23.4.2009 | 00:10
662- Hrannar Baldursson veit hvað hann vill og rökstyður mál sitt vel
Hann fjallar um kosningar á bloggi sínu og mér finnst flest annað sem ég sé og heyri um pólitík þessa dagana aðallega vera hávaði. Hávaði getur auðvitað átt rétt á sér og verið nauðsynlegur en mér finnst Hrannar segja það sem segja þarf. Skammstafanir eru ær og kýr fjölmiðlamanna. Þeim þykir mjög gaman að slá um sig með allskyns skammstöfunum. Jöfnum höndum eru skammstafanirnar dregnar af íslenskum og enskum nöfnum og frösum. Engar tilraunir eru gerðar til að útskýra fyrir óinnvígðum hvað þessar skammstafanir þýða. Ef þú veist ekki hvað ÖSE, RÖSE, IMF, AGS, EU, EBE, EBS, EEC, EES, ECC, UN, SÞ og allt mögulegt annað þýðir þá ertu bara ekki viðræðuhæfur um landsins gagn og nauðsynjar. Fyrsti pésinn sem ég eignaðist var Cordata tölva sem ég keypti í Microtölvunni. Hún hafði tvö fimm og kvart tommu floppy drif en engan harðan disk. Skjárinn var innbyggður og að sjálfsögðu grænn að þeirrar tíðar hætti. Einhvers staðar er hún enn til og orðin forngripur hinn mesti. Þegar ég stóð í því að setja efni á Netútgáfuna í hverjum mánuði fengum við oft tölvupósta frá hinum og þessum. Eitt sinn fengum við bréf frá íslenskum námsmanni í Noregi. Ekki man ég hvað hann heitir en hann var búsettur þar og átti tvö börn. Hann sagði okkur í bréfinu að börnin sín væru orðin háð íslenskum þjóðsögum sem hann nálgaðist á vef Netútgáfunnar og neituðu með öllu að fara að sofa nema fá eina sögu lesna fyrir sig á hverju kvöldi. Af einhverjum ástæðum yljaði þessi frásögn mér meira en margar aðrar. |
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Efni
Tenglar
Blogg
- Áslaug Benediktsdóttir
- Harpa Hreinsdóttir
- Atli Harðarson
- Anna K. Kristjánsdóttir
- Erlingur Brynjólfsson
- Nanna Rögnvaldardóttir
- Þórunn Sigurjónsdóttir
- Susan Polgar
Skák
Ýmislegt
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
2006
Des. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 | 31 |
Bloggvinir
- Anna Einarsdóttir
- Umsjónarmenn blog.is
- Egill Jóhannsson
- Róslín A. Valdemarsdóttir
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Sigríður Jósefsdóttir
- Arnþór Helgason
- Birgitta Jónsdóttir
- Lýður Pálsson
- Einar Sveinbjörnsson
- Gylfi Guðmundsson
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Villi Asgeirsson
- Sigurður Þór Guðjónsson
- Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson
- Egill Bjarnason
- Jóhann Björnsson
- Ólafur fannberg
- TómasHa
- Ágúst H Bjarnason
- Brjánn Guðjónsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Ragnheiður
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Magnús Helgi Björgvinsson
- Kári Harðarson
- Eiríkur Mörk Valsson
- Ragnhildur Sverrisdóttir
- Ridar T. Falls
- Konráð Ragnarsson
- Vefritid
- Svanur Sigurbjörnsson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Sveinn Ingi Lýðsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Pawel Bartoszek
- Haukur Nikulásson
- Bjarni Harðarson
- Eiður Svanberg Guðnason
- Ómar Ragnarsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- AK-72
- Sigurður Ingi Kjartansson
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Þórarinn Þ Gíslason
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Púkinn
- Lady Elín
- Kolbrún Baldursdóttir
- Jens Guð
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Hrannar Baldursson
- Jón Bjarnason
- Ár & síð
- Jón Ingi Cæsarsson
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Svavar Alfreð Jónsson
- Benedikt Henry Segura
- Marinó G. Njálsson
- Theódór Norðkvist
- Jón Ingvar Jónsson
- Gunnar Þórðarson
- Ólafur Fr Mixa
- Gíslína Erlendsdóttir
- Jóna Á. Gísladóttir
- Heimir Tómasson
- Guðmundur Pálsson
- Ólafur Ragnarsson
- gudni.is
- Guðbjörn Guðbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- G. Valdimar Valdemarsson
- Sigmar Þór Sveinbjörnsson
- Gestur Gunnarsson
- Óskar Þorkelsson
- Ylfa Mist Helgadóttir
- Kristinn Theódórsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Evrópusamtökin, www.evropa.is
- Lýður Árnason
- Brattur
- Marta B Helgadóttir
- Hallmundur Kristinsson
- Sigurður Hreiðar
- Eyþór Árnason
- Bergur Thorberg
- kloi
- Hjalti Tómasson
- Kristjana Bjarnadóttir
- Bjarni Sæmundsson
- Máni Ragnar Svansson
- Emil Hannes Valgeirsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Torfi Kristján Stefánsson
- Haukur Baukur
- Sverrir Stormsker
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Helga Kristjánsdóttir
- Loopman
- Einar B Bragason
- Erna Bjarnadóttir
- Ólafur "Tröllabarn" Georgsson
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Gísli Tryggvason
- Helgi Guðmundsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Þráinn Jökull Elísson
- Þorsteinn Briem
- Hjálmtýr V Heiðdal
- Himmalingur
- Ketill Sigurjónsson
- Sæmundur Bjarnason
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Bjarni Rúnar Einarsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Bókakaffið á Selfossi
- Guðni Karl Harðarson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson)
- Marteinn Unnar Heiðarsson
- Einar G. Harðarson
- Bloggrýnirinn
- kreppukallinn
- Jack Daniel's
- Guðjón Baldursson
- Már Wolfgang Mixa
- Dóra litla
- hilmar jónsson
- Hörður B Hjartarson
- Kristín Bjarnadóttir
- Arnþrúður Karlsdóttir
- Baldur Hermannsson
- Eygló
- Finnur Bárðarson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Loftslag.is
- Jón Daníelsson
- Elín Helga Egilsdóttir
- Helga Þórðardóttir
- Sigurður Grétar Guðmundsson
- Leikhópurinn Lotta
- Dúa
- Hulda Haraldsdóttir
- Kama Sutra
- Bjarni Kristjánsson
- Kristinn Theódórsson
- Blogblaster
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jóhanna Magnúsdóttir
- Andspilling
- Valmundur Valmundsson
- Dingli
- Kristinn Karl Brynjarsson
- Sigurður Einarsson
- Mathieu Grettir Skúlason
- Árni Matthíasson
- BookIceland
- FORNLEIFUR
- Guðbjörn Jónsson
- Högni Snær Hauksson
- Ingólfur Sigurðsson
- Stefán Júlíusson
- Þorsteinn Siglaugsson
Athugasemdir
Mér hefur alltaf þótt Hrannar vera skynsamur maður.
Hilmar Gunnlaugsson, 23.4.2009 kl. 00:13
Hmmm. Linkurinn á Hrannar virðist ekki virka rétt. Kann ekki skýringu á því. Hrannar er moggabloggari eins og ég og þar að auki bloggvinur minn. Þar má finna nothæfan link á hann og svo er slóðin náttúrulega: don.blog.is
Takk Hilmar.
Þú ert iðinn við að kommenta. Það líkar mér vel.
Sæmundur Bjarnason, 23.4.2009 kl. 00:36
Talandi um Netútgáfuna - ég nota hana til kennslu í upplýsingatækni og finnst hún frábært framtak!
Carlos Ferrer 23.4.2009 kl. 01:07
Hann er topp maður. Hér er linkurinn: http://don.blog.is/blog/don/entry/859959/
Marinó G. Njálsson, 23.4.2009 kl. 01:14
Ha ha, ertu ekki að skálda einhverjar af þessum skammstöfunum?
Ég þekki þær allar nema RÖSE, EEC og ECC. Eru þær til?
Malína 23.4.2009 kl. 03:32
Nú. Veistu hvað ÖSE þýðr? Ekki veit ég það. RÖSE þýðir eitthvað svipað. Ráðstefna um Öryggi og Samvinnu í Evrópu. EEC = European Economic Community. (Eiginlega sama og EES) ECC = Ekki hugmynd. Hver er svo munurinn á EBE og EBS? Þessar skammstafanir og einkum not þeirra eru einkum til að rugla fólk í ríminu. Hvað er að ruglast í ríminu? Einu sinni mundi enginn á Hólum hvenær páskar áttu að vera. Sendu mann í Skálholt.
Sæmundur Bjarnason, 23.4.2009 kl. 04:02
Ég er reyndar ekki alveg viss en ég held að ÖSE þýði Öryggisstofnun Evrópu. En kannski er ég bara að bulla eitthvað.
Eftir því sem ég best veit er enginn munur á EBE og EBS. Og notaðir þú ekki sjálfur EU um daginn!
Ha ha, það væri líka ágætt að hafa smá rím á ruglinu. Auðveldara að læra það þannig...
Malína 23.4.2009 kl. 04:54
Evrópubandalagið skipti að ég held um nafn fyrir nokkru og ekki bætir það úr skák. EU þýðir væntanlega European Union. EBE gæti þýtt Efnahagsbandalag Evrópu en hvað gæti EBS staðið fyrir? Nei, ég er alveg ruglaður í þessu. Sem auðvitað var alltaf ætlunin.
Sæmundur Bjarnason, 23.4.2009 kl. 05:32
Ég sé það núna að við vorum greinilega bæði kolrugluð í nótt. Við höfum snúið þessu við - það á að vera ESB en ekki EBS.
ESB = Evrópusambandið - sem er nýrra nafnið á fyrirbærinu. Evrópubandalagið er eldra nafnið, þ.e. Evrópubandalag Evrópu = EBE.
Skemmtilegar pælingar! Við vitum samt ekki ennþá hvað ECC þýðir. Vonandi kemur einhver og bjargar okkur!
Malína 23.4.2009 kl. 16:16
Ha ha, núna gerði ég aftir mistök í síðustu athugasemd! Greinilega auðvelt að ruglast í ríminu! EBE er auðvitað Efnahagsbandalag Evrópu - en þú varst nú reyndar búinn að segja það í nótt!
Kexruglaða Malína 23.4.2009 kl. 17:01
Gaman væri að geta sér þess til að ECC stæði fyrir European Commercial Community.
Sigurður Hreiðar, 23.4.2009 kl. 20:21
Takk fyrir hlý orð Sæmundur, Hilmar og Marinó.
Ekki vissi ég um hlutverk þitt í Netútgáfunni. Þegar ég bjó í Mexíkó og uppgötvaði þetta var ég fljótur að sækja Íslendingasögurnar. Þeirra hafði ég mikið saknað.
Bestu kveðjur,
Hrannar
Hrannar Baldursson, 23.4.2009 kl. 20:48
Evrópubandalag Evrópu?! Ha, ha, ha.
ECC þýðir víst allt í heiminum: Evolution Control Committee + The East Coast Conference + ECC: Early Childhood Council + + + + +
EE elle 23.4.2009 kl. 23:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.