgeirsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Torfi Kristján Stefánsson
- Haukur Baukur
- Sverrir Stormsker
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Helga Kristjánsdóttir
- Loopman
- Einar B Bragason
- Erna Bjarnadóttir
- Ólafur "Tröllabarn" Georgsson
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Gísli Tryggvason
- Helgi Guðmundsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Þráinn Jökull Elísson
- Þorsteinn Briem
- Hjálmtýr V Heiðdal
- Himmalingur
- Ketill Sigurjónsson
- Sæmundur Bjarnason
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Bjarni Rúnar Einarsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Bókakaffið á Selfossi
- Guðni Karl Harðarson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson)
- Marteinn Unnar Heiðarsson
- Einar G. Harðarson
- Bloggrýnirinn
- kreppukallinn
- Jack Daniel's
- Guðjón Baldursson
- Már Wolfgang Mixa
- Dóra litla
- hilmar jónsson
- Hörður B Hjartarson
- Kristín Bjarnadóttir
- Arnþrúður Karlsdóttir
- Baldur Hermannsson
- Eygló
- Finnur Bárðarson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Loftslag.is
- Jón Daníelsson
- Elín Helga Egilsdóttir
- Helga Þórðardóttir
- Sigurður Grétar Guðmundsson
- Leikhópurinn Lotta
- Dúa
- Hulda Haraldsdóttir
- Kama Sutra
- Bjarni Kristjánsson
- Kristinn Theódórsson
- Blogblaster
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jóhanna Magnúsdóttir
- Andspilling
- Valmundur Valmundsson
- Dingli
- Kristinn Karl Brynjarsson
- Sigurður Einarsson
- Mathieu Grettir Skúlason
- Árni Matthíasson
- BookIceland
- FORNLEIFUR
- Guðbjörn Jónsson
- Högni Snær Hauksson
- Ingólfur Sigurðsson
- Stefán Júlíusson
- Þorsteinn Siglaugsson
Athugasemdir
Kemur fyrir að ég lít inn á bloggið enn. Annars að mestu hættur að nenna því. Hjó eftir þessu með námsskrárnar. Hvar fannstu námsskrá leikskóla?
Og þar fyrir utan. Er virkilega hægt að opna hurðina? Þarf ekki fyrst að opna dyrnar og taka hurðina af hjörum?
Sigurður Hreiðar, 7.9.2012 kl. 16:50
Ég hef hvergi séð námsskrá fyrir leikskóla. Kannski er kennt að borða sand þar!!
Það er næstum viðtekin venja orðið að rugla saman dyrum og hurðum. Annars fer það dálítið eftir sambandinu. Maður tekur varla eftir þessu ef það er með sögnunum að opna eða loka. "Með hundinn í hurðinni", sá ég einhvers staðar og fannst það strax skrýtið.
Sæmundur Bjarnason, 7.9.2012 kl. 21:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.