22.10.2014 | 13:21
2234 - Feminismi
Jú, ég er greinilega farinn að blogga miklu sjaldnar en áður. T.d. er ég alveg andvígur því að fjölyrða um byssueign lögreglunnar, þó margir hafi fengið krampa í gikkfingurinn undanfarna daga. Ekki dugir samt alveg að hætta. Sífellt fjölgar þeim sem blogga á fésbókinni en það hef ég ekki lært nógu vel. Er líka orðið nokk sama hvort einhverjir eða engir lesa þessi ósköp hjá mér og held áfram að blogga hér á Moggablogginu. Ætli ég sé ekki búinn að vera hvað lengst allra hér.
Orð skipta máli. Því hefur verið haldið fram að feminismi sé það sama og kynbundið jafnrétti. En feminismi er misheppnað orð. Það gekk miklu betur að innprenta þjóðinni að orðið samkynhneigð sé jákvætt og vel heppnað orð. Jafnvel útlensku orðin hommi og lesbía hafa fengið fremur jákvæða merkingu og árangur þeirra sem barist hafa fyrir réttri orðanotkum þar, má sjá í gleðigöngunni svonefndu. Kynvilla heyrist varla nefnd á nafn núorðið. En að halda því fram að feminismi sé það sama og kynbundið jafnrétti er vonlaust og brýtur í bága við viðurkenndar íslenskureglur. Andstæðingar hans hafa haldið því fram að ekki sé hægt að nota orð sem dregur svo augljóslega taum annars kynsins sem samheiti fyrir kynbundið jafnrétti sem auðvitað er vandræðalegt orðalag og fram að þessu hefur það verið misnotað af stjórnmálaflokkum.
Andstæðingar feminisma hafa á margan hátt rétt fyrir sér og hafa tínt til dæmi um að á karlmenn halli á ákveðnum sviðum. Jafnvel er það til að þeir haldi því fram að ekki sé hægt að snúa sér að kvenfólki fyrr en það hefur verið leiðrétt. Þeir sem vilja kynbundið jafnrétti þurfa þó að forgangsraða. Yfirgangur karla gagnvart kvenfólki á næstum öllum sviðum stingur þó auðvitað mest í augun og ekkert er því til fyrirstöðu að byrja þar. Orðið feminismi hefur þó ekki fengið þann jákvæða hljóm sem það ætti að hafa og kvenréttindi ekki heldur, hvernig sem á því stendur.
Auðvitað gengur raunverulegt jafnrétti til launa og yfirráða yfir eigin líkama grátlega seint hjá konum. Ég er þó svo gamall að ég man vel eftir því að verkalýðsfélög sömdu um sérstök laun fyrir kvenfólk, en hærri fyrir karlmenn. Til voru þeir sem héldu að fullum jöfnuði á því sviði og öðrum hefði verið náð þegar lagalegt jafnrétti náðist. Svo var þó alls ekki. Misréttið grasseraði áfram og gerir enn. Gott ef það versnar ekki, sem er hræðilegt. Sjálft orðið feminismi stendur e.t.v. í vegi fyrir þeirri hugarfarsbreytingu sem nausynlegt er að verði. Auk þess gera sumir yfirlýstir feministar sér leik að því að egna andstæðinga sína til óhappaverka. Það er þó lítilvægt og mundi að mestu hverfa ef tækist að snúa hug þjóðarinnar til jákvæðs feminisma með réttu orðalagi og koma fyrir kattarnef hinum pólitíska stimpli sem feminismi hefur óneitanlega fengið á sig.
Óskaplega eru þau mörg matarbloggin og uppskrifabækurnar sem skrifaðar eru og auglýstar. Lifir fólk bara fyrir mat? Sem betur fer er þetta næstum allt tómt bull og vel hægt að vera án þess. Sennilega er besta megrunarráðið einfaldlega að borða bara svolítið minna.
Bílafljótið brýst áfram, óstöðvandi með öllu.
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Efni
Tenglar
Blogg
- Áslaug Benediktsdóttir
- Harpa Hreinsdóttir
- Atli Harðarson
- Anna K. Kristjánsdóttir
- Erlingur Brynjólfsson
- Nanna Rögnvaldardóttir
- Þórunn Sigurjónsdóttir
- Susan Polgar
Skák
Ýmislegt
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
2006
Bloggvinir
- Anna Einarsdóttir
- Umsjónarmenn blog.is
- Egill Jóhannsson
- Róslín A. Valdemarsdóttir
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Sigríður Jósefsdóttir
- Arnþór Helgason
- Birgitta Jónsdóttir
- Lýður Pálsson
- Einar Sveinbjörnsson
- Gylfi Guðmundsson
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Villi Asgeirsson
- Sigurður Þór Guðjónsson
- Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson
- Egill Bjarnason
- Jóhann Björnsson
- Ólafur fannberg
- TómasHa
- Ágúst H Bjarnason
- Brjánn Guðjónsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Ragnheiður
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Magnús Helgi Björgvinsson
- Kári Harðarson
- Eiríkur Mörk Valsson
- Ragnhildur Sverrisdóttir
- Ridar T. Falls
- Konráð Ragnarsson
- Vefritid
- Svanur Sigurbjörnsson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Sveinn Ingi Lýðsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Pawel Bartoszek
- Haukur Nikulásson
- Bjarni Harðarson
- Eiður Svanberg Guðnason
- Ómar Ragnarsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- AK-72
- Sigurður Ingi Kjartansson
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Þórarinn Þ Gíslason
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Púkinn
- Lady Elín
- Kolbrún Baldursdóttir
- Jens Guð
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Hrannar Baldursson
- Jón Bjarnason
- Ár & síð
- Jón Ingi Cæsarsson
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Svavar Alfreð Jónsson
- Benedikt Henry Segura
- Marinó G. Njálsson
- Theódór Norðkvist
- Jón Ingvar Jónsson
- Gunnar Þórðarson
- Ólafur Fr Mixa
- Gíslína Erlendsdóttir
- Jóna Á. Gísladóttir
- Heimir Tómasson
- Guðmundur Pálsson
- Ólafur Ragnarsson
- gudni.is
- Guðbjörn Guðbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- G. Valdimar Valdemarsson
- Sigmar Þór Sveinbjörnsson
- Gestur Gunnarsson
- Óskar Þorkelsson
- Ylfa Mist Helgadóttir
- Kristinn Theódórsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Evrópusamtökin, www.evropa.is
- Lýður Árnason
- Brattur
- Marta B Helgadóttir
- Hallmundur Kristinsson
- Sigurður Hreiðar
- Eyþór Árnason
- Bergur Thorberg
- kloi
- Hjalti Tómasson
- Kristjana Bjarnadóttir
- Bjarni Sæmundsson
- Máni Ragnar Svansson
- Emil Hannes Valgeirsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Torfi Kristján Stefánsson
- Haukur Baukur
- Sverrir Stormsker
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Helga Kristjánsdóttir
- Loopman
- Einar B Bragason
- Erna Bjarnadóttir
- Ólafur "Tröllabarn" Georgsson
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Gísli Tryggvason
- Helgi Guðmundsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Þráinn Jökull Elísson
- Þorsteinn Briem
- Hjálmtýr V Heiðdal
- Himmalingur
- Ketill Sigurjónsson
- Sæmundur Bjarnason
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Bjarni Rúnar Einarsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Bókakaffið á Selfossi
- Guðni Karl Harðarson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson)
- Marteinn Unnar Heiðarsson
- Einar G. Harðarson
- Bloggrýnirinn
- kreppukallinn
- Jack Daniel's
- Guðjón Baldursson
- Már Wolfgang Mixa
- Dóra litla
- hilmar jónsson
- Hörður B Hjartarson
- Kristín Bjarnadóttir
- Arnþrúður Karlsdóttir
- Baldur Hermannsson
- Eygló
- Finnur Bárðarson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Loftslag.is
- Jón Daníelsson
- Elín Helga Egilsdóttir
- Helga Þórðardóttir
- Sigurður Grétar Guðmundsson
- Leikhópurinn Lotta
- Dúa
- Hulda Haraldsdóttir
- Kama Sutra
- Bjarni Kristjánsson
- Kristinn Theódórsson
- Blogblaster
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jóhanna Magnúsdóttir
- Andspilling
- Valmundur Valmundsson
- Dingli
- Kristinn Karl Brynjarsson
- Sigurður Einarsson
- Mathieu Grettir Skúlason
- Árni Matthíasson
- BookIceland
- FORNLEIFUR
- Guðbjörn Jónsson
- Högni Snær Hauksson
- Ingólfur Sigurðsson
- Stefán Júlíusson
- Þorsteinn Siglaugsson
Athugasemdir
Góður pistill Sæmundur. Og ekki hætta að blogga hér. Það eru ekki allir á fésbókinni
Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 22.10.2014 kl. 13:57
Takk, Jóhannes.
Sæmundur Bjarnason, 22.10.2014 kl. 17:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.