1178 - Skák og stjórnlagaþing

Skilst að vesalingum þeim sem bjóða sig fram til þjónustu á stjórnlagaþinginu sé úthlutað 700 slögum (með bilum) til að koma boðskap sínum á framfæri í kynningarefni því sem dreift verður. Þetta er ekki langt. Ætli hvert og eitt blogg hjá mér sé ekki meira en 700 slög. Þegar búið verður að margfalda þetta með 500 held ég samt að þetta verði svo langt að enginn nenni að lesa ósköpin. Mogginn setur engin svona takmörk á okkur stórhausana. Við megum rausa eins mikið og okkur lystir og reyndar allir Moggabloggarar. Sumir gera það líka svikalaust.

Margt má um trúboð í skólum segja. Sumir rífast um slíkt núna af mikilli hind. Umræða sem þessi blossar alltaf upp öðru hvoru og meðan ríkiskirkja er við lýði má alltaf búast við því. Það er langt frá því að ég sé sérfræðingur í þessum málum þó ég hafi einhverntíma verið formaður foreldrafélags. Auðvitað drap ég það foreldrafélag og hélt aldrei fundi í því en það er önnur saga. Ef einu trúfélagi er veitt sérstök aðstaða í skólastarfi í andstöðu við einhvern hluta foreldra þeirra barna sem aðstöðunnar eiga að njóta finnst mér að stjórnendur skólans eigi að stöðva slíkt og gæta jafnræðis. Samanburður við íþróttafélög er ekki sannfærandi. Auðvelt er um þetta að tala en verið getur að erfiðara sé í að komast. Ef trúfrelsi á að ríkja í landinu ber að virða það.

Dreymdi í nótt sem leið að ég væri að stjórna hraðskákmóti. Mér þótti ég vera á ferðalagi með fjölda fólks og við þurftum að bíða heillengi. Vorum í einhverjum sal þar sem fullt var af töflum og klukkum og ég tók að mér að stjórna hraðskákmóti. Umferðatöflur fann ég en erfiðlega gekk með stjórnina. Vissi aldrei almennilega hverjir voru með og hverjir ekki. Þekkti ekki alla. Útlendingar voru þarna og ég óviss á framburði nafnanna og stafsetningu. Menn að hætta og bætast við og allt í rugli. Áhorfendur voru allmargir og teflendur gjarnan á meðal þeirra. Krakkar voru þarna fjölmargir og fólk að reyna að skemmta þeim með allskyns dóti.Varð á endanum öskureiður út af sífelldum truflunum og reyndi að reka mestu truflanavaldana út. Eftir 2 eða 3 umferðir var allt í tómri vitleysu og þá vaknaði ég sem betur fór því annars hefði ég verið í meiriháttar vandræðum. Fékk mér kaffi og svefntöflu, settist aðeins við tölvuna, og fór svo aftur að sofa.

Ástæðan fyrir þessu var eflaust sú að ég var búinn að skrá mig á hraðskákmót úti í Viðey. Þangað fór ég svo eftir hádegi og þar gekk stjórn mótsins mun betur enda kom ég þar hvergi nærri. Taflmennskan hjá mér var alveg sæmileg og ég held að ég hafi fengið 50% vinninga. Meðal keppenda voru margir fyrrverandi Íslandsmeistarar og mótið var bara fyrir eldri borgara og líklega fyrsta alvarlega skákmótið sem haldið er í Viðey.

IMG 3518Bær hjá húsi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Grefill

Hvað skyldi Draumaráðningabókin segja um hvað í vændum er fyrir þá sem dreymir að þeir séu stjórnendur á hraðskákmóti?

Mig grunar að það þýði að framundan séu talsverðar flækjur, fingurbrjótar og jafnvel mát. Spurning hver mátar hvern.

Grefill, 23.10.2010 kl. 09:11

2 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Ég á engar draumráðningarbækur lengur og er búinn að afskrifa forspárgildi drauma!!

Sæmundur Bjarnason, 23.10.2010 kl. 11:39

3 Smámynd: Grefill

Nú, jæja ... blog.is og Árni Matt lokuðu síðunni minni aftur. Manstu eftir að það standi einhvers staðar í reglunum að blog.is loki á menn vegna skoðana og persónulegrar óvildar starfsmanna?

Grefill, 23.10.2010 kl. 12:38

4 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Hva..? Þá hlýt ég að hafa misst af einhverju. Varstu að angra einhverjar heilagar kýr núna? Kannski nýt ég einhverrar sérstakrar blessunar Moggabloggsguðanna þó mér finnist ég alltaf vera að angra þá. Hef bara ekki lesið bloggið þitt undanfarið frekar en annarra.

Sæmundur Bjarnason, 23.10.2010 kl. 12:43

5 Smámynd: Grefill

Nei, nei, var engan að angra. Það var bara opnað á mig fyrir tveimur dögum og ég hélt að blog.is hefði séð að sér enda hafði ég ekkert til saka unnið. En svo lokuðu þeir aftur áðan.

Grefill, 23.10.2010 kl. 13:11

6 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Nú, svoleiðis. Kannski hafa þeir bara opnað óvart. Blog.is sér aldrei að sér því þeir gera aldrei neitt rangt.

Sæmundur Bjarnason, 23.10.2010 kl. 15:05

7 identicon

Sæmundur hvað áttu við með "vesalingar" ?

Egill Þorfinnsson 23.10.2010 kl. 16:36

8 Smámynd: Sigurður Hreiðar

Er það jafnræði ef foreldrar 20 barna af 100 eiga að fá að skemma fyrir hinum 80?

Sigurður Hreiðar, 23.10.2010 kl. 17:58

9 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Skemma hvað, Sigurður? Ég er hræddur um að þegar rifist er um skólastarf og trúmál þurfi að gæta sín vel. Engin tvö tilfelli eru eins.

Sæmundur Bjarnason, 23.10.2010 kl. 18:23

10 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Egill, við nánari athugun sýnist mér þetta orð vera einkum til áherslu. Ég vorkenni þó mönnum sem bjóða sig fram til setu á stjórnarskrárþingi að útskýra sín mál svo fullnægjandi sé með 700 stöfum og orðabilum. Það finnst mér lítið. Þessa tölu 700 hef ég frá Stefáni Pálssyni en veit ekki hvort hún er rétt.

Sæmundur Bjarnason, 23.10.2010 kl. 18:28

11 Smámynd: Sigurður Hreiðar

Það er skemmd fyrir þeim sem kunna að meta það sem kristnin boðar, mannkærleika og fyrirgefningu, að hefta aðgang þeirra að því. Fá ekki að syngja Ó Jesú bróðir besti með bekknum sínum eða gleyma sér í Heims um ból og njóta boðskapar jólanna, jafnvel á litlu jólunum. Fá ekki að skynja helgi. Engin tvö tilfelli eru eins, segir þú, dálítið eins og véfrétt. Hvað meinarðu með því?

Sigurður Hreiðar, 24.10.2010 kl. 13:45

12 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Ég meina einfaldlega það, að tilfelli það sem þú sérð í huga þér (og lýsir fjálglega) er ekki eins og það tilfelli sem ég sé fyrir mér þegar rætt er um trúboð í skólum. Heldur er ekki víst að eins sé tekið á tilfellum (í mismunandi skólum) sem utanfrá séð eru nákvæmlega eins og þarmeð eru þau ekki lengur eins.

Sæmundur Bjarnason, 25.10.2010 kl. 00:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband