23.8.2011 | 00:12
1457 - Bloggbreyting (vonandi)
Þetta er Samvinnuskólinn að Bifröst. Anddyrið og setustofan.
Veit ekki hvernig á því stendur að ég er orðinn svona ákafur bloggari. Ekki get ég séð að þetta sé eitthvað sem beið eftir því að gerast. Stundum finnst manni einmitt fullkomlega eðlilegt að einhver hlutur gerist. Í rauninni er það stórfurðulegt að svo margir sem raun ber vitni skuli lesa þessar hugleiðingar mínar. Afleiðingin er sú að ég er mestallan daginn að hugsa um hvað ég eigi eiginlega að setja á bloggið. Auk þess vanda ég mig yfirleitt talsvert við að hafa orðalagið sæmilegt. Hugsanirnar eru áreiðanlega ekki mjög frumlegar, en ég er orðinn nokkuð leikinn við að koma þeim í orð.
Gömlu myndirnar sem ég set á bloggið eru ákaflega misjafnar. Sumar eru beinlínis lélegar og eiga ekkert erindi þangað. Aðrar eru alveg í lagi og það er hugsanlega vel þess virði fyrir þá sem áhuga hafa á gömlum myndum að skoða myndasöfnin hjá mér hér á blogginu. Ég er að hugsa um að fara að sinna þeim meira og setja skýringar við myndirnar sem þar eru. Oft fylgdu skýringar í bloggunum sem þær fylgdu en þær skýringar hverfa og koma ekki aftur.
Svo eru það nýlegu myndirnar. Eiginlega er ég allsekki viss um gildi þeirra. Sumar þeirra eru eflaust ágætar en þær eru oftast óralangt frá því að vera arty farty eins og Goði Sveinsson orðaði það jafnan. Oft finnst mér ég vera eins og túristi í eigin landi þegar ég er að taka myndir til að setja á bloggið. Tek einkum myndir af því sem mér finnst einkennilegt og einkennandi.
Eftir langa og ítarlega naflaskoðun er ég búinn að ákveða að hætta að blogga daglega. Ég leiddist út í þetta fyrir alllöngu en sé núna að þetta er mesta vitleysa. Mér hefur svosem tekist að klifra svolítið upp eftir vinsældalistanum með þessu, en það er eiginlega það eina sem ég hef haft uppúr því. Aðalmunurinn á mér og öðrum fremur vinsælum bloggurum er að ég er fljótari en þeir að hrapa í heimsóknum þegar ég hætti með öllu að blogga um tíma eins og ég hef gert nokkuð af undanfarin ár. Þetta hlýtur að stafa af því að menn (a.m.k. sumir) kíkja á mitt blogg vegna þess að þeir hafa ekki annað skárra að gera. Ekki vegna þess að þeir hafi sérstakan áhuga á því að lesa það sem ég skrifa.
Þó ég segist ætla að hætta að blogga daglega getur vel verið að það verði erfitt. Þetta bloggstand er eins og hvert annað eiturlyf. Ég ætla a.m.k. að reyna að hætta að blogga um stjórnmál og fréttir. Eiginlega hef ég ósköp lítið að segja um það þó ég hafi auðvitað skoðanir á mörgu. Ég er að hugsa um að halda áfram að blogga um það sem ég lendi sjálfur í og skrá minningar um ýmislegt. (Og jafnvel eitthvað fleira.) En ætla engan vegin að keppast við að blogga á hverjum degi.
Þetta getur hæglega leitt til þess að ég verði aktívari í athugasemdum og jafnvel á fésbókinni líka. Ekkert er athugavert við það.
Af einhverjum ástæðum dettur mér jafnan í hug húsgangurinn kunni:
Hárin mér á höfði rísa
hugsi ég um kærleik þinn.
Þetta er annars ágæt vísa
einkum seinni parturinn.
Þegar ég sé þessa mynd.
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Efni
Tenglar
Blogg
- Áslaug Benediktsdóttir
- Harpa Hreinsdóttir
- Atli Harðarson
- Anna K. Kristjánsdóttir
- Erlingur Brynjólfsson
- Nanna Rögnvaldardóttir
- Þórunn Sigurjónsdóttir
- Susan Polgar
Skák
Ýmislegt
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
2006
Jan. 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Bloggvinir
- Anna Einarsdóttir
- Umsjónarmenn blog.is
- Egill Jóhannsson
- Róslín A. Valdemarsdóttir
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Sigríður Jósefsdóttir
- Arnþór Helgason
- Birgitta Jónsdóttir
- Lýður Pálsson
- Einar Sveinbjörnsson
- Gylfi Guðmundsson
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Villi Asgeirsson
- Sigurður Þór Guðjónsson
- Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson
- Egill Bjarnason
- Jóhann Björnsson
- Ólafur fannberg
- TómasHa
- Ágúst H Bjarnason
- Brjánn Guðjónsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Ragnheiður
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Magnús Helgi Björgvinsson
- Kári Harðarson
- Eiríkur Mörk Valsson
- Ragnhildur Sverrisdóttir
- Ridar T. Falls
- Konráð Ragnarsson
- Vefritid
- Svanur Sigurbjörnsson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Sveinn Ingi Lýðsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Pawel Bartoszek
- Haukur Nikulásson
- Bjarni Harðarson
- Eiður Svanberg Guðnason
- Ómar Ragnarsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- AK-72
- Sigurður Ingi Kjartansson
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Þórarinn Þ Gíslason
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Púkinn
- Lady Elín
- Kolbrún Baldursdóttir
- Jens Guð
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Hrannar Baldursson
- Jón Bjarnason
- Ár & síð
- Jón Ingi Cæsarsson
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Svavar Alfreð Jónsson
- Benedikt Henry Segura
- Marinó G. Njálsson
- Theódór Norðkvist
- Jón Ingvar Jónsson
- Gunnar Þórðarson
- Ólafur Fr Mixa
- Gíslína Erlendsdóttir
- Jóna Á. Gísladóttir
- Heimir Tómasson
- Guðmundur Pálsson
- Ólafur Ragnarsson
- gudni.is
- Guðbjörn Guðbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- G. Valdimar Valdemarsson
- Sigmar Þór Sveinbjörnsson
- Gestur Gunnarsson
- Óskar Þorkelsson
- Ylfa Mist Helgadóttir
- Kristinn Theódórsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Evrópusamtökin, www.evropa.is
- Lýður Árnason
- Brattur
- Marta B Helgadóttir
- Hallmundur Kristinsson
- Sigurður Hreiðar
- Eyþór Árnason
- Bergur Thorberg
- kloi
- Hjalti Tómasson
- Kristjana Bjarnadóttir
- Bjarni Sæmundsson
- Máni Ragnar Svansson
- Emil Hannes Valgeirsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Torfi Kristján Stefánsson
- Haukur Baukur
- Sverrir Stormsker
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Helga Kristjánsdóttir
- Loopman
- Einar B Bragason
- Erna Bjarnadóttir
- Ólafur "Tröllabarn" Georgsson
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Gísli Tryggvason
- Helgi Guðmundsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Þráinn Jökull Elísson
- Þorsteinn Briem
- Hjálmtýr V Heiðdal
- Himmalingur
- Ketill Sigurjónsson
- Sæmundur Bjarnason
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Bjarni Rúnar Einarsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Bókakaffið á Selfossi
- Guðni Karl Harðarson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson)
- Marteinn Unnar Heiðarsson
- Einar G. Harðarson
- Bloggrýnirinn
- kreppukallinn
- Jack Daniel's
- Guðjón Baldursson
- Már Wolfgang Mixa
- Dóra litla
- hilmar jónsson
- Hörður B Hjartarson
- Kristín Bjarnadóttir
- Arnþrúður Karlsdóttir
- Baldur Hermannsson
- Eygló
- Finnur Bárðarson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Loftslag.is
- Jón Daníelsson
- Elín Helga Egilsdóttir
- Helga Þórðardóttir
- Sigurður Grétar Guðmundsson
- Leikhópurinn Lotta
- Dúa
- Hulda Haraldsdóttir
- Kama Sutra
- Bjarni Kristjánsson
- Kristinn Theódórsson
- Blogblaster
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jóhanna Magnúsdóttir
- Andspilling
- Valmundur Valmundsson
- Dingli
- Kristinn Karl Brynjarsson
- Sigurður Einarsson
- Mathieu Grettir Skúlason
- Árni Matthíasson
- BookIceland
- FORNLEIFUR
- Guðbjörn Jónsson
- Högni Snær Hauksson
- Ingólfur Sigurðsson
- Stefán Júlíusson
- Þorsteinn Siglaugsson
Athugasemdir
Ég sé að þú átt mikið af þessum myndum frá Bifröst og það er gaman að þeim. Ætli þú eigir nokkrar myndir frá föður mínum, en hann var í Samvinnuskólanum einhvern tímann á árunum 1955-57. Var nokkur ár á Selfossi og reyndar einn af stofnendum knattspyrnudeildar UMFS. Hann hét Theodór Nordquist.
Theódór Norðkvist, 23.8.2011 kl. 00:53
Og nei, þú mátt ekki hætta að blogga. Þú hefur frá mörgu að segja, en því miður er ekki hægt að segja það um marga aðra áberandi bloggara.
Theódór Norðkvist, 23.8.2011 kl. 00:56
Takk Theodor. Nei, ég er allsekki að hugsa um að hætta að blogga. Bara hætta að rembast við að gera það á hverjum einasta degi. Held að ég sé búinn að birta allar bestu myndirnar frá Bifröst. Gallinn er aðallega sá að ég man afar illa hvaða myndir ég hef tekið og hvaða myndir mér hafa áskotnast öðruvísi.
Sæmundur Bjarnason, 23.8.2011 kl. 08:07
Theódór: samkvæmt árbókum NSS brautskráðist pabbi þinn frá Samvinnuskólanum 1955. Það var síðasta ár skólans í Reykjavík.
Sæmundur: skil vel að þú fáir þig fullsaddan á að blogga á hverjum degi. Tvisvar, þrisvar í viku væri ágætt.
Upphafsmyndin þín núna, er hún ekki af gluggum Hátíðasalarins og setustofunnar? Anddyrið væri aðeins til hægri við það sem myndin sýnir.
Sigurður Hreiðar, 23.8.2011 kl. 11:37
Jú, Sigurður ég sé það núna að þetta er vitleysa hjá mér. Það var einmitt setustofan sem var kringlótt, en ekki anddyrið. Fljótfærni hjá mér.
Sæmundur Bjarnason, 23.8.2011 kl. 14:49
anddyri... er það bara ég sem finnst þetta orð vera fáranlegt.. hvað þýðir þetta í raun og hvaðan kemur svona della ?
Óskar Þorkelsson, 23.8.2011 kl. 18:58
Ja, ekki myndi ég nenna því sem þú nennir, að halda úti svona daglegum pistli. Svo held ég að moggabloggarar almennt ofmeti sjálfa sig stórlega því það eru afar fáir aðrir en moggabloggarar sem koma inn á moggabloggið. Langflestar greinarnar hér fá sáralítinn lestur ef einhvern. So what is the point? - svo ég sletti aðeins - að eyða svona miklum tíma í þetta?
Óli minn, 23.8.2011 kl. 19:17
Þetta orð, "anddyri" var upphaflega með "hl" fyrir framan, þ.e. þegar fólk meig út um dyrnar úr forstofunni. Eftir að siðmenningin hélt innreið sína og einhver fann upp kamra og innanhúsklósett var ákveðið að henda út "hl" inu í orðinu. Þannig varð "anddyri" til. Nú orðið míga fáir út dyrnar nema einn og einn Sunnlendingur. Þeirra anddyri eru því enn hlanddyri.
Óli minn, 23.8.2011 kl. 19:22
Óskar, ef þú hefur aldrei heyrt orðið "anddyri" get ég ekki hjálpað þér. Og Óli minn mér finnst þú ekkert sérlega fyndinn.
Sæmundur Bjarnason, 23.8.2011 kl. 19:49
ég hef oft heyrt þetta orð Sæmi, jafn fáránlegt orð fyrir það.. td hvað þýðir anddyri = ekki hurð ? and hurð.. ég skil ekki þetta orð þótt ég viti vel hvað það stendur fyrir.. hvernig kemur þetta AND fyrir framan dyrnar ?
Óskar Þorkelsson, 24.8.2011 kl. 09:13
Forskeytið and þýðir gegn. (sbr. andskoti) Getur líka þýtt mótstöðumaður eða á móti. Anddyri er því væntanlega svæðið á móti dyrunum (útidyrunum). Ég velti oft fyrir mér hvernig orð eru hugsuð. Ekki þó anddyri.
Sæmundur Bjarnason, 25.8.2011 kl. 10:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.