19.12.2015 | 18:09
2396 - Kárahnjúkar
Það var Kárahnjúkastíflan sem öðru fremur opnaði augu mín fyrir þeirri spillingu sem grasserar og landlæg er í íslenskum stjórnmálum og þjóðlífi öllu. Þó vissi ég þetta svosem og forðaðist pólitík eftir megni. Þegar mér var sagt (þegar ég var um tvítugt) að Gunnar Álfur Jónsson (vinnufélagi minn) væri þekktur fyrir að hafa tekið að sér að merkja á íbúaskrá á Selfossi stjórnmálaskoðanir manna (líklega fyrir framsóknarflokkinn) fannst mér ekki mikið til um það. Sumir hneyksluðust að vísu á þessu, en ég hneykslaðist mest á því að hann var alltaf svo boginn í baki þegar hann var fullur að hann var nánast einsog vinkill í laginu. Hann var eldri en ég og vann á skrifstofunni hjá Gunnari Vigfússyni sem var giftur föðursystur minni. Hún var reyndar hálfsystir föður míns en förum ekki nánar útí það.
Ekki veit ég hversvegna það er, en ég á ákaflega bágt með að halda þræði. Minntist lauslega á Kárahnjúkastífluna hérna áðan en er eiginlega þegar búinn að fá leið á því að skrifa um hana. Mér fannst þó merkilegt að kynna mér þá framkvæmd, því með engu móti gat hún orðið arðbær. Að auki var greinilegt að hagsmunir Íslendinga voru alls ekki hafðir í heiðri þar eða við byggingu álversins í Reyðarfirði. Einkum studdu þessar framkvæmdir við völd Halldórs Ásgrímssonar og hugsanlegt var að í framtíðinni kæmi sér vel fyrir Austfirði að hafa virkjun og álver í fjórðungnum.
Það er ýmislegt fáránlegt með mig. Þó ég sé orðinn gamall og slitinn og geti alveg farið út að ganga þá hef ég ekki undanfarið gert mikið af því. Í gærmorgun fór ég þó en labbaði samt ansi hægt. Auk þess er ég að fitna aftur og svo er það ekkert spennandi að labba úti núna í mykri og frosti. Líklega er ég ekki eins vel fær um að slást við myrkrið og áður, en frostið gerir mér svosem ekkert til. Í ferðinni til Evu Sigríðar heimilislæknis um daginn, hvatti hún mig til að kaupa íþróttasokka til að fá ekki bjúg á fæturna. Þetta er ég búinn að prófa og prufa kannski aftur. Einnig prófaði ég áðan nýja lyfið sem hún lét mig hafa. Fucidin held ég að það heiti.
Jólin nálgast okkur nú eins og bandóð fluga (óðfluga) og sennilega endar þetta með því að ég verð að fara að huga að jólagjöfum. Annars hef ég sloppið vel frá þessu undanfarin ár því konan mín hefur meira og minna séð um þetta og jólakortin sömuleiðis.
Jörundur hundadagakóngur er í sífelldri endurfæðingu. Jónas reyndi að gera hann að fígúru, svo var hann frelsishetja og nú er hann ævintýramaður hinn mesti. Á endanum verður hans líklega minnst í biblíusögum og jafnvel væri óhætt að trúa á hann a.m.k. til jafns við Múhammeð. Ekki veit ég hvar þetta endar en greinilegt er að veruleikinn tekur öllum skáldsögum fram. Nú um stundir getur helst enginn skrifað skáldsögu nema hafa hana glæpasögu um leið. Annars eru skáldaðir glæpir að mínum dómi flestir annars flokks.
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Efni
Tenglar
Blogg
- Áslaug Benediktsdóttir
- Harpa Hreinsdóttir
- Atli Harðarson
- Anna K. Kristjánsdóttir
- Erlingur Brynjólfsson
- Nanna Rögnvaldardóttir
- Þórunn Sigurjónsdóttir
- Susan Polgar
Skák
Ýmislegt
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
2006
Des. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 | 31 |
Bloggvinir
- Anna Einarsdóttir
- Umsjónarmenn blog.is
- Egill Jóhannsson
- Róslín A. Valdemarsdóttir
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Sigríður Jósefsdóttir
- Arnþór Helgason
- Birgitta Jónsdóttir
- Lýður Pálsson
- Einar Sveinbjörnsson
- Gylfi Guðmundsson
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Villi Asgeirsson
- Sigurður Þór Guðjónsson
- Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson
- Egill Bjarnason
- Jóhann Björnsson
- Ólafur fannberg
- TómasHa
- Ágúst H Bjarnason
- Brjánn Guðjónsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Ragnheiður
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Magnús Helgi Björgvinsson
- Kári Harðarson
- Eiríkur Mörk Valsson
- Ragnhildur Sverrisdóttir
- Ridar T. Falls
- Konráð Ragnarsson
- Vefritid
- Svanur Sigurbjörnsson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Sveinn Ingi Lýðsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Pawel Bartoszek
- Haukur Nikulásson
- Bjarni Harðarson
- Eiður Svanberg Guðnason
- Ómar Ragnarsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- AK-72
- Sigurður Ingi Kjartansson
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Þórarinn Þ Gíslason
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Púkinn
- Lady Elín
- Kolbrún Baldursdóttir
- Jens Guð
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Hrannar Baldursson
- Jón Bjarnason
- Ár & síð
- Jón Ingi Cæsarsson
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Svavar Alfreð Jónsson
- Benedikt Henry Segura
- Marinó G. Njálsson
- Theódór Norðkvist
- Jón Ingvar Jónsson
- Gunnar Þórðarson
- Ólafur Fr Mixa
- Gíslína Erlendsdóttir
- Jóna Á. Gísladóttir
- Heimir Tómasson
- Guðmundur Pálsson
- Ólafur Ragnarsson
- gudni.is
- Guðbjörn Guðbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- G. Valdimar Valdemarsson
- Sigmar Þór Sveinbjörnsson
- Gestur Gunnarsson
- Óskar Þorkelsson
- Ylfa Mist Helgadóttir
- Kristinn Theódórsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Evrópusamtökin, www.evropa.is
- Lýður Árnason
- Brattur
- Marta B Helgadóttir
- Hallmundur Kristinsson
- Sigurður Hreiðar
- Eyþór Árnason
- Bergur Thorberg
- kloi
- Hjalti Tómasson
- Kristjana Bjarnadóttir
- Bjarni Sæmundsson
- Máni Ragnar Svansson
- Emil Hannes Valgeirsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Torfi Kristján Stefánsson
- Haukur Baukur
- Sverrir Stormsker
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Helga Kristjánsdóttir
- Loopman
- Einar B Bragason
- Erna Bjarnadóttir
- Ólafur "Tröllabarn" Georgsson
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Gísli Tryggvason
- Helgi Guðmundsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Þráinn Jökull Elísson
- Þorsteinn Briem
- Hjálmtýr V Heiðdal
- Himmalingur
- Ketill Sigurjónsson
- Sæmundur Bjarnason
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Bjarni Rúnar Einarsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Bókakaffið á Selfossi
- Guðni Karl Harðarson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson)
- Marteinn Unnar Heiðarsson
- Einar G. Harðarson
- Bloggrýnirinn
- kreppukallinn
- Jack Daniel's
- Guðjón Baldursson
- Már Wolfgang Mixa
- Dóra litla
- hilmar jónsson
- Hörður B Hjartarson
- Kristín Bjarnadóttir
- Arnþrúður Karlsdóttir
- Baldur Hermannsson
- Eygló
- Finnur Bárðarson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Loftslag.is
- Jón Daníelsson
- Elín Helga Egilsdóttir
- Helga Þórðardóttir
- Sigurður Grétar Guðmundsson
- Leikhópurinn Lotta
- Dúa
- Hulda Haraldsdóttir
- Kama Sutra
- Bjarni Kristjánsson
- Kristinn Theódórsson
- Blogblaster
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jóhanna Magnúsdóttir
- Andspilling
- Valmundur Valmundsson
- Dingli
- Kristinn Karl Brynjarsson
- Sigurður Einarsson
- Mathieu Grettir Skúlason
- Árni Matthíasson
- BookIceland
- FORNLEIFUR
- Guðbjörn Jónsson
- Högni Snær Hauksson
- Ingólfur Sigurðsson
- Stefán Júlíusson
- Þorsteinn Siglaugsson
Athugasemdir
Sæmundur. Góður pistill. Ef lyfið sem þú nefnir Fucidin er það sem þú ert nýbúinn að fá, þá er það Pensillín. Og það þykir mér undarlega frjálslega meðfarið lyf. Og sérstaklega undarlegt lyf við bjúg, svo ekki sé sterkar að orði kveðið.
En ég er nú sem betur fer ódómbær á lyfjanotkun og sjúkdómsgreiningu annarra, og ekki hef ég fræðigráður af nokkru tagi, og er alls ekki læknir.
Gangi þér sem best að glíma við heilsuna, lyfin, og öll önnur verkefni.
Hundurinn er flottur á myndinni. Það er eins og hann sé að velta fyrir sér hvaða undarlega skraut sé þarna á ferðinni :)
M.b.kv.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 20.12.2015 kl. 00:54
Fucidin er alls ekki penicillin en samt sýklalyf notað útvortis.
En bestu kveðjur gamli leikbróðir.
jóhannes F. Skaftason 20.12.2015 kl. 09:06
Sko, þetta nýja lyf var ekki við bjúgnum heldur allt öðru meiddi. Það að auki var þetta í pínulítilli túbu.
Sæmundur Bjarnason, 20.12.2015 kl. 10:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.