1622 - Er Sýrland súrt, eða hvað?

Scan190Gamla myndin.
Hafdís Rósa þreytt á öllu tilstandinu.

Að mörgu leyti er öfgakennd vinstri stefna, óheftur feminismi og political correctness að bandarískri fyrirmynd að ná völdum á fésbókinni. Markverð umræða á mjög erfitt uppdráttar þar og reynt er eftir föngum að steypa alla í sama mót. (Bandarískt.)  Vel er fylgst með þeim sem á fésbókinni eru. Leyfi einhver sér að hafa aðrar skoðanir en þær sem samræmast feminisku correctnessi er sá sami úthrópaður. Þ.e.a.s ef gæslufólki fagurs mannlífs finnst taka því. Sjónvarpið er óðum að Hollywood-erast og bolta-sérast. Ef Íslendingum væri alfarið bannað  að snerta bolta held ég að hér yrðu miklar framfarir eða nær allir flyttu til annarra landa.

Læti á borð við þau sem undanfarið hafa verið í Sýrlandi eiga ekki að þekkjast. Alþjóðasamfélagið vill það ekki. Alþjóðasamfélagið er einskonar yfir-political-correctness sem enginn veit hvar á upptök sín. Hugsanlega á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. Allir eiga að vera þægir og góðir og einbeita sér að því að verjast gulu hættunni sem aðallega kemur frá Indlandi og Kína.

Af hverju ráðast Bretar, Bandaríkjamenn og Frakkar ekki inni í Sýrland á sama hátt og þeir gerðu í Líbýu? Mörgum finnst munurinn auðskiljanlegur, því Assad er Vesturlandamaður en Gaddafi var það ekki og þar að auki óútreiknanlegur. Sannanir fyrir óhæfuverkum sem sveitir Assads hafa framið eru margar. Að leggja undir sig Sýrland gæti verið góð æfing fyrir USA áður en kemur að slagnum við aðalóvininn, sem auðvitað er Persía sjálf. (Íran)

Að því ríki sigruðu munu Bandaríkjamenn ráða nær öllum olíuforða heimsins og vera komnir vel á veg með þúsund ára ríkið. En það þýðir ekki bara að safna skuldum. Smástríð þurfa að vera sem víðast (Somalía) svo halda megi „the military industrial complex“ gangandi. Hann hefur hökt svolítið núna að undanförnu, (complexinn) en með bættum fjarskiptum og bættri tækni á öllum sviðum má komast langt. Trufla t.d. farsíma og spjaldtölvur og finna ef þarf.

Tillaga Lilju Mós. og Co. í húsnæðismálum er á margan hátt dæmigerð útrásartillaga. Þar átti allt að vera áhættulaust og allir að græða. Sú var ekki raunin þegar upp var staðið. Held að þessi peningahringekja sem hún leggur til að látin verði fara um hagkerfið gangi heldur ekki upp. Ég get þó ekki hrakið hana með hagfræðilegum rökum enda hef ég enga menntun til þess. Einhvern vegin finnst mér samt að hin hagsýna húsmóðir í Vesturbænum mundi hrista hausinn yfir svonalöguðum æfingum.

Ég man vel eftir verðbólguárunum. Hugsunarháttur fólks var allt annar þá. Það er blekking að kenna verðtryggingunni sem slíkri um ófarirnar núna. Með þjóðarsáttinni svokölluðu var verðtrygging launa afnumin og stjórnvöldum (eða útrásarvíkingum) í raun fengið það vald að ákveða laun fólks. Þjóðarsáttin var samt nauðsyn því fram að henni litu launþegar og vinnuveitendur á sig sem mikla andstæðinga. Nú er reynt að etja saman kynslóðum.

Þegar Bjarni varð Bahamameistari í skák var frá því sagt í Sunnlenska fréttablaðinu og þaðan komst það í Moggann. Ekki linkaði ég samt í þá frétt af blogginu mínu þó mér væri bent á hana. Bjarni talaði við okkur á hverjum degi um þetta leyti og daginn fyrir lokaumferðina var staðan sú minnir mig að hann mátti ekki tapa síðustu skákinni því þá mundi hann missa af titlinum. Mamma hans var með böggum hildar um að spennan yrði honum um megn en ég fullyrti við hana að taugastyrkur væri einn af helstu kostum Bjarna við skákborðið. Auðvitað vann hann svo skákina.

Því minnist ég á þetta að um næstu helgi verða lok deildakeppninnar haldin á Selfossi. Ég verð sennilega fyrsti varamaður Borgarfjarðarsveitarinnar á mótinu og mun auðvitað reyna að stuðla að því að sveitin komist upp úr fjórðu deildinni.

Auk þess legg ég til að Steinunn Ólína hugsi sig betur um varðandi forsetaframboðið. Ég var eiginlega búinn að ákveða að kjósa hana.

IMG 7942Fyrsti bekkur Háskólans í Reykjavík (?).


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Undanfarnir pistlar eru það góðir að enginn reynir að skjóta þig í kaf. Húrra fyrir þér.

Ólafur Sveinsson 26.2.2012 kl. 20:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband