13.10.2007 | 01:09
141. blogg
Allt frá því að hann vann sinn fræga sigur yfir Gísla Marteini í prófkjörinu hefur það legið ljóst fyrir að ungtyrkirnir í flokknum hugsuðu honum þegjandi þörfina. Villi er líka ekki neinn frjálshyggjugaur heldur miklu fremur sósíalisti upp á gamla móðinn. Úr því honum tókst ekki að fylkja sjálfstæðismönnum í borgarstjórn að baki sér þá er það bara eðlileg niðurstaða að hann leggi niður völd.
Vitaskuld gerist þetta allt með endemum en það hangir miklu meira á spýtunni en þetta orkuveitumál. Sundurþykkjan í Sjálfstæðisflokknum er sennilega bara að koma upp á yfirborðið. Geir Harði þarf sennilega að fara að vara sig í landsstjórninni. Annars var það alltaf ljóst að Villi lægi tiltölulega vel við höggi en menn hafa áreiðanlega ekki reiknað með að Bingi hlypi útundan sér.
Eitt sinn ekki löngu eftir að ég fluttist á Snæfellsnes var ég að störfum í búðinni á Vegamótum. Af einhverjum ástæðum voru nokkuð margir þar og ég var að hamast við að afgreiða. Kona ein rak þá höfuðið inn um dyrnar og sagði: "Ég ætla að fá tvö kíló af smjörlíki, eitt af molasykri, fjögur af strásykri, fjóra pakka af kaffi og sex rúllur af klósettpappír. Er að fara út að Görðum og sæki þetta í bakaleiðinni. Bless."
Þessu bunaði hún útúr sér á fáeinum sekúndum og var síðan rokin í burtu. Mér féllust algjörlega hendur í fyrstu, en fór svo bara að hlæja og það sama gerðu flestir í búðinni.
"Hvaða kona var þetta?" spurði ég.
"Þetta var hún Magga í Dalsmynni," var svarið og auðheyrt var að það var nóg skýring.
Á kvennaklósettunum á Vegamótum var áminning um að setja ekki dömubindi í klósettin. Þetta var algengt þá og er jafnvel enn. Í hvert skipti sem klósett stífluðust var því að sjálfsögðu kennt um að einhver kvenmaður hefði ekki sinnt þessu.
Það kom oft fyrir að bansett kósettin stífluðust. Ég hef alltaf haft þá reglu þegar ég hef verið yfir aðra settur að segja aldrei neinum að gera eitthvað sem mér þykir sjálfum of erfitt eða ógeðslegt. Það kom því yfirleitt á mig að gera við klósettin og ekki var það þrifalegt verk. Rotþróin var fyrir neðan veg og skolpleiðslan lá undir veginn fyrir framan búðina og veitingahúsið.
Stundum dugði að setja vatnsfarg á stífluna með því að fylla öll klósettin af vatni og sturta niður í gríð og erg. Þá losnaði stíflan ef allt gekk vel og þeyttist í rotþróna með miklum gusugangi.
Síðar voru lagðar nýjar skolplagnir bak við hús og út í smálæk sem þar rann. Eftir það var einfaldara að hreinsa lagnirnar og þó rotþróin væri minni þá var hún bara tæmd oftar.
Það virðist vera alveg undir veðri komið hve mikið sést til títtnefndrar friðarsúlu. Stundum ber mikið á henni, stundum minna og stundum ekki neitt. Annars er mér hulin ráðgáta hvernig þetta ljós á að stuðla að heimsfriði. Helst dettur mér í hug að það eigi að gerast með því að minna á John Lennon og friðarhjal hans.
Flokkur: Bloggar | Breytt s.d. kl. 03:48 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Efni
Tenglar
Blogg
- Áslaug Benediktsdóttir
- Harpa Hreinsdóttir
- Atli Harðarson
- Anna K. Kristjánsdóttir
- Erlingur Brynjólfsson
- Nanna Rögnvaldardóttir
- Þórunn Sigurjónsdóttir
- Susan Polgar
Skák
Ýmislegt
Eldri færslur
2025
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
2006
Apríl 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
27 | 28 | 29 | 30 |
Bloggvinir
-
Anna Einarsdóttir
- Umsjónarmenn blog.is
-
Egill Jóhannsson
-
Róslín A. Valdemarsdóttir
-
Salvör Kristjana Gissurardóttir
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Arnþór Helgason
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Lýður Pálsson
-
Einar Sveinbjörnsson
-
Gylfi Guðmundsson
-
Kristín M. Jóhannsdóttir
-
Villi Asgeirsson
-
Sigurður Þór Guðjónsson
-
Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson
-
Egill Bjarnason
-
Jóhann Björnsson
-
Ólafur fannberg
-
TómasHa
-
Ágúst H Bjarnason
-
Brjánn Guðjónsson
-
Jakob Falur Kristinsson
-
Stefán Friðrik Stefánsson
-
Helgi Jóhann Hauksson
-
Ragnheiður
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Magnús Helgi Björgvinsson
-
Kári Harðarson
-
Eiríkur Mörk Valsson
-
Ragnhildur Sverrisdóttir
-
Ridar T. Falls
-
Konráð Ragnarsson
-
Vefritid
-
Svanur Sigurbjörnsson
-
Sveinn Atli Gunnarsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Friðrik Þór Guðmundsson
-
Baldur Kristjánsson
-
Sveinn Ingi Lýðsson
-
Hlynur Þór Magnússon
-
Pawel Bartoszek
-
Haukur Nikulásson
-
Bjarni Harðarson
-
Eiður Svanberg Guðnason
-
Ómar Ragnarsson
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Jón Steinar Ragnarsson
-
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
AK-72
-
Sigurður Ingi Kjartansson
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Þórarinn Þ Gíslason
-
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Púkinn
-
Lady Elín
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Jens Guð
-
Gunnar Th. Gunnarsson
-
Hrannar Baldursson
-
Jón Bjarnason
-
Ár & síð
-
Jón Ingi Cæsarsson
-
Jenný Anna Baldursdóttir
-
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
-
Svavar Alfreð Jónsson
-
Benedikt Henry Segura
-
Marinó G. Njálsson
-
Theódór Norðkvist
-
Jón Ingvar Jónsson
-
Gunnar Þórðarson
-
Ólafur Fr Mixa
-
Gíslína Erlendsdóttir
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Heimir Tómasson
-
Guðmundur Pálsson
-
Ólafur Ragnarsson
-
gudni.is
-
Guðbjörn Guðbjörnsson
-
Lúðvík Júlíusson
-
G. Valdimar Valdemarsson
-
Sigmar Þór Sveinbjörnsson
-
Gestur Gunnarsson
-
Óskar Þorkelsson
-
Ylfa Mist Helgadóttir
-
Kristinn Theódórsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Gunnar Skúli Ármannsson
-
Evrópusamtökin, www.evropa.is
-
Lýður Árnason
-
Brattur
-
Marta B Helgadóttir
-
Hallmundur Kristinsson
-
Sigurður Hreiðar
-
Eyþór Árnason
-
Bergur Thorberg
-
kloi
-
Hjalti Tómasson
-
Kristjana Bjarnadóttir
-
Bjarni Sæmundsson
-
Máni Ragnar Svansson
-
Emil Hannes Valgeirsson
-
Sigurður Þorsteinsson
-
Torfi Kristján Stefánsson
-
Haukur Baukur
-
Sverrir Stormsker
-
Axel Jóhann Hallgrímsson
-
Helga Kristjánsdóttir
-
Loopman
-
Einar B Bragason
-
Erna Bjarnadóttir
-
Ólafur "Tröllabarn" Georgsson
-
Svanur Gísli Þorkelsson
-
-
Emil Örn Kristjánsson
-
Gísli Tryggvason
-
Helgi Guðmundsson
-
Rakel Sigurgeirsdóttir
-
Þráinn Jökull Elísson
-
Þorsteinn Briem
-
Hjálmtýr V Heiðdal
-
Himmalingur
-
Ketill Sigurjónsson
-
Sæmundur Bjarnason
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Bjarni Rúnar Einarsson
-
Friðrik Hansen Guðmundsson
-
Bókakaffið á Selfossi
-
Guðni Karl Harðarson
-
Axel Þór Kolbeinsson
-
Hlynur Þór Magnússon
-
Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson)
-
Marteinn Unnar Heiðarsson
-
Einar G. Harðarson
-
Bloggrýnirinn
-
kreppukallinn
-
Jack Daniel's
-
Guðjón Baldursson
-
Már Wolfgang Mixa
-
Dóra litla
-
hilmar jónsson
-
Hörður B Hjartarson
-
Kristín Bjarnadóttir
-
Arnþrúður Karlsdóttir
-
Baldur Hermannsson
-
Eygló
-
Finnur Bárðarson
-
Andri Geir Arinbjarnarson
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Hilmar Gunnlaugsson
-
Loftslag.is
-
Jón Daníelsson
-
Elín Helga Egilsdóttir
-
Helga Þórðardóttir
-
Sigurður Grétar Guðmundsson
-
Leikhópurinn Lotta
-
Dúa
-
Hulda Haraldsdóttir
-
Kama Sutra
-
Bjarni Kristjánsson
-
Kristinn Theódórsson
-
Blogblaster
-
Halldóra Hjaltadóttir
-
Jóhanna Magnúsdóttir
-
Andspilling
-
Valmundur Valmundsson
-
Dingli
-
Kristinn Karl Brynjarsson
-
Sigurður Einarsson
-
Mathieu Grettir Skúlason
-
Árni Matthíasson
-
BookIceland
-
FORNLEIFUR
-
Guðbjörn Jónsson
-
Högni Snær Hauksson
-
Ingólfur Sigurðsson
-
Stefán Júlíusson
-
Þorsteinn Siglaugsson
Athugasemdir
Ég skammast mín
Ég vill byrja á því að biðjast afsökunar á að hafa ekki svarað athugasemdinni þinni. Þú segir frá því að við séum náskyldir, ég vissi ekki alveg hvernig ég átti að svara því að við værum náskyldir og var að hugsa eitthvað "gott" svar og gleymdi þér síðan.
Hefur þú hitt föður minn?
Höfum við hist?
Gunnar Helgi Eysteinsson, 13.10.2007 kl. 10:16
Ekkert mál. Mjög skiljanlegt. Líklega saknaði ég kommentanna þinna og hef sjálfsagt vonað að þú vildir gerast bloggvinur minn. Annað hékk ekki á spýtunni.
Ég held að ég hafi aldrei hitt þig. En pabba þinn og fjölskyldu hans þekkti ég vel, bæði meðan þau bjuggu á Víðimelnum og síðar í Nóatúninu. Pabba þinn hef ég hitt á ættarmótum bæði á Gufuskálum og Laugm og jafnvel víðar. Valgeir bróðir hans þekkti ég kannski best af þeim systkinunum enda var hann á líkum aldri og ég.
Kveðja
Sæmundur Bjarnason, 13.10.2007 kl. 14:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.