29.4.2012 | 10:13
1660 - Facebook logout
Gamla myndin.
Birgir Marínósson.
Um þessar mundir er ég að lesa í kyndlinum mínum bók sem heitir Facebook logout - experiences and reasons to leave it eftir Ivo Quartiroli. Þessi bók fjallar einkum um það neikvæða við fésbókina og margt er þar sem ég er mjög sammála. Amazon býður uppá þessa bók ókeypis svo ég gat ekki staðist mátið. Nálgaðist hana meira að segja í gegnum kyndilinn, en það er víst aðal gróðavegurinn hjá Amazon varðandi Kindle fire tölvuna að gera sem næst ómögulegt að dánlóda efni beint frá öðrum en sér með henni. Það er reyndar mjög einfalt að dánlóda fyrst á Windows tölvuna sína og svo á Kindle fire tölvuna. Auðvitað má breyta fælunum á alla vegu ef maður er nógu klár til þess. Hreinir textafælar og .pdf skrár eru einfaldastar. Benni kom hingað í gær og opnaði m.a. fyrir mig Dropbox uppá 2 GB en meira er víst ekki ókeypis.
Margir verða háðir fjárans fésbókinni og sitja langtímum saman við tölvuna skrifandi í hana og bíðandi eftir að aðrir svari. Fésbókin er góð til að halda sambandi við fólk. Yfirborðskennt er það að vísu, en ef ekki er setið of lengi við tölvuna í senn og hún ekki látin taka yfir allar frjálsar stundir, þarf hún ekki að vera svo hættuleg. En tímaþjófur er hún hrikalegur. Auðvitað er fínt að geta talað við helsu kunningjana strax og þeir eru vaknaðir en hættan er sú að margir fórni í þetta tíma sem betra væri að nota í annað.
Fór í gærmorgun (laugardag) út að labba. Það rigndi svolítið. Þegar ánamaðkarnir eru sem flestir á gangstígunum get ég ekki að því gert að verða meira afhuga framhaldslífi en ella. Því ætti það (eða sá eða sú) sem öllu ræður að gera greinarmun á ánamöðkum og mannverum? Er ekki kominn tími til að ...sparka í dekkin.
Fréttatíminn veldur mér vonbrigðum þessa helgina. Þó er þetta eina prentaða blaðið sem kemur reglulega á mitt heimili. Mér finnst hann vera að draga taum hjátrúar og hindurvitna í þjóðfélaginu með forsíðugrein sinni. Ég hef ekki lesið nema fyrirsögn greinarinnar og er þessvegna tæpast marktækur um innihald hennar. Hef þó séð á hana minnst annars staðar (þ.e.a.s. á netinu) Mér finnst fjölmiðlar oft fara ansi frjálslega með það sem skrifað er um og láta eins og þeir viti ekkert um áhrifamátt sinn. Þetta á auðvitað ekkert síður við um netmiðla og sumir bloggarar eru svo mikið lesnir að þeim má jafna við fjölmiðla. Mál þetta er allt mjög vandmeðfarið.
Runki fór í réttirnar
ríðandi á honum Sokka.
Yfir holt og hæðirnar
hann lét klárinn brokka.
Af einhverjum ástæðum minnir þessi vísa mig á Afa minn (ekki minn eigin þó) sem fór á honum Rauð eitthvað suður á bæi. Hef velt fyrir mér hvað þetta sitt af hvoru tagi getur hafa verið. Kannski kaffi og rjólbiti (óskorið tóbak). Sykurinn var búið að nefna. Ekki eru umveltingsefnin alltaf merkileg.
Flokkur: Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:35 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Efni
Tenglar
Blogg
- Áslaug Benediktsdóttir
- Harpa Hreinsdóttir
- Atli Harðarson
- Anna K. Kristjánsdóttir
- Erlingur Brynjólfsson
- Nanna Rögnvaldardóttir
- Þórunn Sigurjónsdóttir
- Susan Polgar
Skák
Ýmislegt
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
2006
Des. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 | 31 |
Bloggvinir
- Anna Einarsdóttir
- Umsjónarmenn blog.is
- Egill Jóhannsson
- Róslín A. Valdemarsdóttir
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Sigríður Jósefsdóttir
- Arnþór Helgason
- Birgitta Jónsdóttir
- Lýður Pálsson
- Einar Sveinbjörnsson
- Gylfi Guðmundsson
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Villi Asgeirsson
- Sigurður Þór Guðjónsson
- Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson
- Egill Bjarnason
- Jóhann Björnsson
- Ólafur fannberg
- TómasHa
- Ágúst H Bjarnason
- Brjánn Guðjónsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Ragnheiður
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Magnús Helgi Björgvinsson
- Kári Harðarson
- Eiríkur Mörk Valsson
- Ragnhildur Sverrisdóttir
- Ridar T. Falls
- Konráð Ragnarsson
- Vefritid
- Svanur Sigurbjörnsson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Sveinn Ingi Lýðsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Pawel Bartoszek
- Haukur Nikulásson
- Bjarni Harðarson
- Eiður Svanberg Guðnason
- Ómar Ragnarsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- AK-72
- Sigurður Ingi Kjartansson
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Þórarinn Þ Gíslason
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Púkinn
- Lady Elín
- Kolbrún Baldursdóttir
- Jens Guð
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Hrannar Baldursson
- Jón Bjarnason
- Ár & síð
- Jón Ingi Cæsarsson
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Svavar Alfreð Jónsson
- Benedikt Henry Segura
- Marinó G. Njálsson
- Theódór Norðkvist
- Jón Ingvar Jónsson
- Gunnar Þórðarson
- Ólafur Fr Mixa
- Gíslína Erlendsdóttir
- Jóna Á. Gísladóttir
- Heimir Tómasson
- Guðmundur Pálsson
- Ólafur Ragnarsson
- gudni.is
- Guðbjörn Guðbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- G. Valdimar Valdemarsson
- Sigmar Þór Sveinbjörnsson
- Gestur Gunnarsson
- Óskar Þorkelsson
- Ylfa Mist Helgadóttir
- Kristinn Theódórsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Evrópusamtökin, www.evropa.is
- Lýður Árnason
- Brattur
- Marta B Helgadóttir
- Hallmundur Kristinsson
- Sigurður Hreiðar
- Eyþór Árnason
- Bergur Thorberg
- kloi
- Hjalti Tómasson
- Kristjana Bjarnadóttir
- Bjarni Sæmundsson
- Máni Ragnar Svansson
- Emil Hannes Valgeirsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Torfi Kristján Stefánsson
- Haukur Baukur
- Sverrir Stormsker
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Helga Kristjánsdóttir
- Loopman
- Einar B Bragason
- Erna Bjarnadóttir
- Ólafur "Tröllabarn" Georgsson
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Gísli Tryggvason
- Helgi Guðmundsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Þráinn Jökull Elísson
- Þorsteinn Briem
- Hjálmtýr V Heiðdal
- Himmalingur
- Ketill Sigurjónsson
- Sæmundur Bjarnason
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Bjarni Rúnar Einarsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Bókakaffið á Selfossi
- Guðni Karl Harðarson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson)
- Marteinn Unnar Heiðarsson
- Einar G. Harðarson
- Bloggrýnirinn
- kreppukallinn
- Jack Daniel's
- Guðjón Baldursson
- Már Wolfgang Mixa
- Dóra litla
- hilmar jónsson
- Hörður B Hjartarson
- Kristín Bjarnadóttir
- Arnþrúður Karlsdóttir
- Baldur Hermannsson
- Eygló
- Finnur Bárðarson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Loftslag.is
- Jón Daníelsson
- Elín Helga Egilsdóttir
- Helga Þórðardóttir
- Sigurður Grétar Guðmundsson
- Leikhópurinn Lotta
- Dúa
- Hulda Haraldsdóttir
- Kama Sutra
- Bjarni Kristjánsson
- Kristinn Theódórsson
- Blogblaster
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jóhanna Magnúsdóttir
- Andspilling
- Valmundur Valmundsson
- Dingli
- Kristinn Karl Brynjarsson
- Sigurður Einarsson
- Mathieu Grettir Skúlason
- Árni Matthíasson
- BookIceland
- FORNLEIFUR
- Guðbjörn Jónsson
- Högni Snær Hauksson
- Ingólfur Sigurðsson
- Stefán Júlíusson
- Þorsteinn Siglaugsson
Athugasemdir
Sá mér til skelfingar að ég hafði látið ranga mynd neðst í þessa færslu. En nú er sú rétta komin. Myndin af Tinnu að klappa grísnum átti semsagt alls ekki að fara á bloggið aftur.
Sæmundur Bjarnason, 29.4.2012 kl. 14:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.