1953 - Framsókn á að mynda stjórn til vinstri

Eflaust eru margar skýringar á afhroði ríkisstjórnarflokkanna í nýafstöðnum kosningum. Það er ekki eins og þetta þurfi að koma á óvart. Skriftin hefur lengi verið á veggnum. Af hverju í ósköpunum vilja þeir flokkar sem hafa myndað ríkisstjórnina alls ekki hlusta á fólk? Kunna þeir ekkert að notfæra sér skoðanakannanir? Eru þeir úr öllum tengslum við almenning í landinu? 

Sennilega væri best að Samfylkingin og Vinstri grænir hyrfu alveg úr íslenskum stjórnmálum. Það er til nóg af vinstri sinnuðu fólki sem getur tekið við. Jafnvel á alþingi. Það er Jóhönnu og Steingrími að kenna (ef endilega þarf að persónugera þetta.) að íhaldsöflin ná nú ef til vill að valta yfir allt það hugsjónafólk sem til er í landinu og hefur þá trú að umhverfismálin séu í þann veginn að verða að mikilvægustu málum heimsins. Fjármál öll eru tittlingaskítur í samanburðinum. Það er hægt að lifa án hagvaxtar.

Ég lít þannig á stjórnmálin að þar sé einkum um að ræða hægri og vinstri stefnu. Vissulega er sú flokkun eftir mínu höfði, en einhverjir eru áreiðanlega sammála mér. Samfylkingin og Vinstri grænir fengu umboð í kosningunum 2009 til að stjórna landinu. Greinilega álitu þeir flokkar sig ekki hafa fengið umboð til að breyta hefðum á alþingi og stjórnmálunum þar með þó löngun hafi verið til slíks og eðlilegt að álíta að það mætti gera vegna Hrunsins. Flokkarnir þorðu beinlínis ekki að ganga á þann hátt gegn hagsmunum auðvaldsins sem þurft hefði og því fór sem fór. Stuðningurinn nú við auðvaldsöflin er rúmlega 51%. Þ.e.a.s ef Framsóknarflokkurinn er sá auðvaldsflokkur sem margir álíta.Vinstri öflin hafa því enn þrátt fyrir hörmulega útreið í kosningunum um síðustu helgi og mikla sundrungu um 49% stuðning kosningabærs fólks í landinu.

Ef á þetta er litið er ekki hægt að komast hjá því að álíta heppilegra fyrir Framsókn að mynda þriggja flokka stjórn með Samfylkingunni og Vinstri grænum. Þó er alls ekki víst að svo verði.

IMG 3046Í Elliðaárdal.


mbl.is Sigmundur: „Við gefum okkur tíma“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Sæll Sæmundur,  Hægri og vinstri eru úreltur kvarði finnst mér. Hvar á til dæmis að staðsetja Pírata á þeim kvarða?  Eða Anarkista?  Ég er anarkisti og finnst óþægilegt að vera stillt svona upp við vegg. því samkvæmt kvarðanum er ég yzt til hægri miðað við afstöðu til ríkisafskipta.  En samt jafnlangt frá frjálshyggjugræðginni og Þorvaldur Þorvaldsson í Alþýðufylkingunni. Þetta þarf allt að hugsa upp á nýtt.

p.s  tékkaðu póstinn þinn

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 30.4.2013 kl. 00:41

2 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Það er alveg rétt Jóhannes, að vinstri - hægri er enginn einhlítur mælikvarði. Oftast er litið fyrst og fremst á mikil eða lítil ríkisafskipti. Hann getur samt hjálpað og ég er talsvert vanur honum. Mismunandi áherslur geta verið um fjölmarga hluti. Ekki síður innan flokka en milli þeirra.

Sæmundur Bjarnason, 30.4.2013 kl. 09:11

3 Smámynd: G. Valdimar Valdemarsson

Sæll Sæmundur,  Vinstri flokkarnir eins og þú skilgreinir þá fengu ekki nema um 40% fylgi í kosningunum.  Björt framtíð skilgreinir sig ekki sem vinstri flokk og allavega ekk ef afstaða til ríkisafskifta er mælikvarðinn.

G. Valdimar Valdemarsson, 30.4.2013 kl. 09:29

4 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Björt framtíð er útibú frá Samfylkingunni segja margir. Áherslur lýðræðisvaktarinnar eru sagðar líkar þeim hjá Bjartri framtíð og e.t.v. hjá Dögun líka. Þetta er allt samt fremur ruglingslegt.

Sæmundur Bjarnason, 30.4.2013 kl. 11:11

5 Smámynd: G. Valdimar Valdemarsson

Björt framtíð er frjálslyndur flokkur sem aðhyllist allt aðra hugmyndafræði en Samfylking.

Stundum virðist Samfylkingin ætla að vera svona pólitísk kjörbúð með eitthvað handa öllum, en oftast segist hún vera norrænn jafnaðarmannaflokkur.  Frjálslyndi er ekki einkenni norrænna jafnaðarmannaflokka.

Dögun og Lýðræðisvaktin lögðu höfuðáherslu á fá mál og bara eina lausn. Flokkarnir urðu til vegna þess að þeir voru of einstrengislegir í því að það væri bara einn sannleikur - þeirra sannleikur og allir áttu að undirgangast þá stefnu. 

Fjölbreytni er lykilorð í stefnu BF og í fjölbreyttu samnfélagi kalla viðfangsefnin á fjölbreyttar lausnir.  Þess vegna einblínum við frekar á markmið sem við viljum ná og finnum lausnir sem henta viðfangsefnunum og leiða okkur að markmiðunum.

G. Valdimar Valdemarsson, 30.4.2013 kl. 11:23

6 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Eftirá er auðvelt að sjá að BF, Dögun og Lýðræðisvaktin (og sennilega fleiri) hefðu átt að bjóða fram sameiginlega. Hverjum það var að kenna að svo var ekki gert skiptir engu máli núna.

Sæmundur Bjarnason, 30.4.2013 kl. 11:51

7 identicon

Ætlar fólk aldrei að gera greinarmun á hinni gömlu og að því er virðist dauðu og sundruðu Samfylkingu og hinni nýju og frjálslyndu Björtu framtíð?

Skúli 30.4.2013 kl. 12:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband