18.11.2014 | 23:16
2248 - Um tölvur
Nú er ég eiginlega kominn í stjórnmálalegt stuð. Hvort Hanna Birna segir af sér eða ekki skiptir í rauninni engu máli. Stjórnarsinnar vilja ekkert fremur en að við hugsum sem fastast um það mál. Á meðan geta þeir stolið eins og þeir eru langir til. Það mál sem mig langar til að fá upplýsingar um er stóra lánið sem Seðlabankinn veitti Kaupþingsbanka í aðdraganda Hrunsins.
Eina skýringin sem ég hef heyrt um það mál er að Geir vilji ekki að segulband sem af símtalinu er til, verði gert almenningi aðgengilegt. Mér finnst það bara ekki skipta neinu andskotans máli. Ef við vitum ekki hvernig það mál gekk fyrir sig þá vitum við ekki nokkurn skapaðan hlut um Hrunið. Við eigum alls ekki að láta stjórnmálaflokkana komast upp með að halda þessu leyndu.
Gallinn við svokallaða stjórnarandstöðu er sá að hún hefur ekkert úthald. Um leið og búið er að minnast á eitt atriði er vaðið í það næsta. Það er óhætt að segja að það sé eingöngu tveimur blaðamönnum á DV að þakka að hamrað hefur verið á Hönnu Birnu málinu í meira en ár. Afglöpin eru fleiri. Af hverju ekki að einbeita sér að einhverju ákveðnu máli og fylgja því fast eftir?
Eru fjölmiðlarnir gjörsamlega ónýtir í þessu tilliti? Svo virðist vera. Allir eru uppteknir við að líta sem skást út á fésbókinni, bæði fjölmiðlamenn og aðrir, og mega ekki vera að neinu öðru. Einmitt núna, þegar allir geta látið ljós sitt skína, þá skín ekki nokkurt fjandans ljós. Fjölmiðlarnir og fésbókin starfa af miklum heilindum sem ljósaslökkvarar. En er það hlutverk þeirra? Það held ég ekki.
Einu sinni fékk ég laun fyrir að fara að fyrirmælum tölvu. Reyndar gleymdi ég að telja þau laun fram til skatts og fékk bágt fyrir. Þetta var þegar heimsmeistaramót í skák fyrir tölvuforrit var haldið hér í Háskólanum í Reykjavík. Sum forritin voru nefnilega munaðarlaus. Núorðið er það viðurkennt af öllum að tölvur séu mun betri en mannfólkið í skák. Svo var ekki einu sinni. Þá kunnu tölvur ekki einföldustu grundvallarreglur í endatafli. Það er búið að lagfæra núna. Einhver maður sem ætti að hafa vit á því hélt því fram um daginn að eftir svona 5 til 10 ár mundu hugsandi tölvur komast að þeirri niðurstöðu að best væri að útrýma mannfólkinu. Enginn efast um að þær gætu það auðveldlega. Fyrirtæki í AI-bransanum keppast samt við að fullyrða að engin hætta sé á ferðum. Öryggið sé alveg 100%. Ég held að öryggið sé ekki nærri svo mikið og útrýming mannkynsins geti hæglega dregist lengur en í 10 ár. Nútímamenning byggist nær eingöngu á tölvum. Hugsun þeirra fer óðum fram. Það er alls ekki ólíklegt (jafnvel sennilegt) að innan skamms muni þær komast að þeirri niðurstöðu að mannkynið sé allsstaðar til óþurftar. Og þá verður engin þörf að spyrja að leikslokum.
Ég er að vona að eftir að ég er dauður, þá verði einhver til þess að velja skástu og tímalaustustu blogg-greinarnar mínar og gefa þær út á bók. Rafbók að sjálfsögðu. Ég er nefnilega svo sjálfmiðaður að ég held endilega að hægt væri að setja þær skysamlega saman, svo þær yrðu bóktækar. Slík útgáfa þyrfti ekki að kosta mikið. Auk þess vanda ég mig dálítið við skrifin. A.m.k. stundum.
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Efni
Tenglar
Blogg
- Áslaug Benediktsdóttir
- Harpa Hreinsdóttir
- Atli Harðarson
- Anna K. Kristjánsdóttir
- Erlingur Brynjólfsson
- Nanna Rögnvaldardóttir
- Þórunn Sigurjónsdóttir
- Susan Polgar
Skák
Ýmislegt
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
2006
Des. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 | 31 |
Bloggvinir
- Anna Einarsdóttir
- Umsjónarmenn blog.is
- Egill Jóhannsson
- Róslín A. Valdemarsdóttir
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Sigríður Jósefsdóttir
- Arnþór Helgason
- Birgitta Jónsdóttir
- Lýður Pálsson
- Einar Sveinbjörnsson
- Gylfi Guðmundsson
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Villi Asgeirsson
- Sigurður Þór Guðjónsson
- Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson
- Egill Bjarnason
- Jóhann Björnsson
- Ólafur fannberg
- TómasHa
- Ágúst H Bjarnason
- Brjánn Guðjónsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Ragnheiður
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Magnús Helgi Björgvinsson
- Kári Harðarson
- Eiríkur Mörk Valsson
- Ragnhildur Sverrisdóttir
- Ridar T. Falls
- Konráð Ragnarsson
- Vefritid
- Svanur Sigurbjörnsson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Sveinn Ingi Lýðsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Pawel Bartoszek
- Haukur Nikulásson
- Bjarni Harðarson
- Eiður Svanberg Guðnason
- Ómar Ragnarsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- AK-72
- Sigurður Ingi Kjartansson
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Þórarinn Þ Gíslason
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Púkinn
- Lady Elín
- Kolbrún Baldursdóttir
- Jens Guð
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Hrannar Baldursson
- Jón Bjarnason
- Ár & síð
- Jón Ingi Cæsarsson
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Svavar Alfreð Jónsson
- Benedikt Henry Segura
- Marinó G. Njálsson
- Theódór Norðkvist
- Jón Ingvar Jónsson
- Gunnar Þórðarson
- Ólafur Fr Mixa
- Gíslína Erlendsdóttir
- Jóna Á. Gísladóttir
- Heimir Tómasson
- Guðmundur Pálsson
- Ólafur Ragnarsson
- gudni.is
- Guðbjörn Guðbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- G. Valdimar Valdemarsson
- Sigmar Þór Sveinbjörnsson
- Gestur Gunnarsson
- Óskar Þorkelsson
- Ylfa Mist Helgadóttir
- Kristinn Theódórsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Evrópusamtökin, www.evropa.is
- Lýður Árnason
- Brattur
- Marta B Helgadóttir
- Hallmundur Kristinsson
- Sigurður Hreiðar
- Eyþór Árnason
- Bergur Thorberg
- kloi
- Hjalti Tómasson
- Kristjana Bjarnadóttir
- Bjarni Sæmundsson
- Máni Ragnar Svansson
- Emil Hannes Valgeirsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Torfi Kristján Stefánsson
- Haukur Baukur
- Sverrir Stormsker
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Helga Kristjánsdóttir
- Loopman
- Einar B Bragason
- Erna Bjarnadóttir
- Ólafur "Tröllabarn" Georgsson
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Gísli Tryggvason
- Helgi Guðmundsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Þráinn Jökull Elísson
- Þorsteinn Briem
- Hjálmtýr V Heiðdal
- Himmalingur
- Ketill Sigurjónsson
- Sæmundur Bjarnason
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Bjarni Rúnar Einarsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Bókakaffið á Selfossi
- Guðni Karl Harðarson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson)
- Marteinn Unnar Heiðarsson
- Einar G. Harðarson
- Bloggrýnirinn
- kreppukallinn
- Jack Daniel's
- Guðjón Baldursson
- Már Wolfgang Mixa
- Dóra litla
- hilmar jónsson
- Hörður B Hjartarson
- Kristín Bjarnadóttir
- Arnþrúður Karlsdóttir
- Baldur Hermannsson
- Eygló
- Finnur Bárðarson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Loftslag.is
- Jón Daníelsson
- Elín Helga Egilsdóttir
- Helga Þórðardóttir
- Sigurður Grétar Guðmundsson
- Leikhópurinn Lotta
- Dúa
- Hulda Haraldsdóttir
- Kama Sutra
- Bjarni Kristjánsson
- Kristinn Theódórsson
- Blogblaster
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jóhanna Magnúsdóttir
- Andspilling
- Valmundur Valmundsson
- Dingli
- Kristinn Karl Brynjarsson
- Sigurður Einarsson
- Mathieu Grettir Skúlason
- Árni Matthíasson
- BookIceland
- FORNLEIFUR
- Guðbjörn Jónsson
- Högni Snær Hauksson
- Ingólfur Sigurðsson
- Stefán Júlíusson
- Þorsteinn Siglaugsson
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.