30.4.2020 | 05:54
2945 - Er Kim dauður?
Kim Il Sung, Kim Jong Il og núna Kim Jong Un. Þeir eru víst hver undan öðrum. Sungarinn afi þess núverandi, sem sennilega er verstur. Blóðþyrstur harðstjóri eftir því sem sumir Bandaríkjamenn segja. Ekki þó Trump. Hann kallaði Unarann Little Rocket Man, ef ég man rétt. Eins gott að hafa þessi nöfn á hreinu, ef maður skyldi þurfa að skreppa til Norður-Kóreu. Sumir segja að Unarinn sé dauður, eða algjört grænmeti eftir misheppnaða hjartaskurðaðgerð. Kannski er Kim einskonar ættarnafn. Venjulega eru ættarnöfn ekki höfð fremst, en því ekki það? Ekki eru nafngiftarsiðir okkar Íslendinga álitnir sérlega skynsamlegir af öllum.
Ef spekúlerað er í heimspólitík er óhjákvæmilegt að velta Norður-Kóreu fyrir sér. Sennilega er Kíverjum illa við of mikinn óstöðugleika þar. Gæti trúað að þeim sé nákvæmlega sama um Kim Jong Un, en vildu samt síður að hann dræpist. Hann gæti svosem verið stöðugleikaímynd þeirra í öllum óstöðugleikanum. Kannski er hann svolítið truflaður. Bandarískir blaðamenn vilja reyndar meina að Trump sé það líka.
Sumir virðast trúa því í alvöru að Kínverjar hafi komið Covid-19 af stað bara til þess að klekkja á Bandaríkjamönnum. Ég á bágt með að trúa því. Þetta er greinilega alvörufaraldur. Aumingja WHO-kallinn sem Trump ætlar víst að skjóta. Ekki á hann sjö dagana sæla núna.
Ekki er ég að hugsa um að kaupa hlutabréf í Flugleiðum, þó það gæti alveg verið skynsamlegt. Enda mundi þá ekki muna mikið um þessar fáu krónur sem ég gæti hugsanlega skrapað saman. Þessi ólukkans veirufaraldur verður varla eilífur. Hvort heldur sem ríkið hendir peningum í þetta vonlausa fyrirtæki eða lífeyrissjóðirnir, þá verður það sennilega gert í mínu nafni. Þ.e.a.s. einhvern veginn verður þetta áreiðanlega tekið af okkur pöplinum. Hmm, ekki er nú samkvæminni mikið fyrir að fara hjá mér. Áðan var skynsamlegt að fjárfesta í þessu fyrirtæki, en nú er það orðið vonlaust.
Áhrifin af kórónuveirunni á Ísland verða eflaust mikil. Fá lönd eru sennilega eins háð ferðamönnum og Ísland. Spánn er það kannski og Ítalía hugsanlega. Bæði þau lönd og flest önnur hafa við fleira að styðjast en blessaða ferðamennina.
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Efni
Tenglar
Blogg
- Áslaug Benediktsdóttir
- Harpa Hreinsdóttir
- Atli Harðarson
- Anna K. Kristjánsdóttir
- Erlingur Brynjólfsson
- Nanna Rögnvaldardóttir
- Þórunn Sigurjónsdóttir
- Susan Polgar
Skák
Ýmislegt
Eldri færslur
2025
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
2006
Apríl 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
27 | 28 | 29 | 30 |
Bloggvinir
-
Anna Einarsdóttir
- Umsjónarmenn blog.is
-
Egill Jóhannsson
-
Róslín A. Valdemarsdóttir
-
Salvör Kristjana Gissurardóttir
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Arnþór Helgason
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Lýður Pálsson
-
Einar Sveinbjörnsson
-
Gylfi Guðmundsson
-
Kristín M. Jóhannsdóttir
-
Villi Asgeirsson
-
Sigurður Þór Guðjónsson
-
Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson
-
Egill Bjarnason
-
Jóhann Björnsson
-
Ólafur fannberg
-
TómasHa
-
Ágúst H Bjarnason
-
Brjánn Guðjónsson
-
Jakob Falur Kristinsson
-
Stefán Friðrik Stefánsson
-
Helgi Jóhann Hauksson
-
Ragnheiður
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Magnús Helgi Björgvinsson
-
Kári Harðarson
-
Eiríkur Mörk Valsson
-
Ragnhildur Sverrisdóttir
-
Ridar T. Falls
-
Konráð Ragnarsson
-
Vefritid
-
Svanur Sigurbjörnsson
-
Sveinn Atli Gunnarsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Friðrik Þór Guðmundsson
-
Baldur Kristjánsson
-
Sveinn Ingi Lýðsson
-
Hlynur Þór Magnússon
-
Pawel Bartoszek
-
Haukur Nikulásson
-
Bjarni Harðarson
-
Eiður Svanberg Guðnason
-
Ómar Ragnarsson
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Jón Steinar Ragnarsson
-
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
AK-72
-
Sigurður Ingi Kjartansson
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Þórarinn Þ Gíslason
-
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Púkinn
-
Lady Elín
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Jens Guð
-
Gunnar Th. Gunnarsson
-
Hrannar Baldursson
-
Jón Bjarnason
-
Ár & síð
-
Jón Ingi Cæsarsson
-
Jenný Anna Baldursdóttir
-
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
-
Svavar Alfreð Jónsson
-
Benedikt Henry Segura
-
Marinó G. Njálsson
-
Theódór Norðkvist
-
Jón Ingvar Jónsson
-
Gunnar Þórðarson
-
Ólafur Fr Mixa
-
Gíslína Erlendsdóttir
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Heimir Tómasson
-
Guðmundur Pálsson
-
Ólafur Ragnarsson
-
gudni.is
-
Guðbjörn Guðbjörnsson
-
Lúðvík Júlíusson
-
G. Valdimar Valdemarsson
-
Sigmar Þór Sveinbjörnsson
-
Gestur Gunnarsson
-
Óskar Þorkelsson
-
Ylfa Mist Helgadóttir
-
Kristinn Theódórsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Gunnar Skúli Ármannsson
-
Evrópusamtökin, www.evropa.is
-
Lýður Árnason
-
Brattur
-
Marta B Helgadóttir
-
Hallmundur Kristinsson
-
Sigurður Hreiðar
-
Eyþór Árnason
-
Bergur Thorberg
-
kloi
-
Hjalti Tómasson
-
Kristjana Bjarnadóttir
-
Bjarni Sæmundsson
-
Máni Ragnar Svansson
-
Emil Hannes Valgeirsson
-
Sigurður Þorsteinsson
-
Torfi Kristján Stefánsson
-
Haukur Baukur
-
Sverrir Stormsker
-
Axel Jóhann Hallgrímsson
-
Helga Kristjánsdóttir
-
Loopman
-
Einar B Bragason
-
Erna Bjarnadóttir
-
Ólafur "Tröllabarn" Georgsson
-
Svanur Gísli Þorkelsson
-
-
Emil Örn Kristjánsson
-
Gísli Tryggvason
-
Helgi Guðmundsson
-
Rakel Sigurgeirsdóttir
-
Þráinn Jökull Elísson
-
Þorsteinn Briem
-
Hjálmtýr V Heiðdal
-
Himmalingur
-
Ketill Sigurjónsson
-
Sæmundur Bjarnason
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Bjarni Rúnar Einarsson
-
Friðrik Hansen Guðmundsson
-
Bókakaffið á Selfossi
-
Guðni Karl Harðarson
-
Axel Þór Kolbeinsson
-
Hlynur Þór Magnússon
-
Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson)
-
Marteinn Unnar Heiðarsson
-
Einar G. Harðarson
-
Bloggrýnirinn
-
kreppukallinn
-
Jack Daniel's
-
Guðjón Baldursson
-
Már Wolfgang Mixa
-
Dóra litla
-
hilmar jónsson
-
Hörður B Hjartarson
-
Kristín Bjarnadóttir
-
Arnþrúður Karlsdóttir
-
Baldur Hermannsson
-
Eygló
-
Finnur Bárðarson
-
Andri Geir Arinbjarnarson
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Hilmar Gunnlaugsson
-
Loftslag.is
-
Jón Daníelsson
-
Elín Helga Egilsdóttir
-
Helga Þórðardóttir
-
Sigurður Grétar Guðmundsson
-
Leikhópurinn Lotta
-
Dúa
-
Hulda Haraldsdóttir
-
Kama Sutra
-
Bjarni Kristjánsson
-
Kristinn Theódórsson
-
Blogblaster
-
Halldóra Hjaltadóttir
-
Jóhanna Magnúsdóttir
-
Andspilling
-
Valmundur Valmundsson
-
Dingli
-
Kristinn Karl Brynjarsson
-
Sigurður Einarsson
-
Mathieu Grettir Skúlason
-
Árni Matthíasson
-
BookIceland
-
FORNLEIFUR
-
Guðbjörn Jónsson
-
Högni Snær Hauksson
-
Ingólfur Sigurðsson
-
Stefán Júlíusson
-
Þorsteinn Siglaugsson
Athugasemdir
Kim er líklega bæði lifandi og dauður: Schrödinger's Cat
Hörður Þormar, 30.4.2020 kl. 11:15
Um daginn birtist frétt með fyrirsögn á þá leið að hann væri talinn af. Einhver gerði athugasemd við þetta og sagði að þegar menn væru taldir af væri það vegna þess að þeir hefðu týnst á fjöllum eða dottið í sjóinn og álitið að þeir væru að öllum líkindum dauðir. En fyrirsögnin var alls ekki svo vitlaus, enda er náunginn vissulega týndur, amk. fyrir þeim sem standa utan landsins í það minnsta. Trumpsi segist reyndar vita hvar hann sé. En það er alveg mögulegt að það sé vitleysa í honum
Að hann sé bæði lifandi og dauður er samt ennþá betri skýring.
Þorsteinn Siglaugsson, 30.4.2020 kl. 13:18
Hörður minn, ég skil ekki þetta Schrödinger undirstrikun og allt það. Frá sjónarmiði almennings í Norður-Kóreu skiptir sennilega litlu máli hvort hann er lifandi eða dauður. Kínverjum er kannski ekki sama.
Sæmundur Bjarnason, 30.4.2020 kl. 15:16
Ef menn eru týndir og tröllum gefnir eru þeir þá villtir uppá fjöllum eða staddir lengst úti í móa? Málvenjur eru skrýtnar og oft hægt að skýra þær á alla vegu. Kim hlýtur að vera annað hvort lifandi eða dauður. Ég er ekki að tala um eilíft líf.
Að eitthvað sé helmingi meira en annað er t.d. hægt að skýra á a.m.k. tvo vegu.
Sæmundur Bjarnason, 30.4.2020 kl. 15:23
Dæmið um kött Schrödingers var sett fram til að úrskýra tiltekið vandamál í skammtafræði. Þú getur skoðað þetta nánar hér ef þú nennir: https://en.wikipedia.org/wiki/Schrödinger%27s_cat
Líkingin við litla eldflaugamanninn er kannski ekki alveg nákvæm, en bara skemmtileg samt. Efast þó um að Kínverjar hafi húmor fyrir þannig gríni. Fyrir þeim er það mjög alvarlegt mál hvort vinurinn er lífs eða liðinn því þeir vilja síður að allt springi í loft upp hjá þessum nágrönnum og fjandvinum þeirra.
Þorsteinn Siglaugsson, 30.4.2020 kl. 17:35
Sæmundur. Þetta átti nú bara að vera létt grín með tilvísun til frægrar tilraunar sem eðlisfræðingurinn, Schrödinger, lék sér að í huganum en gerði aldrei.
Í stuttu máli: hann setti kött í kassa ásamt eiturhylki og geislavirku efni. Geislavirknin gæti, af tilviljun, brotið hylkið og eitrið drepið köttinn.
Schrödinger hélt því fram að kötturinn væri bæði lifandi og dauður þar til kassinn væri opnaður.
Hörður Þormar, 30.4.2020 kl. 18:17
Hörður, ég er ekki háskólamenntaður og það þýðir lítið að koma með svona glósur á mig.
Annars er ég einmitt um þessar mundir að lesa ágrip af bók sem heitir á ensku: "Spook" og er eftir Mary Roach. Segja má að hún sé einn fremsti höfundur á enskri tungu sem fjallar um vísindi á mannamáli. Þessi bók fjallar einmitt um líf og dauða. Hún gefur sér yfirleitt fátt fyrirfram og leitar eftir sönnunum. Ég hef lesið fleiri bækur eftir hana og get hiklaust mælt með henni.
Sæmundur Bjarnason, 30.4.2020 kl. 21:02
Ertu að gá hvort það sé líf eftir dauðann Sæmundur?
Þorsteinn Siglaugsson, 30.4.2020 kl. 22:57
Og svona í framhaldi af því, bara til skemmtunar: Þorgeir Þorgeirson kvikmyndagerðarmaður, skáld og almennur uppreisnarmaður hefur ákaflega skemmtilega skilgreiningu á borgarastéttinni í einu kvæði sínu - að hjá henni snúist allt um lífið eftir dauðann og dauðann fyrir andlátið. Mér finnst það skemmtilega að orði komist.
Þorsteinn Siglaugsson, 30.4.2020 kl. 23:00
Sæmundur. Síst af öllu datt mér í hug að senda þér glósur.
Hins vegar má vera að ég hafi gert hvarfið á honum "Kim okkar" að gamanmáli, sem reyndar var nú ekki fallegt af mér.
En mér datt nú bara, sí svona, í hug aumingja kötturinn hans Schrödingers, en hann var lokaður inni í kassa og enginn vissi hvort hann væri lífs eða liðinn. Ég held reyndar að Schrödinger hafi sjálfur verið að gera að gamni sínu með þennan kött, en hvað um það, hugmynd hans sló í gegn.
En svo að ég snúi mér að öðru, þá verð ég að viðurkenna að ég les ekki margar bækur, nú orðið. Hins vegar vafra ég nokkuð um á netinu og er þar m.a. ríkulegt efni sem fjallar um mörkin á milli lífs og dauða (NDE). Eftir frásögnum margra þar mætti ætla að dauðinn sé spennandi fyrirbrigði og sumir sem komist hafa í snertingu við hann hætta að óttast hann. Um skýringu á þessum upplifunum eða sannleiksgildi þeirra get ég að sjálfsögðu ekki dæmt.
Hörður Þormar, 30.4.2020 kl. 23:50
Þetta með líf og dauða er athyglisvert umræðuefni, Þorsteinn minn. Verst hvað það er nálægt trúmálum, en þau valda oft miklum væringum á blogginu og eflaust á Fésbókinni einnig. Roach er í byrjun bókarinnar einkum að ræða um endurfæðingu og fer af því tilefni til Indlands. "Stiff" hét fyrsta bókin eftir Roach sem ég las. Hún var um það hvernig lík eru notuð í vestrænu samfélagi. Fyrir utan það að vera sískrifandi er ég líka sílesandi.
Kannast við Þorgeir og ekki síður konuna hans sem ég held að hafi verið skáldið Vilborg Dagbjartsdóttir.
Sæmundur Bjarnason, 1.5.2020 kl. 10:08
Hörður.
Sennilega er misskilnurinn milli okkar tilkominn vegna mismunandi skilnings á orðinu "glósa". Mér finnst það ekkert sérstaklega neikvætt. Heldur sýna mismunandi áherslur á það hvað er ætlast til að lesendur (hmm) viti og þekki.
Fyrir utan Roach er ég ákaflega hrifinn af ýmsu sem Bill Bryson hefur skrifað. Marga fleiri mætti tína til, en varðandi vísindi detta mér þessi tvö fyrst í hug.
Sæmundur Bjarnason, 1.5.2020 kl. 10:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.