17.3.2011 | 00:45
1301 - Bækur
Tryggð mín við Moggabloggið er ótrúleg. Það eru varla nema hörðustu íhaldsmenn sem halda þar jafnlengi áfram og ég. Þó er ég ekki íhaldssamur. A.m.k. finnst mér það ekki sjálfum. Svei mér ef lesendum mínum er ekki að fjölga. Moggabloggið er þó stöðugt að missa vinsældir sínar. Velti nokkuð mikið fyrir mér hvort vinsældir skrifa minna eða óvinsældir eru undir bloggstaðnum komnar. Finnst þeir ekki hafa gert rétt sem héðan hafa farið með hávaða og látum útaf einhverjum stjórnmálalegum ástæðum og held að oft hafi þeir séð eftir því.
Margir verða til þess að kommenta á bloggið mitt. Vissulega eru það oft þeir sömu og kommentin frá þeim verða oft nokkurskonar samtal. Nýir aðilar bætast þó alltaf öðru hvoru við og flestir eru þeir jákvæðir.
Einn aðalgallinn við bloggið í sambandi við endurminningar er hve sundurlaust það er. Minningar þurfa helst að vera samhangandi og gera þarf ákveðnum tímabilum skil. Skapa þarf andrúmsloft með skrifunum og raða minningunum rétt niður. Það hentar ekki að setja það sem skrifað er á hverjum degi samstundis á bloggið. Annars er þetta auðvitað bara eitt vandamál af mörgum sem sá sem endurminningar vill skrifa verður að takast á við.
Fór á bókasöfnin í dag. Já, nú orðið þarf ég að fara oftar þangað en áður var vegna þess að á Borgarbókasafninu er búið að stytta lánstímann úr einum mánuði í 21 dag. Meðal bóka sem ég fékk lánaðar er bók sem heitir: Encyclopedia of things that never were." Í þessari bók sýnist mér að margt athyglisvert sé og kannski skýri ég hér frá einhverju af því hérna. Auk þess fékk ég nýtt hefti af Söguþáttum landpóstanna og margt fleira.
Einnig fékk ég lánaða bókina: Skáklist" sem listasafn Reykjavíkur gaf út árið 2009 í tilefni af sýningu sem þar var haldin. Þar eru myndir af mörgu athyglisverðu sem skák snertir en ekki er víst að ég geti mikið um þá bók hér. Afritun er með öllu bönnuð.
Þegar ég var yngri fannst mér ég geta allt. Ástæðan fyrir því að ég var ekki á þingi og ekki í ríkisstjórn var aðallega að sjálfsögðu sú að ég nennti því ekki og kærði mig ekki um það. Svo var málið þannig vaxið ennfremur að aðrir sáu ekki alltaf hæfileika mína enda var ég útsmoginn í að leyna þeim.
Þegar ég eltist og vitkaðist fann ég smám saman að aðrir vissu og gátu bara ýmislegt líka. Satt að segja voru þeir furðu margir. Nú á mínum efri árum finnst mér jafnvel að sumir standi mér framar. En það eru ekki margir.
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Efni
Tenglar
Blogg
- Áslaug Benediktsdóttir
- Harpa Hreinsdóttir
- Atli Harðarson
- Anna K. Kristjánsdóttir
- Erlingur Brynjólfsson
- Nanna Rögnvaldardóttir
- Þórunn Sigurjónsdóttir
- Susan Polgar
Skák
Ýmislegt
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
2006
Bloggvinir
- Anna Einarsdóttir
- Umsjónarmenn blog.is
- Egill Jóhannsson
- Róslín A. Valdemarsdóttir
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Sigríður Jósefsdóttir
- Arnþór Helgason
- Birgitta Jónsdóttir
- Lýður Pálsson
- Einar Sveinbjörnsson
- Gylfi Guðmundsson
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Villi Asgeirsson
- Sigurður Þór Guðjónsson
- Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson
- Egill Bjarnason
- Jóhann Björnsson
- Ólafur fannberg
- TómasHa
- Ágúst H Bjarnason
- Brjánn Guðjónsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Ragnheiður
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Magnús Helgi Björgvinsson
- Kári Harðarson
- Eiríkur Mörk Valsson
- Ragnhildur Sverrisdóttir
- Ridar T. Falls
- Konráð Ragnarsson
- Vefritid
- Svanur Sigurbjörnsson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Sveinn Ingi Lýðsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Pawel Bartoszek
- Haukur Nikulásson
- Bjarni Harðarson
- Eiður Svanberg Guðnason
- Ómar Ragnarsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- AK-72
- Sigurður Ingi Kjartansson
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Þórarinn Þ Gíslason
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Púkinn
- Lady Elín
- Kolbrún Baldursdóttir
- Jens Guð
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Hrannar Baldursson
- Jón Bjarnason
- Ár & síð
- Jón Ingi Cæsarsson
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Svavar Alfreð Jónsson
- Benedikt Henry Segura
- Marinó G. Njálsson
- Theódór Norðkvist
- Jón Ingvar Jónsson
- Gunnar Þórðarson
- Ólafur Fr Mixa
- Gíslína Erlendsdóttir
- Jóna Á. Gísladóttir
- Heimir Tómasson
- Guðmundur Pálsson
- Ólafur Ragnarsson
- gudni.is
- Guðbjörn Guðbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- G. Valdimar Valdemarsson
- Sigmar Þór Sveinbjörnsson
- Gestur Gunnarsson
- Óskar Þorkelsson
- Ylfa Mist Helgadóttir
- Kristinn Theódórsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Evrópusamtökin, www.evropa.is
- Lýður Árnason
- Brattur
- Marta B Helgadóttir
- Hallmundur Kristinsson
- Sigurður Hreiðar
- Eyþór Árnason
- Bergur Thorberg
- kloi
- Hjalti Tómasson
- Kristjana Bjarnadóttir
- Bjarni Sæmundsson
- Máni Ragnar Svansson
- Emil Hannes Valgeirsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Torfi Kristján Stefánsson
- Haukur Baukur
- Sverrir Stormsker
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Helga Kristjánsdóttir
- Loopman
- Einar B Bragason
- Erna Bjarnadóttir
- Ólafur "Tröllabarn" Georgsson
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Gísli Tryggvason
- Helgi Guðmundsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Þráinn Jökull Elísson
- Þorsteinn Briem
- Hjálmtýr V Heiðdal
- Himmalingur
- Ketill Sigurjónsson
- Sæmundur Bjarnason
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Bjarni Rúnar Einarsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Bókakaffið á Selfossi
- Guðni Karl Harðarson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson)
- Marteinn Unnar Heiðarsson
- Einar G. Harðarson
- Bloggrýnirinn
- kreppukallinn
- Jack Daniel's
- Guðjón Baldursson
- Már Wolfgang Mixa
- Dóra litla
- hilmar jónsson
- Hörður B Hjartarson
- Kristín Bjarnadóttir
- Arnþrúður Karlsdóttir
- Baldur Hermannsson
- Eygló
- Finnur Bárðarson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Loftslag.is
- Jón Daníelsson
- Elín Helga Egilsdóttir
- Helga Þórðardóttir
- Sigurður Grétar Guðmundsson
- Leikhópurinn Lotta
- Dúa
- Hulda Haraldsdóttir
- Kama Sutra
- Bjarni Kristjánsson
- Kristinn Theódórsson
- Blogblaster
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jóhanna Magnúsdóttir
- Andspilling
- Valmundur Valmundsson
- Dingli
- Kristinn Karl Brynjarsson
- Sigurður Einarsson
- Mathieu Grettir Skúlason
- Árni Matthíasson
- BookIceland
- FORNLEIFUR
- Guðbjörn Jónsson
- Högni Snær Hauksson
- Ingólfur Sigurðsson
- Stefán Júlíusson
- Þorsteinn Siglaugsson
Athugasemdir
"Hvað ef" sagan getur verið skemmtileg. Hvað ef Stalín hefði haldið áfram að læra til prests eins og móðir hans vildi, ef Hitler hefði orðið vinsæll listmálari eins hans hugur stóð til, ef Napóleon hefði sótt um inngöngu í breska sjóherinn eins og hann ætlaði, o.s.f.r.
Moggabloggið setti mikið niður þegar Davíð fór að vinna fyrir Morgunblaðið og hefur ekki borið sitt barr síðan. Bestu bloggararnir fluttu sig þá um set eða hættu að blogga. - Pólitískt raus er alveg að gera út af við það og aðeins hörðustu fréttabloggara-nátttröllin eru eitthvað lesin að ráði, nema auðvitað Áslaug sem ekki tilheyrir þeim hópi. - Samt gerir mbl.is held ég sitt besta til að viðhalda fjölbreytni bloggsins, en fréttatengingarmöguleikinn ræður mestu um lesendafjöldann yfirleitt.
Svanur Gísli Þorkelsson, 17.3.2011 kl. 08:41
Já og fréttatengingarmöguleikinn gerir blogginn hér í raun að athugasemdum. Já, Moggabloggið setti mikið niður þegar Davíð byrjaði en það er ekki víst að það sé eingöngu honum að kenna samt. Margt er enn gott við Moggabloggið og lesendafjöldinn skiptir ekki öllu.
Hvað ef Kastró hefði gerst körfuboltahetja eða Rússar ekki rekið Oswald heim aftur eða þú ekki komið aftur á Moggabloggið? Já það er gaman að þessu.
Sæmundur Bjarnason, 17.3.2011 kl. 10:19
Sennilega er það Smetta (Fésbók) sem hefur eyðilagt bloggið öðru fremur. Því miður er hún ekki fyrir sauði eins og t.d. mig. Ég skil hana ekki og get ekki séð út úr því sem við blasir hvernig á að nota hana -- allra síst svo komi að sama gagni og bloggið.
Hitt er annað mál að ég skil ekki hvers vegna menn fóru frá mblblogginu þó Davíð fengi vinnu hjá Óskari. Engu ræður Davíð um það hvernig eða hvort ég blogga og ég hygg að svo eigi við um ykkur hina líka. Vettvangurinn breyttist ekki vitundarögn þó afdankaður forsætisráðherra og seðlabankastjóri færi að vinna við prentmiðil sem engan veginn tengist þessum bloggvettvangi efnislega.
Sigurður Hreiðar, 17.3.2011 kl. 13:54
Sammála þér að flestu leyti, Sigurður. Hægt er þó að ímynda sér að Davíð gæti látið loka bloggum.
Fésbókin hentar greinilega sumum betur en blogg. Við því er ekkert að gera. En þeir sem ánægju hafa af bloggi ættu ekki að láta Davíð Oddsson eða Fésbókina letja sig við það. Það finnst mér einmitt að sumir hafi gert.
Sæmundur Bjarnason, 17.3.2011 kl. 14:32
Góð grein að venju. :)
Sjálfur held ég tryggð við Moggabloggið þar sem kerfið er afar þægilegt í notkun. Ég hef prófað fjölmörg kerfi og loks sætt mig best við þetta.
Engin pólitík í þessu hjá mér heldur og keppist eins og þú við að leyna hæfileikum mínum, sem þó sleppa óvart stundum í gegn einhversstaðar.
Hrannar Baldursson, 18.3.2011 kl. 00:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.