1.10.2009 | 00:24
820 - Ehemm
Er alveg stumm. Get ekkert gáfulegt sagt. Uppdráttarsýkin á Moggablogginu virðist vera að ná til ríkisstjórnarinnar. Held ég reyni bara að blogga um eitthvað annað. Kann hálfilla við mig í fréttaskýringarhlutverkinu.
Loksins er ég búinn með bókina Skáldalíf. Aftarlega í henni er eftirfarandi klausa:
Þegar Gunnar hélt til Danmerkur virtist vonlaust að gera skriftir að ævistarfi á Íslandi og þegar Þórbergur endurfæddist loks til ritstarfa var aðeins einn atvinnuhöfundur á Íslandi, Halldór Laxness. Þetta skýrir bæði stórhug Gunnars, sem hugðist semja skáldsagnabálk um íslenska þjóðarsögu og vitund, og frumleik Þórbergs í Bréfi til Láru. Þeir komu að óskrifaðri veröld."
Þetta er ekki rétt. Íslendingar eru og hafa alltaf verið mikið fyrir allskyns skriftir. Veröldin núna er alveg jafn óskrifuð og þegar Gunnar og Þórbergur voru að byrja. Auðvitað er næsta úrelt að skrifa orð á blað. Engum úrslitum ræður samt hvort menn hafa atvinnu af skrifum eða ekki. Gæðin skipta mestu máli.
Nú eru Bitrumálin að komast á dagskrá aftur. Veit ekki af hverju. Minnst var á þau í kommentum hjá mér og Lára Hanna er aftur komin í Bitru-gírinn. Leitaði í bloggum mínum hér og sá að ég hef sex sinnum minnst á Bitruvirkjun. Fyrst 22. nóvember 2007. Kannski er samt markverðasta greinin mín frá 17. maí 2008. Veit það samt ekki alveg því ég nennti ekki að lesa öll þessi sex blogg.
Ölkelduháls og hverasvæðið þar þekki ég vel. Um Hellisheiði og Hengladali hef ég víða flækst. Þekki að sjálfsögðu Klambragil og Grensdal. Einnig Innstadal, Fremstadal og Þrengslin, Meitlana tvo og Lambafellið, Skálafell, Geitafell, og svo framvegis. Hef gengið á þau fjöll öll. Einnig Hengilinn, Hrómundartind, Súlufell og sjálfsagt fleiri.
Ein er samt sú gönguleið sem ég hef aldrei farið en lengi ætlað mér að ganga. Það er leiðin úr Hafnarfirði (eða af Bláfjallaveginum) um Grindaskörð til Selvogs. Á þessari leið er mikið og gott útsýni. Einnig falleg fjallanöfn svosem Heiðin há og Fjallið eina. Landnámsmaður á svæðinu var Þórir haustmyrkur og þar áttust þær við tröllskessurnar Krýsa og Herdís. Í Herdísarvík bjó Einar Benediktsson sín síðustu æviár og Eiríkur í Vogsósum bjó að sjálfsögðu að Vogsósum og fleira mætti rifja upp.
Flokkur: Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:27 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Efni
Tenglar
Blogg
- Áslaug Benediktsdóttir
- Harpa Hreinsdóttir
- Atli Harðarson
- Anna K. Kristjánsdóttir
- Erlingur Brynjólfsson
- Nanna Rögnvaldardóttir
- Þórunn Sigurjónsdóttir
- Susan Polgar
Skák
Ýmislegt
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
2006
Des. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 | 31 |
Bloggvinir
- Anna Einarsdóttir
- Umsjónarmenn blog.is
- Egill Jóhannsson
- Róslín A. Valdemarsdóttir
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Sigríður Jósefsdóttir
- Arnþór Helgason
- Birgitta Jónsdóttir
- Lýður Pálsson
- Einar Sveinbjörnsson
- Gylfi Guðmundsson
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Villi Asgeirsson
- Sigurður Þór Guðjónsson
- Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson
- Egill Bjarnason
- Jóhann Björnsson
- Ólafur fannberg
- TómasHa
- Ágúst H Bjarnason
- Brjánn Guðjónsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Ragnheiður
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Magnús Helgi Björgvinsson
- Kári Harðarson
- Eiríkur Mörk Valsson
- Ragnhildur Sverrisdóttir
- Ridar T. Falls
- Konráð Ragnarsson
- Vefritid
- Svanur Sigurbjörnsson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Sveinn Ingi Lýðsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Pawel Bartoszek
- Haukur Nikulásson
- Bjarni Harðarson
- Eiður Svanberg Guðnason
- Ómar Ragnarsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- AK-72
- Sigurður Ingi Kjartansson
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Þórarinn Þ Gíslason
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Púkinn
- Lady Elín
- Kolbrún Baldursdóttir
- Jens Guð
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Hrannar Baldursson
- Jón Bjarnason
- Ár & síð
- Jón Ingi Cæsarsson
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Svavar Alfreð Jónsson
- Benedikt Henry Segura
- Marinó G. Njálsson
- Theódór Norðkvist
- Jón Ingvar Jónsson
- Gunnar Þórðarson
- Ólafur Fr Mixa
- Gíslína Erlendsdóttir
- Jóna Á. Gísladóttir
- Heimir Tómasson
- Guðmundur Pálsson
- Ólafur Ragnarsson
- gudni.is
- Guðbjörn Guðbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- G. Valdimar Valdemarsson
- Sigmar Þór Sveinbjörnsson
- Gestur Gunnarsson
- Óskar Þorkelsson
- Ylfa Mist Helgadóttir
- Kristinn Theódórsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Evrópusamtökin, www.evropa.is
- Lýður Árnason
- Brattur
- Marta B Helgadóttir
- Hallmundur Kristinsson
- Sigurður Hreiðar
- Eyþór Árnason
- Bergur Thorberg
- kloi
- Hjalti Tómasson
- Kristjana Bjarnadóttir
- Bjarni Sæmundsson
- Máni Ragnar Svansson
- Emil Hannes Valgeirsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Torfi Kristján Stefánsson
- Haukur Baukur
- Sverrir Stormsker
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Helga Kristjánsdóttir
- Loopman
- Einar B Bragason
- Erna Bjarnadóttir
- Ólafur "Tröllabarn" Georgsson
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Gísli Tryggvason
- Helgi Guðmundsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Þráinn Jökull Elísson
- Þorsteinn Briem
- Hjálmtýr V Heiðdal
- Himmalingur
- Ketill Sigurjónsson
- Sæmundur Bjarnason
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Bjarni Rúnar Einarsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Bókakaffið á Selfossi
- Guðni Karl Harðarson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson)
- Marteinn Unnar Heiðarsson
- Einar G. Harðarson
- Bloggrýnirinn
- kreppukallinn
- Jack Daniel's
- Guðjón Baldursson
- Már Wolfgang Mixa
- Dóra litla
- hilmar jónsson
- Hörður B Hjartarson
- Kristín Bjarnadóttir
- Arnþrúður Karlsdóttir
- Baldur Hermannsson
- Eygló
- Finnur Bárðarson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Loftslag.is
- Jón Daníelsson
- Elín Helga Egilsdóttir
- Helga Þórðardóttir
- Sigurður Grétar Guðmundsson
- Leikhópurinn Lotta
- Dúa
- Hulda Haraldsdóttir
- Kama Sutra
- Bjarni Kristjánsson
- Kristinn Theódórsson
- Blogblaster
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jóhanna Magnúsdóttir
- Andspilling
- Valmundur Valmundsson
- Dingli
- Kristinn Karl Brynjarsson
- Sigurður Einarsson
- Mathieu Grettir Skúlason
- Árni Matthíasson
- BookIceland
- FORNLEIFUR
- Guðbjörn Jónsson
- Högni Snær Hauksson
- Ingólfur Sigurðsson
- Stefán Júlíusson
- Þorsteinn Siglaugsson
Athugasemdir
This reminds me, for some reason, of sitting here at my table the other day, playing playdough with a little boy that lives nearby. He was making figures that looked like horses and cars, and I showed him how to make a flower. I keep thinking about the flower I made, and about him. His parents told him he did not need to go to school last week or this week, for some reason.
Lissy 1.10.2009 kl. 00:57
Lissy, skil ekki hvernig saga þín tengist mínu bloggi en það skiptir svosem engu máli.
Sæmundur Bjarnason, 1.10.2009 kl. 09:03
Já Sæmundur, Bitruvirkjun gæti verið hið leiðinlegasta mál fyrir okkur rúm 2000 manns sem búum í Hveragerði í dag.
Annars hjó ég eftir örnefnunum Heiðin há og Fjallið eina. Frá því að ég var krakki og sá þessi örnefni fyrst á korti hefur mér ekki þótt þau vera hugmyndarík. Bæði eru margar hærri heiðar rétt eins og mörg fleiri fjöll.
Axel Þór Kolbeinsson, 1.10.2009 kl. 09:14
Axel Þór, vissulega eru til hærri heiðar og fleiri fjöll. Nöfnin finnst mér samt sérkennileg. Get þó ekki almennilega dæmt um hversu hugmyndarík þau eru nema þekkja staðhætti.
Sæmundur Bjarnason, 1.10.2009 kl. 11:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.