24.10.2016 | 12:17
2524 - Kosningar eru leiðinlegar
Nú er ég að nálgast það sem einu sinni var. Það er að ég bloggi daglega. Samt er ég á því að kosningar séu leiðinlegar, en samt sem áður spennandi og nauðsynlegar. Skil ekki þá sem ekki nenna á kjörstað. Vona að ég verði aldrei svo gamall og hrumur að ég nenni ekki að taka þátt í kosningum og þjóðaratkvæðagreiðslum. Að vísu er það síðarnefnda svo sjaldgæft eftir að Ólafur hætti að maður er næstum hættur að reikna með slíku. Held samt að Guðni Th. sé alls ekki slæmur hvað það snertir, enda kaus ég hann og hef ætíð kosið sigurvegara í forsetakosningum. Sá fyrsti sem ég kaus var Kristján Eldjárn. Alþingiskosningar eru alltönnur Ella og þar hefur mér reynst ágætlega, fyrir samviskuna a.m.k., að breyta alloft til. Núna er ég samt að hugsa um að kjósa Píratana eins og síðast.
Sumir virðast halda að Píratar standi fyrir að setja lög um þjófnað á höfundarrétti en það er mikill misskilningur. Einn helsti kostur þeirra, sem ég sé, er að þeir tilheyra ekki á neinn hátt fjórflokknum og vilja opnara og lýðræðislegra þjóðfélag. Nafnið er samt svolítið misheppnað ef tilgangurinn er bara sá að ganga í augun á íslenskum kjósendum. Held samt að þar sé um alþjóðlega nafngift að ræða.
Fyrst þegar ég sá skammstöfunina HHG á alþingisvefnum hélt ég að Hannes Hólmsteinn væri kominn þangað. Svo var þó ekki og satt að segja er Helgi Hrafn Gunnarsson sá þingmaður sem einna mest hefur imponerað mig. Svipað má reyndar segja um Óttar Proppé. Hann er þó því miður í vitlausum flokki. Björt framtíð er samt ekki svo vitlaus flokkur og kemur sennilega manni eða mönnum að í komandi kosningum.
En fjölyrðum ekki meira um þetta. Ég er alfarið á móti allri pólitík, þó ég skrifi varla um annað. Margt annað vekur áhuga minn, en fésbókin þykir mér helst til flókin og illskiljanleg. Vil ekki leggja það á mig að læra vel á hana. Blaðamennska virðist samt snúast mest um að finna ýmsa hluti á fésbók, twitter eða snapchat. Á henni og allri fjölmiðlum hef ég samt svolítinn áhuga frá gamalli tíð.
Frelsi, jafnrétti, bræðralag. Sögðu byltingarsinnarnir í Frakklandi um árið. Nú er það ekki nógu gott. Jafnrétti, frelsi, systkinalag, stendur á skilti sem var á mynd á forsíðu í Fréttablaði dagsins. Líklega á það að þýða það sama. Sammála um að tungumálið íslenska er óttalega karl-lægt eins og fleiri tungumál. En á að byrja á að breyta þeim? Kannski. Einn karlkyns feministi sagði frá því í bloggi fyrir margt löngu að hann væri tekinn uppá því að pissa sitjandi og það væri miklu betra. Svo langt er ég ekki kominn, en viðurkenni að einhversstaðar þarf að byrja. Í mínu ungdæmi héldu margir að nóg væri að breyta lögunum, en svo reyndist ekki vera. Karlmenn ætla ekki að sleppa sínum forréttindum fyrr en í fulla hnefana. Mega kynin annars ekki vera svolítið mismunandi?
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Efni
Tenglar
Blogg
- Áslaug Benediktsdóttir
- Harpa Hreinsdóttir
- Atli Harðarson
- Anna K. Kristjánsdóttir
- Erlingur Brynjólfsson
- Nanna Rögnvaldardóttir
- Þórunn Sigurjónsdóttir
- Susan Polgar
Skák
Ýmislegt
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
2006
Des. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 | 31 |
Bloggvinir
- Anna Einarsdóttir
- Umsjónarmenn blog.is
- Egill Jóhannsson
- Róslín A. Valdemarsdóttir
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Sigríður Jósefsdóttir
- Arnþór Helgason
- Birgitta Jónsdóttir
- Lýður Pálsson
- Einar Sveinbjörnsson
- Gylfi Guðmundsson
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Villi Asgeirsson
- Sigurður Þór Guðjónsson
- Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson
- Egill Bjarnason
- Jóhann Björnsson
- Ólafur fannberg
- TómasHa
- Ágúst H Bjarnason
- Brjánn Guðjónsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Ragnheiður
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Magnús Helgi Björgvinsson
- Kári Harðarson
- Eiríkur Mörk Valsson
- Ragnhildur Sverrisdóttir
- Ridar T. Falls
- Konráð Ragnarsson
- Vefritid
- Svanur Sigurbjörnsson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Sveinn Ingi Lýðsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Pawel Bartoszek
- Haukur Nikulásson
- Bjarni Harðarson
- Eiður Svanberg Guðnason
- Ómar Ragnarsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- AK-72
- Sigurður Ingi Kjartansson
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Þórarinn Þ Gíslason
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Púkinn
- Lady Elín
- Kolbrún Baldursdóttir
- Jens Guð
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Hrannar Baldursson
- Jón Bjarnason
- Ár & síð
- Jón Ingi Cæsarsson
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Svavar Alfreð Jónsson
- Benedikt Henry Segura
- Marinó G. Njálsson
- Theódór Norðkvist
- Jón Ingvar Jónsson
- Gunnar Þórðarson
- Ólafur Fr Mixa
- Gíslína Erlendsdóttir
- Jóna Á. Gísladóttir
- Heimir Tómasson
- Guðmundur Pálsson
- Ólafur Ragnarsson
- gudni.is
- Guðbjörn Guðbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- G. Valdimar Valdemarsson
- Sigmar Þór Sveinbjörnsson
- Gestur Gunnarsson
- Óskar Þorkelsson
- Ylfa Mist Helgadóttir
- Kristinn Theódórsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Evrópusamtökin, www.evropa.is
- Lýður Árnason
- Brattur
- Marta B Helgadóttir
- Hallmundur Kristinsson
- Sigurður Hreiðar
- Eyþór Árnason
- Bergur Thorberg
- kloi
- Hjalti Tómasson
- Kristjana Bjarnadóttir
- Bjarni Sæmundsson
- Máni Ragnar Svansson
- Emil Hannes Valgeirsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Torfi Kristján Stefánsson
- Haukur Baukur
- Sverrir Stormsker
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Helga Kristjánsdóttir
- Loopman
- Einar B Bragason
- Erna Bjarnadóttir
- Ólafur "Tröllabarn" Georgsson
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Gísli Tryggvason
- Helgi Guðmundsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Þráinn Jökull Elísson
- Þorsteinn Briem
- Hjálmtýr V Heiðdal
- Himmalingur
- Ketill Sigurjónsson
- Sæmundur Bjarnason
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Bjarni Rúnar Einarsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Bókakaffið á Selfossi
- Guðni Karl Harðarson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson)
- Marteinn Unnar Heiðarsson
- Einar G. Harðarson
- Bloggrýnirinn
- kreppukallinn
- Jack Daniel's
- Guðjón Baldursson
- Már Wolfgang Mixa
- Dóra litla
- hilmar jónsson
- Hörður B Hjartarson
- Kristín Bjarnadóttir
- Arnþrúður Karlsdóttir
- Baldur Hermannsson
- Eygló
- Finnur Bárðarson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Loftslag.is
- Jón Daníelsson
- Elín Helga Egilsdóttir
- Helga Þórðardóttir
- Sigurður Grétar Guðmundsson
- Leikhópurinn Lotta
- Dúa
- Hulda Haraldsdóttir
- Kama Sutra
- Bjarni Kristjánsson
- Kristinn Theódórsson
- Blogblaster
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jóhanna Magnúsdóttir
- Andspilling
- Valmundur Valmundsson
- Dingli
- Kristinn Karl Brynjarsson
- Sigurður Einarsson
- Mathieu Grettir Skúlason
- Árni Matthíasson
- BookIceland
- FORNLEIFUR
- Guðbjörn Jónsson
- Högni Snær Hauksson
- Ingólfur Sigurðsson
- Stefán Júlíusson
- Þorsteinn Siglaugsson
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.