21.8.2012 | 21:37
1743 - DoctorE
Já, já. Ég held að það verði kannski einhver bið á því að ég setji upp nýtt blogg. Mér dettur nefnilega ekkert í hug.
Þetta Assange-mál er þannig vaxið að bresk stjórnvöld ættu sem minnst að skipta sér af því. Sporin hræða. Ef það heldur áfram svona lengi enn getur það farið að hafa pólitísk áhrif.
Hver er doctor e? Það er spurningin. Annars skiptir hún mig engu. Mér finnst allt í lagi að menn noti dulnefni. Auðvitað er samt hægt að misnota þann rétt eins og annan. Það er a.m.k nauðsynlegt að halda þeim möguleika opnum að menn geti sagt frá afbrotum fyrirtækja (t.d. í mengunarmálum) án áhættu fyrir sjálfa sig. Áreiðanlega verða alltaf einhverjir sem vilja gera mönnum það kleift.
Á sínum tíma ákvað ég að minnast reglulega á málið um Sögu Akraness og Kögunarmálið hans Teits. Bæði þessi mál eru farin að eldast og lítið gerist í þeim. Harpa Hreinsdóttir lætur okkur líklega vita ef eitthvað sérstakt gerist varðandi Sögu Akraness. Eflaust verður upplagt að rifja það mál stuttlega upp fyrir næstu bæjarstjórnarkosningar. Stór hópur kjósenda kýs þó alltaf eins svo kannski er það til lítils. Teitur Atlason bloggar reglulega um Kögunarmálið og þar gerist lítið líka. Þó er því haldið vakandi en í stóra Akranesmálinu virðast allir vera hættir við málshöfðanir.
Karlmaður um fertugt sem laminn var með glasi í miðborginni á Menningarnótt stökk út úr sjúkrabílnum þegar verið var að flytja hann undir læknishendur. Þrátt fyrir leit fannst maðurinn ekki aftur. Klukkutíma síðar var óskað eftir aðstoð lögreglu og hafði þá maðurinn snúið aftur á vettvang. Hann var mjög blóðugur eftir árásina. Í annað skiptið var honum komið í sjúkrabíl og tókst það í annarri tilraun að koma manninum á slysadeild.
Þessi klausa er af mbl.is og þó ég sé búinn að stytta hana talsvert má vel stytta hana meira. Annars er það ekki þessvegna sem ég birti hana hér heldur er þetta greinilega ágætisefni í langa smásögu eða jafnvel skáldsögu. Takið eftir stóra M-inu í Menningarnótt. Þetta er nefnilega mjög menningarlegt.
Fór á bókasafnið áðan og fékk lánaðar jafnmargar hljóðbækur og lesbækur. Konuna við 1000 gráður fékk ég bæði sem hljóð og les. Er ekki enn búinn að gera upp við mig hvort ég nota. Ef ég held mig þá ekki við kyndilinn og ensku bækurnar. Er í mestu vandræðum með að velja mér bækur til að lesa. Byrja á mörgum en klára fáar.
Úr því sem komið er læt ég mér nægja að blogga. Undarlegur sá siður margra að gera lítið úr blogginu. Man vel eftir að hafa lesið á sínum tíma bloggið hans Ágústar Borgþórs og hann gerði jafnan lítið úr blogginu í samanburði við þau alvarlegu skrif sem hann fékkst við. Hef samt örugglega lesið mun fleiri blogg eftir hann en smásögur.
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Efni
Tenglar
Blogg
- Áslaug Benediktsdóttir
- Harpa Hreinsdóttir
- Atli Harðarson
- Anna K. Kristjánsdóttir
- Erlingur Brynjólfsson
- Nanna Rögnvaldardóttir
- Þórunn Sigurjónsdóttir
- Susan Polgar
Skák
Ýmislegt
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
2006
Des. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 | 31 |
Bloggvinir
- Anna Einarsdóttir
- Umsjónarmenn blog.is
- Egill Jóhannsson
- Róslín A. Valdemarsdóttir
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Sigríður Jósefsdóttir
- Arnþór Helgason
- Birgitta Jónsdóttir
- Lýður Pálsson
- Einar Sveinbjörnsson
- Gylfi Guðmundsson
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Villi Asgeirsson
- Sigurður Þór Guðjónsson
- Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson
- Egill Bjarnason
- Jóhann Björnsson
- Ólafur fannberg
- TómasHa
- Ágúst H Bjarnason
- Brjánn Guðjónsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Ragnheiður
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Magnús Helgi Björgvinsson
- Kári Harðarson
- Eiríkur Mörk Valsson
- Ragnhildur Sverrisdóttir
- Ridar T. Falls
- Konráð Ragnarsson
- Vefritid
- Svanur Sigurbjörnsson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Sveinn Ingi Lýðsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Pawel Bartoszek
- Haukur Nikulásson
- Bjarni Harðarson
- Eiður Svanberg Guðnason
- Ómar Ragnarsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- AK-72
- Sigurður Ingi Kjartansson
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Þórarinn Þ Gíslason
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Púkinn
- Lady Elín
- Kolbrún Baldursdóttir
- Jens Guð
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Hrannar Baldursson
- Jón Bjarnason
- Ár & síð
- Jón Ingi Cæsarsson
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Svavar Alfreð Jónsson
- Benedikt Henry Segura
- Marinó G. Njálsson
- Theódór Norðkvist
- Jón Ingvar Jónsson
- Gunnar Þórðarson
- Ólafur Fr Mixa
- Gíslína Erlendsdóttir
- Jóna Á. Gísladóttir
- Heimir Tómasson
- Guðmundur Pálsson
- Ólafur Ragnarsson
- gudni.is
- Guðbjörn Guðbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- G. Valdimar Valdemarsson
- Sigmar Þór Sveinbjörnsson
- Gestur Gunnarsson
- Óskar Þorkelsson
- Ylfa Mist Helgadóttir
- Kristinn Theódórsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Evrópusamtökin, www.evropa.is
- Lýður Árnason
- Brattur
- Marta B Helgadóttir
- Hallmundur Kristinsson
- Sigurður Hreiðar
- Eyþór Árnason
- Bergur Thorberg
- kloi
- Hjalti Tómasson
- Kristjana Bjarnadóttir
- Bjarni Sæmundsson
- Máni Ragnar Svansson
- Emil Hannes Valgeirsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Torfi Kristján Stefánsson
- Haukur Baukur
- Sverrir Stormsker
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Helga Kristjánsdóttir
- Loopman
- Einar B Bragason
- Erna Bjarnadóttir
- Ólafur "Tröllabarn" Georgsson
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Gísli Tryggvason
- Helgi Guðmundsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Þráinn Jökull Elísson
- Þorsteinn Briem
- Hjálmtýr V Heiðdal
- Himmalingur
- Ketill Sigurjónsson
- Sæmundur Bjarnason
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Bjarni Rúnar Einarsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Bókakaffið á Selfossi
- Guðni Karl Harðarson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson)
- Marteinn Unnar Heiðarsson
- Einar G. Harðarson
- Bloggrýnirinn
- kreppukallinn
- Jack Daniel's
- Guðjón Baldursson
- Már Wolfgang Mixa
- Dóra litla
- hilmar jónsson
- Hörður B Hjartarson
- Kristín Bjarnadóttir
- Arnþrúður Karlsdóttir
- Baldur Hermannsson
- Eygló
- Finnur Bárðarson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Loftslag.is
- Jón Daníelsson
- Elín Helga Egilsdóttir
- Helga Þórðardóttir
- Sigurður Grétar Guðmundsson
- Leikhópurinn Lotta
- Dúa
- Hulda Haraldsdóttir
- Kama Sutra
- Bjarni Kristjánsson
- Kristinn Theódórsson
- Blogblaster
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jóhanna Magnúsdóttir
- Andspilling
- Valmundur Valmundsson
- Dingli
- Kristinn Karl Brynjarsson
- Sigurður Einarsson
- Mathieu Grettir Skúlason
- Árni Matthíasson
- BookIceland
- FORNLEIFUR
- Guðbjörn Jónsson
- Högni Snær Hauksson
- Ingólfur Sigurðsson
- Stefán Júlíusson
- Þorsteinn Siglaugsson
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.