20.8.2009 | 01:38
779 - Hólmfastur Guðmundsson
Sagan mætir okkur við hvert fótmál. Í framhaldi af fréttum um sölu heitavatnsréttinda á Reykjanesi varð mér hugsað til mun eldra máls.
Skammt frá Vogum á Vatnsleysuströnd átti eitt sinn heima Hólmfastur Guðmundsson. Árið 1699 seldi hann í Keflavík þrettán fiska sem kaupmaðurinn í Hafnarfirði hafði ekki viljað kaupa. Þetta komst upp og var Hólmfastur dæmdur í sekt. Sektina gat hann ekki greitt því hann átti ekki neitt nema eitt ónýtt bátsskrifli og var hann því hýddur (16 vandarhögg) í votta viðurvist. Með því að selja ekki þeim kaupmanni, sem einokunarlögin mæltu fyrir að hann skyldi selja afurðir sínar, braut Hólmfastur lög og var refsað fyrir það. Lög og reglur hafa oft ekkert með réttlæti að gera.
Miklu seinna voru þeir Duusfeðgar kaupmennn í Keflavík og sveið mörgum ríkidæmi þeirra. Eyjólfur í Króki orti:
Að vera ríkur eins og Duus
óskar sér margur snauður,
eiga fögur og háreist hús,
hvar í býr sæld og auður.
Eitt er meinið, sem allir sjá,
ómögulegt að komast hjá;
loksins að liggja dauður.
Bloggheimurinn er skrýtin skepna og margir óttast hann. Sjálfur er ég nýfarinn að skilja hann almennilega. Á vissan hátt er ég kominn í sálufélag bloggara. Sumt af því sem menn láta þar frá sér fara hugnast mér alls ekki. Einkum finnst mér margir brenna sig á því að vera of orðljótir og taka of mikið uppí sig. Afleitt er að gera of mikið úr hlutunum. Slæmt er líka að vera ónæmur fyrir því sem gerist í umhverfinu og afsaka allt.
Mér finnst íslensk stjórnmálaumræða vera að breytast. Mun fleiri taka þátt í henni núorðið og verra er að halda hlutum leyndum. Mjög er það samt reynt. Bloggið hefur áhrif þarna bæði beint og einnig óbeint með því að hafa áhrif á fjölmiðla. Áhrif bloggsins og Netsins í heild hafa aukist mikið að undanförnu og eiga eftir að aukast enn.
Sagt hefur verið frá því að akur með erfðabreyttu byggi hafi verið eyðilagður í Gunnarsholti. Sé mark takandi á fréttum af þessu finnst mér of langt gengið. Fjarri fer því að sannað sé að erfðabreytt matvæli séu skaðleg. Erfðabreyting ýmiss konar hefur lengi verið stundum í landbúnaði. Nútímatækni hefur vissulega fleygt þessum málum fram en þau skemmdarverk sem unnin eru til að vekja athygli á þessum málum eru oft ekki réttlætanleg.
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Efni
Tenglar
Blogg
- Áslaug Benediktsdóttir
- Harpa Hreinsdóttir
- Atli Harðarson
- Anna K. Kristjánsdóttir
- Erlingur Brynjólfsson
- Nanna Rögnvaldardóttir
- Þórunn Sigurjónsdóttir
- Susan Polgar
Skák
Ýmislegt
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
2006
Bloggvinir
- Anna Einarsdóttir
- Umsjónarmenn blog.is
- Egill Jóhannsson
- Róslín A. Valdemarsdóttir
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Sigríður Jósefsdóttir
- Arnþór Helgason
- Birgitta Jónsdóttir
- Lýður Pálsson
- Einar Sveinbjörnsson
- Gylfi Guðmundsson
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Villi Asgeirsson
- Sigurður Þór Guðjónsson
- Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson
- Egill Bjarnason
- Jóhann Björnsson
- Ólafur fannberg
- TómasHa
- Ágúst H Bjarnason
- Brjánn Guðjónsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Ragnheiður
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Magnús Helgi Björgvinsson
- Kári Harðarson
- Eiríkur Mörk Valsson
- Ragnhildur Sverrisdóttir
- Ridar T. Falls
- Konráð Ragnarsson
- Vefritid
- Svanur Sigurbjörnsson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Sveinn Ingi Lýðsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Pawel Bartoszek
- Haukur Nikulásson
- Bjarni Harðarson
- Eiður Svanberg Guðnason
- Ómar Ragnarsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- AK-72
- Sigurður Ingi Kjartansson
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Þórarinn Þ Gíslason
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Púkinn
- Lady Elín
- Kolbrún Baldursdóttir
- Jens Guð
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Hrannar Baldursson
- Jón Bjarnason
- Ár & síð
- Jón Ingi Cæsarsson
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Svavar Alfreð Jónsson
- Benedikt Henry Segura
- Marinó G. Njálsson
- Theódór Norðkvist
- Jón Ingvar Jónsson
- Gunnar Þórðarson
- Ólafur Fr Mixa
- Gíslína Erlendsdóttir
- Jóna Á. Gísladóttir
- Heimir Tómasson
- Guðmundur Pálsson
- Ólafur Ragnarsson
- gudni.is
- Guðbjörn Guðbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- G. Valdimar Valdemarsson
- Sigmar Þór Sveinbjörnsson
- Gestur Gunnarsson
- Óskar Þorkelsson
- Ylfa Mist Helgadóttir
- Kristinn Theódórsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Evrópusamtökin, www.evropa.is
- Lýður Árnason
- Brattur
- Marta B Helgadóttir
- Hallmundur Kristinsson
- Sigurður Hreiðar
- Eyþór Árnason
- Bergur Thorberg
- kloi
- Hjalti Tómasson
- Kristjana Bjarnadóttir
- Bjarni Sæmundsson
- Máni Ragnar Svansson
- Emil Hannes Valgeirsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Torfi Kristján Stefánsson
- Haukur Baukur
- Sverrir Stormsker
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Helga Kristjánsdóttir
- Loopman
- Einar B Bragason
- Erna Bjarnadóttir
- Ólafur "Tröllabarn" Georgsson
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Gísli Tryggvason
- Helgi Guðmundsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Þráinn Jökull Elísson
- Þorsteinn Briem
- Hjálmtýr V Heiðdal
- Himmalingur
- Ketill Sigurjónsson
- Sæmundur Bjarnason
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Bjarni Rúnar Einarsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Bókakaffið á Selfossi
- Guðni Karl Harðarson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson)
- Marteinn Unnar Heiðarsson
- Einar G. Harðarson
- Bloggrýnirinn
- kreppukallinn
- Jack Daniel's
- Guðjón Baldursson
- Már Wolfgang Mixa
- Dóra litla
- hilmar jónsson
- Hörður B Hjartarson
- Kristín Bjarnadóttir
- Arnþrúður Karlsdóttir
- Baldur Hermannsson
- Eygló
- Finnur Bárðarson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Loftslag.is
- Jón Daníelsson
- Elín Helga Egilsdóttir
- Helga Þórðardóttir
- Sigurður Grétar Guðmundsson
- Leikhópurinn Lotta
- Dúa
- Hulda Haraldsdóttir
- Kama Sutra
- Bjarni Kristjánsson
- Kristinn Theódórsson
- Blogblaster
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jóhanna Magnúsdóttir
- Andspilling
- Valmundur Valmundsson
- Dingli
- Kristinn Karl Brynjarsson
- Sigurður Einarsson
- Mathieu Grettir Skúlason
- Árni Matthíasson
- BookIceland
- FORNLEIFUR
- Guðbjörn Jónsson
- Högni Snær Hauksson
- Ingólfur Sigurðsson
- Stefán Júlíusson
- Þorsteinn Siglaugsson
Athugasemdir
Gaman mjög af vísum Hilmar hefur.
Hingað koma ýmsar vísur hans.
Fallinn þar til vel er þessi vefur
og vísnagerð má stunda hér með glans.-
Um Duus og bygg ég dunda við að skrifa.
Dæmalaust er sagan merkileg.
Á Íslandi er ávallt best að lifa
þó Icesave-an sé skelfing hræðileg.
Sæmundur Bjarnason, 20.8.2009 kl. 15:48
"Ekki veit ég hvar í andskotanum krakkaskrattinn hefur lært að bölva svona," sagði húsfreyja.
Hilmar karlinn Hafsteinsson
hendingarnar prjónar.
Enga þar menn eiga von
ef þeir reynast dónar.
Sæmundur Bjarnason, 20.8.2009 kl. 18:11
Hilmar ekki hemur sig
hendir stöku á Netið.
Vísukorn er varla um mig
víst að engu metið.
Sæmundur Bjarnason, 20.8.2009 kl. 21:22
Með vísnaþrugli Hilmar upp ég æsi.
Aldrei verður Hafsteinssonur lens.
Inni í vísu orðræðuna læsi
svo ekki verði á hugtökunum skrens.
Hilmar enga hefur von
hann er næstum búinn.
Blessar Sæma Bjarnason
sem burtu er nú flúinn.
Sæmundur Bjarnason, 21.8.2009 kl. 03:22
Viðbót eða endurbót
Með vísnsöngli Hilmar upp ég æsi
og ekki verður frá því komist nú.
Í hendingar ég hugmyndirnar læsi
svo heldur verður erfið vegferð sú.
.
Sæmundur Bjarnason, 21.8.2009 kl. 12:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.