5.6.2007 | 23:18
54. blogg
Fáir kíkja á mitt blogg og enn færri kommenta á það og í mínum augum er það hið besta mál. Það eru samt nokkrir sem leggja það greinilega í vana sinn að líta á það sem ég hef skrifað og þó ég viti deili á sumum þeirra, þekki ég ekki til þeirra allra.
Við Áslaug hjálpuðum Benna til að tæma íbúðina sína á föstudaginn var og svo afhenti hann hana um 5 leytið og fór síðan til Akureyrar þar sem hann var búinn að taka sumarleyfisíbúð á leigu. Á sunnudagskvöldið var einslangs fundur í Auðbrekkunni þar sem rætt var um væntanlega Fljótavíkurferð síðari hluta júnímánaðar. Þar vorum við öll familían, nema Benni náttúrulega, og Jói og foreldrar hans, en þetta er sá 8 manna hópur sem líklega mun leggja leið sína í Fljótavíkina í fyllingu tímans.
Áslaug fór með kaffivélinni til Akureyrar í dag. Sennilega kemur hún svo til baka með Benna um helgina eða svo. Hún er í sumarfríi í nýju vinnunni sinni í Aðföngum. Benni á eiginlega hvergi heima um þessar mundir. Hann fær nýju íbúðina afhenta um mánaðamótin júní/júlí og mun þangað til dveljast á Akureyri, Húsafelli, Fljótavík og víðar. Bjarni er að undirbúa flutning til Bahamas og mun líklega fara þangað í ágúst. Áslaug er hætt á Vesturgötunni og farin að skúra í Aðföngum, enda er það betur borgað. Sjálfur gutla ég svo hérna í MS og núna rétt áðan voru þeir síðustu úr innrásarliði Samkeppnisstofnunar að yfirgefa svæðið.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Efni
Tenglar
Blogg
- Áslaug Benediktsdóttir
- Harpa Hreinsdóttir
- Atli Harðarson
- Anna K. Kristjánsdóttir
- Erlingur Brynjólfsson
- Nanna Rögnvaldardóttir
- Þórunn Sigurjónsdóttir
- Susan Polgar
Skák
Ýmislegt
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
2006
Bloggvinir
- Anna Einarsdóttir
- Umsjónarmenn blog.is
- Egill Jóhannsson
- Róslín A. Valdemarsdóttir
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Sigríður Jósefsdóttir
- Arnþór Helgason
- Birgitta Jónsdóttir
- Lýður Pálsson
- Einar Sveinbjörnsson
- Gylfi Guðmundsson
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Villi Asgeirsson
- Sigurður Þór Guðjónsson
- Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson
- Egill Bjarnason
- Jóhann Björnsson
- Ólafur fannberg
- TómasHa
- Ágúst H Bjarnason
- Brjánn Guðjónsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Ragnheiður
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Magnús Helgi Björgvinsson
- Kári Harðarson
- Eiríkur Mörk Valsson
- Ragnhildur Sverrisdóttir
- Ridar T. Falls
- Konráð Ragnarsson
- Vefritid
- Svanur Sigurbjörnsson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Sveinn Ingi Lýðsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Pawel Bartoszek
- Haukur Nikulásson
- Bjarni Harðarson
- Eiður Svanberg Guðnason
- Ómar Ragnarsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- AK-72
- Sigurður Ingi Kjartansson
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Þórarinn Þ Gíslason
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Púkinn
- Lady Elín
- Kolbrún Baldursdóttir
- Jens Guð
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Hrannar Baldursson
- Jón Bjarnason
- Ár & síð
- Jón Ingi Cæsarsson
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Svavar Alfreð Jónsson
- Benedikt Henry Segura
- Marinó G. Njálsson
- Theódór Norðkvist
- Jón Ingvar Jónsson
- Gunnar Þórðarson
- Ólafur Fr Mixa
- Gíslína Erlendsdóttir
- Jóna Á. Gísladóttir
- Heimir Tómasson
- Guðmundur Pálsson
- Ólafur Ragnarsson
- gudni.is
- Guðbjörn Guðbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- G. Valdimar Valdemarsson
- Sigmar Þór Sveinbjörnsson
- Gestur Gunnarsson
- Óskar Þorkelsson
- Ylfa Mist Helgadóttir
- Kristinn Theódórsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Evrópusamtökin, www.evropa.is
- Lýður Árnason
- Brattur
- Marta B Helgadóttir
- Hallmundur Kristinsson
- Sigurður Hreiðar
- Eyþór Árnason
- Bergur Thorberg
- kloi
- Hjalti Tómasson
- Kristjana Bjarnadóttir
- Bjarni Sæmundsson
- Máni Ragnar Svansson
- Emil Hannes Valgeirsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Torfi Kristján Stefánsson
- Haukur Baukur
- Sverrir Stormsker
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Helga Kristjánsdóttir
- Loopman
- Einar B Bragason
- Erna Bjarnadóttir
- Ólafur "Tröllabarn" Georgsson
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Gísli Tryggvason
- Helgi Guðmundsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Þráinn Jökull Elísson
- Þorsteinn Briem
- Hjálmtýr V Heiðdal
- Himmalingur
- Ketill Sigurjónsson
- Sæmundur Bjarnason
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Bjarni Rúnar Einarsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Bókakaffið á Selfossi
- Guðni Karl Harðarson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson)
- Marteinn Unnar Heiðarsson
- Einar G. Harðarson
- Bloggrýnirinn
- kreppukallinn
- Jack Daniel's
- Guðjón Baldursson
- Már Wolfgang Mixa
- Dóra litla
- hilmar jónsson
- Hörður B Hjartarson
- Kristín Bjarnadóttir
- Arnþrúður Karlsdóttir
- Baldur Hermannsson
- Eygló
- Finnur Bárðarson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Loftslag.is
- Jón Daníelsson
- Elín Helga Egilsdóttir
- Helga Þórðardóttir
- Sigurður Grétar Guðmundsson
- Leikhópurinn Lotta
- Dúa
- Hulda Haraldsdóttir
- Kama Sutra
- Bjarni Kristjánsson
- Kristinn Theódórsson
- Blogblaster
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jóhanna Magnúsdóttir
- Andspilling
- Valmundur Valmundsson
- Dingli
- Kristinn Karl Brynjarsson
- Sigurður Einarsson
- Mathieu Grettir Skúlason
- Árni Matthíasson
- BookIceland
- FORNLEIFUR
- Guðbjörn Jónsson
- Högni Snær Hauksson
- Ingólfur Sigurðsson
- Stefán Júlíusson
- Þorsteinn Siglaugsson
Athugasemdir
Ég les alltaf skrifin þín og hef gaman af.
Það er margt gáfulegra en að taka þátt í tölvu-vinsældarkeppni. Var t.d. miklu gáfulegra að tefla í den og fara í fótbolta og leiki. Í dag vantar, að fullorðna fólkið fari í leiki við börnin eins og þú gerðir með okkur.
Það kemur fyrir að ég fer í Yfir eða Hollí hú eða fótbolta við krakkana mína og þá eru hin börnin í götunni fljót að safnast saman hérna. Þegar þetta gerist, er ég vinsælasta kellingin í götunni í langan tíma. Þarf að leika við þau fljótlega.
Anna Einarsdóttir, 6.6.2007 kl. 07:40
Takk, Anna. Kannski hefði ég lagst í bloggvinasöfnun og þessháttar á þessum tíma, ef það hefði staðið til boða. Annars eru árin á Vegamótum alltaf að verða bjartari og bjartari í minningunni. Ég veit ekki hvar þetta endar.
Sæmundur Bjarnason, 6.6.2007 kl. 18:29
Jamm..... það var oft gaman, sérstaklega á sumrin. Þegar við gengum niður að Straumfjarðará eða spiluðum fótbolta við smiðina. Sérstaklega gaman að sóla Einar smið.
Veturinn hafði auðvitað sinn sjarma líka. Ekki hef ég séð alvöru snjógöng síðan þá.... margra metra langur gangur undir snjó. Og renndum okkur af þakinu. Söfnuðum í áramótabrennu eins og alvöru fólk. Núna má það ekki einu sinni.
Fullt af góðum minningum.
Anna Einarsdóttir, 6.6.2007 kl. 20:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.