24.3.2018 | 15:10
2697 - Kötturinn í örbylgjuofninum
Hann tók köttinn upp af gólfinu. Snoddas hafði verið óþekkur. Hann hafði bitið í rófuna á nýja kettlingnum, svo hann emjaði af sársauka. Auk þess hafði hann ýtt kettlingunum í burtu þegar hann þefaði smávegis af harðfiskinum, sem var á HANS diski. Snoddas flýtti sér að fá sér harðfiskinn svo óviðkomandi gerðu það ekki og var í sama mund lyft upp af gólfinu af húsbónda sínum. Jónas flýtti sér að opna örbylgjuofninn og skutla kettinum þar inn. Því næst lokaði hann hurðinni vandlega, en þegar hann setti hendina á rofann hikaði hann svolítið.
Einhvern tíma sá ég það í leiðbeiningum um sögugerð að mikilvægt væri að hafa byrjunina nógu krassandi. Kannski á það líka við um bloggskrif. Annars hefur mér reynst ágætlega að setja nöfn á einhverjum frægum í bloggfyrirsagnir. Nenni ekki að leita að passandi fréttapistlum á mbl.is. Ekki dettur mér í hug að ákveða núna strax hvort Jónas kveikir á örbylgjuofninum eða ekki. Kannski minnist ég ekki á það meira í þessum pistli, en til þess að ganga úr skugga um það verður að lesa hann allan.
Skyldu þeir vera margir sem fletta í gegnum auglýsingarnar í laugardagsblaði Fréttablaðsins. Ég er alveg að hasast upp á því. Annars finnst mér það vel til fundið hjá ritstjórunum þar að hafa næstum engar fréttir í blaðinu. Mesti óþarfi er líka oftast að fletta lengra en að skoðanasíðunni. Þar er venjulega að finna einskonar forystugrein og hugleiðinar eftir Sif Sigmarsdóttur. Ég sakna Bergs Ebba og Þorvaldar Gylfasonar. Svo les ég stundum bakþankana sem eru kannski það eina sem sumir lesa auk þess að skoða myndirnar og fyrirsagnirnar á forsíðunni. Vefsetrið fréttablaðið.is er nokkuð gott og fer sennilega batnandi.
Fésbókin er Frónbúans
fyrsta barnaglingur.
En verður seinna í höndum hans
hvöss sem byssustingur.
Nei, þessi vísa er allsekki eftir mig. Ég gerði ekki annað en að setja fésbók í staðinn fyrir ferskeytlu í þessari alkunnu vísu. Ferskeytlusmíð er deyjandi íþrótt á Íslandi. Kannski er það ekki vonum fyrr. Jónas Hallgrímsson réðist gegn rímunum á sinni tíð og þó Sigurður Breiðfjörð hafi verið mikill snillingur, er því ekki að leyna að margar vinsælar rímur voru argasta bull. Ég er nú svo gamall að mér finnst sumt af rappinu svokallaða vera hálfgildings afturhvarf til rímnastaglsins.
Mig vantar bara svona eins og eina málsgrein í viðbót til að geta skammlaust sett þetta á Moggabloggið. Íhaldssemin og erlendu fréttirnar eru aðall Morgunblaðsins. Fjölmiðlun á Íslandi er afar skrítin. Enn eru frjálsu fjölmiðlarnir svokölluðu að hamast gegn auglýsingunum hjá RUV. Það hafa þeir gert a.m.k. síðan 1986 en þá var það sem ég flutti frá Borgarnesi og fór að vinna hjá Stöð 2.
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Efni
Tenglar
Blogg
- Áslaug Benediktsdóttir
- Harpa Hreinsdóttir
- Atli Harðarson
- Anna K. Kristjánsdóttir
- Erlingur Brynjólfsson
- Nanna Rögnvaldardóttir
- Þórunn Sigurjónsdóttir
- Susan Polgar
Skák
Ýmislegt
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
2006
Des. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 | 31 |
Bloggvinir
- Anna Einarsdóttir
- Umsjónarmenn blog.is
- Egill Jóhannsson
- Róslín A. Valdemarsdóttir
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Sigríður Jósefsdóttir
- Arnþór Helgason
- Birgitta Jónsdóttir
- Lýður Pálsson
- Einar Sveinbjörnsson
- Gylfi Guðmundsson
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Villi Asgeirsson
- Sigurður Þór Guðjónsson
- Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson
- Egill Bjarnason
- Jóhann Björnsson
- Ólafur fannberg
- TómasHa
- Ágúst H Bjarnason
- Brjánn Guðjónsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Ragnheiður
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Magnús Helgi Björgvinsson
- Kári Harðarson
- Eiríkur Mörk Valsson
- Ragnhildur Sverrisdóttir
- Ridar T. Falls
- Konráð Ragnarsson
- Vefritid
- Svanur Sigurbjörnsson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Sveinn Ingi Lýðsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Pawel Bartoszek
- Haukur Nikulásson
- Bjarni Harðarson
- Eiður Svanberg Guðnason
- Ómar Ragnarsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- AK-72
- Sigurður Ingi Kjartansson
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Þórarinn Þ Gíslason
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Púkinn
- Lady Elín
- Kolbrún Baldursdóttir
- Jens Guð
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Hrannar Baldursson
- Jón Bjarnason
- Ár & síð
- Jón Ingi Cæsarsson
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Svavar Alfreð Jónsson
- Benedikt Henry Segura
- Marinó G. Njálsson
- Theódór Norðkvist
- Jón Ingvar Jónsson
- Gunnar Þórðarson
- Ólafur Fr Mixa
- Gíslína Erlendsdóttir
- Jóna Á. Gísladóttir
- Heimir Tómasson
- Guðmundur Pálsson
- Ólafur Ragnarsson
- gudni.is
- Guðbjörn Guðbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- G. Valdimar Valdemarsson
- Sigmar Þór Sveinbjörnsson
- Gestur Gunnarsson
- Óskar Þorkelsson
- Ylfa Mist Helgadóttir
- Kristinn Theódórsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Evrópusamtökin, www.evropa.is
- Lýður Árnason
- Brattur
- Marta B Helgadóttir
- Hallmundur Kristinsson
- Sigurður Hreiðar
- Eyþór Árnason
- Bergur Thorberg
- kloi
- Hjalti Tómasson
- Kristjana Bjarnadóttir
- Bjarni Sæmundsson
- Máni Ragnar Svansson
- Emil Hannes Valgeirsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Torfi Kristján Stefánsson
- Haukur Baukur
- Sverrir Stormsker
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Helga Kristjánsdóttir
- Loopman
- Einar B Bragason
- Erna Bjarnadóttir
- Ólafur "Tröllabarn" Georgsson
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Gísli Tryggvason
- Helgi Guðmundsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Þráinn Jökull Elísson
- Þorsteinn Briem
- Hjálmtýr V Heiðdal
- Himmalingur
- Ketill Sigurjónsson
- Sæmundur Bjarnason
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Bjarni Rúnar Einarsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Bókakaffið á Selfossi
- Guðni Karl Harðarson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson)
- Marteinn Unnar Heiðarsson
- Einar G. Harðarson
- Bloggrýnirinn
- kreppukallinn
- Jack Daniel's
- Guðjón Baldursson
- Már Wolfgang Mixa
- Dóra litla
- hilmar jónsson
- Hörður B Hjartarson
- Kristín Bjarnadóttir
- Arnþrúður Karlsdóttir
- Baldur Hermannsson
- Eygló
- Finnur Bárðarson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Loftslag.is
- Jón Daníelsson
- Elín Helga Egilsdóttir
- Helga Þórðardóttir
- Sigurður Grétar Guðmundsson
- Leikhópurinn Lotta
- Dúa
- Hulda Haraldsdóttir
- Kama Sutra
- Bjarni Kristjánsson
- Kristinn Theódórsson
- Blogblaster
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jóhanna Magnúsdóttir
- Andspilling
- Valmundur Valmundsson
- Dingli
- Kristinn Karl Brynjarsson
- Sigurður Einarsson
- Mathieu Grettir Skúlason
- Árni Matthíasson
- BookIceland
- FORNLEIFUR
- Guðbjörn Jónsson
- Högni Snær Hauksson
- Ingólfur Sigurðsson
- Stefán Júlíusson
- Þorsteinn Siglaugsson
Athugasemdir
Á Akranesi upp við dogg,
aftur rís þar Sæmi,
skrambi vel hann skrifar blogg,
skrítin finnur dæmi.
Þorsteinn Briem, 24.3.2018 kl. 15:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.