17.8.2009 | 00:06
776- Steingrímur Jóhann ræðst að Kjartani
Steingrímur Jóhann réðist með eftirminnilegum hætti að Kjartani Gunnarssyni á Hólahátíð og fjölmiðlar tíunda það vandlega. Hef ekki séð nefnda grein Kjartans í Morgunblaðinu en Kjartan mun eflaust svara Steingrími. Þarna gætu verið í uppsiglingu áhugaverð skoðanaskipti. Hvað gerir það að verkum að svona erfitt er að koma tölvupósti rétt frá sér á Selfossi? Getur þetta verið eitthvað í landslaginu? Eru draugar kannski meira á sveimi þarna en annars staðar? Eitthvað er það, svo mikið er víst. Mér fannst ekki gáfulegt hjá Þráni Bertelssyni að líkja þeim Bjarna frænda og Margréti Tryggvadóttur saman. Bjarni tók það líka óstinnt upp. Bæði eru þó haldin Selfoss-heilkenninu. Bjarni ætlaði að dreifa óhróðri um samflokksmann eins og hann taldi vera venju. Margrét taldi hinsvegar að tölvubréf væru jafn vel varin fyrir hnýsni og hugsanir. Sérstaklega ef tekið væri fram að þau væru trúnaðarmál. Bæði ýttu á vitlausan takka á tölvunni. Líklega annaðhvort vegna landslagsins eða draugagangs. Þó Bjarni hafi eflaust séð eftir þingmennskunni hefur hann tekið örlögum sínum vel. Ekki er víst að kjósendur Borgarahreyfingarinnar taki því eins vel að þingmenn þeirra séu hafðir að háði og spotti. En ekki þýðir að gráta Björn bónda og ekki er séð ennþá hvert mögulegt verður að fleygja atkvæði sínu í næstu kosningum. Fjórflokkurinn bregst ekki. Google-readerinn er þarfaþing. Hef aldrei komist uppá lag með að notfæra mér RSS strauma á annan hátt. Um daginn ætlaði ég að setja Doktor Gunna í readerinn minn en hann (readerinn) koksaði á því. Af hverju veit ég ekki. Doktor Gunni er úrvalsbloggari. Blogg-gáttin er líka ágæt. Undanfarið hef ég verið að skoða gömul blogg. Margt er þar athyglisvert. Einkum þykja mér endurminningarnar þess virði að lesa aftur. Hugleiðingar um málefni dagsins eru ekki nærri eins merkilegar hvernig sem á því stendur. Ég ætla að safna þessu saman og raða uppá nýtt. Kannski sem ég eitthvað til tenginga. Ekki veit ég hvað ég geri svo við þetta en vitanlega er hugsanlegt að ég birti það aftur á blogginu. Ég mun samt aðvara um endurtekningar ef þess gerist þörf. |
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Efni
Tenglar
Blogg
- Áslaug Benediktsdóttir
- Harpa Hreinsdóttir
- Atli Harðarson
- Anna K. Kristjánsdóttir
- Erlingur Brynjólfsson
- Nanna Rögnvaldardóttir
- Þórunn Sigurjónsdóttir
- Susan Polgar
Skák
Ýmislegt
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
2006
Bloggvinir
- Anna Einarsdóttir
- Umsjónarmenn blog.is
- Egill Jóhannsson
- Róslín A. Valdemarsdóttir
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Sigríður Jósefsdóttir
- Arnþór Helgason
- Birgitta Jónsdóttir
- Lýður Pálsson
- Einar Sveinbjörnsson
- Gylfi Guðmundsson
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Villi Asgeirsson
- Sigurður Þór Guðjónsson
- Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson
- Egill Bjarnason
- Jóhann Björnsson
- Ólafur fannberg
- TómasHa
- Ágúst H Bjarnason
- Brjánn Guðjónsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Ragnheiður
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Magnús Helgi Björgvinsson
- Kári Harðarson
- Eiríkur Mörk Valsson
- Ragnhildur Sverrisdóttir
- Ridar T. Falls
- Konráð Ragnarsson
- Vefritid
- Svanur Sigurbjörnsson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Sveinn Ingi Lýðsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Pawel Bartoszek
- Haukur Nikulásson
- Bjarni Harðarson
- Eiður Svanberg Guðnason
- Ómar Ragnarsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- AK-72
- Sigurður Ingi Kjartansson
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Þórarinn Þ Gíslason
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Púkinn
- Lady Elín
- Kolbrún Baldursdóttir
- Jens Guð
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Hrannar Baldursson
- Jón Bjarnason
- Ár & síð
- Jón Ingi Cæsarsson
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Svavar Alfreð Jónsson
- Benedikt Henry Segura
- Marinó G. Njálsson
- Theódór Norðkvist
- Jón Ingvar Jónsson
- Gunnar Þórðarson
- Ólafur Fr Mixa
- Gíslína Erlendsdóttir
- Jóna Á. Gísladóttir
- Heimir Tómasson
- Guðmundur Pálsson
- Ólafur Ragnarsson
- gudni.is
- Guðbjörn Guðbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- G. Valdimar Valdemarsson
- Sigmar Þór Sveinbjörnsson
- Gestur Gunnarsson
- Óskar Þorkelsson
- Ylfa Mist Helgadóttir
- Kristinn Theódórsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Evrópusamtökin, www.evropa.is
- Lýður Árnason
- Brattur
- Marta B Helgadóttir
- Hallmundur Kristinsson
- Sigurður Hreiðar
- Eyþór Árnason
- Bergur Thorberg
- kloi
- Hjalti Tómasson
- Kristjana Bjarnadóttir
- Bjarni Sæmundsson
- Máni Ragnar Svansson
- Emil Hannes Valgeirsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Torfi Kristján Stefánsson
- Haukur Baukur
- Sverrir Stormsker
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Helga Kristjánsdóttir
- Loopman
- Einar B Bragason
- Erna Bjarnadóttir
- Ólafur "Tröllabarn" Georgsson
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Gísli Tryggvason
- Helgi Guðmundsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Þráinn Jökull Elísson
- Þorsteinn Briem
- Hjálmtýr V Heiðdal
- Himmalingur
- Ketill Sigurjónsson
- Sæmundur Bjarnason
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Bjarni Rúnar Einarsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Bókakaffið á Selfossi
- Guðni Karl Harðarson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson)
- Marteinn Unnar Heiðarsson
- Einar G. Harðarson
- Bloggrýnirinn
- kreppukallinn
- Jack Daniel's
- Guðjón Baldursson
- Már Wolfgang Mixa
- Dóra litla
- hilmar jónsson
- Hörður B Hjartarson
- Kristín Bjarnadóttir
- Arnþrúður Karlsdóttir
- Baldur Hermannsson
- Eygló
- Finnur Bárðarson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Loftslag.is
- Jón Daníelsson
- Elín Helga Egilsdóttir
- Helga Þórðardóttir
- Sigurður Grétar Guðmundsson
- Leikhópurinn Lotta
- Dúa
- Hulda Haraldsdóttir
- Kama Sutra
- Bjarni Kristjánsson
- Kristinn Theódórsson
- Blogblaster
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jóhanna Magnúsdóttir
- Andspilling
- Valmundur Valmundsson
- Dingli
- Kristinn Karl Brynjarsson
- Sigurður Einarsson
- Mathieu Grettir Skúlason
- Árni Matthíasson
- BookIceland
- FORNLEIFUR
- Guðbjörn Jónsson
- Högni Snær Hauksson
- Ingólfur Sigurðsson
- Stefán Júlíusson
- Þorsteinn Siglaugsson
Athugasemdir
"selfoss heilkennið" :D.. þú ert snillingur Sæmi :)
Óskar Þorkelsson, 17.8.2009 kl. 00:20
Ætli Kjartan hafi ekki nóg með að svara fyrir gjörðir sínar í réttinum, það er merkilegt hversu lengi stjórnvöld eru að koma sér af stað í lögsókn á móti stjórnarmönnum bankan, ekki síst í ljósi þess að á undangegnum árum hafa hundruðir einstaklingar verið dæmdir fyrir stjórnarsetu í félögum er hafa lent í þrotum fyrir að geta ekki staðið skil á staðgreiðslu og virðisaukagr, og gerðir ærulausir öreigar með ranglátum dómum.
hallur 17.8.2009 kl. 00:51
Ég er ekki frá því að Steingrímur Joð sé að verða minn uppáhalds pólitíkus.
Kannski hann fái bara atkvæði mitt næst...
Kama Sutra, 17.8.2009 kl. 01:51
Ég tel nú fullkomlega ljóst að það var ekki óvart sem Margrét sendi póstinn á fleiri en nefnda Katrínu, jafn ljóst og að sálfræðignurinn sem hún skáldar inní bréfið er hreinn tilbúningur.
Það er augljóst ef menn þekkja eitthvað hið minnsta til greiningar á heilabilun og Alzheimers og hve margt annað en tiltölulega saklaust getur birt lík einkenni á fyrstu stigum. - Enginn fagmaður myndi af svo litlu hafa orð á því sem Margrét ber í félaga þeirra og var bara hreint og klárt ekkert annað en illkvittinn undirróður ætlaður til að skemma og meiða. Til hvers væri það líka að bera slíkar áhyggjur í manneskju sem ekkert getur gert með þær, þ.e. er hvorki persónulega tengd Þráni né Þráinn sjálfur?
Gunnar 17.8.2009 kl. 15:34
Takk Hilmar. Þú ert engum líkur.
Sæmundur Bjarnason, 17.8.2009 kl. 18:56
Setti saman eitthvað bull, sem svar.
Reiður var VingþórÞarna er eitthvað hrafl úr Þrymskviðu og líklega fleiri fornkvæðum. Torskilið og óskiljanlegt.
er hann vaknaði
og sinnar sængur
of saknaði.Hló Hlórriða
hugur brjósi.
Og hann það orða
alls fyrst of kvað: Hvað er með Hilmi?
Hvað er með Sæma?Hvað er með bloggdrótt alla? Réð Sólkóngur
brag að gera.
Mæra þar Sæma
og moldu ausa.
Sjóðinn sinn tæma
og austanfylgju. Bloggari á kassa
barði að vonum.
Enginn var stærri
né ríkari honum. Kóngurinn klári
kotunginn mærði.Sjálfur að ári
kom hann þó næst. Upphaf og endir
voru þar í
Einnig kantar og þilsvona hérumbil. Mæringur muldrarmjög yfir þessu.Engum er hossað
hér eftir messu. Og hann það orða
síðast of kvað.
Vil ekki skilja
vísuorð mörg.Eru mér ekki
öngvitin örg. Vituð þér enn eða hvat?
Sæmundur Bjarnason, 18.8.2009 kl. 10:20
Nú. Eitthvað fóru greinaskil og annað í skötulíki. Hélt að þetta væri öðruvísi.
Hvað með það.
Kann ekki að breyta þessu.
Og tekur því ekkii.
Sæmundur Bjarnason, 18.8.2009 kl. 10:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.