733 - Besti bloggarinn

Mér finnst ég í alvöru vera einn af bestu bloggurum landsins. Verst að öðrum skuli ekki finnast það líka. Blogg-greinar mínar eru alltaf mátulega langar. Ég fréttablogga aldrei. Minnist alltaf á hæfilega mörg atriði í mínum bloggum og tengi atriðin vel saman. Blogga daglega. Aldrei samt oft á dag. Númera bloggin mín.

Vanda skrifin alveg helling. Er nánast laus við prentvillur og málvillur. Segi bara það sem ég get staðið við. Er á móti Icesave. Hvað viljið þið eiginlega hafa það betra? Meira að segja Mogginn sjálfur er búinn að uppgötva hvílíkur snillingur ég er. Ég hef nú reyndar skrifað betri frásagnir en músasöguna.

Prýðilegur íslenskumaður og tek mig öðru hvoru til og gagnrýni málfar annarra. Ekki mitt eigið. Aðrir verða að sjá um það. Svo er ég líka fyndinn stundum. Svei mér þá.

Er fjölhæfur með afbrigðum. Skákmaður góður. Vísnasmiður. Fjallgöngumaður. Útivistarséní. Og svo framvegis.

Það er enginn leikur að blogga á hverjum degi. Og það án þess að segja nokkuð merkilegt. Upplifi yfirleitt fátt í mínu daglega lífi. Menn treysta sér ekki einu sinni til að gagnrýna mig í kommentum. Sem sýnir bara hve snjall ég er.

Og myndirnar mínar. Ekki eru þær lakari. Hreinasta list. Passa mig á að fækka pixlunum nógu mikið til að ekki taki því að stela þeim. Kroppa þær svolítið og átokorrekta stundum en ekkert annað. Stórfínar myndir.

Meira að segja naflaskoðunarstíl eins og þennan gæti ég tileinkað mér.

Eiður Guðnason fékk það óþvegið þegar hann ruglaði saman Einari Má og Einari Kárasyni. Aldrei hefði það hent mig. Ég þekki þá í sundur. Átti samt í æsku í vandræðum með að átta mig á muninum á „innfæddur" og „einfættur".

Dagný sú sem Guðni Ágústsson kallaði eitt sinn „framsóknargimbur" talaði um að vera í rétta liðinu (útrásarliðinu). Nú eru menn líklega ýmist í Icesave-liðinu eða hinu. Annars á ég erfitt með að skilja hugsunarhátt framsóknarmanna eftir að þeir endurfæddust og kusu Sigmund Davíð yfir sig.

Eitt sinn kom ég á hestamannamót á Hvítárbökkum skammt frá Ferjukoti. Þegar ég kom þangað voru allir að pissa útum allt. Eftir stellingunum að dæma voru það aðallega kallar. Man ekki eftir svona miklu pisseríi frá öðrum hestamannamótum.

Ingólf á Flesjustöðum hitti ég þarna. Hann var með tvo til reiðar og vildi endilega að ég riði öðrum klárnum. Ég hafði nú ekki oft komið á bak og var svolítið óklár á stýrigræjunum. Ingólfur taldi þetta lítið mál og sýndi mér hvernig stýra ætti tryllitækinu. Svo riðum við góða stund fram og aftur um mótssvæðið. Ingólfur var svolítið í glasi og þurfti nauðsynlega að versla í sjoppu sem þarna var. Til þess fór hann af baki en ég var kyrr á mínum reiðskjóta því ég var ekki viss um að ég kæmist á bak aftur ef ég hætti mér niður.

Þegar Ingólfur var búinn að versla kom hann til baka og ætlaði á bak hesti sínum í einu stökki án þess að styðja sig við neitt. Hestinum brá við öskrið, sem hann rak upp um leið og hann stökk, og flutti sig svolítið til hliðar, rétt nægilega mikið til þess að Ingólfur lenti í forarpolli við hlið hestsins en ekki á baki hans.

Við þetta reiddist Ingólfur og tók óþyrmilega í taum hestsins, dró hann að sér, steig í annað ístaðið og sveiflaði sér á bak með látum. Þá vildi ekki betur til en svo að sveiflan var einum of öflug svo hann fór yfir hestinn. Þetta hefði ég viljað eiga á myndbandi.

Og svo fáeinar myndir:

IMG 3179Hús í Kópavogi. Sólsetrið speglast í rúðunum.

IMG 3184Kattarhryggur á Holtavörðuheiði. (eða var það í Norðurárdalnum?) Þarna lá vegurinn í eina tíð.

IMG 3185Ólafslundur skammt frá Blönduósi.

IMG 3190Ég sjálfur.

IMG 3196Hringleikahúsið mikla á Akureyri.

 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Þorkelsson

takk fyrir mig :)

Óskar Þorkelsson, 4.7.2009 kl. 00:41

2 identicon

Flottur, alveg eins og ég er ég.. þá ert þú þú, án hvors annars erum "við" bara ÉG...og leiðinlegar myndir af... well...

DoctorE 4.7.2009 kl. 00:46

3 Smámynd: Svavar Alfreð Jónsson

Þú ert langbestur. Takk!

Svavar Alfreð Jónsson, 4.7.2009 kl. 01:03

4 identicon

"Meira að segja Mogginn sjálfur er búinn að uppgötva hvílíkur snillingur ég er. Ég hef nú reyndar skrifað betri frásagnir en músasöguna."

Ég er forvitin - ég missti af þessu.  Hvar get ég séð músasöguna?

Hestasagan er góð!

Fyrrverandi Malína 4.7.2009 kl. 01:08

5 identicon

Þú gleymdir a.m.k. einu í listanum yfir kostina.

Þú ert öllum öðrum hógværari!

baldur mcqueen 4.7.2009 kl. 01:22

6 Smámynd: Eygló

Auðmjúkur, hógvær og lítillátur.  Þetta veit ég og þess vegna ert þú efstur á bloggvinalistanum mínum :)

Eygló, 4.7.2009 kl. 02:36

7 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Sko, Mogginn liggur á því lúalagi að nota blogg eða brot úr þeim til uppfyllingar. Fyrir einhverja tilviljun sá ég um daginn að brot úr bloggi frá mér (nr. 729 - Trúarjátning Skugga-Sveins) var birt í Mogganum. Þar segir frá fagureygðri mús í Ólagslundi nærri Blönduósi.

Sæmundur Bjarnason, 4.7.2009 kl. 03:21

8 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Takk öll. Mikið hef ég bloggað undanfarið. Það sá ég áðan. Því meira sem ég skrifa því meira á ég óskrifað. Eða þannig.

Sæmundur Bjarnason, 4.7.2009 kl. 05:19

9 Smámynd: Elle_

Nature Smilies

Elle_, 4.7.2009 kl. 07:39

10 Smámynd: Hrannar Baldursson

Þú ert frábær bloggari. Ekki gleyma að þú hefur í dágóðan tíma tölusett allar greinarnar þínar. Það er snilld í sjálfu sér. Ég hef reynt það sjálfur, en yfirleitt gleymt mér eftir 2-3 greinar.

Hrannar Baldursson, 4.7.2009 kl. 10:12

11 Smámynd: Hjálmtýr V Heiðdal

Ég var að lesa blogg þitt í fyrsta sinn. Stórgott og skemmtilegt, hógværð og lítillæti skín í gegn.

Myndirnar skemmtilegar. Ég gerði eitt sinn heimildamynd um sögu bílsins á Íslandi og náði viðtölum við 20 gamla bílstjóra. Þeir töluðu margir um Kattarhrygginn sem eftirminnlegan hluta leiðarinnar. Pabbi minn sagði mér líka frá sinni reynslu. Vegurinn yfir hrygginn var svo mjór að ekkert mátti út af bregða. Og ekki var hægt að stíga út úr bílnum - þá blasti bara áin við.

Hjálmtýr V Heiðdal, 4.7.2009 kl. 11:34

12 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Já, ég hef engan umboðsmann svo ég verð bara að hrósa mér sjálfur. Vonandi samt ekki svo mikið að ég fæli aðra frá blogginu mínu. Mér finnst ótrúlegt hve margir rekast hingað inn.

Takk fyrir athugasemdirnar. Hrannar: Bíð eftir að þú skrifir meira frá Noregi.
Hjálmtýr: Man ekki eftir að hafa farið sjálfur um Kattarhrygginn en ólíkt betra er að ferðast um vegina nútildags en áður var.
Hilmar: Ekki hæðast að mér. Broskallinn bjargar samt.

Takk öll enn og aftur.

Sæmundur Bjarnason, 4.7.2009 kl. 13:54

13 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

auðmýkt, lítillæti og hógværð

Brjánn Guðjónsson, 4.7.2009 kl. 20:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband