19.7.2009 | 00:06
747 - Reiðin
Margir merkir biskupar hafa setið í Skálholti. Meðal þeirra er Jón Þorkelsson Vídalín (1666 -1720). Hann er frægastur fyrir postillu sína eða húslestrarbók sem út kom að honum látnum. Hann varð biskup árið 1697. Vídalínspostilla er með merkustu ritum sem skrifuð hafa verið á íslensku. Hún var mikið lesin í næstum tvær aldir og endurprentuð hvað eftir annað. Áhrif hennar á íslenska menningu eru mikil. Einn frægasti lesturinn í Vídalínspostillu er reiðilesturinn. Hann skal lesa á sunnudegi þeim sem lendir á milli Nýjársdags og Þrettándans. Ég hef heyrt þennan lestur og hann er óhemjukröftugur. Þar líkir Jón reiðinni við spilverk djöfulsins. Hún gerir menn sturlaða. Reiður maður er vitlaus. Án alls vits. Hún nagar menn innan og eyðileggur þá. Gerir þá hamstola og vitfirrta. Því minnist ég á þetta að reiði og sárindi sitja svo í mönnum eftir bankahrunið hér á landi á síðasta ári að sálarlífi þeirra er hætta búin. Ekki er þó auðvelt að fyrirgefa þeim sem hruninu ollu en nauðsynlegt samt. Á margan hátt getum við sjálfum okkur um kennt hvernig fór. Afar fáir leituðu gegn straumnum. Ríkisvaldið sjálft brást þó það ætti að vera okkar öruggasta haldreipi. Einstaklingsfrelsið, gróðinn og skemmtunin voru allsráðandi. Samhyggja, meðlíðan og hugsjónir voru hlægilega gamaldags. Hið nýja Ísland verður því aðeins skapað að allt verði hugsað uppá nýtt og áhersla lögð á það sem sameinar en ekki það sem sundrar. |
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Efni
Tenglar
Blogg
- Áslaug Benediktsdóttir
- Harpa Hreinsdóttir
- Atli Harðarson
- Anna K. Kristjánsdóttir
- Erlingur Brynjólfsson
- Nanna Rögnvaldardóttir
- Þórunn Sigurjónsdóttir
- Susan Polgar
Skák
Ýmislegt
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
2006
Bloggvinir
- Anna Einarsdóttir
- Umsjónarmenn blog.is
- Egill Jóhannsson
- Róslín A. Valdemarsdóttir
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Sigríður Jósefsdóttir
- Arnþór Helgason
- Birgitta Jónsdóttir
- Lýður Pálsson
- Einar Sveinbjörnsson
- Gylfi Guðmundsson
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Villi Asgeirsson
- Sigurður Þór Guðjónsson
- Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson
- Egill Bjarnason
- Jóhann Björnsson
- Ólafur fannberg
- TómasHa
- Ágúst H Bjarnason
- Brjánn Guðjónsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Ragnheiður
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Magnús Helgi Björgvinsson
- Kári Harðarson
- Eiríkur Mörk Valsson
- Ragnhildur Sverrisdóttir
- Ridar T. Falls
- Konráð Ragnarsson
- Vefritid
- Svanur Sigurbjörnsson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Sveinn Ingi Lýðsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Pawel Bartoszek
- Haukur Nikulásson
- Bjarni Harðarson
- Eiður Svanberg Guðnason
- Ómar Ragnarsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- AK-72
- Sigurður Ingi Kjartansson
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Þórarinn Þ Gíslason
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Púkinn
- Lady Elín
- Kolbrún Baldursdóttir
- Jens Guð
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Hrannar Baldursson
- Jón Bjarnason
- Ár & síð
- Jón Ingi Cæsarsson
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Svavar Alfreð Jónsson
- Benedikt Henry Segura
- Marinó G. Njálsson
- Theódór Norðkvist
- Jón Ingvar Jónsson
- Gunnar Þórðarson
- Ólafur Fr Mixa
- Gíslína Erlendsdóttir
- Jóna Á. Gísladóttir
- Heimir Tómasson
- Guðmundur Pálsson
- Ólafur Ragnarsson
- gudni.is
- Guðbjörn Guðbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- G. Valdimar Valdemarsson
- Sigmar Þór Sveinbjörnsson
- Gestur Gunnarsson
- Óskar Þorkelsson
- Ylfa Mist Helgadóttir
- Kristinn Theódórsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Evrópusamtökin, www.evropa.is
- Lýður Árnason
- Brattur
- Marta B Helgadóttir
- Hallmundur Kristinsson
- Sigurður Hreiðar
- Eyþór Árnason
- Bergur Thorberg
- kloi
- Hjalti Tómasson
- Kristjana Bjarnadóttir
- Bjarni Sæmundsson
- Máni Ragnar Svansson
- Emil Hannes Valgeirsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Torfi Kristján Stefánsson
- Haukur Baukur
- Sverrir Stormsker
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Helga Kristjánsdóttir
- Loopman
- Einar B Bragason
- Erna Bjarnadóttir
- Ólafur "Tröllabarn" Georgsson
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Gísli Tryggvason
- Helgi Guðmundsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Þráinn Jökull Elísson
- Þorsteinn Briem
- Hjálmtýr V Heiðdal
- Himmalingur
- Ketill Sigurjónsson
- Sæmundur Bjarnason
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Bjarni Rúnar Einarsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Bókakaffið á Selfossi
- Guðni Karl Harðarson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson)
- Marteinn Unnar Heiðarsson
- Einar G. Harðarson
- Bloggrýnirinn
- kreppukallinn
- Jack Daniel's
- Guðjón Baldursson
- Már Wolfgang Mixa
- Dóra litla
- hilmar jónsson
- Hörður B Hjartarson
- Kristín Bjarnadóttir
- Arnþrúður Karlsdóttir
- Baldur Hermannsson
- Eygló
- Finnur Bárðarson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Loftslag.is
- Jón Daníelsson
- Elín Helga Egilsdóttir
- Helga Þórðardóttir
- Sigurður Grétar Guðmundsson
- Leikhópurinn Lotta
- Dúa
- Hulda Haraldsdóttir
- Kama Sutra
- Bjarni Kristjánsson
- Kristinn Theódórsson
- Blogblaster
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jóhanna Magnúsdóttir
- Andspilling
- Valmundur Valmundsson
- Dingli
- Kristinn Karl Brynjarsson
- Sigurður Einarsson
- Mathieu Grettir Skúlason
- Árni Matthíasson
- BookIceland
- FORNLEIFUR
- Guðbjörn Jónsson
- Högni Snær Hauksson
- Ingólfur Sigurðsson
- Stefán Júlíusson
- Þorsteinn Siglaugsson
Athugasemdir
Hinn uppstökki Andrés önd á sér ekki viðreisnar von. Réttlát reiði knýr hann áfram og blossar upp við minnsta tilefni. Við hin, sem fylgjumst með, erum hins vegar þakklát fyrir að hann hefur aldrei verið sendur á reiðistjórnunarnámskeið.
Þorsteinn Briem, 19.7.2009 kl. 11:35
Flott innlegg
nicejerk, 19.7.2009 kl. 15:22
Takk Steini og nicejerk.
Teiknimyndafígúrur sýna oft viðbrögð sem menn þekkja. Fleiri verða reiðir en við Íslendingar. Ég er nú meira að tala um reiði margra útaf því sama. Áhrifin á heildina geta orðið slæm þó hver einstakur finni ekki mikið fyrir því. Á endanum getur þetta allt saman samt orðið til góðs.
Sæmundur Bjarnason, 19.7.2009 kl. 18:17
Nei, ríkisvaldið var ekkert haldreipi og bara ekkert reipi yfirleitt. Og ég vil ekki fyrirgefa. -_- Og ég er sammála að við erum reið, -_-
Elle_, 19.7.2009 kl. 21:31
Reiði Íslendinga getur aldrei orðið mikil vegna þess að við erum svo fáir.
Þorsteinn Briem, 19.7.2009 kl. 22:22
Steini, hvernig er mikil reiði mæld? - Bara að fíflast
EE elle: Við þurfum eitthvert haldreipi.
Sæmundur Bjarnason, 19.7.2009 kl. 22:56
Ha, ha, ha. -_- Við erum líka svo fá að skuldir okkar geta aldrei orðið miklar.
Elle_, 19.7.2009 kl. 22:57
Sæmundur, svarið þitt kom eftir að ég póstaði mitt síðasta. Já, ég veit. En hvar er þetta blessaðað reipi? Enn er vaðið yfir fólkið.
Elle_, 19.7.2009 kl. 23:09
Hver og einn getur orðið reiður upp að ákveðnu marki, sem er þá 100% reiði. Þannig geta Íslendingar, hver og einn, ekki orðið reiðari en til dæmis Hollendingar og Bretar, sem eru mun fleiri en Íslendingar.
Reiði allra Íslendinga til samans er því mun minni en reiði allra Hollendinga og Breta, jafnvel þótt allir Íslendingar séu 100% reiðir en Bretar og Hollendingar að meðaltali einungis 25% reiðir.
Það segir sig sjálft.
Þorsteinn Briem, 19.7.2009 kl. 23:14
"Hið nýja Ísland verður því aðeins skapað að allt verði hugsað uppá nýtt og áhersla lögð á það sem sameinar en ekki það sem sundrar. "
...og að útrásarvíkingarnir verði hengdir á Austurvelli og fjölskyldum þeirra gert að horfa á og klappa.
Ar 19.7.2009 kl. 23:45
Takk öll!
Þetta er að verða svolítið fyndið. Þetta með reiði Hollendinga og Breta er merkilegt. Hvað ef þeir eru bara að meðaltali 1% reiðir. Ég held að þetta sé ekki eingöngu reikningsdæmi.
Ar - hve margir eru útrásarvíkingarnir og komast þeir örugglega fyrir á Austurvelli? (með áhorfendum auðvitað)
Sæmundur Bjarnason, 20.7.2009 kl. 00:03
Reiðikenning þín Steini minnir mig á myrkurkenninguna. Sé ljós aukið upp úr öllu valdi (100%) verður það að myrkri. Síðan má auðvitað kveikja ljós í myrkrinu!!
Sæmundur Bjarnason, 20.7.2009 kl. 00:21
Hér er stuðið - og allir í reiðum fíling.
Kama Sutra, 20.7.2009 kl. 01:03
Ef 100% reiði er á við ljós frá 100 kertum er 100% reiði allra Íslendinga á við 30 milljónir kerta, en einungis 1% reiði allra Breta gæfi frá sér tvöfalt meira ljósmagn, 60 milljónir kerta.
Hins vegar eru Bretar mun reiðari en svo að meðaltali að þeir haldi bara á einu kerti hver og einn og því eru þeir alltaf mun reiðari en Íslendingar þegar á heildina er litið.
Þannig er það nú í pottinn búið.
Þorsteinn Briem, 20.7.2009 kl. 04:00
Til að ná upp reiðikvótanum verðum við Íslendingar aldeilis að fara að herða okkur og halda á minnst 20 kertum í hvorri hendi...
Kama Sutra, 20.7.2009 kl. 04:26
Kama Sutra:
Hér er ekkert öryggi,
lengi verið
rafmagnslaust,
og kviknar ekki
á perunni,
enda þótt
ég hamist
í slökkvaranum,
en ég get boðið
þér kertaljós.
Þorsteinn Briem, 20.7.2009 kl. 13:27
Þetta fer að verða rómantískt hérna. Allt baðað í kertaljósi, huggulegheitum og svona...
Og skemmtilegir strákar!
Kama Sutra, 20.7.2009 kl. 14:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.