24.10.2014 | 22:41
2235 - Um byssur o.fl.
Ég er þeirrar skoðunar að Alþingi muni aldrei samþykkja nýja stjórnarskrá sem líkleg er til að draga úr valdi þess. Það er þó einmitt það sem meirihluti fólks sennilega vill og telur vera raunverulegt lýðræði.
Með lýðveldisstofnuninni á Þingvöllum árið 1944 var hins vegar ákveðið að hér skyldi vera þingbundið lýðræði. Með öðrum orðum fulltrúalýðræði.
Beint lýðræði er þó það sem margir virðast vilja og álíta líklega að sú tegund lýðræðis sem hér hefur ríkt í meira en 70 ár henti okkur Íslendingum alls ekki. Beint lýðræði væri hugsanlegt hér, einmitt vegna fámennis þjóðarinnar. Hjá milljónaþjóðum væri það eflaust óhugsandi.
Sé ekki frá því gengið að völd Alþingis haldist (að mestu a.m.k.) er lítil von til þess að það Alþingi sem nú situr samþykki þau stjórnarskrárdrög sem þar liggja fyrir. Ekki er hægt að ætlast til að núverandi stjórnvöld leggi lykkju á leið sína til að þóknast stjórnarandstöðunni að þessu leyti.
Vel getur samt verið að fyrir næstu alþingiskosningar verði þetta mál til umræðu.
Man ekki hvort ég hef skrifað um þetta áður og nenni ekki að gá að því. Ég hugsa að ég hafi sjaldan orðið eins hissa og þegar ég horfði á myndbandið af The invisible gorilla í annað skipti. Þetta myndband er auðfundið á Youtube og þó ég linki ekki í það hér er mjög auðvelt að finna það þar og svo eru líka margar aðrar sjónhverfingamyndir þar. Ég sá nefnilega alls ekki górilluna í fyrsta sinn sem ég horfði á myndbandið og trúði því varla að hún hefði verið þarna. Man að ég hugsaði: Eru sjónhverfingar þá virkilega svona einfaldar? Mæli hiklaust með að menn kynni sér þetta sjálfir á youtube og gæti þess að horfa vel á fyrri hluta myndbandsins og fara nákvæmlega eftir þeim fyrirmælum sem þar eru gefin.
Því er ekki að neita að t.d. Egill Helgason og Ómar Ragnarsson eru ansi duglegir við bloggið og gott ef þeir hafa ekki heilmikil áhrif. Jónas Kristjánsson er að sjálfsögðu mikið lesinn líka, en hann er ekki nærri eins orðvar og þeir hinir. Kannski er hann þessvegna áhrifaminni. Já, þeir eru afar duglegir og skrifa bara um pólitískt rifrildi og fréttir. DV stingur að vísu á mörgu kýlinu, en er samt mikið fyrir að skjóta fyrst og spyrja svo.
Allir stjórnmálaskribentar í dag eru uppteknir af byssumálinu. Hvernig er hægt að klúðra málum svona gersamlega? Mér finnst allir sem um þetta hafa fjallað hafa gert tómar vitleysur. Ég undanskil ekki þá sem deilt hafa á lögregluna. Lögreglan er ekki framlenging á ríkisstjórninni og ég geri alls ekki ráð fyrir að ríkisstjórnin sé svo skyni skroppin að láta á slíkt reyna. Traust milli lögreglu og almennings hefur verið fremur mikið hér á landi hingað til, en byssumálið getur hæglega skemmt slíkt.
Já, það er gott að hvíla sig eftir langt og strangt ferðalag.
Ágætt að vita að þetta er göngustígur, en ekki eitthvað allt annað.
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Efni
Tenglar
Blogg
- Áslaug Benediktsdóttir
- Harpa Hreinsdóttir
- Atli Harðarson
- Anna K. Kristjánsdóttir
- Erlingur Brynjólfsson
- Nanna Rögnvaldardóttir
- Þórunn Sigurjónsdóttir
- Susan Polgar
Skák
Ýmislegt
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
2006
Bloggvinir
- Anna Einarsdóttir
- Umsjónarmenn blog.is
- Egill Jóhannsson
- Róslín A. Valdemarsdóttir
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Sigríður Jósefsdóttir
- Arnþór Helgason
- Birgitta Jónsdóttir
- Lýður Pálsson
- Einar Sveinbjörnsson
- Gylfi Guðmundsson
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Villi Asgeirsson
- Sigurður Þór Guðjónsson
- Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson
- Egill Bjarnason
- Jóhann Björnsson
- Ólafur fannberg
- TómasHa
- Ágúst H Bjarnason
- Brjánn Guðjónsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Ragnheiður
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Magnús Helgi Björgvinsson
- Kári Harðarson
- Eiríkur Mörk Valsson
- Ragnhildur Sverrisdóttir
- Ridar T. Falls
- Konráð Ragnarsson
- Vefritid
- Svanur Sigurbjörnsson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Sveinn Ingi Lýðsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Pawel Bartoszek
- Haukur Nikulásson
- Bjarni Harðarson
- Eiður Svanberg Guðnason
- Ómar Ragnarsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- AK-72
- Sigurður Ingi Kjartansson
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Þórarinn Þ Gíslason
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Púkinn
- Lady Elín
- Kolbrún Baldursdóttir
- Jens Guð
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Hrannar Baldursson
- Jón Bjarnason
- Ár & síð
- Jón Ingi Cæsarsson
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Svavar Alfreð Jónsson
- Benedikt Henry Segura
- Marinó G. Njálsson
- Theódór Norðkvist
- Jón Ingvar Jónsson
- Gunnar Þórðarson
- Ólafur Fr Mixa
- Gíslína Erlendsdóttir
- Jóna Á. Gísladóttir
- Heimir Tómasson
- Guðmundur Pálsson
- Ólafur Ragnarsson
- gudni.is
- Guðbjörn Guðbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- G. Valdimar Valdemarsson
- Sigmar Þór Sveinbjörnsson
- Gestur Gunnarsson
- Óskar Þorkelsson
- Ylfa Mist Helgadóttir
- Kristinn Theódórsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Evrópusamtökin, www.evropa.is
- Lýður Árnason
- Brattur
- Marta B Helgadóttir
- Hallmundur Kristinsson
- Sigurður Hreiðar
- Eyþór Árnason
- Bergur Thorberg
- kloi
- Hjalti Tómasson
- Kristjana Bjarnadóttir
- Bjarni Sæmundsson
- Máni Ragnar Svansson
- Emil Hannes Valgeirsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Torfi Kristján Stefánsson
- Haukur Baukur
- Sverrir Stormsker
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Helga Kristjánsdóttir
- Loopman
- Einar B Bragason
- Erna Bjarnadóttir
- Ólafur "Tröllabarn" Georgsson
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Gísli Tryggvason
- Helgi Guðmundsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Þráinn Jökull Elísson
- Þorsteinn Briem
- Hjálmtýr V Heiðdal
- Himmalingur
- Ketill Sigurjónsson
- Sæmundur Bjarnason
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Bjarni Rúnar Einarsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Bókakaffið á Selfossi
- Guðni Karl Harðarson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson)
- Marteinn Unnar Heiðarsson
- Einar G. Harðarson
- Bloggrýnirinn
- kreppukallinn
- Jack Daniel's
- Guðjón Baldursson
- Már Wolfgang Mixa
- Dóra litla
- hilmar jónsson
- Hörður B Hjartarson
- Kristín Bjarnadóttir
- Arnþrúður Karlsdóttir
- Baldur Hermannsson
- Eygló
- Finnur Bárðarson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Loftslag.is
- Jón Daníelsson
- Elín Helga Egilsdóttir
- Helga Þórðardóttir
- Sigurður Grétar Guðmundsson
- Leikhópurinn Lotta
- Dúa
- Hulda Haraldsdóttir
- Kama Sutra
- Bjarni Kristjánsson
- Kristinn Theódórsson
- Blogblaster
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jóhanna Magnúsdóttir
- Andspilling
- Valmundur Valmundsson
- Dingli
- Kristinn Karl Brynjarsson
- Sigurður Einarsson
- Mathieu Grettir Skúlason
- Árni Matthíasson
- BookIceland
- FORNLEIFUR
- Guðbjörn Jónsson
- Högni Snær Hauksson
- Ingólfur Sigurðsson
- Stefán Júlíusson
- Þorsteinn Siglaugsson
Athugasemdir
Þú ert raunsær Sæmundur. Þetta alþingi og folkið þarumkring er ekki samspila okkur í því sem okkur liggur næst á hjarta. En ég er fæddur í Kringlumýrinni í RVK en fluttist til Selfoss 1954 held ég. Vann í kjötbúð KÁ með Ingólfi Bárðars. Eldri systir mín er gift Dodda rafvirkja á Selfossi og búa þau þar enn sjálfur fór ég aftur í RVK ca. 1960.. Þú skrifar um vopnakaupin. þann 6-6-2010 voru keyptar margar margar KP5 í Noregi. Ein kona úr Landsbankanum og tveir úr ráðuneytum ef ég man rétt, fóru með tvo miljarða til Noregs og keiptu þá þennan aragrúa af gömlu gerðinni semsagt KP5. Ég hef pappíra undir höndum sem staðfeta þetta að miklu leiti. Þessvegna þetta fjaðrafok út af þessu "nýju" KP5!!.Rannsóknarblaðamennska hér er ekki upp á marga fiska nema hjá örfáum. Er svo slæmt ástandið og hræðslan svo mikil hjá "klíkunni að það er ruðst inn á mína einkatölvu og skjöl fjarlægð. Nú er ég bara venjulegur ellismellur eins og þú "1943" og ætti að fá að vera í friði. Ég er búinn að vera tæp 40 ár erlendis í Svíþjóð og nú seinast í góða landinu Norge og fer sennilega þangað alfluttur næsta vor ef heilsan verður ok. Þar hef ég núna mínar rætur og þjóðerniskennd.
lifðu heill Sæmundur
Eyjólfur Jónsson, 25.10.2014 kl. 13:15
Takk Eyjólfur.
Ég man vel eftir Ingólfi Bárðar. Vann í Pantanadeildinni hjá Helga Ágústssyni. Tók að mig minnir mynd af Ingólfi þar sem hann stökk yfir 1,83 í hástökki á Þjórsártúnsmóti. Byssumálið er að stærstum hluta stormur í vatnsglasi. Gangi þér vel.
Sæmundur Bjarnason, 26.10.2014 kl. 13:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.