30.3.2010 | 00:06
975 - Hinn skrifandi maður (veit ekki hvernig það er á latínu)
Það hentar mér ágætlega að blogga. Þegar blogg-greinar mínar eru farnar út í eterinn missi ég áhugann á þeim. Ef ég væri að skrifa eitthvað annað og varanlegra mundi ég aldrei geta hætt að snyrta og snurfusa.
Reyni samt alltaf að vanda blogg-greinar mínar dálítið og lesa þær yfir. Sama verður ekki sagt um kommentin. Þau eru nær alltaf samin á svipstundu og send upp eins og skot. Vísurnr tekur þó oft nokkra stund að semja.
Sumir vanda sig ekki nærri nógu mikið við bloggskrifin og láta allskyns hroða frá sér fara þó þeir hafi frá nógu að segja. Aðrir hafa bara alls ekkert að segja en skrifa þó. Reyni að falla í hvorugan flokkinn.
Margir hafa horn í síðu bloggsins yfirleitt og þeir sem blogguðu áður en Moggabloggið kom til sögunnar reyna oft að telja sjálfum sér og öðrum trú um að það hafi spillt blogginu.
Jú, það eru langtum fleiri sem blogga núorðið og líka margir sem fésbóka sig sem mest þeir mega. Auglýsingakeimurinn af Facebook fælir mig frá henni. Þeir eru samt margir sem þar eru skráðir án þess að taka teljandi þátt í því húllumhæi sem þar ríður húsum.
Best er auðvitað að skrifa ekki neitt. Lesa bara og láta samskiptin í kjötheimum nægja. Netið býður uppá alveg nýja tegund af samskiptum ef menn kæra sig um.
Ég hef oft velt fyrir mér að gerast persónulegri í mínum bloggskrifum. Skrifa meira um það sem fyrir mig kemur daglega og fílósófera svolítið um það. Ég er óvanur því og ef ég færi úti það þyrfti ég að taka tillit til svo margra. Eins og nú er þarf ég lítið tillit að taka til annarra. Það mundi eflaust breytast ef ég yrði persónulegri. Sjáum til og svo er aldrei að vita nema ég skrái mig einn daginn á bókar-fésið.
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Efni
Tenglar
Blogg
- Áslaug Benediktsdóttir
- Harpa Hreinsdóttir
- Atli Harðarson
- Anna K. Kristjánsdóttir
- Erlingur Brynjólfsson
- Nanna Rögnvaldardóttir
- Þórunn Sigurjónsdóttir
- Susan Polgar
Skák
Ýmislegt
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
2006
Des. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 | 31 |
Bloggvinir
- Anna Einarsdóttir
- Umsjónarmenn blog.is
- Egill Jóhannsson
- Róslín A. Valdemarsdóttir
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Sigríður Jósefsdóttir
- Arnþór Helgason
- Birgitta Jónsdóttir
- Lýður Pálsson
- Einar Sveinbjörnsson
- Gylfi Guðmundsson
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Villi Asgeirsson
- Sigurður Þór Guðjónsson
- Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson
- Egill Bjarnason
- Jóhann Björnsson
- Ólafur fannberg
- TómasHa
- Ágúst H Bjarnason
- Brjánn Guðjónsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Ragnheiður
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Magnús Helgi Björgvinsson
- Kári Harðarson
- Eiríkur Mörk Valsson
- Ragnhildur Sverrisdóttir
- Ridar T. Falls
- Konráð Ragnarsson
- Vefritid
- Svanur Sigurbjörnsson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Sveinn Ingi Lýðsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Pawel Bartoszek
- Haukur Nikulásson
- Bjarni Harðarson
- Eiður Svanberg Guðnason
- Ómar Ragnarsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- AK-72
- Sigurður Ingi Kjartansson
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Þórarinn Þ Gíslason
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Púkinn
- Lady Elín
- Kolbrún Baldursdóttir
- Jens Guð
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Hrannar Baldursson
- Jón Bjarnason
- Ár & síð
- Jón Ingi Cæsarsson
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Svavar Alfreð Jónsson
- Benedikt Henry Segura
- Marinó G. Njálsson
- Theódór Norðkvist
- Jón Ingvar Jónsson
- Gunnar Þórðarson
- Ólafur Fr Mixa
- Gíslína Erlendsdóttir
- Jóna Á. Gísladóttir
- Heimir Tómasson
- Guðmundur Pálsson
- Ólafur Ragnarsson
- gudni.is
- Guðbjörn Guðbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- G. Valdimar Valdemarsson
- Sigmar Þór Sveinbjörnsson
- Gestur Gunnarsson
- Óskar Þorkelsson
- Ylfa Mist Helgadóttir
- Kristinn Theódórsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Evrópusamtökin, www.evropa.is
- Lýður Árnason
- Brattur
- Marta B Helgadóttir
- Hallmundur Kristinsson
- Sigurður Hreiðar
- Eyþór Árnason
- Bergur Thorberg
- kloi
- Hjalti Tómasson
- Kristjana Bjarnadóttir
- Bjarni Sæmundsson
- Máni Ragnar Svansson
- Emil Hannes Valgeirsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Torfi Kristján Stefánsson
- Haukur Baukur
- Sverrir Stormsker
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Helga Kristjánsdóttir
- Loopman
- Einar B Bragason
- Erna Bjarnadóttir
- Ólafur "Tröllabarn" Georgsson
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Gísli Tryggvason
- Helgi Guðmundsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Þráinn Jökull Elísson
- Þorsteinn Briem
- Hjálmtýr V Heiðdal
- Himmalingur
- Ketill Sigurjónsson
- Sæmundur Bjarnason
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Bjarni Rúnar Einarsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Bókakaffið á Selfossi
- Guðni Karl Harðarson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson)
- Marteinn Unnar Heiðarsson
- Einar G. Harðarson
- Bloggrýnirinn
- kreppukallinn
- Jack Daniel's
- Guðjón Baldursson
- Már Wolfgang Mixa
- Dóra litla
- hilmar jónsson
- Hörður B Hjartarson
- Kristín Bjarnadóttir
- Arnþrúður Karlsdóttir
- Baldur Hermannsson
- Eygló
- Finnur Bárðarson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Loftslag.is
- Jón Daníelsson
- Elín Helga Egilsdóttir
- Helga Þórðardóttir
- Sigurður Grétar Guðmundsson
- Leikhópurinn Lotta
- Dúa
- Hulda Haraldsdóttir
- Kama Sutra
- Bjarni Kristjánsson
- Kristinn Theódórsson
- Blogblaster
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jóhanna Magnúsdóttir
- Andspilling
- Valmundur Valmundsson
- Dingli
- Kristinn Karl Brynjarsson
- Sigurður Einarsson
- Mathieu Grettir Skúlason
- Árni Matthíasson
- BookIceland
- FORNLEIFUR
- Guðbjörn Jónsson
- Högni Snær Hauksson
- Ingólfur Sigurðsson
- Stefán Júlíusson
- Þorsteinn Siglaugsson
Athugasemdir
Það er rétt hjá þér Sæmundur,við erum svo fámenn,að jaðrar við tillitstöku í hverju bloggi. En pólitíkin er býsna hörð núna,verður eiginlega að vera það. Ég las eitt sinn blogg hjá þér,fjallaði um dráp á dýrum,þar sá ég og fann hve,þeir sem e.t.v. eru kallaðir naglar eru góðar sálir,mér er þetta svo minnisstætt,ég á við einn sem þurft hefur að yfirgefa bloggið,veit ekki hversvegna. Hann ber nú ekki virðingu fyrir mönnum frekar en honum listir,en finnur til með dýrum.
Helga Kristjánsdóttir, 30.3.2010 kl. 01:13
Gætir sagt: "Scribo, ergo sum" sem myndi þýða : "ég skrifa, þessvegna er ég"
Ég hafði einu sinni endalausan áhuga á latínu. Lærði hana í Menntaskólanum á Ísafirði hjá rektorsfrúnni Bryndísi Schram. Sérstaklega lagði ég mig eftir að læra frasa eins og: cogito ergo sum, in vino varitas og gutta cavat lapidem...
Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 30.3.2010 kl. 01:52
Homo scribens
Hans Haraldsson 30.3.2010 kl. 03:13
Já, Helga, stjórnmálin eru þannig núna að erfitt er að taka ekki þátt í umræðum um þau. Man líka vel eftir umræðunni um dýradrápin. Af einhverjum ástæðum er þetta mér hjartans mál. Dýrin eru nefnilega svo algerlega uppá okkur mennina komin að í umgengni okkar við þau opinberast margt sem ekki liggur í augum uppi.
Jóhannes, latínan er skemmtileg. Ég hugsa, því lifi ég. Öl er innri maður. Skil ekki gutta cavat lapidem, því miður. Gaman oft að sjá í enskunni hve hún er veik fyrir frönskum glósum.
Takk, Hans. Þekki homo allan fjárann og líka Ecce Homo en geta illa sett saman texta á latínu.
Sæmundur Bjarnason, 30.3.2010 kl. 08:17
Kattasmölun - Myndband
Þorsteinn Briem, 30.3.2010 kl. 12:20
Homo scribens, nema að maður sé einn af þessum 5%, þá er maður homo scribo og jafnvel scribator ef maður er af fínum ættum! Homo descriptus ef maður er að blogga.
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 30.3.2010 kl. 12:52
Flott mynd, Steini. Sá samt hvergi Jóhönnu.
Sæmundur Bjarnason, 30.3.2010 kl. 12:53
Sæll Sæmi.
Þú segir m.a
Það hentar mér ... Reyni samt alltaf ...Sumir vanda sig …Margir hafa horn … Jú, það eru langtum fleiri sem … Best er auðvitað að skrifa ekki neitt. …
Fá orð segja mikið. Þú ert alltaf góður.
Sumir eru líka hræddir við að blogga. Einni frú man ég eftir sem bloggaði mikið hér áður fyrr og það henti stundum að Bakkus væri með henni í för um helgar. En það er löngu liðin tíð.
Mér datt þetta í hug vegna þess að einhver sagðist hafa byrjað að blogga til að hætta að drekka eða kannski var það öfugt.
Þegar ég var að BBSast forðum, með Delfi, samhliða þér þá eignaðist ég 500 MB harðan disk sem þótti meiriháttar þá. Hef stundum hugsað til þeirra tíma.
Eignaðist ekki sonur þinn risastórann disk úr gamalli IBM sem verið var að farga?
Kannski byrja ég einn góðan veðurdag ef ég hætti
að vera latur.
Kveðja,
Guðmundur Bjarnason 30.3.2010 kl. 13:03
Á breyskleikann alls ekki blindir
það ber vott um siðferðisbrest,
að afsaka alls konar syndir
með "errare humanum est"
Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 30.3.2010 kl. 13:04
Jóhannes, já það er mannlegt að skjátlast. Get ekkert ort núna. Kemur kannski bráðum.
Guðmundur, man vel eftir BBS-unum. (grein um þau í Rafritinu - snerpa.is/net) Man ekki hvað diskurinn sem Benni á úr System tölvunni er stór - en ca 70 kg að þyngd minnir mig hann sé. Wang-töllvurnar sem voru fyrst á Stöð 2 voru með 10 Mb diskum - gríðarleg stærð.
Sæmundur Bjarnason, 30.3.2010 kl. 13:26
Hættur er Ómar á hækjum,
í hraunsins baðar sig lækjum,
en túristar koma á tækjum,
á tólunum Johnsen við sækjum.
Þorsteinn Briem, 30.3.2010 kl. 14:08
Á ennþá diskinn minnir að hann hafi verið 15MB var ca 50 kg þegar mótorinn var á honum tók hann af og henti ætli hann sé ekki ca 25 kg núna. Semsagt 1.6 kg MB :)
Linkur á myndir af samskonar disk.
http://web.archive.org/web/20021116001903/http://web.screenart.es/tomeu/mcomputers-S34.php3
Benedikt Sæmundsson 30.3.2010 kl. 14:21
Getur maður ekki líka verið hómó skrípó?
Sigurður Þór Guðjónsson, 30.3.2010 kl. 20:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.