14.10.2014 | 07:21
2232 - Kaldur kjarnasamruni
Nú er komið nýtt kaldasamrunamál á kreik. Í eitt skipti fyrir öll á að leysa orkumál heimsins. Efið sem þessu fylgir er ansi stórt. Ég get ómögulega fallist á þær skýringar sem gefnar hafa verið. En þeir sem áhuga hafa á þessum málum og þekkingu til að skilja þau, munu að sjálfsögðu fylgjast vel með. Ef það er rétt sem haldið er fram þarna, getur það hæglega umbylt heiminum öllum eins og við þekkjum hann. Hræddastur er ég samt um að þetta sé tóm vitleysa eða að svo margir muni stökkva á þennan vagn að hjá nýju hruni verði ekki komist. Ekki bara hér á Íslandi, heldur víða um lönd. Þegar álverið í Straumsvík var reist á sínum tíma var það á síðasta séns. Kjarnorkan var í þann veginn að taka yfir. Svo sögðu a.m.k. vísir menn.
Sjálfstæðismenn eru enn í þeirri afneitun að fyrir utan ógnina erlendis frá hafi það verið pólitískt plott sem kom hinni vonlausu Haarde-stjórn frá völdum. Sjálfstæðisflokkurinn hafði hamast við það árum saman að láta allt hér reka á reiðnum. Fyrst var treyst á framsóknarflokkinn en þegar hann gat ekki lengur halað inn nógu mörg atkvæði (Vantaði Sigmund Davíð mundi einhver segja) þá var ákveðið að reyna við samfylkinguna. Jú, jú. Hún var til í að prófa og tilraunin var gerð. Því miður var samfylkingarfólkið engu betra en framsóknarliðið og áfram var Hrunið undirbúið.
Minnir að það hafi verið í síðasta bloggi sem ég var eitthvað að barma mér yfir því að ég tímdi ekki að kaupa bækur eða neitt annað sem ekki er hægt að éta eða gefa barnabörnunum. Margrét Rósa Sigurðardóttir hafði samband við mig á fésbókinni og bauðst til að lána mér bókina eftir Margréti Tryggvadóttir. Auðvitað þáði ég það með þökkum og þannig kom hún í veg fyrir að ég gæti haldið því fram að ég hefði aldrei neinn ávinning af bloggstarfseminni. Á bókasafninu hefði ég auðvitað getað pantað þessa bók, en það hefði væntanlega kostað.
Mér finnst í lagi að forsætisráðherra landsins láti eins og asni öðru hvoru, ef hann er eins og maður þess á milli. (Kannski er hann það þó ekki.) Sá ekki þáttinn á Stöð 2 þar sem hann var látinn kasta pílum í mynd af Jóhönnu Sigurðardóttur. Hef heldur aldrei séð þátt með Loga Eiðssyni. Man bara vel eftir pabba hans. Svona er ég nú gamall. Horfi stundum á hraðfréttir og finnst Gunnar á Völlum og Benni oft meinfyndnir og finnst hraðfréttir (bæði nú og fyrr) það af og til einnig, og að ég sé ekki að svíkja aldur minn með því. Auðvitað er kjánalegt að láta peninga sem innheimtir eru af bláfátæku barnafólki jafnt og öðrum renna í svona vitleysu, og hugsun svipuð því varð frú Thatcher að falli á endanum, þrátt fyrir stríðsfrægð. Aftur á móti er ég búinn að fá nóg af spurningaþáttum og finnst þeir hundleiðinlegir, séstaklega auglýsingamennskan í lok þeirra.
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Efni
Tenglar
Blogg
- Áslaug Benediktsdóttir
- Harpa Hreinsdóttir
- Atli Harðarson
- Anna K. Kristjánsdóttir
- Erlingur Brynjólfsson
- Nanna Rögnvaldardóttir
- Þórunn Sigurjónsdóttir
- Susan Polgar
Skák
Ýmislegt
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
2006
Bloggvinir
- Anna Einarsdóttir
- Umsjónarmenn blog.is
- Egill Jóhannsson
- Róslín A. Valdemarsdóttir
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Sigríður Jósefsdóttir
- Arnþór Helgason
- Birgitta Jónsdóttir
- Lýður Pálsson
- Einar Sveinbjörnsson
- Gylfi Guðmundsson
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Villi Asgeirsson
- Sigurður Þór Guðjónsson
- Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson
- Egill Bjarnason
- Jóhann Björnsson
- Ólafur fannberg
- TómasHa
- Ágúst H Bjarnason
- Brjánn Guðjónsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Ragnheiður
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Magnús Helgi Björgvinsson
- Kári Harðarson
- Eiríkur Mörk Valsson
- Ragnhildur Sverrisdóttir
- Ridar T. Falls
- Konráð Ragnarsson
- Vefritid
- Svanur Sigurbjörnsson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Sveinn Ingi Lýðsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Pawel Bartoszek
- Haukur Nikulásson
- Bjarni Harðarson
- Eiður Svanberg Guðnason
- Ómar Ragnarsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- AK-72
- Sigurður Ingi Kjartansson
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Þórarinn Þ Gíslason
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Púkinn
- Lady Elín
- Kolbrún Baldursdóttir
- Jens Guð
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Hrannar Baldursson
- Jón Bjarnason
- Ár & síð
- Jón Ingi Cæsarsson
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Svavar Alfreð Jónsson
- Benedikt Henry Segura
- Marinó G. Njálsson
- Theódór Norðkvist
- Jón Ingvar Jónsson
- Gunnar Þórðarson
- Ólafur Fr Mixa
- Gíslína Erlendsdóttir
- Jóna Á. Gísladóttir
- Heimir Tómasson
- Guðmundur Pálsson
- Ólafur Ragnarsson
- gudni.is
- Guðbjörn Guðbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- G. Valdimar Valdemarsson
- Sigmar Þór Sveinbjörnsson
- Gestur Gunnarsson
- Óskar Þorkelsson
- Ylfa Mist Helgadóttir
- Kristinn Theódórsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Evrópusamtökin, www.evropa.is
- Lýður Árnason
- Brattur
- Marta B Helgadóttir
- Hallmundur Kristinsson
- Sigurður Hreiðar
- Eyþór Árnason
- Bergur Thorberg
- kloi
- Hjalti Tómasson
- Kristjana Bjarnadóttir
- Bjarni Sæmundsson
- Máni Ragnar Svansson
- Emil Hannes Valgeirsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Torfi Kristján Stefánsson
- Haukur Baukur
- Sverrir Stormsker
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Helga Kristjánsdóttir
- Loopman
- Einar B Bragason
- Erna Bjarnadóttir
- Ólafur "Tröllabarn" Georgsson
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Gísli Tryggvason
- Helgi Guðmundsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Þráinn Jökull Elísson
- Þorsteinn Briem
- Hjálmtýr V Heiðdal
- Himmalingur
- Ketill Sigurjónsson
- Sæmundur Bjarnason
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Bjarni Rúnar Einarsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Bókakaffið á Selfossi
- Guðni Karl Harðarson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson)
- Marteinn Unnar Heiðarsson
- Einar G. Harðarson
- Bloggrýnirinn
- kreppukallinn
- Jack Daniel's
- Guðjón Baldursson
- Már Wolfgang Mixa
- Dóra litla
- hilmar jónsson
- Hörður B Hjartarson
- Kristín Bjarnadóttir
- Arnþrúður Karlsdóttir
- Baldur Hermannsson
- Eygló
- Finnur Bárðarson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Loftslag.is
- Jón Daníelsson
- Elín Helga Egilsdóttir
- Helga Þórðardóttir
- Sigurður Grétar Guðmundsson
- Leikhópurinn Lotta
- Dúa
- Hulda Haraldsdóttir
- Kama Sutra
- Bjarni Kristjánsson
- Kristinn Theódórsson
- Blogblaster
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jóhanna Magnúsdóttir
- Andspilling
- Valmundur Valmundsson
- Dingli
- Kristinn Karl Brynjarsson
- Sigurður Einarsson
- Mathieu Grettir Skúlason
- Árni Matthíasson
- BookIceland
- FORNLEIFUR
- Guðbjörn Jónsson
- Högni Snær Hauksson
- Ingólfur Sigurðsson
- Stefán Júlíusson
- Þorsteinn Siglaugsson
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.