9.3.2011 | 00:25
1293 - Ofurlaun og fleira
Ótrúlega margir eiga erfitt með að sjá bloggið í réttu ljósi. Flestir þykjast vera betri en allir aðrir. Sjálfur er ég líka þannig. En ég er ekki eins orðljótur og sumir. Ekki eins mikið fyrir að þykjast vita allt um hrunið og ástæður þess. Ekki eins mikið fyrir að úthúða öllum ráðamönnum og ríkisstjórn. Ekki eins mikið á móti öllum sköpuðum hlutum. Þetta finnst mér allavega. En er það ekki bara einhver aumingjaskapur í mér? Langar mig ekki í rauninni til að vera eins og hinir? Og er ég ekki alltaf að agnúast útí fésbókina? Mest vegna þess að ég næ engum tökum á henni sjálfur. Þykist ég ekki vera yfir aðra bloggara hafinn?
Páll Vilhjálmsson og Jónas Kristjánsson eru báður fyrrverandi blaðamenn og núna snjallir bloggarar. Jafnvel með þeim öflugustu. Hnitmiðaður og stuttaralegur stíll er aðalsmerki beggja. Svolítið takmarkaðir samt því þeir blogga nær eingöngu um pólitísk málefni. Svo eru þeir hreint ekki sammála og hrikalega neikvæðir báðir tveir. Áhrifamiklir held ég samt að þeir séu.
Frá sjónarmiði okkar bloggara finnst mér þeir verstir sem lesa bæði bloggið og fésbókina villt og galið en nota hvert tækifæri sem býðst til að skíta fyrirbærin út. Kunna bara ekki að skrifa sjálfir en telja sjálfum sér trú um að þeir viti allt.
Og áfram með smjörið.
Fulltrúi bankasýslu ríkisins í stjórn Aríon-banka samþykkti launahækkun bankastjórans. Hann er fulltrúi ríkisins í stjórn bankans og þar með hefur ríkið samþykkt þennan gerning. Það þýðir lítið fyrir Jóhönnu Sigurðardóttur að vera forviða á þessu ef ekkert er gert með það. Steingrímur J. Sigfússon er sterki maðurinn í ríkisstjórninni og ef hann sér ekki til þess að þetta sé lagfært þá er hann að herða snöruna að eigin hálsi.
Beiti ríkisstjórnin sér ekki í Icesave-málinu bendir það til að hún ætli að sitja áfram þó frumvarpið verði fellt. Margt bendir til að mjótt geti orðið á mununum varðandi úrslit málsins. Verði málið fellt hefst sama vitleysan enn á ný. Ekkert bendir samt til að sambærilegur árangur náist að þessu sinni jafnvel þó takist að fá viðsemjendurna að samningaborðinu aftur sem ekki er með öllu útilokað. Í fyrra minnir mig að aðstæður hafi verið þannig að útilokað var að greiða atkvæði með frumvarpinu en nú sýnist mér það vera hægt.
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Efni
Tenglar
Blogg
- Áslaug Benediktsdóttir
- Harpa Hreinsdóttir
- Atli Harðarson
- Anna K. Kristjánsdóttir
- Erlingur Brynjólfsson
- Nanna Rögnvaldardóttir
- Þórunn Sigurjónsdóttir
- Susan Polgar
Skák
Ýmislegt
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
2006
Bloggvinir
- Anna Einarsdóttir
- Umsjónarmenn blog.is
- Egill Jóhannsson
- Róslín A. Valdemarsdóttir
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Sigríður Jósefsdóttir
- Arnþór Helgason
- Birgitta Jónsdóttir
- Lýður Pálsson
- Einar Sveinbjörnsson
- Gylfi Guðmundsson
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Villi Asgeirsson
- Sigurður Þór Guðjónsson
- Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson
- Egill Bjarnason
- Jóhann Björnsson
- Ólafur fannberg
- TómasHa
- Ágúst H Bjarnason
- Brjánn Guðjónsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Ragnheiður
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Magnús Helgi Björgvinsson
- Kári Harðarson
- Eiríkur Mörk Valsson
- Ragnhildur Sverrisdóttir
- Ridar T. Falls
- Konráð Ragnarsson
- Vefritid
- Svanur Sigurbjörnsson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Sveinn Ingi Lýðsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Pawel Bartoszek
- Haukur Nikulásson
- Bjarni Harðarson
- Eiður Svanberg Guðnason
- Ómar Ragnarsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- AK-72
- Sigurður Ingi Kjartansson
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Þórarinn Þ Gíslason
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Púkinn
- Lady Elín
- Kolbrún Baldursdóttir
- Jens Guð
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Hrannar Baldursson
- Jón Bjarnason
- Ár & síð
- Jón Ingi Cæsarsson
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Svavar Alfreð Jónsson
- Benedikt Henry Segura
- Marinó G. Njálsson
- Theódór Norðkvist
- Jón Ingvar Jónsson
- Gunnar Þórðarson
- Ólafur Fr Mixa
- Gíslína Erlendsdóttir
- Jóna Á. Gísladóttir
- Heimir Tómasson
- Guðmundur Pálsson
- Ólafur Ragnarsson
- gudni.is
- Guðbjörn Guðbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- G. Valdimar Valdemarsson
- Sigmar Þór Sveinbjörnsson
- Gestur Gunnarsson
- Óskar Þorkelsson
- Ylfa Mist Helgadóttir
- Kristinn Theódórsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Evrópusamtökin, www.evropa.is
- Lýður Árnason
- Brattur
- Marta B Helgadóttir
- Hallmundur Kristinsson
- Sigurður Hreiðar
- Eyþór Árnason
- Bergur Thorberg
- kloi
- Hjalti Tómasson
- Kristjana Bjarnadóttir
- Bjarni Sæmundsson
- Máni Ragnar Svansson
- Emil Hannes Valgeirsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Torfi Kristján Stefánsson
- Haukur Baukur
- Sverrir Stormsker
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Helga Kristjánsdóttir
- Loopman
- Einar B Bragason
- Erna Bjarnadóttir
- Ólafur "Tröllabarn" Georgsson
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Gísli Tryggvason
- Helgi Guðmundsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Þráinn Jökull Elísson
- Þorsteinn Briem
- Hjálmtýr V Heiðdal
- Himmalingur
- Ketill Sigurjónsson
- Sæmundur Bjarnason
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Bjarni Rúnar Einarsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Bókakaffið á Selfossi
- Guðni Karl Harðarson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson)
- Marteinn Unnar Heiðarsson
- Einar G. Harðarson
- Bloggrýnirinn
- kreppukallinn
- Jack Daniel's
- Guðjón Baldursson
- Már Wolfgang Mixa
- Dóra litla
- hilmar jónsson
- Hörður B Hjartarson
- Kristín Bjarnadóttir
- Arnþrúður Karlsdóttir
- Baldur Hermannsson
- Eygló
- Finnur Bárðarson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Loftslag.is
- Jón Daníelsson
- Elín Helga Egilsdóttir
- Helga Þórðardóttir
- Sigurður Grétar Guðmundsson
- Leikhópurinn Lotta
- Dúa
- Hulda Haraldsdóttir
- Kama Sutra
- Bjarni Kristjánsson
- Kristinn Theódórsson
- Blogblaster
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jóhanna Magnúsdóttir
- Andspilling
- Valmundur Valmundsson
- Dingli
- Kristinn Karl Brynjarsson
- Sigurður Einarsson
- Mathieu Grettir Skúlason
- Árni Matthíasson
- BookIceland
- FORNLEIFUR
- Guðbjörn Jónsson
- Högni Snær Hauksson
- Ingólfur Sigurðsson
- Stefán Júlíusson
- Þorsteinn Siglaugsson
Athugasemdir
Allir vitum vér ástæðu hrunsins, henni er að kenna að Bandaríkjamenn eyddu 3 trilljónum dollara í stríð sem ekkert hefur haft upp úr sér. Til að bjarga aðgangi að auðlindum sem eru í stöðugri niðurleið. Þeir tóku þetta fé úr sjóði Elli lífeyrisþega í Bandaríkjunum, og öðrum vafasömum viðskiptum sem studd voru með lánum frá Evrópu. Lánum, sem Íslendingar meðal annars voru handbendi við að "þvo". Þetta er stórfelld einföldun málsins, það veit ég vel ... en þetta er engu að síður grundvöllur hrunsins. Íslendingar voru bara heimskir, að "apa" eftir orð Georg Bush og gefa þar með högg á sér. Ísland er ekki Bandaríki Norður-Ameríku með stærsta kjarnorkuvopnabúr veraldar. Ísland er ekki eina landið sem getur leyft sér að hafa búðir sem pynta menn, og þurfa ekki að hafa áhyggjur af því að verða teknir fyrir alþjóðadómstól vegna brota gegn mankyninu. Það er enginn, sem hefur kjark, eða bein í nefinu, til að draga þá fram fyrir dómstól.
Það sem verst er af öllu, vinurinn, er ekki þetta að ofan heldur það að Íslendingar eru að hengja lamb fyrir sauð. Þeir eru að leita að einhverjum til að sekja að ósekju, til að kenna um málið ... eru að krossfesta menn. Íslendingar vissu allir með tölu, að féð var illa fengið en supu á ölinu, á meðan á borðinu stóð. Þegar ölið fór að þrjóta, fóru menn að kvarta ... ekki yfir að ölið var illa fengið, heldur yfir því að barþjónnin gat ekki staðið í skilaskiptum. Þetta er það óhuggulega við málið í heild sinni.
Það er þetta framar en öllu öðru, sem mun verða Íslandi að falli. Leyfðu mér að segja þér hvernig fer fyrir Íslandi í framtíðinni, úr því sem komið er málum. Ísland mun verða fyrir stórfelldum fjárfestingum, sem verða til stöðugs aðflutnings erlendra aðila. Bæði fjárhagsaðila, og atvinnu afls ... með tíð og tíma, verður erfiðara að fá vinnu fyrir ómenntað fólk. En þó svo þú hafir menntun, hefurðu ekki reynslu ... atvinna er ekki lengur trygg. Hver sem er, getur ekki lengur farið og fengið sér vinnu. Að 70 árum liðnum, er Ísland ekki lengur Íslendinga. Að sjálfsögðu munu sumir eiga fé út úr þessu, en auðæfi Íslands verða aldrei aftur einkaeiga Íslendinga ....
Og það skopulega er, að það er engir sturlungar til að berjast gegn þessu ... og að svona er einmitt launinn, sem veitt eru fyrir svik af þessu tagi.
Bjarne Örn Hansen 9.3.2011 kl. 13:31
Úps!! Ég bið forláts. JÁJ og Sigurður Einarsson eru semsagt lömb en ekki sauðir. Þetta hefði ég átt að sjá í hendi mér. Og allt er þetta bansettum útlendingunum að kenna.
Sæmundur Bjarnason, 9.3.2011 kl. 13:50
Auvitað veit ég að maður á ekki að gera athugasemd við athugasemd hjá öðrum,
en mikill blessaður eftirávitringur er þessi Bjarne Örn: „Íslendingar vissu allir með tölu, að féð var illa fengið…“
Miklir menn erum vér, sæmundur minn (viljandi sæmundur með litlum staf, svo þú takir þetta ekki persónulega!)
Sigurður Hreiðar, 9.3.2011 kl. 14:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.