13.10.2017 | 10:04
2655 - Svo lengist lærið sem lífið
Auðvitað veit ég ósköp vel að þetta er bara afbökun á þeim gamla og góða málshætti: svo lengi lærir sem lifir. Ég er nú orðinn 75 ára og skammast mín ekkert fyrir að ég skuli enn vera að læra eitthvað nýtt. T.d. er ég mjög upptekinn af því nú um þessar mundir að hugsanlega hafi líkamsklukkan svonefnda meiri áhrif en ég hef hingað til haldið. Allar mannverur eru líklega þannig gerðar að við dagsbirtu eru þær best upplagðar.
Hér á norðurslóðum berjumst við fyrir því að börn og unglingar taka meira mark á vélrænum klukkum en líkamlegum og tekst það sæmilega. Þegar ellin sækir að eykst þörfin fyrir að fylgja birtunni. Þetta finn ég t.d. á því að ég vil fremur fara út að ganga eftir að birtir og það veldur sífelldum breytingum. Þar að auki eru þessi áhrif sennilega mjög mismunandi eftir einstaklingum.
Í dag er föstudagur þrettándi og þó ég hafi fengið tímarit Öryrkjabandalagsins í pósthólfið mitt (eða okkar eins og Áslaug mundi vilja segja) í gær, er ég bara nokkuð brattur.
Sennilega blogga ég alltof mikið þessa dagana. Það er varla hægt að reikna með því að nokkur endist til að lesa alla þessa dellu. Sennilega ætti ég að stefna að því að skrifa mun minna. En það er erfitt að ráða við sig þegar lesendurnir skipta mörgum hundruðum á næstum hverjum einasta degi. Kannski er þetta ekki einu sinni mér að kenna. Kannski get ég bara kennt lesendum mínum um þessi ósköp.
Annars eru kosningar yfivofandi svo pólitísku skrifin er feiknamikil þessa dagana og varla nokkur sem nennir að lesa það allt.
Helena og Benni komu í heimsókn um síðustu helgi. Fyrirferðin í Helenu er orðin talsvert mikil og Benni var ekki lengi að setja hurðirnar á Billy-bókaskápinn og nú er búið að setja ýmislegt dót í hann. Hann er bara býsna flottur. Altsvo bókaskápurinn og Benni reyndar líka.
Undarleg sérviska hjá manni einsog Matthíasi Johannessen að skrifa þannig að hann sleppir orðabilinu ef hann setur punkt eða kommu. Já ég var um daginn að glugga í dagbókarskrifin dauðhreinsuðu og úreltu hjá honum á Netinu. Þá held ég nú að bloggið og fésbókin séu betri. Þar er þó hægt að ganga úrfrá því að skrifin séu nýleg, en ekki bara uppþornaðar heimildir.
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Efni
Tenglar
Blogg
- Áslaug Benediktsdóttir
- Harpa Hreinsdóttir
- Atli Harðarson
- Anna K. Kristjánsdóttir
- Erlingur Brynjólfsson
- Nanna Rögnvaldardóttir
- Þórunn Sigurjónsdóttir
- Susan Polgar
Skák
Ýmislegt
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
2006
Jan. 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Bloggvinir
- Anna Einarsdóttir
- Umsjónarmenn blog.is
- Egill Jóhannsson
- Róslín A. Valdemarsdóttir
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Sigríður Jósefsdóttir
- Arnþór Helgason
- Birgitta Jónsdóttir
- Lýður Pálsson
- Einar Sveinbjörnsson
- Gylfi Guðmundsson
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Villi Asgeirsson
- Sigurður Þór Guðjónsson
- Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson
- Egill Bjarnason
- Jóhann Björnsson
- Ólafur fannberg
- TómasHa
- Ágúst H Bjarnason
- Brjánn Guðjónsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Ragnheiður
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Magnús Helgi Björgvinsson
- Kári Harðarson
- Eiríkur Mörk Valsson
- Ragnhildur Sverrisdóttir
- Ridar T. Falls
- Konráð Ragnarsson
- Vefritid
- Svanur Sigurbjörnsson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Sveinn Ingi Lýðsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Pawel Bartoszek
- Haukur Nikulásson
- Bjarni Harðarson
- Eiður Svanberg Guðnason
- Ómar Ragnarsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- AK-72
- Sigurður Ingi Kjartansson
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Þórarinn Þ Gíslason
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Púkinn
- Lady Elín
- Kolbrún Baldursdóttir
- Jens Guð
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Hrannar Baldursson
- Jón Bjarnason
- Ár & síð
- Jón Ingi Cæsarsson
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Svavar Alfreð Jónsson
- Benedikt Henry Segura
- Marinó G. Njálsson
- Theódór Norðkvist
- Jón Ingvar Jónsson
- Gunnar Þórðarson
- Ólafur Fr Mixa
- Gíslína Erlendsdóttir
- Jóna Á. Gísladóttir
- Heimir Tómasson
- Guðmundur Pálsson
- Ólafur Ragnarsson
- gudni.is
- Guðbjörn Guðbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- G. Valdimar Valdemarsson
- Sigmar Þór Sveinbjörnsson
- Gestur Gunnarsson
- Óskar Þorkelsson
- Ylfa Mist Helgadóttir
- Kristinn Theódórsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Evrópusamtökin, www.evropa.is
- Lýður Árnason
- Brattur
- Marta B Helgadóttir
- Hallmundur Kristinsson
- Sigurður Hreiðar
- Eyþór Árnason
- Bergur Thorberg
- kloi
- Hjalti Tómasson
- Kristjana Bjarnadóttir
- Bjarni Sæmundsson
- Máni Ragnar Svansson
- Emil Hannes Valgeirsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Torfi Kristján Stefánsson
- Haukur Baukur
- Sverrir Stormsker
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Helga Kristjánsdóttir
- Loopman
- Einar B Bragason
- Erna Bjarnadóttir
- Ólafur "Tröllabarn" Georgsson
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Gísli Tryggvason
- Helgi Guðmundsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Þráinn Jökull Elísson
- Þorsteinn Briem
- Hjálmtýr V Heiðdal
- Himmalingur
- Ketill Sigurjónsson
- Sæmundur Bjarnason
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Bjarni Rúnar Einarsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Bókakaffið á Selfossi
- Guðni Karl Harðarson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson)
- Marteinn Unnar Heiðarsson
- Einar G. Harðarson
- Bloggrýnirinn
- kreppukallinn
- Jack Daniel's
- Guðjón Baldursson
- Már Wolfgang Mixa
- Dóra litla
- hilmar jónsson
- Hörður B Hjartarson
- Kristín Bjarnadóttir
- Arnþrúður Karlsdóttir
- Baldur Hermannsson
- Eygló
- Finnur Bárðarson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Loftslag.is
- Jón Daníelsson
- Elín Helga Egilsdóttir
- Helga Þórðardóttir
- Sigurður Grétar Guðmundsson
- Leikhópurinn Lotta
- Dúa
- Hulda Haraldsdóttir
- Kama Sutra
- Bjarni Kristjánsson
- Kristinn Theódórsson
- Blogblaster
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jóhanna Magnúsdóttir
- Andspilling
- Valmundur Valmundsson
- Dingli
- Kristinn Karl Brynjarsson
- Sigurður Einarsson
- Mathieu Grettir Skúlason
- Árni Matthíasson
- BookIceland
- FORNLEIFUR
- Guðbjörn Jónsson
- Högni Snær Hauksson
- Ingólfur Sigurðsson
- Stefán Júlíusson
- Þorsteinn Siglaugsson
Athugasemdir
Sæmundur. Já. Það er víst alveg rétt að svo lengist lærið sem lífið. Alla vega ef litið er til baka.
Ég sá á youtube, eða kannski einhverstaðar annarsstaðar á netinu fyrir nokkru síðan, að einhverjir sérfræðingarnir höfðu fundið mannabeinagrind sem leit út fyrir að vera að minnsta kosti þrisvar sinnum lengri en venjulegar nútímans beinagrindur eru. Þar er væntanlega komin skýring á "lengingu lærisins".
Lífið í sálinni er svo vonandi framlengt, hvort sem við sálirnar viðurkennum það eða ekki. Þetta er nú reyndar bara orðaleikur hjá mér, án nokkurra fræða grunnskólavits.
Falleg dýramynd í lokin á pistlinum þínum. Hugsa sér ef við mannskepnurnar gætum verið svona fallega myndarlegar eins og dýrin á myndinni:)
Endilega haltu þínu striki á blogginu. Mér finnst mjög athyglivert og skemmtilegt, sem þú hefur að segja og myndbirta.
M.b.kv.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir 14.10.2017 kl. 00:43
Takk, Anna. Ég get meira að segja sagt þér hvað hvolpurinn og kettlingurinn heita. Þetta eru Hans og Snowy.
Sæmundur Bjarnason, 15.10.2017 kl. 16:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.